Dagur - 22.10.1999, Síða 1
Flj ótsdalsvirkjtm
oilítil fyrir álver
Bj axnarflagsvirkjun
komtn á fufla ferð, en
Náttúrurannsóknar-
stöðin við Mývatn
ekki boðuð á kynning-
aríund. Frummat á
umhverfisáhrifum
væntanlegt í desem-
ber.
Ljóst er að Fljótsdalsvirkjun eins
og hún er nú fyrirhuguð af hálfu
Landsvirkjunar mun ekki ná að
uppfylla raforkuþörf 120 þúsund
tonna álvers á Reyðarfirði, en
það er fyrirhuguð stærð fyrsta
áfanga álversins þar. Til að brúa
bilið við að tryggja afhendingu
nægilegrar orku til fyrsta áfanga
álversins hefur Landsvirkjun
uppi áform um að virkja í Bjarn-
arfíagi í Mývatnssveit. Gufuafls-
virkjunin þar yrði 40 megawatta
virkjun og frá henni yrði þá reist
raflína við hlið byggðalínunnar
austur á Reyðarfjörð. Agnar
Olsen, framkvæmdastjóri verk-
fræðisviðs, segir ljóst að virkjun
við Bjarnarflag þurfi að fara í
umhverfismat sem og línulögnin
frá henni. „Bjarnarflagsvirkjun
þarf að fara í umhverfismat og
skýrsla um hana mun verða til-
búin nú í byrjun desember og við
munum þá senda hana inn til
skipulagsstjóra,"
segir Agnar.
Styttri bygg-
ingartími
Agnar segir að
byggingartími
virkjunar í Bjarn-
arflagi sé mun
styttri en á
Fljótsdal og því
ætti að gefast
ráðrúm til um-
hverfismats þar
án þess að það
raski tímaáætlunum um bygg-
ingu álversins. Að sögn Agnars
þarf bygging virkjunarinnar ekki
að fara af stað fyrr en 2001 til
þess að hún verði tilbúin 2003.
„Matið fer þá inn núna í vetur og
vonandi fáum við þá fyrsta úr-
skurðinn í vor eða fyrri hluta
næsta árs frá skipulagsstjóra. En
ef við þurfum síðan að fara með
þetta í svokallað frekara mat þá
höfum við næsta sumar til að
undirbúa það og senda þá inn
endanlega skýrslu næsta haust,“
segir Agnar.
Ekki boðaðir á fimdiim
Bjarnarflags-
virkjun liggur nú
tilbúin á teikni-
borði Lands-
virkjunar og í
síðustu viku var
hún kynnt fyrir
lögboðnum um-
sagnaraðilum,
s.s sveitarstjórn
Skútustaða-
hrepps, Skipu-
lagsstofnun og
Náttúruvernd
ríkisins. Sérstök
heimildarlög um slíka virkjun
voru samþykkt á Alþingi sl. vor.
Eftir sem áður gilda um slíka
virkjun lög um verndun Laxár og
Mývatns og samkvæmt þeim lög-
um er Náttúrurannsóknarstöðin
við Mývatn umsagnaraðili um
slíkar framkvæmdir. Gísli Már
Gíslason, forstöðumaður stöðv-
arinnar, sagði í samtali við Dag í
gær að Rannsóknarstöðin hefði
fyrir fjórum árum Iagt upp
spurningalista um áhrif slíkrar
virkjunar á náttúru svæðisins,
sérstaldega áhrifin á Hverarönd-
ina í Námafjalli sem væri eina
háhitasvæðið sem lægi við hring-
veginn. Hins vegar hafi fulltrúar
Náttúrurannsóknarstöðvarinnar
ekki verið boðaðir á fundinn í
síðustu viku þar sem lögboðnum
umsagnaraðilum var kynnt
frumskýrsla um málið. Því treysti
hann sér ekki til að tjá sig um
þetta fyrr en hann hefði fengið
vitneskju um hvort spurningum
stöðvarinnar hefði verið svarað á
fullnægjandi hátt. Spurður um
skýringar á því að Náttúrurann-
sóknarstöðin var ekki boðuð til
fundarins, vonaðist Gísli til að
það hafi verið mistök, en hann
hafi fyrst frétt af honum í gær.
Olöf Guðný Valdimarsdóttir,
formaður Náttúruverndarráðs,
vísar í fyrri athugasemdir ráðsins
um virkjun í Bjarnarflagi, en seg-
ir að ef farið verði í lögformlegt
umhverfismat og niðurstöður
þess virtar sé ekki hægt að setja
sig upp á móti slíkri framkvæmd.
