Dagur - 16.10.1999, Page 14

Dagur - 16.10.1999, Page 14
LÍF OG HEILSA LAUGARDAGUR 16. OKTÚBER 1999 Hvaða fýrirbæri eru þessir íþrótta- drykkir sem menn eru farnir að teyga sem svaladrykki á líkamsræktarstöðv- um og börn eru farin að kvabba um líkt og þeir séu hinir sætustu gos- drykkir? Svokallaðir íþróttadrykkir, eins og Gatorade og Lepp- in drykkirnir, hafa undan- farna mánuði orðið æ meira áberandi og er jafn- vel farið að markaðssetja þá sem svala- og orku- drykki fyrir börn og ungl- inga. Jón Gíslason, nær- ingarfræðingur og for- stöðumaður matvælasviðs íþróttadrykkir eru ekki hitaeiningarikir og eru notaðir til að bæta upp vökvatap. Þolfimi eða Sparkbox íklukkutíma kallar HoIIustuverndar ríkisins, pins vegar ekki á íþróttadrykk heldur nægir vatnið til að bæta upp vökvatapið. Vatn eða íþróttadrykkir? telur hins vegar að fyrir megnið af því fólki sem stundi einhverja hreyfingu sé hrein- asti óþarfi að eyða peningum í íþrótta- drykkina. Hannaðir fyrir íþróttafólk „Iþróttadrykkir eru sérstaklega hannaðir fyrir íþróttafólk. Það mikilvægasta við íþróttadrykki er að bæta vökvatap og hjá þeim sem stunda ekki mjög erfiðar fþrótt- ir þá er betra að nota bara vatn og það nægir fólki til að bæta vökvatapið." - Gem íþróttadrykkimir ekki eitthvað fleira ert að hæta vökvatapið? „Jú, það eru yfirleitt í þeim kolvetni og sölt, ein*og natríum og kalíum. Kolvetnin geta korffeð að notum þegár við erum búin að stunda fþróttir í nokkuð langan tíma en við eigum að hafa orku í líkamanum sem dugar alla vega í klukkutíma í einu,“ segir Jón og bætir því við að söltin koma sér einkum vel ef fólk svitnar verulega mikið við áreynslu. Venjulegt fólk sem stundar líkamsrækt í klukkustund nokkra daga í viku hafi hins vegar enga þörf fyrir þessi aukakolvetni eða sölt. Vatnið er nauðsynlegt Þótt íþróttadrykkir séu ekki nauðsynlegir fyrir venjulegt fólk þá segir Jón afar mikil- vægt að fólk drekki ætíð vatn fyrir og með- an á líkamsrækt stendur. Ekki er óalgengt að fólk tapi um lítra af vökva í gegnum svita á um einni klukkustund í líkamsrækt og ef vökvatapið er ekki bætt upp jafn- harðan með vatni þá minnka afköstin. Ef t.d. 70 kílógramma þungur maður tapar um einum og hálfum lítra af vökva í ein- um fótboltaleik þá missir hann um 20% af sínum afköstum. íþróttadrykkir eru þó ekkert slæmur kostur, því Iíkaminn vinnur vel úr inni- haldi þeirra, en Jón segir að fólk skuli var- ast að drekka vökva sem innihalda of mik- ið af kolvetnum við íþróttaiðkun. „Gos- drykkir og ávaxtasafar innihalda t.d. of mikið af kolvetnum. Þá nýtist vökvinn síð- ur og frásogast seinna þannig að við bæt- um ekki upp vökvatapið eins hratt. íþróttadrykkir eru hins vegar með minna magn af þessum einföldu kolvetnum sem gerir það að verkum að þeir eiga ekkert að hafa áhrif á nýtingu á vatninu. íþrótta- drykkir eru alls ekkert slæmur kostur en við getum fundið ódýrari lausn sem kem- ur að sömu notum fyrir velflesta - og það er vatnið.“ LÓA Aldraðir lyfta lóðum Eftirlaunafólk á aldrinum getur aukið styrk sinn og hæfni með því að lyfta lóðum þótt ekki sé nema einu sinni í viku samkvæmt skýrslu sem birtist nýlega í bandarísku læknatímariti. Könnun var gerð á fólki á aldrinum 65-79 ára og var því skipt upp í þrjá hópa til að mæla mismun á árangri eftir því hvort fólk lyfti lóðum einu sinni, tvisvar eða þrisvar í viku. I ljós kom að allir þrír hóparnir juku vöðvastyrk sinn, frá 37-42% á 24 vikna könnunartímabili. Til að kanna hvort þessi aukni vöðvastyrkur yki hæfni fólksins í daglegu lífi voru gerðar ýmsar prófanir og reyndust allir hópamir vera fljótari að standa upp úr stól og að Iabba hænuskref 6 metra afturábak að æfingatímabilinu Ioknu. Rannsóknin þykir hafa sýnt að mót- stöðuæfingar geti þannig haft umtalsverð áhrif á hæfni aldraðra í daglegu lífi þótt þeir lyfti lóðum aðeins einu sinni í viku. Með því að auka vöðvastyrk og bæta jaíh- vægisskyn líkamans minnki Iíkur á því að aldrað fólk detti og brotni en slík beinbrot geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir fólk sem komið er á efri ár. Tengsl kaffíns og beinþynningar Nýjustu rannsóknir sýna að kaffidrykkja getur hert á beinþynningu hjá eldri konum sem taka inn lítið magn af kalki. Kaffinið er þvagörvandi og þar sem dálítið kalk berst út úr líkamanum með þvagi hafa læknar haft áhyggjur af áhrifum kalfins á bein- þynningu. Þess má geta að mannkynið inn- byrðir um 120.000 tonn af kaffini á ári hveiju sem jafngildir því að hver einasta mannvera drekki u.