Dagur - 28.09.1999, Blaðsíða 11
1‘RIUJUDAGUH 28. S E P 1' E M RE H 1999 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Indónesíuher farinn
frá Austur-Tímor
Hann brosir breitt þessi íbúi á Austur-Tímor meðan áströlsku hermennirnir
aka hjá.
Friðargæslusveitir
Sameinuðu þjóðanna
hafa í raun tekið við
ðryggismálunum af
Indónesíuher.
Um 15.000 indónesískir her-
menn eru farnir frá Austur-
Tímor. Rúmlega 1400 hermenn
verða þó áfram þar, en verða
undir stjórn lögreglunnar, og
munu þeir taka þátt í að sinna
öryggismálum ásamt friðar-
gæsluliðinu. Indónesíustjórn
hertók Austur-Tímor fyrir nærri
aldarfjórðungi og hefur
Indónesíuher óspart beitt
hrottaskap og kúgun þennan
tíma. Sömuleiðis finnst mörgum
indónesískum hermönnum erfitt
að sjá á eftir Austur-Tímor í
hendur erlendra hermanna og á
endanum í hendur þeirra sem
barist hafa fyrir sjálfstæði eyjar-
helmingsins, enda hafa fjöl-
margir indónesískir hermenn
látið lífið í átökum við uppreisn-
armenn þennan aldarfjórðung.
Yfirstjórn Indónesíuhers segir
að hér eftir fari Peter Cosgrove,
yfirmaður alþjóðlegu friðar-
gæslusveitanna, með yfirstjórn
öryggismála á Austur-Tímor.
Cosgrove vildi þó ekki taka und-
ir það í gær og sagði að öryggis-
mál væru ennþá á ábyrgð
Indónesíustjómar, og myndi svo
vera þangað til sérstakt þing,
sem skipað er þingmönnum
Indónesíuþings og fulltrúum
Indónesíustjórnar, staðfestir nið-
urstöðurnar úr þjóðaratkvæða-
greiðslunni sem haldin var á
Austur-Tímor í ágústlok, en þar
hafnaði yfirgnæfandi meirihluti
að Austur-Tímor tilheyri fram-
vegis Indónesíu.
Þó er ljóst að í raun hafa frið-
argæslusveitirnar tekið við allri
yfirstjórn öryggismála Austur-
Tímor, þótt Indóesíuher verði
áfram hafður með í ráðum.
Nærri fjögur þúsund friðar-
gæsluliðar voru komnir til Aust-
ur-Tímor í gær, en alls er gert
ráð fyrir að þeir verði um 7.500.
Vígasveitirnar, sem andvígar
eru sjálfstæði Austur-Tímor,
hafa að mestu dregið sig í hlé en
hóta því engu að síður að láta til
skarar skríða að nýju þótt síðar
verði. Þær hafa víða á Austur-
Tímor skilið eftir sig mikla eyði-
leggingu, brennt hús og haft
matvæli og aðrar nauðsynjar á
brott með sér.
Vígasveitirnar eru einnig sagð-
ar hafa gengið hart að flótta-
mönnum frá Austur-Tímor, sem
eru samankomnir í flóttamanna-
búðum handan landamæranna,
á Vestur-Tfmor, en þar hefur
Indónesía óskoruð yfirráð og út-
lendingar hafa þar takmarkaðan
aðgang.
Heldur brösuglega hefur geng-
ið að koma nauðsynjum á borð
við matvæli og lyf til íbúa á eyj-
arhelmingnum, en ekki hefur
verið hægt að gera það öðruvísi
en að varpa þeim úr flugvélum.
Skuldum
léttaf
fátækustu
rikjuniun
Alþjóðlegi gjaldeyrissjóðurinn
og Alþjóðabankinn hafa ákveðið
að rúmlega 7200 milljörðum
króna verði varið til þess að létta
skuldum af 36 af fátækustu ríkj-
um heims í nokkrum áföngum,
en í staðinn er gerð sú lu-afa að
fátæku ríkin verji þessu fé, sem
annars hefði farið til að greiða
afborganir á skuldum, í heil-
brigðis- og menntamál.
Heildarfjárhæðin er um helm-
ingur allrar skuldabyrði þeirra
þróunarríkja, sem allra skuldug-
ust eru. Allt að 90 til 100 pró-
sent af viðskiptaskuldum þess-
ara ríkja verður aflétt af þeim.
