Dagur - 16.10.1999, Blaðsíða 18
34 - LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999
Tfc^iir
hann Jóhannsson í Lhooq. Diskó
af gamla skólanum og svo
danspopp af nýjustu gerð hverju
sinni hafa einkennt tónlist Páls
Oskars hingað til og þannig verð-
ur það víst áfram öllum til mikill-
ar ánægju. Svo er aldrei að vita
nema að þessi plata eigi eftir að
fara víða um allavega Evrópu, en
þessi tónlistarblanda er einmitt
ekki hvað síst í anda þess sem
þar fellur í kramið. Titillag plöt-
unnar er nú aðeins tekið að
hljóma á öldum ljósvakans og er
bara hinn bærilegasti „skrokka-
skekir".
-Á kaf-í og
með
Páll Óskar. Nýja platan er handan við hornið.
Páli
Oska
Það fer víst ekkert á milli mála, kannski að Bubba
undanskildum, að Páll Óskar Hljálmtýsson er sá ein-
staklingur sem vinsælastur hefur verið í íslensku poppi
undanfarin ár. Og nú hafa ungmeyjar og sveinar lands-
ins ástæðu til að fagna, því á leiðinni er ný plata frá
piltinum, sem verður sú fysta frá honum undir eigin
nafni eingöngu í um þrjú ár, eða frá því að Save kom
út. Feril Palla þarf víst ekki að rekja í smáatriðum, en
hann hefur staðið í stórum dráttum frá barnsaldi er
hann söng lög inn á barnaplötu sem Gylfi Ægis gerði.
Svo var það í skemmstu máli Rocky horror, Milljóna-
mæringarnir og síðast Casíno, svo örfá orð séu látin
falla nánar um kappann. Einherjaplöturnar eru svo
hingað til þrjár, auk Save, Palli og Stuð. Nýja platan er
svo að koma út nú í Iok mánaðarins og heitir því góða
nafni Deep inside Paul Oscar, en hana hefur kappinn
unnið í hálft ár eða svo með mönnum á borð við Jó-
„Stundin“ er.
upprunmn
David Bowie. Bregst ekki gömlum aðdáendum.
Ferill Davids Roberts Jones, eða
David Bowie eins og hann hefur
lengst af kallað sig, hefur ein-
kennst af mörgum andlitum, mis-
munandi stflum og meiriháttar
upphefð í flestum skilningi.
Bowie sem Ziggy Stardust, The
thin white Duke, eða bara sem
hann sjálfur hefur á þeim þrjátíu
árum sem hann hefur verið á
ferðinni náð ótrúlega mikilli hylli
og gengið meir og lengur í endur-
nýjun lífdaga en flestir aðrir
heimsfrægir popparar. En eins og
margir sjálfsagt vita hefur hann
ekki bara Iátið tónlistina nægja,
leiklist og myndlist hefur hann
einnig stundað auk þess auðvitað
að vera mikill friðar- og umhverf-
isfrömuður. Er hér annars staðar
á síðunni einmitt minnst á þátt
hans í Nett aid styrktartónleikun-
um, sem fram fóru um sl. helgi.
(sem dæmi um leik, þá eru tvær
kvikmyndir, Absolute beginners
og Cat People, meðal þess sem
hann hefur komið nálægt á því
sviðinu) * *Sem skýrt dæmi um
það hversu Bowie hefur vel tekist
upp og hversu merkilegur tónlistarmað-
ur hann hlýtur að teljast enn í dag og
það þó vinsældirnar hafi kannski ekki al-
veg verið eins miklar í seinni tíð og fyrr-
um, er að síðasta platan hans, Outsidc,
sem hann vann með fornvini sínum Bri-
an Eno, vakti góð og sterk viðbrögð þótt
hún teldist af hálfu Iistamannsins aðeins
millibilsástandsverk. Þar fengust þeir fé-
lagar sem kunnugt er við nútímapopp-
fyrirbærið drum & base tónlist, „bumbu-
bassa“ eða eitthvað í þá áttina, eins og
hægt er að kalla það á íslensku. Og nú
tveimur árum eftir útkomu Outside, er
næsta eiginlega plata Bowies komin út,
algjör andstæða við hina fyrri, að mestu
á hefðbundnum fullorðinspoppnótum.
