Dagur - 18.09.1999, Qupperneq 15
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 - 31
LÍF OG STÍLL
Frakkar alltaf
klassískir
Hettur verda áberandi í vetrartískunni.
MYND ÚR BERTONI-BÆKUNGI
Efskoðað eríglugga herrafata-
verslana þá má sjá að stuttir, grófir
ullarfrakkarverða ríkjandi í vetur.
Einnig eru menn mikið í úlpum eða
stökkum. Það eru margirstílarí
gangi enda verða tískuverslanir að
hafa eitthvaðJyriralla.
Vetrartískan er gróf, karlmenn klæðast grófum
buxum og grófum peysum. Þá er eins gott að
vera með góða húð sem þolir ull. Það er tölu-
vert um loðna þykka ullarfrakka. Frakkinn er
meira notaður sem yfirhöfn og þá eru menn
helst í peysu undir honum. Verslunarstjóri í
tískuverslun á höfuðborgarsvæðinu sagði að
einnig væru menn farnir að ganga í úlpum sem
væru „uppfærðar". Fjölbreytnin réði ríkjum en
fötin væru mjög stílhrein. Ullarflíkurnar væru
heitastar, gróft og grátt er málið.
Stuttir og millisíðir frakkar eru áberandi.
MYND ÚR BERTONI-BÆKLINGI
Grátt, grátt, grátt, svart og aftur grátt
Ragnar Sverrisson rekur tvær tískuverslanir á
Akureyri sem eru hlið við hlið. Þetta eru versl-
anirnar Joe’s ogJMJ. „Joe’s er hugsuð meira fyr-
ir yngri menn. Hún er svona meira „casual",
eins og maður segir. JMJ er meira fyrir eldri
herramenn."
Þó að stuttir ullarfrakkar séu helst í tísku er
alltaf svolítið um að menn séu í leðurjökkum.
Þeir eiga helst að vera svartir eða gráir. Ragnar
segir að stakkar eða blússur verði einnig áber-
andi í vetur. Þeir eru þá með hettu. Það er líka
mikið um að yngri menn gangi í anorökkum.
„Helstu litirnir eru grátt, grátt, grátt, grátt, svart
og aftur grátt. Svo erum við mikið með yfir-
hafnir úr vinylefnum. Þær eru þá úr bómull og
polyester en gjarnan húðaðar, það gerir það að
verkum að þær eru vatnsheldar.11
I nánast öllum fatnaði er grátt ríkjandi. Meira
að segja skyrtur og bindi eru í þessum gráu lit-
um. Undanfarið hefur það verið þannig að
menn kaupa sér svört föt, svarta eða dökkgráa
skyrtu og svart eða dökkgrátt bindi og eru síðan
í gráum eða svörtum ullarstakk yfir. Ragnar seg-
ir að þó farið sé að bera á því að litir séu að
koma inn aftur. Menn séu þá kannski í rauðum
bolum eða það sé pínulítið rautt í peysunum.
„Svo seljum við alltaf eitthvað af síðum frökk-
um. Þeir eru fínni, en mesta salan er í þessum
hálfsíðu frökkum sem ná rétt niður að hnjám."
-r
Helstu litirnir eru grátt og svart, en þó ganga menn í bolum eða
peysum sem eru með áberandi litum i
MYND ÚR BERTONI-BÆKUNGI
Fyrir unga og aldna
„Góður ullarfrakki er alltaf gulls ígildi," segir Kor-
mákur Geirharðsson, annar eiganda herrafata-
verslunar Kormáks og Skjaldar. „Það er líka mikið
um loðfóðraða jakka. Það er það sem við Ieggjum
helsta áherslu á. Enda erum við með fatnað sem
er mjög Idasssískur. Við keyrum á sígildum litum.
Það er dökkblátt og svart. Það er líka talsvert hjá
okkur af fatnaði sem maður myndi kalla kamellit-
aður. Einnig erum við með svolítið af kasmírjökk-
um.
Kormákur segir að vetararfatnaðurinn sé þessa
dagana að koma í búðina. „Þetta er allt þetta
nýjasta og fínasta. Það eru millisíðir frakkar sem
við höfum mest dálæti á. Það eru frakkar sem ná
rétt um hné, það eru flíkur sem bæði má nota
fínt og hvunndags. Það sem við pöntum nýtt er
flest allt í anda þess sem við höfum fengið ein-
hvern tíma „second hand“. Það er voða lítið um
sportlegan fatnað hjá okkur. Það er frekar að það
séu æpandi munstur en sportlegt er ekki rétta
orðið.
Við leggjum mesta áherslu á að minnka kyn-
slóðabilið. Við erum með fatnað sem bæði feður
og synir geta keypt jöfnum höndum. Við erum
með fatnað sem gæti bæði ldætti eldri manninn
og svo unga manninn. Okkar kúnnahópur er til-
tölulega ungur en svo koma hingað inn stöku
sinnum eldri menn sem eru að kaupa nákvæm-
lega sama fatnað og þeir ungu.“
„Góður ullarfrakki er alltafgulls ígildi, “segir Kormákur Geirharðsson, eigandi
tískuverslunnarinnar Kormáks og Skjaldar. mynd e.ól.
Ferðamálaráð íslands
FERÐAMALA-
ráðstefnan (1
verður haldin að Hótel Valskjálf
W «
á Egilsstöðum dagana 7. og 8. október nk.
Megin þemu ráðstefnunnar verða:
► Gildi rannsókna fyrir ferðaþjónustu sem
atvinnugreinar
íí* Hvað stendur í vegi fyrir aukinni arðsemi
ferðaþjónustufyrirtækja?
Vöruþróun í ferðaþjónustu
Nánar auglýst síðar
►
►
Ráðstefnugjald kr. 6.000-
Skráning og nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Ferðamálaráðs (slands á Akureyri í síma 461 2915.
Einnig er hægt að skrá sig á netfanginu: uppl@icetourist.is
►
►
Skráning í gistingu er á Upplýsingamiðstöðinni á
Egilsstöðum í síma 471 2320
Sérfargjöld hjá flugfélögunum
- PJESTA