Dagur - 02.10.1999, Page 5
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 - 21
MENNINGARLÍFÐ
íþróttaálfurinn
stígur niður
Þjóðleikhúsið:
GLANNI
GLÆPUR í
LATABÆ eftir
Magnús
Scheving og
Sigurð Sigur-
jónsson.
Leikstjóri:
Sigurður Sig-
urjónsson.
Leikmynd:
Snorri Freyr Hilmarsson.
Ljósahönnun: Guðbrandur
Ægir Asbjörnsson.
Danshöfundur: Astrós Gunn-
arsdóttir.
Höfundur söngtexta: Karl
Ágúst Úlfsson.
Höfundur og flytjandi tónlist-
ar: Máni Svavarsson.
Leikbrúðugerð og brúðuleik-
ur: Guðmundur Þór Kárason.
Frumsýnt á Stóra sviði Þjóð-
leikhússins 30. sept.
Eg játa að ég er lítt kunnugur í
Latabæ, utan að ég þekki fyrstu
bók Magnúsar Schevings um
þann stað, sem lesin var sem
var morgunsaga barna á rás 1 í
sumar. Leiksýningu út frá þess-
ari bók í Loftkastalanum sem
mjög vinsæl sá ég ekki. En það
er alveg ljóst að Iíkamsræktar-
frömuðurinn Magnús Scheving
hefur hitt vel í mark með þess-
um hressilega áróðri sínum fyrir
hollri hreyfingu og heilbrigðum
lífsháttum. Latibær er orðinn
vel kunnur meðal barnanna og
ekki nema sjálfsagt að róa enn á
sömu mið eins og Þjóðleikhúsið
gerir nú, með samvinnu þeirra
Magnúsar og Sigurðar Sigur-
jónssonar.
Fólkið í Latabæ er að sönnu
hið besta fólk yfirleitt, en það er
ósköp hrekklaust og með ólík-
indum leiðitamt. íþróttaálfínum
hafði tekist að hressa upp á líð-
an bæjarbúa, einkum með því
að brýna fyrir þeim að rækta sitt
eigið grænmeti og neyta þess, en
ekki óhollustu úr dósum. Nú
una allir glaðir við sitt og lifa
heilsusamlegu lífí. En svo læðist
höggormurinn inn í þennan
Edensgarð í líki manns sem kall-
ar sig Rikka ríka en er í rauninni
enginn annar en Glanni glæp-
ur. Honum tekst með undra-
skjótum hætti að vefja bæjarbú-
um um fingur sér. Hann fær
heimsku lögguna til að þjóna
sér, hefur stórfé af fólki fyrir
næringarlausan dósamat, eitrar
meira að segja fyrir það, og stel-
ur frá því. Að lokum flæmir
hann hinn elskulega en vit-
granna bæjarstjóra úr embætti
og tekur við þeirri tign sjálfur.
Hvað er þá til ráða? Jú, ekki
annað en kalla á íþróttaálfinn
sem stígur niður í Latabæ, bók-
staflega talað eins og „guð úr
vélinni" og kippir öllu í Iag.
Glanni glæpur fær makleg mála-
gjöld og íbúar Latabæjar fara
aftur að borða næringarríka
fæðu og lífíð brosir við þeim.
Sigurður Siguijónsson á vafa-
laust mikinn þátt í þessu verki.
Hann hefur valið kunnuglega
barnasýningarleið í sviðsetningu
þessa leiks. Sviðsmyndin er
raunar stæld eftir teiknimynd-
um Disneys. Búningar eru í
skærum litum, mikið er um
skemmtileg hljóðræn brögð og
hreyfingar leikenda miklar, leik-
máti ýktur eins og gerist í skop-
leikjum. Allt þetta verkar ágæt-
lega í sýningunni og gerir hana
litríka, fjörlega, og áreiðanlega
vel við hæfí barna. Verkið er að
sönnu sáraeinfalt í sniðum, og
ekki eru samræðurnar ýkja
fyndnar eða smellnar í sjálfu sér.
En það er yfir sjmingunni ein-
hver hlýr þokki sem lætur varla
nokkurn ósnortinn, þótt áhorf-
andinn sé kominn langt yfír ald-
ur markhóps sýningarinnar og
áhugi á líkamsrækt í daufara
Iagi eins og hjá þeim sem þetta
skrifar.
Aðalpersónan í leiknum er
raunar ekki íþróttaálfurinn, því
sannast að segja kveður ekki
mikið að honum, nema hvað lík-
amsfimi varðar. Magnús Schev-
ing leikur hann sjálfur og líklega
er honum sitthvað betur gefið
en að leika, en hann tekur flott-
ar æfingar á sviðinu. Það er hins
vegar Rikki ríki, öðru nafni
Glanni glæpur og Dói dós,
skúrkurinn sjálfur, sem er
stjarna sýningarinnar. Stefán
Karl Stefánsson leikur þennan
þokkapilt af miklu fjöri, öryggi
og krafti svo verulega er gaman
að fylgjast með honum.
