Dagur - 16.10.1999, Page 9

Dagur - 16.10.1999, Page 9
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999- 25 T}agur_ kjör var mér að sjálfsögðu Ijóst að ekkert var gefið fyrirfram, hvorki gengi mitt í prófkjörinu né fylgi Samfylkingarinnar í kosningum. Ef sú Samfylking sem ég sá fyrir mér í janúar, og vitnað er til í leiðaranum, hefði orðið að veruleika þá hefði ég ekki yfirgefið Alþýðubandalagið. Kjarni málsins er að Samfylking- in hefur einmitt ekld þróast í þá veru sem ég vonaði og sýnir eng- in merki um að hún sé á bata- vegi. Eg er í pólitík til að hafa áhrif á samfélagið í samræmi við hugsjónir mínar, berjast fyrir þeim og vinna þeim fýlgi. Það er ekki nóg að hafa völd ef menn nota þau ekki í þágu málstaðar síns. Brotthvarf mitt úr Alþýðu- bandalaginu á sér þá einu skýr- ingu að ég fann þar ekki lengur farveg fyrir pólitísk baráttumál « mm. - Hvemig hefðir þú viljað sjá sameiningarferlið, hvar hófust mistökin að þtnu mati? „Það er erfitt að finna ein- hvern einn tímapunkt þar sem mistökin hófust. Hugsunin var í upphafi sú að allir flokkarnir kæmu að samstarfinu eins heilir og þeir mögulega gátu. Mikill klofningur varð hins vegar í AI- þýðubandalaginu og þar af leið- andi kom flokkurinn veikur inn í Samfylkinguna strax í upphafi og tókst aldrei að gera sig gildan þar. Hið sama á raunar við um Kvennalistann sem í raun byij- aði að leysast upp á undan Al- þýðubandalaginu. Þannig voru þessar stoðir samstarfsins alltaf veikar. Ymsir gamalreyndir fé- lagar í Alþýðubandalaginu og raunar Alþýðuflokknum líka sáu þessa þróun fyrir og vildu að tryggt yrði jafnræði með flokk- unum. Það voru hins vegar aðrir og meiri tískupólitíkusar sem réðu för og því fór sem fór.“ - Heldurðu að Margrét Fri- mannsdóttir hefði getað með meiri lagni og lipurð haldið Al- þýðuhandalaginu saman? „Ef styttri skref hefðu verið tekin í upphafi og þannig tryggð samheldni í Alþýðubandalaginu, þá er ég sannfærður um að það hefði verið hægt að halda hópn- um saman. Mér sýnist að það hafi verið græðgin í það að stofna valdaflokk sem hafi ráðið því að menn ákváðu að fara þá leið sem farin var.“ - Vtkjum aðeins að þeim mál- efnum sem skilja þig frá Sam- fylkingunni. „Eg hef nefnt einstök dæmi. Ég hef nefnt hermálin, ég hef nefnt Evrópusambandið og ég hef nefnt Kosovo málið. Ég hef líka nefnt einkavæðinguna en þar er Samfylkingin stefnulaus. Þar er ekki ljóst hvað á að vera á hendi hins opinbera, hvað á að vera á hendi einkaaðila og hvað má einkavæða. Slíka hugmynda- fræði skortir hjá Samfylkingunni og þess vegna tala menn út og suður. Ef hugmyndafræðina vantar þá vaða menn í villu og svíma. Flestir úti í samfélaginu hafa horft upp á það að Sam- fylkingin er sundurlaus hjörð og hefur ekki náð vopnum sínum. En það er ekki síst hluti af ákvörðun minni að menn virðast ekki hafa umburðarlyndi fyrir öðrum skoðunum en geðjast for- ystu Samfylkingarinnar. Mér finnst að stóra nýja Samfylking- in sé ekki eins umburðarlynd og gamla, litla Alþýðubandalagið gagnvart mismunandi skoðun- um.“ - Heldurðu að Samfylkingunni sé ekki við bjargandi? „Ég ætla ekki að gerast dómari í því efni en ég hef ekki trú á því að bún verði það afl sem menn vonuðu þegar lagt var af stað.