Dagur - 22.10.1999, Blaðsíða 5

Dagur - 22.10.1999, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 - S T>;yur rj& nfi Aðilar tengdir Orca með tilboó í FBA Fulltrúar einkavædingarnefndar og Ríkiskaupa gera fjölmiðlum grein . þátttökutilkynningum. Frá vinstri eru það Guðmundur Ólason frá einka- væðingarnefnd, Hreinn Loftsson, formaður nefndarinnar, og Jón Sveinsson nefndarmaður. Á innfelldu myndinni er Árni Hauksson að skiia inn tilkynn- ingu í anddyri Ríkiskaupa. - myndir: hilmar þór Einkavæðingamefnd segir „tilboð“ hafa borist í FBA en npplýs- ir ekki hversu mörg. Líklegt er talið að aðil- ar tengdir Orca-hópn- iiin hafi skilað inn til- hoði. „Klukkan er rétt skriðin yfir tvö og ég get upplýst ykkur á þessu stigi að það bárust tilboð. Það verður farið yfir þau í framhaldinu. Ekki verður upplýst hversu margir þessir hópar eru, einn eða fleiri, né heldur hverjir eiga aðild að til- boðunum. Það verður farið yfir þetta núna af hálfu framkvæmda- nefndar um einkavæðingu og ákveðins hóps sem skipaður var í því skyni. Það má gera ráð fyrir að niðurstöður þeirrar skoðunar liggi fyrir fljótlega eftir helgi, hvort að þessir aðilar uppfylli þau skilyrði sem sett voru fyrir sölunni," sagði Hreinn Loftsson, formaður einka- væðingarnefndar, við fjölmiðla í húsakynnum Ríkiskaupa í gær eftir að frestur rann út til að skila inn þátttökutilkynningum í út- boðinu á 51% hlut ríkisins í FBA. Hrcinn varðist limlega þeim spurningum Ijölmiðla frá hverjum tilkynningar hefðu borist og af hverju ckki væri sagt frá þátttak- endum. Samkvæmt heimildum Dags er talið líklegast að tilboð hafi í mesta lagi borist frá tveim- ur hópum. „Eins og lýst er í söluskilmálum munum við kanna þessa aðila og tengsl þeirra og átta okkur á því hvort þeir upplý'lla sett skilyrði. Á meðan það liggur ekki fyrir er ekki hægt að upplýsa um málið," sagði Hreinn. Hann sagði að ef enginn þátttakandi uppfyllti skil- yrðin yrði væntanlega ekkert af sölunni að svo stöddu. Uppfylli aðeins einn aðili skilyrðin getur ríkið áskilið sér rétt til að hafna því tilboði eða bjóða þeim aðilum hlutinn á lágmarksgenginu 2,80. Orca segir ekkert A meðan fjölmiðlar biðu í anddyri Ríkiskaupa kom aðeins einn aðili með tilkynningu. Það var Arni Hauksson, aðstoðarframkvæmda- stjóri Frjálsrar fjölmiðlunar. Hann vildi ekki upplýsa fyrir hvaða aðila hann hefði verið að erinda. Það að Arni hafi skilað inn tilkynningu bendir óneitanlega til þess að Orca-hópurinn sé viðriðinn þátt- töku. Eyjólfur Sveinsson, stjórn- arformaður Orca, vildi ekkert láta hafa eftir sér er Dagur hafði sam- band við hann. Vísaði hann að- ■ ' eins á einkavæðingarnefnd og Ríkiskaup vcgna málsins. Jón Sveinsson lögmaður, sem sæti á í einkavæðingarnefnd og er í þeim hópi sem fer yfir tilkynn- ingarnar, vildi í samtali við Dag ekkert urn það segja hvort tilkynn- ing hefði borist frá fleiri en einum aðila, eða hvort þær komu crlend- is frá eða frá innlendum aöilum. I sölugögnum Ríkiskaupa kem- ur fram að þátttakendur áttu að skila inn upplýsingum um inn- byrðis samsetningu og skiptingu eignarhluta innan hópsins, þar sem hámark hvers er 6%. Lág- markshlutur hvers aðila innan hópsins er 6 milljónir króna. — BJB „Fjallið tók jóðsótt og fæddist lítil mús“ Hrannar B. Alfreð Guðlaugur Þór Arnarsson. Þorsteinsson. Þórðarson. Minna verður veitt afnorsk-ís- lensku síldinni á næsta ári. Minna af síld Samkomulag helur tekist um veiðar úr norsk-íslenska síldar- stofninum á árinu 2000 milli Is- lands, Færeyja, Noregs, Rúss- lands og Evrópusambandsins. Heildaraflinn er 1.240.000 lestir á næsta ári, sem er minnkun um tæpar 50 þúsund