Dagur - 16.10.1999, Blaðsíða 2

Dagur - 16.10.1999, Blaðsíða 2
18 - LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 HELGARPOTTURINN ...Nýtt spuna- og töfrabarn kom í heiminn að- faranótt síðasta fimmtudags þegar hin bráð- vinsæla þáttargerðarkona Eva María Jóns- dóttir varð léttari og fæddi fríska og fallega dóttur. Faðirinn er töframaðurinn og grínistinn Óskar Jónasson, enn betur þekktur sem Skari skrípó. Óskar sem hefur verið ráðinn kynnir í keppninni Fyndnasti maður íslands 1999 fékk frí frá því hlutverki á fimmtudags- Eva María Jónsdóttir. kvöldið en Hjálmar Hjálmarsson, fyrrum samstarfsmaður Evu Maríu úr Spunaþáttunum, hljóp í skarðið. Eitt sinn skáti... ...Þar sem fjarlægja þurfti botnlanga úr Guðlaugu Elísabetu Ólafs- dóttur nú í vikunni gerir Halldóra Geirharðsdóttir gerir sér lítið fyr- ir og tekur að sér í hlutverk hennar í leikritinu Vorið vaknar, nú um helg- ina. Þegar heilsan leyfir heldur Guðlaug Elísabet svo áfram að leika hina teprulegu en vonlausu móður, frú Bergmann, á sviði Borgarleikhússins... Roger Whittaker, sá heimsfrægi söngvari, kemur til landsins um mán- aðamót að syncjja á Broadway og í tilefni þess hefur hann sent frá sér ferilsskrá sína. í henni kemur fram að kappinn er fæddur í Kenýa 1936, harðgiftur frá því í Lundúnum 1964 og fimm barna faðir. Hann hefur gaman af golfi, garðrækt og veiði og hefur sérlegan áhuga á Ijósmynd- un, antík-hlutum (sérstaklega klukkum) og víni og eyðir gjaman löngum stundum í að spila bridds og kotru... . Canan Gerede, hinn tyrkneski leikstjóri myndarinnar um Sophiu Hansen-málið, var yfir sig ánægð með samvinnuna við íslend- inga og vildi gjarnan eiga við þá frekara sam- starf. Heimildir helgarpottsins herma að svo gæti jafnvel farið að Friðrik Þór tæki þátt í framleiðslu á handriti hennar um sígauna á Balkanskaganum en myndin á að gerast í Makedóníu, Þessalóníku og ístanbúl. En eins og frumsýningargestir hafa væntanlega tekið eftir í gærkvöld fór heldur lítið fyrir íslenskunni í þessari tyrknesk-íslensku mynd og er víst hrina af slíkum „íslenskum" myndum í bígerð... ...En það eru ekki eingöngu kvikmyndagerðar- menn sem leita á náðir annarra og prvænlegri tungumála. Hallgrímur Helgason er á leið- inni til Osló, enda hefur hann frétt að borgin atarna sé óhemju leiðinleg, þar sem hann hyggst sitja í tveggja mánaða einangrun við að skrifa skáldsögu, sem kemur væntanlega út á komandi hausti. Ekki á íslandi þó því bókin er skrifuð á norsku fyrir norskan markað... Hallgrímur er víst ekki alveg ókunnugur frændmáli okkar norskunni því að sögn helg- arpottara dvaldi hann lengi í því landi við talningu trjáa. Hallgrímur hefur einnig sinnt skjámiðlunum undanfarnar vikur en hann og litli bróðir Gunnar Helgason leikari hafa verið að undirbúa skemmtiþáttasyrpu fyrir Skjá einn, sem mun fara bráðlega í loftið. Þættirnir verða sýndir á laugardagskvöldum og eru þeir stæling á því bandanska sjói Jerry Springer Show. Þátturinn hefur hlotið nafnið Nonni sprengja... ...Jólageisladiskaflóðið er farið af stað og einn af þeim sem tekur þátt í útgáfuslagnum er Guðmundur Valur Stefánsson, fiskifræðingur og trúbadúr. Hann er sonur Stefáns Valgeirssonar, fyrrverandi alþing- ismanns, og tileinkar föður sínum diskinn. Stefán var hagmæltur mjög og á einn texta á plötunni. Guðmundur Valur hefur búið í Noregi und- anfarin ár og var meóal annars formaður íslendingafélagsins í Bergen. Á samkomum félagsins var gítarinn oftar en ekki teki'nn upp og hélt Guð- mundur Valur þá uppi stuðinu... ...Það er líf í Blús-, Rokk- og Jass- klúbbnum á Nesi (BRJÁN). Þessa dagana eru þeir félagarnir önnum kafnir að æfa fyrir stórsýningu, sem sett verður upp fyrsta vetrardag. Þar verða leikin og sungin lög eftir helstu stórstjörnur sem gert hafa garðinn frægan í spila- og gleðiborg- inni Las Vegas. Það er hátt á þriðja tug fólks sem stígur á svið í Egilsbúð Neskaupstað. Það er Bjarni Freyr Ágústsson sem séð hefur um þjálfun blásrasveitar en kynnir verður framkvæmdastjóri BRJÁN Jón Björn Hákonarson, sem hefur verið útnefndur „kynnir aldarinnar" á Austfjörðum... ...