Hours nefnist gripurinn og kom eigin-
lega fyrst út á netinu. Þar bauðst m.a.
almenningi að skrifa texta við eitt lag-
anna, What’s happening og fór svo að
ungur amerískur strákur, Alex Grant,
varð hlutskarpastur. Það lag sem og
smáskífulagið First days child gefa góða
mynd af gripnum og er smáskífulagið
reyndar aldeilis afbragðspopplag, sýnir
Bowie í sínu allra besta formi. Ættu því
eldri og reyndar yngri líka í aðdáenda-
hóp hans að kunna vel að meta þetta
nýjasta framtak.
Poppfregnir
*Oasis hefur verið mikið í fréttum
vegna brotthvarfa gítar- og trommuleik-
ara. Þau vandæði aftra því hins vegar
ekki að ákveðið hefur verið að halda í
tónleikaferð á næsta ári til að fylgja nýju
plötunni, þeirri fjórðu, eftir. Hún kemur
út í byrjun ársins, en nafn hennar hefur
ekki verið ákveðið enn. Fyrsta smáskífan
verður hins vegar með laginu Go, let it
out.
*Breska rokktríóið Bush, sem kcnn-
ingin, „Enginn er spámaður í sínu föð-
uriandi" á vel við um, sendir innan tíðar
frá sér sína þriðju plötu, sem bera mun
heitið, Science of things. Gavin Rose-
croft söngvari og félagar hans hafa verið
gríðarlega vinsælir í Ameríku, selt þar
plötur í bílfarmavís, en hcima í Bret-
landi hefur salan og vinsældirnar þar
með ekki komist í hálfkvisti við það sem
gerst hefur í Bandaríkjunum.
*Nett aid tónleikarnir, sem fram fóru
um síðustu helgi í þremur borgum,
London, Genf og New Jersey og varpað
var á nctinu til milljóna manna um allan
heim, voru sérstök upplifun og f flesta
staði vel heppnaðir. Valinkunnir friðar-
postular og vinir þess smáa, t.d. Bono úr
U2, David Bowie o.fl. komu fram auk
nafna á borð við Eurythmics, Robbie
WiIIiams og Big Country, sem er að bar-
dúsa við að ná fyrri frægð. Eins og Band
aid voru um árið, voru tónlcikarnir nú til
styrktar baráttunni gegn fátækt.
* Reykvíska rokkþríeykið Suð, hefur
vcrið á ferðinni í um þrjú ár, en hefur
ekki þar lil nú sent frá sér plötu. Nú
hefur það hins vegar gerst og gefa þeir
plötuna út sjálfir. Japís sér svo um að
dreifa. Kallast gripurinn Hugsjónavélin
og inniheldur ein 11 lög eftir jrá félaga.
Framsækið og grípandi rokk er á mat-
seðlinum, hrátt og bara nokkuð kraft-
mikið á köflum.
*Vestnorræna ungmennasamkundan,
sem haldin var í Reykjavik um sl. helgi
þar sem m.a. rokksveitir frá þessu svæði
komu fram, hefur væntanlega tekist það
vel að framhald verði á svo merku fram-
taki. Ekki síst á tónlistarsviðinu, er mik-
Bubbi. Nýja safnplatan að koma með kaupbæti.
ilvægt að stilla saman strengi hinna nor-
rænu þjóða og er næsta víst að lengi býr
að íyrstu gerð. Tengslin sem þama hafa
væntanlega myndast, munu skila enn
meiru í framtíðinni.
*Eins og poppunnendur margir hveijir
vita, lést Michael Hutchins söngvari
áströlsku sveitarinnar INXS með sorgleg-
um hætti fyrir fáum árum. Kappinn var
þá byijaður að vinna sína fyrstu plötu
undir eigin nafni. Er hún nú komin út og
nefnist Straight line.
*llcyrst hefur, að Rúnari Þór, þeim
gagnmerka tónlistarmanni, hafi tekist að
selja sjálfum Clyderman eitt sitt allra
þckktasta lag, 1.12. Ef satt er þá er um
nokkuð merkilegan hlut að ræða, en sagt
er að píanótröllið ætli að hljóðrita lagið á
næstu plötu. Þetta verður þó að svo
stöddu ekki selt dýrara en það var kcypt.
*Fyrir hörðustu aðdáendur Bubba
Morthens er rétt að minna á, að tvöfalda
safnplatan með mörgum af hans vinsæl-
ustu lögum er nú á leiðinni, og verður
væntanlega komin í búðir 20. þessa mán-
aðar. A fjórða tug laga verða á plölunni
auk þess sem fyrsta kastið mun lylgja
fimm laga aukaplata sem inniheldur upp-
tökur sem Bubbi gerði með Botnleðju og
Ensimi.