- BG
Fljótsdalsvirkjun mun ekki uppfylla
raforkuþörf nýs álvers og Bjarn-
arflagsvirkjun þarf til.
Höfiiðpaur
fimdmn?
Enn Ijölgar þeim sem koma við
sögu „stóra fíkniefnamálsins"
svokallaða því í gær úrskurðaði
Héraðsdómur Reykjavíkur karl-
mann á fertugsaldri í gæsluvarð-
hald til eins mánaðar en lög-
regla krafðist varðhalds til
tveggja mánaða. Mun maðurinn
vera talinn einn af höfuðpaur-
um málsins. Ekki er talið útilok-
að að fleiri verði teknir.
Þar með hafa 11 menn verið
handteknir vegna málsins og
sitja 10 í varðhaldi. Sá sem sætti
rannsókn efnahagsbrotadeildar
Rfkislögreglustjóra hefur verið
látinn laus en deildin kemur að
rannsókn málsins í heild, yfir-
heyrir alla sakborningana og
vitni, til þess að geta haft uppi á,
kyrrsett og lagt hald á fjármuni
þeirra með það fyrir augum að
hægt sé að gera upptækan
ágóða þeirra af fíkniefnavið-
skiptum.
Hrannar B. Arnarsson, borgarfulltrúi R-listans, tók sæti á ný i borgarstjórn í gær eftir að rannsókn máls hans hjá
skattstjóra er lokið. Hrannar þarf að greiða 450 þúsund krónur í sekt. Áður en Hrannar fór á borgarstjórnarfund
hitti hann Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, borgarstjóra og leiðtoga R-listans, að máli í Ráðhúsinu og fór vel á með
þeim eins og sjá má. Nánar er fjallað um málið á bls. 5 í blaðinu í dag. mynd: e.ól.
Sigurður Einarsson, forstjóri
Kaupþings.
„Okkur
ofviða“
„Við fundum ekki lendingu í
málinu sem gat þjónað hags-
munum hluthafa okkar. Þetta
reyndist okkur ofviða í þessari
Iotu,“ sagði Sigurður Einarsson,
forstjóri Kaupþings, eftir að
frestur rann út í gær til að skila
inn þátttökutilkynningu í FBA-
útboðinu. Guðmundur Hauks-
son, sparisjóðsstjóri SPRON,
sagði slíkt hið sama en spari-
sjóðirnir og Kaupþing skoðuðu
saman þann möguleika að
bjóða í FBA.
Eríiðir útboðsskilmálar
Sigurður sagði að skilmálarnir
hefðu að mati Kaupþings „ekki
verið í samræmi við þann veru-
Ieika sem við blasti". Tilboðs-
fresturinn væri skammur og að
ekki yrði ljóst fýrr en 5. nóvem-
ber hvort tilboðum yrði tekið
eða ekki. Eftir það væru aðeins
tíu dagar til að útvega 10 millj-
arða að lágmarki.
„Áskilnaður um nafnbirtingu
fælir einhverja frá, sérstaklega
erlenda aðila. Yfirtökuskilyrði
eru óljós, sem gætu hækkað
kaupverðið um milljarða. Síðan
eru ráðgerðar breytingar hjá
Seðlabankanum á lausafjárregl-
um bankastofnana. Það gerir
aðstöðu manna til stórra ákvarð-
ana erfitt um vik. Svo eru að
nálgast all sérstök áramót, sem
gefa tilefni til aðgæslu um heim
allan,“ sagði Sigurður og Guð-
mundur tók undir þessi atriði.
Guðmundur sagði, líkt og Sig-
urður, að skilmálar útboðsins
hefðu verið snúnir. Rætt hefði
verið við fleiri aðila en Kaupþing
en ekki náðst niðurstaða þrátt
fyrir áhuga margra fjárfesta.
FBA væri áhugaverður kostur og
hann sagðist líta svo á að spari-
sjóðirnir væru ekki endanlega
búnir að missa áhuga á bankan-
um. Þeir félagar lýstu báðir yfir
undrun sinni með að einkavæð-
ingarnefnd upplýsti ekki hversu
margar tilkynningar bárust. - BJB
- Sjd nánar á bls. 5
wmmmm
Afgreiddir samdægurs
Venjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI ■ SÍMI462 3524