Dagur - 21.10.1999, Síða 7
I
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 - 7
Samkeppi-
þegar þao hcntar
„Á hinn bóginn, og andstætt þessu, er svo hið darwiníska sjónarhorn sem Óii Björn Kárason, ritstjóri Dagblaðsins,
og Hannes Hólmsteinn frjálshyggjuprófessor eru helstu talsmenn fyrir. Samkvæmt því réttlætist hegðun manna á
eignarhaldi, “ segir Grímur m.a. í grein sinni.
GIJI'VUJK HAKONAR
SON
- 1 NEMI
A mí SKRIFAR
Ég er staddur í Húsi Verslunar-
innar, nánar tiltekið á hæð 1.
Fyrir ofan mig eru svo og svo
margar stofnanir sem oftlega er
getið á síðum blaðanna. Þær eru
sagðar stunda „viðskipti" sem er
annað orð yfir heiðarleika í dag.
En tildrög þessarar staðsetn-
ingar minnar eru semsagt þau,
að ég drýgi stundum tekjurnar
með því að bóna gólf og dusta
rykaf hurðarhúnum þessa sóma-
kæra fólks. Og núna - í þessum
töluðu orðum - krýp ég einmitt
við einn af stóru gluggunum á 1.
hæðinni, gegnt Sjóvá-AImenn-
um og Morgunblaðshöllinni
(takið eftir þessari dramatísku
staðsetningu!), og dunda mér við
að hreinsa rykið úr gluggakarm-
inum. Við hliðina á mér er
blómapottur; stór eins og allt
annað í húsinu. Ég beygi mig yfir
hann til þess að ná til ryks innar-
lega úr horninu. Og hvað sé ég
þarna ofan í pottinum? Sé ég
ekki bara STOÐ 3 spilastokk!
Með straumlínulagaða þrívídd-
arlógóinu og alles. STÖÐ 3
spilastokkur í blómapotti hjá
Verslunarráði Islands! Hugsið
ykkur. Alveg brilljant markaðs-
setning.
Eftir dálitla umhugsun rifjað-
ist það upp fyrir mér að STÖÐ 3
hafði farið á hausinn um svipað
leyti og Morgunpósturinn. Hún
hafði aðeins fengið að vera til í
fáeina mánuði þangað til hún
var sprengd í tætlur af manni
sem heitir Jón. Jón þessi hafði
þó manndóm í sér til að setja
brotin í spilastokka og selja sem
blómapottaskraut til Verslunar-
ráðs Islands. Og þannig h'tur ís-
lenskur sjónvarpsmarkaður út í
dag: RUV og maður sem heitir
Jón.
Samkeppni og siðferði
Samkeppni er huggulegt orðatil-
tæki. Hún er „II duce“ hins töl-
fræðiútlítandi manns. Megin-
röksemdin fyrir því að einkaaðil-
um, fyrirtækjum, einstaklingum
og kennitölum ýmisskonar, sé
eftirlátin forsjá yfir helstu at-
vinnutækjum þjóðarinnar, er, að
með því hljótist eðlileg sam-
keppni á markaði sem skili sér í
lægra vöruverði til neytandans.
Með henni tryggjum við skyn-
samlega nýtingu velflestra eðlis-
þátta daglegs lífs, þ.m.t. nýtingu
arðsemisgena og sparnaðarhvat-
ar. Það er henni að þakka að
menn fá frelsistilfinningu þegar
þeir koma inn í súpermarkað.
En sumir menn eru í eðli sínu
óþægir og á þá bíta engin núgild-
andi lög, sbr. Jón, og ekki heldur
ráðherraraddir sem túlka vilja
siðferði viðskipta. Þarna er
vandamál sem ekki verður rétt-
lætt öðruvísi en með einhverri
abstrakt markaðsmónólógíu sem
segir að heildaráhrif þess séu,
þegar allt kemur til alls, öllum til
hagsbóta. Það kemur skúringa-
konunni niðri á Stöð 2 vel að Jón
Ólafsson sé siðlaus í viðskiptum
- hún gæti átt von á kauphækk-
un. Því hefur stundum verið
varpað fram sem siðferðislíkingu
um samkeppni á markaði, að ef
Jón Ólafsson og Mahatma
Gandhi deildu saman leiguhús-
næði og Gandhi lægi einn morg-
uninn mótstöðulaus á gólfinu,
þá myndi Jón ekki hika við stíga
ofan á hann.
Dýrð sá Darwin
Samheitið hægrimaður er orðið
ansi geðldofið þegar kemur að
því að ræða samkeppnismál, og
að undanförnu hefur ldappstýru-
hópur Sjálfstæðisflokksins verið
ákaflega ósamstígur í þeim mál-
um. Samviska hægrimannsins er
þó helst áþreifanleg þessa dag-
anna í Reykjavíkurbréfi Morgun-
blaðsins. Þar sæta fákeppnistil-
burðir og samþjöppun á markaði
oft harðri gagnrýni. Á hinn bóg-
inn, og andstætt þessu, er svo
hið darwiníska sjónarhorn sem
Óli Björn Kárason, ritstjóri Dag-
blaðsins, og Hannes Hólmsteinn
frjálshyggjuprófessor eru helstu
talsmenn fyrir. Samkvæmt því
réttlætist hegðun manna á eign-
arhaldi. Ef fyrirtæki í einkaeigu
brýtur samkeppnislög er það
kallað hagræðing eða viðskipta-
frelsi. Ef fyrirtæki í ríkiseigu
brýtur samkeppnislög er það
kallað siðleysi eða alræðishyggja.