“ - Forystuleysi virðisl hafa háð pólitík sem ég er ekki viss um að margir alþýðubandalagsmenn vilji skrifa uppá. Kannski voru stærstu mistökin í allri umræð- unni um samfylkingu vinstri manna gerð árið 1991 þegarjón Baldvin og Alþýðuflokkurinn ákváðu að hætta vinstri stjórn- inni og leiða Davíð Oddsson inn í stjórnarráðið þar sem hann sit- ur enn.“ - Ntí held ég að flestum sé Ijóst að málefnalega áttu mesta sam- leið- með Vinstri-grænum, ertu ekki tilbúinn að lýsa því yfir að þú hyggist ganga til liðs við þá? „Ég hef sagt að ég sé í mörgu sammála þeirra málflutningi. Það kann vel að vera að það fari svo að ég lendi þar. Ég hef hins vegar ekki gert það upp við mig. Það hefur verið talsvert rót í kringum þá ákvörðun mína að fara úr Alþýðubandalaginu. Ég ákvað strax að Iáta þá ákvörðun nægja f bili, jafna mig á þeirri breytingu sem það hefur í för með sér og taka síðan ákvörðun um framhaldið. Mfn stjórnmála- barátta hefur að mestu leyti ver- ið á sveitarstjórnarstiginu og ég hef áhuga á að starfa þar áfram. Ég er borgarfulltrúi og er for- maður í bæði skipulagsnefnd og í hafnarstjórn og hverfisnefnd í Grafarvogi. Það eru mörg verk- efni sem ég er að sýsla við og ég sé ekki að ákvörðun mín að yfir- gefa Alþýðubandalagið þurfi að breyta nokkru þar um. Ég hlaut góða kosningu í opnu prófkjöri Reykjavíkurlistans fyrir kosning- arnar 1998 og veit þess vegna að ég á víða stuðning til að sinna þessum trúnaðarstörfum." - Er Vinstri hreyfingin græni framboð að verða að Alþýðu- bandalaginu gamla? „Nei, VG er ekki að verða að gamla Alþýðubandalaginu. Það á sér nú stað endurskipulagning í stjórnmálunum sem felur að mörgu leyti í sér nýjar áherslur. Umhverfismál fá þar til dæmis sérstakan sess sem ekki hefur tíðkast hingað til í íslenskum stjórnmálum. Þótt margir félag- ar úr Alþýðubandalaginu hafi haslað sér völl í Vinstri hreyfing- unni - grænu framboði þá sýnist mér að þar sé mjög margt nýtt og áhugasamt fólk sem ekki hef- ur teldð þátt í stjórnmálum áður.“ - Nú hefur Ögmundur Jónas- son, þingmaður Vinstri-grænna, gagnrýnt R-listann mjög harka- lega og sagt að lítill munur sé á honum og borgarstjómarflokki sjálfstæðismanna. Hvað segirðu um þá gagnrýni? „Auðvitað verður Reykjavíkur- listinn fyrir gagnrýni úr ýmsum áttum. Ýmislegt í þeirri gagnrýni á rétt á sér; annað síður og sumt alls ekki. I mörgum atriðum er ég alveg ósammála gagnrýni Ög- mundar, mér finnst að hún hafi stundum verið meir á persónu- legu plani en pólitísku. En ég virði skoðanir hans og rétt hans til að koma þeim á framfæri." - Á sínum tíma var lagt mikið upp tír að halda þér inni í Al- þýðubandalaginu af ótta við að ef þú færir færu margir af stuðn- ingsmönnum flokltsins með þér. Nú virðist Margrét Frímanns- dóttir gera því skóna að þeir verði mjögfáir. „Allmargir hafa þegar gengið úr Alþýðubandalagsfélagi Reykjavíkur ásamt mér og reyndar er talsverð hreyfing á fólki úr fleiri félögum. Ýmsir ætla þó að bíða eftir landsfund- inum og sumir vilja fara úr flokknum í kyrrþey, og það virðir maður að sjálfsögðu. Það er ósk- hyggja en um Ieið mikið vanmat hjá Margréti að halda því fram að ég einn sé á förum.