Dagur - 28.09.1999, Blaðsíða 8

Dagur - 28.09.1999, Blaðsíða 8
8 -ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBKR 1999 FRÉTTASKÝRING Hafa þegar saima Snjóílóðagarðar á Siglufirði breyta miklu. íbúar í suður- hluta bæjarins sem búið hafa við mikla ógn anda nú léttar. Framkvæmdakostnað- ur 270 milljónir. Amóta garðar byggðir víðar uin land, næst í Neskaupstað, segir umhverfisráðherra. „Við lítum svo á að þeim óþæg- indum sem hafa fylgt snjóflóða- hættunni hér sé lokið og því lít- um við á þetta sem mikla gleði- stund,“ sagði Skarphéðinn Guð- mundsson, forseti bæjarstjórnar Siglufjarðar, þegar vígðir voru formlega snjóflóðavarnargarðar í ijallinu fyrir ofan bæinn, en þeim er ætlað að beina frá snjóflóðum sem faliið hafa úr Jörundarskál og Ytra-Strengsgili sem oft hafa fallið í áranna rás. Ljóst er að garðarnir munu breyta búsetu- skilyrðum til mikilla muna, en á vetri hveijum hafa íbúar í 30 til 40 húsum í suðurhluta bæjarins mátt búa við að þurfa að yfírgefa hús sín í tíma og ótíma vegna snjóflóðahættu, en þess er nú vænst að með görðunum góðu sé það liðin tíð. „Eg var sterklega farinn að hugleiða að flytja á ann- an stað í bænum og sjálfsagt hefði ég gert það hefðu þessir garðar ekki verið byggðir,“ segir Pétur Bjarnason, en hann og fjöl- skylda hans eru meðal þeirra fbúa í suðurhluta Siglufjarðarbæjar sem hafa þurft að flýja af heimili sínu marga undanfarna vetur vegna snjóflóðahættu. Stóri-Boli og Litli-Boli I máli Guðmundar Guðlaugsson- ar, bæjarstjóra á Siglufirði, við vígslu garðanna sl. föstudag, kom fram að góður gangur hefði verið í framkvæmdum. Héraðsverk á Egilsstöðum annaðist fram- kvæmdir, sem hófust snemma sumars 1998 og stóðu það ár fram í október, eða allt þar til snjóar hömluðu mönnum að gera meira í það sinnið, en voru þeir þá langt komnir. Menn fóru síðan aftur af stað snemma í sumar sem Ieið og Iuku við verkið snemma nú f september, tæplega einum mánuði fyrr en reiknað hafði verið með samkvæmt út- boðsgögnum. - Hin mildu mann- virki sem reist hafa verið í hlíð- inni fyrir ofan Siglufjörð eru tveir leiðigarðar, sem nefndir hafa ver- ið Stóri-Boli og Litli-Boli eftir tveimur skíðastökkpöllum sem voru í eina tíð á Siglufirði. I Stóra-Bola, sem er 700 metra langur, þurfti til 400.010 þús. rúmmetra efnis, sem var fengið með því að ýta upp í garða úr hlíðinni. Litli-Boli er hins vegar 200 metra langur og í hann þurfti 70 þús. rúmmetra efnis sem aflað var með sama hætti. Horft af snjóflóðavarnargarðinum og yfir hluta hans og nokkur húsanna í syösta hluta Siglufjarðarbæjar. Garðurinn mun varna því að fláð falli úr Ytra-Strengsg þau hafa jafnan verið rýmd þegar sú hætta kemur upp. En nú ættu allir með tilkomu garðanna að geta andað rólega í sínum ranni. „Meginhluta þess tíma sem vertakinn var hér á staðnum voru menn að störfum allan sólar- hringinn. Rigningar töfðu verkið nokkuð í fyrra, en mjög vel gekk hins vegar nú í sumar sem leið enda var þá hér einmuna veður- blíða,“ sagði Guðmundur Guð- laugsson bæjarstjóri í ávarpi sínu og lofaði hann mjög starfsmenn Héraðsverks fyrir framgöngu sína í þessu vandasama verkefni. Hið sama gerði Skarphéðinn Guð- mundsson, forseti bæjarstjórnar. Heildarkostnaður við fram- kvæmdirerum 270 milljónir, þar af voru greiðslur til verktaka 225 milljónir króna. Ofanflóðasjóður greiðir 90% framkvæmdakostnað- ar, en bæjarsjóður Siglufjarðar það sem uppá vantar. Höfiun lært að lifa með nátt- úruvá Siglfirðingurinn Siv Friðleifsdótt- ir, umhverfisráðherra, sagði í tölu sinni að Islendingum væri betur ljóst en flestum öðrum hvað orð- ið náttúruvá merkti. Snjóflóð hér á landi hefðu valdið afar miklu tjóni bæði á fólki og mannvirkj- um