Heildarskuldir allra þróunar-
rfkja nema hins vegar nærri
180.000 milljörðum króna, sem
er nærri 25 sinnum hærri fjár-
hæð en aflétt verður með þess-
ari áætlun.
Ákvörðun þessi var tekin á
sameiginlegum ársfundi Alþjóð-
Iega gjaldeyrissjóðsins og AI-
þjóðabankans, sem hófst í New
York um helgina.
Vonir eru bundnar við að
þetta Ijármagn nýtist fátækustu
ríkjum heims í baráttunni við fá-
tæktina. Skuldir þeirra ríkja,
sem skuldugust eru, eru það
miklar að nánast útilokað hefur
verið fyrir þau að gera nokkurn
skapaðan hlut án erlendrar fjár-
hagsaðstoðar.
Uppreisn fanga í Tyrklandi
TYRKLAND - Tyrkneskir fangar hafa gert uppreisn í mörgum fangelsum
víða um Tyrkland. Hafa þeir tekið um 100 fangaverði í gíslingu, og í fang-
elsi í Ankara létu að minnsta kosti 12 manns lífið. Fangamir sem standa
að uppreisninni eru sagðir vera vinstrisinnaðir og eru þeir að mótmæla
fyrirhuguðum flutningi fanga á milli fangelsa.
Rússar og Hvít-Rússar undirbúa nánara
samband
RUSSLAND - Roris Jeltsín, forseti Rússlands, hefur samþykkt drög að
nýjum samningi um ríkjasamband Rússlands og Hvíta-Rússlands. Mein-
ingin er að sameiningarferli ríkjanna verði nú hraðað og má jafnvel bú-
ast við að samningur verði undirritaður fyrir áramót. Sambandssamning-
ur er nú þegar í gildi milli ríkjanna, en í nýja samningnum verður gert
ráð fyrir mun meiri ítökum sameiginlegu sambandsstjómarinnar í stjóm
hvors ríkis um sig.
Quayle hættir vegna fjárskorts
BANDARIKIN - Dan Quayle, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna,
hefur tilkynnt að hann sé hættur við að bjóða sig fram í forsetakosning-
unum á næsta ári og sækist því ekki lengur eftir því að verða kosinn for-
setaefni Repúblikanaflokksins. Astæðuna segir hann vera að hann hafi
ekki yfir nægilega miklu Ijármagni að ráða til þess að geta lengur tekið
þátt í kosningabaráttunni.
Sprenging í Mexíkó
MEXIKO - Að minnsta kosti 56 manns létu lífið og nærri 350 slösuðust
í gær þegar sprenging varð ólöglegri flugeldageymslu í bænum Celaya í
Mexíkó. Hitinn olli því að gasgeymir í veitingahúsi rétt hjá sprakk nokkru
síðar og urðu þar nokkrar smærri sprengingar.
Átta þúsund eftirskjálftar
TAIVAN - Meira en átta þúsund eftirskjálftar höfðu orðið í gær á Taívan
ffá því stóri jarðskjálftinn reið þar yfir í síðustu viku. Tveir menn fundust
á lífí í rústunum í gær eftir að hafa legið þar grafnir í sex daga, én nán-
ast engar líkur þykja á að fleira fólk fínnist lifandi í rústunum.
555 1947 • FAX 555 4277 • 894 0217
www.visir.is
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
murvi
$ SUZUKI
—.... .—
VIÐGERÐIR OG VIÐHALD FASTEIGNA ER OKKAR FAG
LEITIÐ TIL VIÐURKENNDRA FAGMANNA!
USAKLÆÐNINC r
SlMATÍMI MILU KL. 10.00 -13.00
Komdu i
reynslu-
akstur!
SUZUKIBÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
Hefur þú séð svona verð á 4x4 bil?
• Mest seldi bíllinn í Japan(l), annaö áriö í röð.
• Öruggur Suzuki fjölskyldu- og fjölnotabíll.
• Skemmtilequr bíll meomiklum staðalbúnaði:
ABS hemlalæsivörn
rafdrifnu aflstýri,
samlæsingu, o.m.fl
Ódýrasti 4x4
bíllinn á íslandi
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiii
GL 1.099.000 KR.
GL 4x4 1.299.000 KR.
Illllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllll