Dagur - 02.10.1999, Page 15

Dagur - 02.10.1999, Page 15
 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 - 31 l imoimp) „Auðvdtað var það áfall að lenda í þessu. A síðustu misserum er ég búin að vinna mörg persónuleg af- rek. Ég var á toppnum á mínum ferli. Sama dag og ég sleit hásin hafði ég verið kjörin Iþróttamaður Garða- bæjar annað árið í röð. Það er mjög mikill heiður, einn mesti heiðurinn sem íþróttamanni hlotnast. Það skiptust því á skin og skúrir þennan dag. Árið þar á undan hafði ég verið valin besti leikmaður og besti varnarmaður. Ég steftidi á enn frekari afrek,“ segir Herdís Sigurbergsdóttir, landsliðskona og leikmaður Stjömunnar. Hugsanlega. Hún er hvergi tryggö hjá íþróttahreyfingunni. Herdís Sigurbergs- dóttir er að vinna í sínum málum. „Auðvitað er margt annað í h'finu en handboiti og það eru margir verr staddir en ég. Ég vona bara að ég verði vel göngu- og vinnufær í framtíðinni. Tíminn leiðir í Ijós hvernig það fer, “ segir Herdís Sigurbergsdóttir. Hún bíður þess að læknar finni einhverja lækningu. mynd: hilmar þór Ekkert þægilegt Herdís sleit hásin í lands- leik gegn Rússum í Garða- bæ í byijun þessa árs. Leik- urinn var rétt að hefjast, reyndar aðeins um 20 sek- úndur liðnar þegar Herdís var að hlaupa í sókn að hásinin slitnaði í vinstri fæti. Hún hafði fundið fyrir eymslum um nokkurt skeið. „Það var búið að reyna að púsla mér saman fyrir Ieikinn því að ég var búin að vera svo slæm að ég gat varla gengið og hafði ekk- ert getað æft í nokkrar vikur. Það er ekkert þægilegt að vera með eymsli í hásin. Um Ieið og hún slitnaði vissi ég hvað hafði komið fyrir. Það var brunað með mig beint á sjúkrahús og strax gerð á mér aðgerð,“ segir hún. Herdís starfaði sem aðstoðar- stúlka á tannlæknastofu þegar óhappið varð. Eftir aðgerðina átti hún að vera átta vikur í gifsi og byija síðan i endurhæfingu. Þegar fjórir mánuðir voru liðnir frá að- gerðinni áttu töluverð batamerki að vera komin í ljós en Herdfsi versnaði stöðugt. Læknamir ákváðu að opna fótinn aftur og kom í ljós að drep hafði breiðst út. Þá var ákveðið að reyna að bjarga hásininni með því að gera við hana í stórri aðgerð og svo var fætinum lokað. Þessi aðgerð fór fram í maí. Leitin ekki borið árangur Herdís var í gifsi og gönguspelk- um í allt sumar. Fyrir um það bil þremur vikum fékk hún leyfi til að fara úr spelkunum og byija í endurhæfingu. Hún var nýbyijuð „Það er ekki öll von úti,“ segir Herdís bjartsýn þar sem hún situr heima hjá sér og bíður þess að læknamir finni einhver ráð en Iíkumar eru ekki miklar. Hugsan- lega verður niðurstaðan sú að reyna að láta hásinina vaxa sam- an en i,það er ekki sterkur leik- ur því að hún er það illa farin. Enginn veit hvemig það fer. Það er ekki víst að ég verði til stórræðanna," segir Herdís um leið og hún við- urkennir að yfír- gnæfandi líkur séu á því að hennar íþrótta- ferli sé lokið. „Auðvitað er margt annað í lífínu en handbolti og það eru margir verr staddir en ég. Ég vona bara að ég verði vel göngu- og vinnufær í framtíðinni. Tíminn leiðir í ljós hvernig það fer.