Dagur - 18.09.1999, Page 4

Dagur - 18.09.1999, Page 4
20 LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ SALA ÁSKRIFTARKORTA STENDUR YFIR. Innifaldar í áskriftarkorti eru 6 sýningar: 5 sýningar á Stóra sviðinu: • KRÍTARHRINGURINN í KÁKASUS • GULLNA HUÐIÐ • KOMDU NÆR • LANDKRABBINN • DRAUMUR Á JÓNS- MESSUNÓTT 1 eftirtalinna sýninga að eigin vali: • GLANNI GLÆPUR í SÓLSKINSBÆ •FEDRA • VÉR MORÐINGJAR • HÆGAN, ELEKTRA • HORFÐU REIÐUR UM ÖXL eða sýningar frá fyrra ári: • ABEL SNORKO BÝR EINN • TVEIR TVÖFALDIR • RENT • SJÁLFSTÆTT FÓLK / BJARTUR OG ÁSTA SÓLLILJA Auk þess er kostagest um boðið á söng- skemmtunina • MEIRA FYRIR EYRAÐ. Almennt verð áskriftarkorta er kr. 9.000,- Eldri borgarar og öryrkjar kr. 7.800,- Fyrstu sýningar á leikárinu: Sýnt á Litla sviði ki. 20:00 ABEL SNORKO BÝR EINN - Eric-Emmanuel Schmitt í kvöld 18/9 - fös 24/9 - sun 26/9 - takmarkaður sýningarfjöldi Sýnt í Loftkastala kl. 20:30 RENT (Skuld) söngleikur - Jonathan Larson - í kvöld 18/9 - fös 24/9 -takmark- aður sýningarfjöldi Sýnt á Stóra sviði kl. 20:00 TVEIR TVÖFALDIR - Ray Cooney - lau 25/9 Miðasalan er opin mánud.-þriðjud. kl. 13-18, miðvikud.-sunnud. kl. 13- 20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Sími 551 1200 www.leikhusid.is - nat@theatre.is Tarsan aö eilífu Ein lífseigasta skáldsagnaper- sóna tuttugustu aldarinnar er án efa Tarsan apa- bróðir. Hátt í níu áratugir eru Iiðn- ir síðan Tarsan kom fyrst á prent. I kjölfarið fylgdu fjölmarg- ar sögur um þennan konung frumskógarins, en síðan teikni- myndir og kvikmyndir sem enn ganga víða um heim í afþreying- arvél Hollywood. Og sögurnar sjálfar koma út með harla reglu- Iegu millibili á fjölmörgum tungumálum - alls í um 50 millj- ónum eintaka. Höfundur Tarsan-bókanna var bandarískur - Edgar Rice Burroughs. Honum hafði mis- tekist margt í lífinu áður en hann tók til við að semja sögur. Sjálfur sagði hann svo frá, að eitt sinn þegar hann var staur- blankur hafi hann farið að Iesa í einu þeirra fjölmörgu spennu- sagnatímarita sem voru afar vinsæl í Bandaríkjunum á fyrri hluta aldarinnar. Hann sann- færði sjálfan sig um að hann hlyti að geta sett saman betra „rusl“ en það sem blöðin höfðu uppá að bjóða, fór að skrifa og sló í gegn með þriðju sögu sinni - Tarzan of the Apes. Vörumerkjasali Þess er að vænta að Tarsan muni halda nafni Burroughs á lofti um langa framtíð. Ekki vegna bókmenntagildis sagn- anna, heldur fyrst og fremst BÓKA- HILLAN Elías Snæland Jónsson ritstjóri vegna vinsælda þeirra og víðtækra áhrifa. Tarsan telst þannig til þeirra tiltölulega fáu sögupersóna sem eru kunnar meðal almennings í gjörólíkum menningarsam- félögum. Burroughs leit aldrei á sig sem „alvöru" rithöfund, þótt hann skrifaði fjöldan allan af sögum - ekki bara um Tarsan heldur margar aðrar persónur sem lentu { stór- brotnum ævintýrum ýmist á jörðinni eða á öðrum plánet- um svo sem Mars. Um hug- myndauðgi hans má lesa í bókinni „The Burroughs Cyclopaedia" eftir Clark A. Brady. Hann var hins vegar fjár- málamaður sem kunni mun betur að nýta sér vinsældir verka sinna en venja var um höfunda á þeim tíma. Hann varð fyrstur rithöfunda til að stofna hlutafélag um sjálfan sig og verk sín, og snjall að selja nafnið Tarsan og önnur „vörumerki“ til framleiðenda alls konar varnings. Slíkt var óþekkt fyrir hans tíð, jafnvel í Bandaríkjunum þar sem sölumennska var þó í háveg- um höfð. Enda gerði Tarsan hann forríkan á skömmum tíma. Fjölbreyttur ferill Um þetta allt má lesa í ævisög- um sem skrifaðar hafa verið um líf og starf Burroughs. Sú nýjas- ta heitir „Tarzan Forever: The Life of Edgar Rice Burroughs" og er eftir John Taliaferro. Þar kemur í ljós að höfundur Tars- ans átti að baki afar fjölbreyttan feril áður en hann snéri sér að ritstörfunum. Hann fæddist 19. mars árið 1875 í Chicago, fimmti sex systkina. Hann var settur til mennta og stundaði kennslu um hríð eftir útskrift úr her- skóla í Michigan. Síðan gekk hann í bandaríska herinn og elt- ist við indíána í Arizona. Að lok- inni herþjónustu varð hann kúreki á búgarði bróður síns í Idaho. Næstu árin fékkst hann við margvísleg störf, þar á með- al sölumennsku og gullleit. Um svipað Ieyti gekk hann í hjóna- band; kvæntist æskuvinkonu sinni Emmu Hulbert. Svo fór að lokum að Burroughs ákvað að reyna fyrir sér með eigin rekstur í