þ.b. einn koffindrykk á dag. Bit og klór áríð núll KYIMLIF I Kama Sutfa er litið á hina ýmsu þætti ástar- lífsins sem listir og ekki aðeins það sém kemur ‘“ftclst uppf'fíö'ga vest- rænna nútímamanna þegar talað er um kynlíf (limur í skaut, munn cða endaþarm og jafn- vél munnur á skaut). Kynlíf’shlutinn er kall- ______________ aður aðferðirnar sex- tíuogfjórar (Chatushs- hashti) en eitthvað hef- ur verið deilt ufn það hvort nafnið sé til komið vegna margfeldis kaflanna og að- ferðanna sem útlistaðar eru í hverjum þeirra (8x8=64) eða helber tilviljun (sbr. 8x4 sem er svitasprey). Það er dálítið mis- munandi eftir útgáfum ritsins og þýðing- um hvernig kaflarnir greinast niður og hversu margar aðferðir til ásta eru út- skýrðar oftast eru það þessar 64. Ragnheiðtr Eíríksdóttip skrifar Átta aðferðir til að drepa tímann Kaflarnir átta innihalda eftirfarandi spennandi umfjöllunarefni: faðmlög (allt frá leynilegum strokum ókunnugra en áhugasamra til þéttra faðmlaga elskenda), kossar (mjúkir, djúpir, beinir, bognir, snúnir o.s.frv.), klór (ah, tökum það betur fyrir eftir nokkur slög), bit (ah ah ah, já þetta Iíka), sam- farastellingar (sumar aðeins á færi yfir meðallagi liðugra), að- ferðir við að slá og hljóðin sem slíkir ástarslættir framkalla (létt SM, t.d. dásamlega nákvæmar leiðbeiningar um það hvernig ung kona svarar Iéttum rass- skell), hlutverkaskipti (konan of- aná og aggressíf) og Auparishtaka eða munnmök (aðallega gelding- ar sem sugu og léku sér við limi ógeldra karlmanna). / Kama Sutra er sérstaklega mælt með klóri I áköfum ástarleikjum og við ákveðin tækifæri, til dæmis þegar eisk- endur njótast í fyrsta skipti. Klórukettir f Kama Sutra er sérstaklega mælt með klóri í áköfum ástarleikjum og við ákveðin tækifæri: þegar elskendur njótast í fyrsta sinn, þegar annar elskenda er á leið í ferðalag, þegar aftur er snúið heim, þegar sættir verða eftir rifrildi og að Iokum þegar kona er undir áhrifum (hmm?, ekki yfir- færa þetta algerlega á nútímann). Það er heilmikil list að klóra svo vel megi við una og með æfingu er hægt að ná valdi á hinum átta tegundum klórs sem eru flokkaðar eftir farinu sem verður eftir á húðinni. Páfuglsfót er til dæmis hægt að skilja eftir á brjósti með því að pressa öll- um nöglum annarrar handar á húðina og skyldi það gert um leið og brjóstið er dá- samað með orðum. Þegar munúðarfull ástkona ber merki eftir neglur elskhuga síns þarf hún ekki annað en að líta á staðinn til að ást hennar magnist og un- aður leiksins rifjist upp. Bíttu mig Staði sem gott er áð kyssa má gjarnan híta líka. Þó eru nokkrar undantekningar þar á skv. Kama Sutra, efri vörin, innan í munni og augun. Nokkrar tegundir hita eru: punktbit (smá óggulítið skinn er tekið milli tveggja tanna), punktalínan (allar tennurnar notaðar til að bíta í smá skinn), kórall og gimsteinn (bitið þegar varir hylja tennurnar) og gimsteinafesti (allar tenn- urnar notaðar og bitið í dágóðan skammt af holdi). Þegar karl bítur konu skyldi hún svara með tvöföldu afli. Þegar karl sýnir ástkonu sinni far eftir bit úr síðasta ástar- leik þeirra skyldi konan brosa og Iíta niður en síðan sýna honum bitförin á sér reið á svip en bæði vita þau að bitin hafa eflt og aukið ástríður þeirra í milli. Varúð Það er skýrt tekið fram að konur sem eiga eiginmenn (sem eru ekki þátttakendur í ástarleiknum) eigi aldrei að bíta eða klóra svo að sjái á þeim. Þó má narta í og merkja staði sem eru huldir dags daglega! Ragnheiður Eiríksdóttir er hjúkrunar- jræðingur.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.