Dagur - 28.09.1999, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 19 99 - 5
FRÉTTIR
SÍF-ÍS stærsta
fyrirtæki landsins
Verði af sameiningu
SÍF og ÍS verður til
stærsta einkafyrir-
tæki landsins með 11111
50 milljarða króna
veltn. Verðbréfaþing
kannar orðróm um
óeðlileg viðskipti með
ÍS-bréfin.
Talið er nær öruggt að tilkynnt
verði í dag um sameiningu fisk-
sölufyrirtækjanna IS og SÍF, það
er íslenskra sjávarafurða og Sölu-
sambands ísienskra fiskframleið-
enda. Viðskipti með bréf félag-
anna voru stöðvuð á Verðbréfa-
þingi í gærmorgun og þar tilkynnt
að von væri á „frétt“ að Ioknum
stjórnarfundum fyrirtækjanna
sem fara fram á sama tíma, eða
kl. 11 í dag. Verði af þessari sam-
einingu verður til stærsta fyrir-
tæki landsins en samanlögð velta
þeirra á síðasta ári nam um 50
milljörðum króna.
Svo virðist sem orðrómur um
þessa sameiningu hafi kvisast út
Friörik Pálsson stjórnarformaður SÍF.
fyrir helgi því hlutabréf ÍS hækk-
uðu verulega í verði og viðskipti
voru þónokkur á fimmtudag og
föstudag. Alla sfðustu viku var
gengið að hækka, eða úr 1,92 í
2,48 þegar viðskiptin voru stöðv-
uð í gærmorgun. Hækkunin
nemur tæplega 30%. Bara í þess-
um mánuði hafa bréfin hækkað
um 38%. A sama tíma gekk gengi
SÍF-bréfanna upp og niður, fór
hæst í 6,27 sl. þriðjudag en end-
aði í 6,20 á föstudaginn. Lítil við-
skipti voru þar á bakvið. Miðað
við núverandi gengi er mark-
aðsvirði fyrirtækjanna beggja 9,2
Ólafur Ólafsson sjtórnarformaður ÍS.
milljarðar sem myndi gera sam-
einað félag hið níunda verð-
mætasta á Verðbréfaþingi, sam-
kvæmt útreikningum Viðskipta-
blaðsins.
Verðbréfaþing mun hafa tekið
til sérstakrar skoðunar þau við-
skipti sem áttu sér stað með ÍS-
bréfin í síðustu viku. Stefán Hall-
dórsson, framkvæmdastjóri
þingsins, vildi í samtali við Dag
hvorki játa því né neita að verið
væri að skoða þessi viðskipti. Al-
mennt væru nánast daglega til
skoðunar mildar verðbreytingar
hjá hlutafélögum og fregnir af af-
komu þeirra og rekstri. Þess má
geta að sl. fimmtudag barst Verð-
bréfaþingi tilkynning um að inn-
herji í ÍS hefði þann dag keypt
bréf í félaginu að andvirði 500
þúsund króna eða fyrir rúma 1
milljón. Onnur innherjaviðskipti
hafa ekki verið tilkynnt.
Undir sama þaki
Afkoma ÍS hefur sem kunnugt er
verið afar slök síðustu misseri og
fyrirtækið tapað um 1 milljarði
króna í rekstri sl. tveggja ára. Til
að grynnka á skuldum hefur mik-
il eignasala farið fram, meðal
annars á höfuðstöðvunum við
Sigtún, og nýverið keypti ÍS hæð
undir starfsemi sína í Hafnar-
firði, í sama húsi og höfuðstöðvar
SÍF eru. Þykir þetta enn frekar
hafa ýtt undir orðróm um sam-
einingu fyrirtækjanna.
Með tilkomu Finnboga Jóns-
sonar, fyrrum forstjóra Síldar-
vinnslunnar, í forstjórastól IS fyrr
á þessu ári hefur gríðarleg upp-
stokkun farið fram hjá fyrirtæk-
inu. Er talið að hugmynd um
sameiningu hafi komið frá hon-
um eftir að hann hafði kynnt sér
reksturinn náið. - BJB
Sameina
og selja svo
í viðtali í
nýjasta tölu-
blaði SÍB-
blaðsins, mál-
gagni banka-
starfsmanna,
segist Finnur
Ingólfsson við-
skiptaráðherra
vera þeirrar
skoðunar að
sameina eigi
ríkisbankana og að því loknu
komi til greina að selja þá.
„Okkur sem ríkisvaldi ber
skylda til að hámarka þessi verð-
mæti eins og nokkur kostur er.
Eg held að það sé rétt að með því
að fara út í ákveðnar hagræðing-
araðgerðir, sem geta m.a. falist í
því að auka samstarf milli Iána-
stofnana og sameina Iánastofn-
anir o.s.frv., geti það leitt til þess
að verðmæti þeirra bréfa sem
ríkið á í þessum eignum muni
aukast. Ein leið í þvi er auðvitað
að sameina Búnaðarbanka og
Landsbanka, en það má draga
upp margar aðrar myndir í því
sambandi. Það má Iíka ímynda
sér að ríkisbanki sameinist
einkabanka eins og íslandsbanka
eða sparisjóðunum. Eg er þeirrar
skoðunar að við aukum verð-
mæti þessara eigna með því að
stíga slík hagræðingarskref fyrst
og fara síðan í sölu,“ segir Finn-
ur m.a. í blaði bankamanna.
- BJB
Finnur Ingólfsson,
viðskiptaráðherra
Etnn karlmaður
og 27 konur
Dagur birtir lista yfir
íslenska þátttakendur
á ráðstefnunni um
konur og lýðræði.
Listinn yfir formlega þátttakend-
ur af íslands hálfu á alþjóðlegu
ráðstefnunni Konur og lýðræði
um þarnæstu helgi inniheldur
nú 28 nöfn, en þar af eru 27
konur og einn karl. Upprunalega
var reiknað með 15 íslenskum
þátttakendum, en sú tala hefur
tæplega tvöfaldast.
Karlmaðurinn í hópnum er
Olafur Þ. Stepensen frá karla-
nefnd Jafnréttisráðs. Aðrir full-
trúar sem beint eru kenndir við
jafnréttismál eru: Elsa Þorkels-
dóttir og Stefanía Traustadóttir
frá Jafnréttisráði, Helga Guðrún
Jónasdóttir frá Skrifstofu jafn-
réttismála, Rán Jónsdóttir, jafn-
réttisnefnd Landsvirkjunar, Arn-
fríður Guðmundsdóttir frá jafn-
réttisnefnd Þjóðkirkjunnar, Erna
Arnardóttir, jafnréttisfulltrúi
ÓlafurÞ. Stephensen, eini karlmaður-
inn sem verður fulltrúi íslands á ráð-
stefnunni.
Landssímans og Hjördís Hákon-
ardóttir héraðsdómari frá Kæru-
nefnd jafnréttismála.
Aðrir þátttakendur eru: Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri, Sólveig Pétursdóttir
dómsmálaráðherra, Aslaug
Brynjólfsdóttir, fyrrverandi
fræðslustjóri, Hildur Jónsdóttir,
jafnréttisfulltrúi Reykjavíkur-
borgar, Þorbjörg I. Jónsdóttir frá
Kvennaráðgjöfinni, Jóhanna
Rósa Arnardóttir, sérfræðingur á
Hagstofu Islands, Jónína Bjart-
marz frá Konum í atvinnulífinu,
Valgerður H. Bjarnadóttir frá
Menntasmiðju kvenna Akureyri,
Stefanía Oskarsdóttir Iektor,
Sólveig Jakobsdóttir, Kennara-
háskóla íslands, Guðbjörg Linda
Rafnsdóttir frá Vinnueftirliti rfk-
isins, Asdís G. Ragnarsdóttir og
Hansína B. Einarsdóttir frá
Skrefi fyrir skref, Guðrún Pét-
ursdóttir frá Nýsköpunarsjóði at-
vinnulífins, Hildur Helga Gísla-
dóttir frá nefnd um aukinn hlut
kvenna í stjórnmálum, G. Stella
Gissurardóttir frá At-konum,
Rannveig Traustadóttir prófess-
or, Hulda Dóra Styrmisdóttir frá
Fjárfestingarbanka atvinnulífs-
ins, Helga Stefáns Ingvarsdóttir
frá Icelandic Overseas Business
Service í Bandaríkjunum og
Tinna Arnardóttir, sem tilheyrir
Bríetar-hópi ungra feminista.
- FÞG
Vildu sjá aðstoðarkonur
Um leið og Landssamband fram-
sóknarkvenna fagnar því að konur
og karlar skipta nú jafnt með sér
ráðherrastólum Framsóknar-
flokksins þá lýsti Iandsþing þeirra
yfir vonbrigðum með það að eng-
inn af hinum sex framsóknarráð-
herrum skuli hafa valið sér konu
sem aðstoðarmann, og þannig
sniðgengið fjölda hæfra kvenna
sem flokkurinn hafi á að skipa til
starfans. Ahersla er lögð á að
nefnd sem ætlað er að íjalla um
innra starf og stefnumótun
flokksins verði jafnt skipuð kon-
um og körlum.
Landsþingið, sem vegna
„Kötlu-skjálfta“ var haldið var f
Hraunholti í Hafnarfirði, í stað
Vfkur í Mýrdal, samþykkti Ijölda
ályktana. Meðal annars er skorað
á stjórnvöld að huga betur að
stöðu innflytjenda og tryggja rétt-
arstöðu þeirra, s.s. með því að
koma á fót stöðu sérstaks tilsjón-
armanns. Framsóknarkonur
leggja áherslu á mikilvægi þess að
lengja fæðingarorlof beggja for-
eldra og sveigjanlegan vinnutíma.
Þær hafna því verðmætamati sem
lýsi sér í lágum launum starfs-
stétta í uppeldis- og umönnunar-
störfum, en hvetja um leið stjórn-
völd, sveitarfélög, fyrirtæki og
einstaklinga til aukins aðhalds og
sparnaðar í rekstri, til að vinna
gegn vaknandi verðbólgudraug.
- HEI
Göngugata endurskoðuð
Skipulagsnemd Akur-
eyrarbæjar hefur
ákveðið að fela Arki-
tektastofunni í Gróf-
argili að koma með til-
lögur um breytingar á
göngugötunni, Ráð-
hústorgi og Skátagil-
inu. Að sögn Árna
Olafssonar skipulags-
stjóra hefur skipulags-
nefnd nú skilgreint
ákveðin viðfangsefni
sem Arkitektastofunni
er falið að leysa.
Gagnvart Skátagiíinu
eru þessi viðfangsefni
tröppur upp brekkuna og stígur sem ekki yrði eins brattur og sá sem
nú er þarna, heldur hlykkjaðist með einhverjum hætti upp brekkuna.
I göngugötunni sjálfri og á Ráðhústorginu er viðfangsefnið hins veg-
ar að bæta umhverfið þannig að það styðji betur við húsin og þá
starfsemi sem þarna er. Þegar Dagur spurði skipulagsstjóra hvort
þessar liugmyndir gerðu ráð fyrir bílaumferð um göngugötuna sagði
hann ljóst að slíkt hlyti að koma inn í myndina. Nú þegar segir hann
að bílaumferð sé nokkur um götuna. Hins vegar sé þetta þá spurning
um að skilgreina betur þann farveg sem sú bílaumferð sem nauðsyn-
leg er fari í. Það sé þá seinni tíma mál hvort sá farvegur yrði notað-
ur eitthvað meira en nú er gert.
Viimustöðvun í Hrísey vegna brott-
viknmgar framleiðslustjóra
Framleiðslustjóra Snæfells í Hrísey, Guðmundi Gíslasyni, var fyrir-
varalaust sagt upp störfum í gær. Að sögn forsvarsmanna fyrirtækis-
ins, þegar aðrir starfsmenn leituðu skýringa, var það vegna trúnaðar-
brests vegna blaðagre'' aar sem Guðmundur skrifaði um málefni KEA
í Hrísey og samskipti hans við yfirmenn hans hjá Snæfelli. Starfs-
menn lögðu niður vinnu klukkan 11.00 en voru í húsinu allt til Ioka
vinnudags, án þess þó að taka til hendinni, voru sem sagt á vettvangi.
I kvöld verður borgarafundur í félagsheimilinu Sæborg í Hrísey að
beiðni eyjarskeggja þar sem stjórn KEA, fulltrúi Byggðastofnunar og
einhverjir alþingismenn kjördæmisins, eins og það er orðað í fundar-
boðinu, mæta. Aðeins eitt mál er á dagskrá, málefni Snæfells í
Hrfsey. - GG
/ göngugötunni á Akureyri í gær.