“ Raskað fjölskylduhögum Herdís er 28 ára gömul. Hún hef- stofnun. Því er ekki að neita að slysið hefur verið fjárhagslegt áfall fyrir íjölskylduna. „Þetta var gríðarlegt sjokk eins og er alltaf fyrir hvert heimili sem missir aðra fyrirvinnuna. Þetta hefur auðvitað raskað öllu okkar fjölskyldulífi. Það bjargaði mér alveg að eiga inni þetta veik- Ég er síðan að leita réttar míns gegnum mitt fé- lag,“ segir hún og vonast til að komast fljótlega í vinnu þar sem hún getur setið, hvort sem það yrði hennar gamli rínnustaður eða nýr. Það er að minnsta kosti Ijóst að hún getur ekki staðið við vinnu sína í bili og enginn veit hvort og hvenær hún getur farið aftur í sitt gamla starf. Skaðar mína framtíð Þá hefur komið í ljós að hvorki Stjarnan né landsliðið hafði Hvorki Stjarnan né landsliðið hafði tryggt Herdísi í leik. Verið er að kanna það mál. Stað- reyndin er sú að Herdís lenti í alvariegu slysi sem skaðar framtíð hennar og hún var ekki tryggð. mikið af Ein fremsta handknatt- leikskona landsins er í sókn í landsleik þegar hásinin slitnar. Hún fer í aðgerð, fær drep í fótinn. Eftir níu mánaða með- ferð standa læknarnir uppi ráðalausir. Læknamistök? í henni þegar hásinin slitnaði aft- ur í heimboði hjá vinafólki á laug- ardaginn var. „Það urðu allir fyrir vonbrigðum," segir hún. Þama var úr vöndu að ráða. Sams konar tilvik hefur aldrei komið upp á Is- landi áður og því varð læknir Her- dísar að leita sér upplýsinga er- lendis um það hvaða kostir væm í stöðunni. Sú leit hefur ekki borið árangur enn. ur leikið handbolta með Stjöm- unni frá níu ára aldri og landslið- inu frá unglingsárum. Hún er gift Jömndi Aka Sveinssyni og eiga þau eina dóttur, Sigrúnu Maríu, sex ára. Herdís hefur verið frá vinnu frá því hásinin slitnaði. Hún átti inni mikinn veikindarétt sem hún tók. Þá hefur hún feng- ið það „smotterí' sem fæst í sjukradagpeninga frá Trygginga- tryggt Herdísi í leik. Hún segir að verið sé að kanna það mál. Stað- reyndin sé sú að hún hafí lent í alvarlegu slysi sem „mikið skaðar mfna framtíð og ég var ekki tryggð. Það eina sem ég get sagt um stöðu mína er þetta: Það er tvennt í athugun. I fyrsta lagi hvað fór úrskeiðis í læknismeð- ferðinni eftir slys sem átti bara að vera saklaust hásinarslit. Ein- hvers staðar hafa átt sér stað mis- tök sem kúvenda lífí mínu. I öðm lagi var ég að keppa fyrir Islands hönd, lenti í alvarlegum meiðsl- um og var hvergi tryggð." Það er vissulega mikilvægt at- hugunarefni fyrir íþróttahreyfing- una og gríðarlegt hagsmunamál fyrir alla íþróttamenn. - GHS Haust- og jólalistinn er kominn Pantíð ókeypis eintak íLaraai'eifUi m póstversiun fyrir hannyrðavini Sími: 533 5444 Fax: 533 5445 Netfang: margaretha@hm.is Hringið í síma 533 5444 og pantið ókeypis eintak. Vörulistinn hefur að geyma handavinnu í miklu úrvali og við allra hæfi, bæði fyrir byrjendur og fagfólk. Svarseðill Já takk! Sendið mér póstlistann - mér að KOSTNAÐARLAUSU! Nafn: Heimilisfang: . Póstnúmer: 1 --------------------L--------------------- \ Margaretha. Kringlunni 7,103 Reykjavík, sími 533 5444

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.