í gegnum tíðina, en skaða hefðu líka valdið eldsumbrot, jarðskjálftar og fleira slíkt. „En við höfum lært að lifa með þessu og starfrækjum meðal annars umfangsmikla rannsóknarstarf- semi sem tryggja hér lífvænleg skilyrði til búsetu," sagði Siv. Hún sagði að eftir snjóflóðin sem féllu á Vestfjörðum í tvígang á Vestfjörðum 1995, á Súðavík í janúar og á Flateyri í október, þar sem vel á fimmta tug manna fórst, hefði sú stefha verið mörk- uð af stjórnvöldum að gera gang- skör í rannsóknum á snjóflóðum og byggingu mannvirkja til að verjast þeim. Fyrsti áfanginn í þessu verkefni var bygging snjó- flóðavarnargarða ofan við Flat- eyri, því næst á Siglufirði og árið 2001 eiga að vera fullbyggðir garðar í hlíðinni ofan við Nes- kaupstað þar sem mikil snjóflóð féllu fyrir röskum tuttugu árum, með miklu tjóni bæði á fólki og mannvirkjum. „Snjóflóðamannvirkin hafa þegar sannað gildi sitt,“ sagði Siv Friðleifsdóttir og vitnaði til þess að minni háttar snjóflóð hefðu í fyrravetur bæði fallið á garðana á Flateyri og Siglufirði, sem hefðu bein flóðunum í réttan farveg og frá byggðinni. „Garðarnir hafa nú þegar haft áhrif til góðs, hús hér í suðurhluta bæjarins sem áður voru ónotuð eru nú komin í gagn- ið. Slíkt er órækt merki um að fólkið hefur trú á varnargildinu - og þetta finnur maður líka sjálfur þegar maður er hér í grennd við þessa garða og finnur hver stórir og traustir þeir eru.“ - Siv sagði að nú þegar væri komið í gang á Siglufirði verkefni sem næði til þriggja ára, sem miðar að upp- græðslu garðanna; bæði til þess að verja þá sem best og einnig til þess að þeir falli sem best inn í landslagið í sinni grænu kápu. Slík ógn andstæð Guði Og ekki þótti annað tilhlýðilegt á Siglufirði en fá á vettvang sóknar- prestinn, séra Braga J. Ingibergs- son, til þess að blessa mannvirkin miklu. Við þetta tilefni sagði sr. Bragi að við ysta haf í fallegum firði umluktum faðmi fjallanna og undir hvelfingu himinsins væri náttúran og umhverfíð með þeim hætti, að þröngt væri um byggðina og augljósar hættur gætu fylgt búsetu á þar. Engu að síður vildi fólk búa á stöðum eins og Siglufirði og slíkt þyrfti ekki útskýringa við. „Margar ógnirnar sem geta okkur birst meðal annars í ham- förum náttúrunnar, snjóflóð hafa haft skelfilegar afleiðingar meðal annars á Siglufirði sem og víða annars staðar á landinu. Slík ógn er andstæð Guði því hann er mis- kunsamur og réttlátur. Hann veitir vernd gegn vá heimsins. Við mennirnir erum verkamenn hans í því að hlúa að lífinu og byggja upp það sem til bjargar má verða frá hættum heimsins. Við fram- kvæmd snjóflóðamannvirkja hef- ur vel tekist til og ég vona að guð gefi að í framtíðinni þjóni þeir til- gangi og veiti fbúum vernd, skjól og öryggi," sagði sr. Bragi. Stórkostlegt mannvirki En hvað finnst íbúunum í suður- hluta Siglufjarðarkaupstaðar sem búið hafa við undirliggjandi hættu af völdum snjóflóða allan veturinn og verið logandi hrætt af þeim sökum. „Fólk hefur verið hrætt sem skiljanlegt er,“ segir Sigrún Olafsdóttir, sem býr í Norðurtúni 17. Hún og fjölskylda hennar eru reyndar svo gæfusöm að hafa aldrei þurft að flýja á brott vegna snjóflóðahættu, svo vel er hús þeirra staðsett. Ibúar í 30 til 40 húsum í nágrenninu hafa hins vegar reglulega þurft að flýja á brott þegar snjóflóðaeftir- litsmönnum hættir að lítast á blikuna. „Við erum svo hrifin af snjó- flóðavarnargörðunum. Þetta er stórkostlegt mannvirki og að mínu mati nægilega öflugur til að standast snjóflóð. Ég er búin að labba upp allan garðinn og finnst garðurinn allur afar traustvekj- andi.“ Erfltt að búa við þetta Pétur Bjarnason og fjölskylda

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.