Að vísu er leikurinn ójafn því
fólkið sem hann á við er sem
fyrr sagði sakleysið sjálft. Það er
ekki nóg með að Lolli lögga
(Orn Árnason) sé mikill ein-
feldningur eins og löggur eru yf-
irleitt í leikjum og kvikmyndum,
heldur eru hinir litlu skárri til
höfuðsins, meðal annars bæjar-
stjórinn (Magnús Ólafsson) sem
er sem fyrr sagði besti náungi en
veitir Iitla mótspymu gegn sókn
Rikka ríka. Siggi sæti (Steinn Ár-
mann Magnússon) er líka auð-
veld bráð fyrir Rikka, enda af-
brigðasólginn í sælgæti. Þama
em líka Maggi mjói (Baldur
Trausti Hreinsson), Goggi mega
tölvutappi (Rúnar Freyr Gíslason)
og Nenni níski (Kjartan Guðjóns-
son). Meira kveður að Sollu
stirðu (Lindu Ásgeirsdóttur) og
Höllu hrekkjusvíni (Vigdísi
Gunnarsdóttur). Þær em báðar
skemmtilegar týpur. Stína síma-
lína (Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir)
\inkona bæjarstjórans reynist
býsna tækifærissinnuð, en
kannski mannlegri fyrir vikið. Þá
er ótalinn Ólafur Darri Ólafsson
sem fer með nokkur hlutverk. Og
haninn í bænum hefur líka sínu
hlutverki að gegna hver sem ljær
honum röddina, líldega brúðu-
gerðarmaðurinn, Guðmundur
Þór. Allir skila leikendumir þessu
vel og hafa bersýnilega gaman af
því.
Lög og textar hljómuðu nokkuð
vel en gripu annars ekki föstum
tökum.
Það er því ekki hægt að segja
að hér sé farin frumleg eða ný-
stárleg leið í sviðsetningu barna-
sýninga. Litríkur ævintýraheimur
teiknimyndanna ríkir á sviðinu
með öllum sínum brellum og
hann nær til bamanna - og barns-
ins í okkur hinum.
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
BORGARLEIKHUSIÐ
Stóra svið
Vorið vaknar
eftir Frank Wendekind
3. sýn. sun3/10kl.
19:00 rauð kort
4. sýn. fös 15/10 kl.
19:00 blá kort
Litla hryllings-
búðin
eftir Howard Ashman
tónlist eftir Alan Menken
í dag lau kl. 14:00 örfá
sæti laus, lau 16/10 kl.
19:00, lau 16/10 kl:
23:00
miðnætursýning
Sex í sveit
1 04. sýn. í kvöld
lau kl.19:00
UPPSELT,
105 sýn. mið 13/10
kl. 20:00
Stóra svið kl. 14:00
Pétur Pan
sun. 26/9, sun. 3/10,
sun 17/10
Litla svið kl. 14:00
Fegurðar-
drottining frá
Línakri
í dag lau. 2/10 kl.
15:00, fim 14/10 kl.
20:00
SALA
ÁRSKORTA
STENDUR
YFIR
Miðasalan er opin virka
daga frá kl. 12-18,
frá kl. 13
laugardaga og sunnu-
daga og fram að sýningu
sýningardaga
Símapantanir virka daga
frá kl. 10
Greiðslukortaþjónusta
Sími 568 8000
Fax 568 0383
jLii iiijuianiHgmjiiiJEiui
í0Dbl,nBöI|
ileikeélagakureyrarI
Miðasala: 462-1400
KLUKKU-
STRENGIR
eftir Jökul Jakobsson
Frumsýning
föstudaginn 1. okt.
kl. 20:00.
UPPSELT
2. sýning
laugardaginn 2. okt.
kl. 20:00.
Leikarar:
Ari Matthíasson,
Aðalsteinn Bergdal,
Árni Pétur Reynisson,
Ingibjörg Stefánsdóttir,
María Pálsdóttir,
Sigurður Karlsson
og Sunna Borg.
Leikmynd og
búningar:
Vignir Jóhannsson.
Ljósahönnun:
Ingvar Björnsson.
Leikstjóri:
Valgeir Skagfjörð.
|Lil.ílijiiiBn<[rlat,^,:«ii,ir r<Jl
|lafalri|yLlObuhj(i
ILEIKFELAGAKUREYRARl
Miðasalan opin alla virka daga
frá kl. 13:00-17:00 og fram að
sýninqu, sýninqardaqa.
Sími 462 1400.
Kortasalan í fullum gangi!