Samþjöppun eigna á markaði er
náttúruval Darwins með fram-
salsheimild frá Milton Fried-
man. Það er aðeins einn vondur
kapítalisti í heiminum að mati
Hannesar. Og það er Jón Ólafs-
son sem fjármagnaði kosninga-
baráttu R-Iistans með ólöglegri
eiturlyfjasölu. (Bíðið nú hæg:
Hvernig getur eiturlyfjasala verið
ólögleg hjá manni sem vill hvort
sem er lögleiða eiturlyf?!)
Tvíeðli stjómvalda
Það öfugmæli að „sumir kapít-
alistar séu betri en aðrir" hefur
verið sannmæli f Stjórnarráðinu
ansi lengi. Þegar eitthvað krítískt
mál kemur upp á samkeppnis-
markaði er ýmist gripið til Morg-
unblaðssamviskunnar eða
darwinisma Hannesar til að rétt-
læta ákvarðanatökur, og fer það
eftir því hvaða aðilar eiga í hlut
hverju sinni. Þetta er stundum
kallað hcntistefna í pólitísku
máli. Það þóttu siðlausir við-
skiptahættir hjá Jóni og félögum
að skrásetja fyrirtæki í Lux-
emburg og kaupa þaðan fjórð-
ungshlut í Fjárfestingarbankan-
um. Bara óveijanlegt skattsvindl!
I sömu vikunni og þetta gerðist
lögðu stjórnvöld blessun sína yfir
nýja löggjöf sem heimilar starf-
semi alþjóðlegra pappírsfyrir-
tækja í íslenskri lögsögu; fyrir-
tækja sem hafa dulkóðaða hlut-
hafaskrá og borga aðeins 5% í
tekjuskatt til ríkisins, rétt eins og
í Luxemburg! Þegar Eimskipafé-
lagið fékk loksins samkeppni á
sjóflutningsmarkaði frá skipafé-
laginu Atlanta, sem hafði af
þeim varnarliðsflutningana með
djörfu undirboði sl. vor, tóku
stjórnvöld upp málstað Eim-
skipafélagsins og tryggðu því
áframhaldandi einokunarstöðu.
Sömu stjórnvöld saka nú for-
svarsmenn Baugs um einokunar-
tilburði á matvörumarkaði þrátt
fyrir að þeirra markaðshlutdeild
sé þriðjungi minni en Eimskips!
Er nema von að Sævar Karl þurfi
að hætta sölu á BOSS-herrafatn-
aði þegar litli bróðir Eimskips,
Flugleiðir, er byrjaður að selja
hann tollfrjálsan í fríhöfninni
sinni? Sem stjórnvöld seldu fyr-
irtækinu á spottprís á síðasta
kjörtímabili þrátt fýrir að nokkrir
álitlegir kapítalistar hafi boðið
hærra verð?
GafLaríim hafnfírskí
gegn vímuefnum
í haust tók Lionsklúbbur Hafnar-
fjarðar upp nýja gerð söfnunar,
Gaflaradaginn, sem endar að
kvöldi með Gaflarahátíð. Meðal
söfnunaratriða er að gert verður
árlega Gaflaramerki, með mynd
hins eilífa GAFLARA Hafnfirð-
inga. A merki þessu er áletrun
sem breytist frá ári til árs, því er
hér um safngrip að ræða. Merkin
verða seld árlega fyrir utan stór-
markaði í Hafnarfirði, 3 daga fyr-
ir hátíðina hverju sinni. Upplag
merkisins er aðeins 2000 eins og
tala lokaárs aldarinnar. Þá er
einnig nokkur ágóði af Gaflarahá-
tíðinni og uppákomum þar. Samt
verður Gaflarinn á hverjum tíma
aðal tekjulind vímuvarnaátaksins.
Hann kostar aðeins kr. 500,00.
Agóði þessarar söfnunar verður
notaður sem „ALDAMÓTAÁTAK
í VÍMUEFNAVÖRNUM“. Það
verður fyrst og fremst falið í því,
að veita fé einvörðungu til þeirra
hluta er verkefnanefnd telur að
eigi öruggan möguleika á að vera
markvissar úrbætur þessara mála
í bænum. Mun leitað til aðila eins
og sýslumanns, bæjarstjóra,
barnaverndar og foreldrafélaga til
úrskurðar um það. Þeir þekkja
best er á brennur.
Þá verður Ieitað til nokkurra
nágrannaklúbba og annarra aðila
um kaup á Gaflaranum. A það
skal ennfremur bent, að hér er
um safngrip að ræða og að hægt
er að panta hann beint frá:
LionsklúSbur Hafnarfjarðar, Bæj-
arhrauni 2, 220 Hafnarljörður.
Ætlunin er að selja merkin upp
hverju sinni.
Hafnfirski Gaflarinn gegn vímuefn-
um. Spariklædd hönnun fyrir Lkl.
Hafnarfjarðar.
ii.