“ Samfylkingunni, finnst þér það einn anginn af vandræðum hennar? „Það er einn angi af vandræð- um hennar að hana skortir for- ystu. Vissulega þarf Samfylking- in sterka og stefnufasta forystu. Hana vantar og ég sé hana ekki í forystusveit Samfylkingarinn- ar í dag. En það er einföldun að halda að það sé bara skortur á forystu. Það er nefnilega mikið til í því sem sagt var í kjallara- grein í DV ný- lega að Samfylk- inguna vanti ekki andlit, heldur vanti hana hjarta." Ertu mjög ósáttur viðforystu Margrétar Frí- mannsdóttur íAl- þrýðubandalaginu og Samfylking- unni? „Ég studdi ekki Margréti Frí- mannsdóttur í formannskjöri í Alþýðu bandalag- inu og taldi þá að sterkara væri fyrir Alþýðu- bandalagið að velja Steingrím J. Sigfússon sem formann. Raunar held ég að það hafi komið mjög skýrt fram í kosningabaráttunni í vor að það er stærðarmunur á þessum stjórnmálamönnum. Þótt Margrét hafi að mörgu leyti staðið sig vel við erfiðar aðstæð- ur, bæði sem formaður Alþýðu- bandalagsins og talsmaður Sam- fylkingarinnar, þá hefur henni ekki tekist að halda fyllilega utan um verk- efnið." Þií hefur sagt að Sam- fylkingin sé að breytast í Al- þýðuflokkinn. En nú eru ýms- ir kratar sár- óánægðir og segja að búið sé að selja stefnu- málin. „Það er rétt að óánægja með Samfylk- inguna er ekki bara einskorð- uð við minn hluta í Alþýðu- bandalaginu. Ég bendi til dæmis á athygl- isvert viðtal við Þröst Ólafsson sem var í Degi á dögunum þar sem hann lýsti skoðunum sínum og var allt annað en ánægður með Samfylkinguna. Óánægjan er miklu útbreiddari en forysta Samfylkingar vill vera láta og þess vegna held ég að uppstokk- uninni á vinstri væng stjórnmál- anna sé ekki lokið. Reyndar þyk- ir mér sérkennilegt ef einhver hefur haldið að henni lyki með stofnun Vinstri-grænna. Þegar Samfylkingin verður að formleg- um stjórnmálaflokki standa menn aftur á krossgötum. Þá verður mönnum ekki húrrað inn í nýjan stjórnmálaflokk með hópsamþykktum heldur verður hver og einn að gera það upp við sig hvort Samfylkingin sé það stjórnmálaafl þar sem hann finnur skoðunum sínum farveg. Ég spái því að þessi uppstokkun eigi eftir að halda áfram.“ Óskhyggja og vanmat - / gagnrýni þinni á Samfylking- una hefurðu sagt að hún sé að verða Alþýðuflokkurinn endur- borinn. Hvað átti við? „Alþýðuflokkurinn hefur svo að segja átt öll málefni sem Samfylkingin hefur tekið upp á sína arma. Þetta endurspeglast líka í styrkleikahlutföllunum inni á Alþingi og í umræðunni um forystumál. Ég veit til dæmis að umræðan um að fá Jón Bald- vin aftur í pólitíkina hefur mjög farið fyrir bijóstið á mörgum al- þýðubandalagsmönnum. Jón Baldvin var mjög hæfur stjórn- málamaður en hann stóð fyrir „Oánægjan er miklu út- breiddari en forysta Samfylkingar vill vera láta og þess vegna held ág að uppstokkuninni á vinstri væng stjórnmál- anna sé ekki lokið. Reyndar þykir mér sér- kennilegt ef einhver hefur haldið að henni lyki með stofnun Vinstri-grænna. Þegar Samfylkingin verður að formlegum stjórnmála- flokki standa menn aft- ur á krossgötum." „En það er ekki síst hluti afákvörðun minni að menn virðast ekki hafa umburðariyndi fyrir öðrum skoðunum en geðj- ast forystu Samfyikingarinnar."

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.