Það er í Kaffileikhúsinu sem þeir félagarnir KK og Magnús Eiríksson verða með sinn Óbyggðarblús í kvöld og flytja lög af nýja geisladiskin- um í bland við gamalt efni. Alltaf góðir... ...Hrafn Jökulsson ætlar ekki að láta hpim- ildamyndina um sig og aðra Grandara ^eyja drottni sinu. Myndin Grandrokk the movie verður sýnd á Grandrokk í kvöld kl. 21 'en þar á eftir. leikur djammhljómsveitin Sólon fyrir dansi,,. Hrafn Jökulsson. Hugleikur frumsýnir í kvöld Völina & kvölina & mölina, baðstofu- drama i rómantískum raunsæisstí/. Þingvörðurinn leikur skraddara Völin & kvölin & mölin er nýjasta afurð leikfélagsins Hugleiks og verður frumsýnd í Möguleikhúsinu í kvöld. Strandamaðurinn Sigurður Atlason þingvörður leikur þar bónda og skraddara. Áhugaleikfélagið Hugleikur er á sínu 16. starfsári og setur nú sem oftast upp nýtt íslenskt leikrit. Völin & kvölin & mölin er „bað- stofudrama í rómantískum raun- saeisstiT' eftir þau Hildi Þórðar- dóttur, Sigríði Láru Sigurjónsdótt- ur og V. Kára Heiðdal í leikstjórn Þorgeirs Tryggvasonar. Sigurður Atlason gaf sér í gærmorgun tíma frá þingvörslu til að segja nánar frá efni leikritsins. Ofleika á köflum „Þetta gerist seint á 19. öld og er um ungan sveitapilt sem yfirgefur foreldra sfna og unnustu og fer til Reykjavíkur til náms. I borginni er hann á heimili vinar föður síns sem er ríkur kaupmaður. 1 borg- inni fer nú ýmislegt að gerast, rómantíkin spilar inn í og hann kynnist brennivíninu og öllu því sukki sem fylgir borgarlífinu. Við erum dálítið að leika okkur með leikstfla og höldum ckki sama leikstíl út í gegnum verkið. Eg segi gjarnan að þeir sem hafa gaman af svart/hvítum bíómyndum ættu að hafa gaman að þessu. Eins þeir sem ekki hafa gaman að slíkum myndum - því þetta er ekki svart/hvít bíómynd.“ -Hvaða leikstíla leikið þið ykkur með? „Við Ieikum okkur að því að vera mjög ástríðufull í sumum atriðum og detta svo niður í þennan afar dramatíska leikstíl eins og við ímyndum okkur að Ieiklist hafi verið stunduð fyrir hundrað árum. Þetta er sem sagt ekki raunsæis- verk, við reynum að lyfta undir leikstílinn og jafnvel að ofleika á köflum.“ Kúelskur bóndi Sigurður leikur tvö hlutverk í sýn- ingunni, annars vegar Jón hónda föður sveitapiltsins og hins vegar skraddara kaupmannsfjölskyld- unnar. „Jón er ansi fámáll bóndi og á mikið bú en hefur tekiö miklu ástfóstri við eina kúna sína. Það kemst eif/inlega ekkert annað að f huga hans en kúin.“ -Hvernig stóð annars á þvt að þú gekkst til liðs við Hugleik? „Ég er nú eiginlega uppalinn í Ieiklistinni norður á Ströndum og hef stundað þar leiklist síðustu 20 árin. Svo flutti ég til Reykjavíkur núna fyrir ári síðan og þetta er bara áhugamál - svona eins og aðrir hafa gaman af að fara á snjó- sleða. Það hefur líka alltaf verið draumur hjá mér að taka þátt í Hugleik. Ég hef fylgst með þeim í gegnum árin og þau eru nú alveg skratti dásamleg og þegar Þorgeir leikstjóri hringdi í mig í vor þá var ég ekki í vafa um að ég skyldi taka þátt í þessu með þeim.“ Og svo ertu þingvörður... „Já, þetta er nú Ieikhús líka... vil ég meina. Það eru nú nokkrir þingmenn hérna sem eiga alveg erindi upp á svið. Ég myndi gjarn- an vilja fá að sjá t.d. Össur Skarp- héðinsson og ísólf Gylfa Pálma- son á sviði - ég held að þeir væru öflugir..." LÓA MAÐUR VIKUNNAR ER ORMAGNA! Maður vikunnar er örmagna iðnaðarmað- ur sem hefur lagt dag við nótt undanfarna daga til að hafa allt fínt og flott í Kringl- unni fýrir borðaklippingu. Á meðan „fína fólkið“ fagnar með kampavínsdiykkju og öðrum fínheitum reynir örmagna iðnaðar- maðurinn að sofa í fyrsta sinn í marga daga. Kannski getur hann huggað sig við það eitt að yfirgengilegur vinnutími hafi skilað honum aukapeningi, sem hann getur fljótlega farið að eyða hjá kaup- mönnum - auðvitað í Kringlunni! Örmagna i nýrri Kringlu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.