Chicago, en það gekk hörmulega. Hann auglýsti vörur sínar í vinsælum tímaritum og kíkti á sögurnar um leið og hann skoðaði auglýs- ingar sínar. Honum fannst þær lélegar og ákvað að reyna sjálfur að gera betur. Þegar „Tarzan of the Apes“ birtist árið 1912 var hann kominn á rétta hillu. Burroughs var mjög afkasta- mikill og allt sem hann skrifaði seldist. Fyrir peningana keypti hann búgarð í Kaliforníu og kallaði Tarzana. En þótt hann græddi heil ósköp af peningum tókst honum ekki að halda vel á þeim. Einkalífið gekk einnig erfiðlega; þegar Emma skildi við hann kvæntist Burroughs aftur, en það hjónaband rann einnig út í sandinn. Fram kemur í nýju ævisög- unni að Burroughs var haldinn margvíslegum fordómum, ekki síst gagnvart fólki af öðrum kynþáttum en hinum hvíta. Hann var alla tíð hrifinn af her- mennsku og gerðist stríðsfrétta- ritari í síðari heimsstyrjöldinni. Hann andaðist árið 1950. Óútreiknanleg kynhvatastúdía SUM SÉ: Myndin er skrambi góð og Cruise og Kidman einlæg og nærgöngul. Cruise með sinn eilífðar gaggóhetjusvip er vandræðalegur og hrekklaus en kann þó að bíta á jaxlinn svo úr verður karlmannlegur kjálkasvipur og Kidman er afar sjarmerandi fyrir utan fáeinar senur þar sem meðvitaður varasvipurinn verður óþarflega útstæður. ★ ★ ★ i EYES WIDE SHUT (ísl. gæti verið: Gal-Iokuð augu)sýnd í SAM-bíóunum Leikstjóri: Stanley Kubrick Aðalhlutverk: Tom Cruise, Nicole Kidman, Sydney PoIIack, Marie Richard- son, Leelee Sobieski og Rade Sherbediga. Karlar hugsa um kynlíf á 6 mín. fresti, eða þar um bil segja rannsóknir. En konur eru ekki svoleiðis. Þær eru að upplagi dyggðugar, kannski síður af líf- eðlisfræðilegum ástæðum, heldur fremur vegna þróunar kvendýrsins í þúsundir ára sem næringarmóðir og verndari af- kvæma og þeirri afleiddu nauð- syn að vera trú karldýrinu er færir björg í bú. Einhvern veg- inn svona hljómar „cos- mopólítönsk" kynjamynd Bills Harfords Iæknis (Tom Cruise) í hinstu kvikmynd Stanleys Kubricks, en bíórýnir lagði Iand undir fót til að sjá hana á for- sýningu á fimmtudagskvöldið í Nýja bíó í Keflavík. Eiginkona stingur á belginn Harford læknir og eiginkona hans Alice (Nicole Kidman) fá sér að reykja saman eitt kvöldið og þegar víman svífur á þau leiðast hjónin út í samræður um kynhvötina. Bill lýsir ofan- greindri hugmynd sinni um kynjamismun kynhvatarinnar, á afar fínlegan hátt, og Alice ályktar að það eina sem aftri honum frá því að ota sínum tota í hverja þá konu sem löngunin rís til - sé tillitssemi við eigin- konuna (en ekki vegna þess að löngunin takmarkist við eigin- konuna). Þannig, segir Bill, eru karlar skapaðir. Ekki konur. Alice er nú ekki tilbúin að kyngja þessari greiningu læknisins, stingur á blöðruna og út vellur fantasía sem hún átti um ungan óþekktan sjóliðsforingja, en hún hefði verið reiðubúin að fórna eiginmanni og dóttur fyr- ir eina nótt með sjóliðsforingj- anum stælta. Læknirinn lyppast niður við þessa uppljóstrun um kynhvöt konu sinnar og tekst á hendur næturreisu um afkima kynlífsins. Heiðarleg krufning Þessi mynd er heiðarlegasta krufning á kynhvötinni sem lengi hefur sést. Kubrick fer ekki hratt yfir sögu, frekar en vanalega, en það angrar aldrei. Hún fer þó heldur ankannalega af stað; í glæsilegu jólaboði Iáta konur eins og yxna beljur, reigja höfuð og ráða illa við frygðar- kippi sem sveigja líkama þeirra í undarlegum bylgjum. Það und- arlegasta er þó að þessi mynd, ein fárra mynda sem ætlar af einurð og alvöru að kryfja kyn- langanir fullorðins fólks, er sneydd öllum losta, öllum svita, allri dýrslegri hvatvísi. Rétt eins og lostinn týndist í Lólítu-út- gáfu Kubricks. Það örlar jafnvel á predikunartóni í því hvernig samfarir (hvort sem það eru nú hópreiðir, framhjáhöld eða hjón að elskast) eru settar fram í Eyes Wide Shut, sem væru þær hluti af tískusýningu þar sem menn hjakkast tiginmannlega í ópersónulegum og köldum „plonk-plonk" samförum. En um leið er myndin laus við klisj- ur og svo manneskjuleg að hvarmar verða þrútnir eftir grát, fólk verður vandræðalegt í óþægilegum kringumstæðum og það er aldrei gripið til ódýrra Iausna til að sneiða hjá mót- sagnarkenndu eðli mannskepn- unnar. Sem gerir myndina það sem maður alltaf þráir en fær sjaldnast svalað í bíó: óútreikn- anlega. KVIK- MYNDIR

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.