lestir frá leyfi- legum hámarksafla á þessu ári. Aflinn skiptist þannig að í hlut Islands koma 194.230 lestir, í hlut Færeyja 68.270 lestir, f hlut Noregs 712.500 Iestir, í hlut Rússlands 160.200 lestir og í hlut Evrópusambandsins 104.800 Iestir. Hlutur íslands er því 16%. Það nýmæli felst í samkomu- laginu að ákveðið var að frá og með árinu 2001 skuli nota afla- reglu sem miðast við fiskveiði- dánarstuðulinn 0.125 f stað 0.15 sem verið hefur viömiðunin und- anfarin ár. Þetta cr mikilvægt skref til að draga úr hættu á hruni stofnsins og tryggja jafnari veiði á komandi árum. Aðilar urðu ennfremur sammála um að grípa til enn strangari veiðitak- markana, ef ástand stofnsins gæfi tilefni til. — GG Hraunar B. Amarsson tekur sæti í borgar- stjóm. Alfreð Þor- steinsson segir um að- förina að Hrannari að fjaHið hafi tekið jóð- sótt og fæðst hafi lítil mús. Guðlaugur Þór Þórðarson segir að Hrannar eigi að leggja mál sitt á borðið. „Þetta var góður fundur með borgarstjóra og nú er ekkert í veg- inum að ég taki sæti mitt í borgar- stjórn. Eg kvíði því ekki eftir allt sem á gekk fyrir kosningar og er raunar fullur tilhlökkunar. Arás- irnar á mig fyrir kosningar voru mikil lífsreynsla sem ég vona að sé nú yfirstaðin," sagði Hrannar B. Arnarsson borgarfulltrúi, eftir fund með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra í gær. Eins og menn muna gerðu sjálfstæðismenn mikla hríð að Hrannari fyrir síðustu borgar- stjórnarkosningar og sökuðu hann um fjármálaspillingu og óreiðu. Nú hefur yfirskattanefnd gengið frá hans málum. Nefndin Ijallaði um átta atriði varðandi skattamál Hrannars. Hann var sektaður fyrir þrjú atriði um sam- tals 450 þúsund krónur en ekki þótti ástæða til að aðhafast neitt í fimm atriðum. Nefndin hefur ver- ið fimrn ár að fjalla um málið. Eðlilegt að Hraimar taki sæti „Það má segja um þetta mál að „Ijallið hafi tekið jóðsótt og fæðst lítil mús“. Niðurstaðan í máli Hrannars er ekki í samræmi við allt það ógnar fjaðrafok sem var í kringum það fyrir borgarstjórnar- kosningarnar. Það er fjöldi manns í þessu þjóðfélagi sem verður að sæta skattrannsókn og málum lyktar oft með einhverjum sektar- greiðslum. Það scm þetta mál snérist um var hvort á ferðinni væru einhver alvarleg brot, sem vörðuðu ákæru. Svo er ekki. Mér finnst því ekkert óeðlilegt að hann taki sæti sitt í borgarstjórn," sagði Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi um mál Hrannars. Allt á borðið Sjálfstæðismenn fóru hamförum í þessu máli fyrir borgarstjórnar- kosningarnar. Hvað segir Guð- Iaugur Þór Þórðarson, einn af borgarfulltrúum þeirra, um nið- urstöðuna: „Það er auðvitað hið bcsta mál að þessu skuli lokið. Það hafa ver- ið afskaplega miklar umræður um málið, svo ekki sé nú dýpra í ár- inni tekið og því tel ég hreinlegast fyrir Hrannar að birta úrskurð yf- irskattanefndar. Eins og menn muna eflaust fengu þeir Hrannar og Helgi Hjörvar fleiri útstrikanir í kosningunum en nokkru sinni hefur gerst áður. Hrannar segir nú að hann hafi ekkert að fela og því teldi ég best fyrir hann að birta úrskurðinn. Við vitum að ef einhver fær sekt hefur hann brot- ið einhver tiltekin lög,“ segir Guð- laugur Þór. — S.DÓR Sex mánuðir fyrir ölvunaraJístur Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Revkjavíkur um sex mánaða fangelsi manns og svipt- ingu ökuréttar manns ævilangt frá 19. desember 1998 að telja en maðurinn var ákærður lýrir að hafa þrívegis ekið undir áhrifum áfengis og án ökuréttinda, fyrst 1 5. október 1998 og síðan tvíveg- is 31. sama mánaðar. Maðurinn á að baki langan sakaferil, einkum vegna kynferðisafbrota, og hafði m.a. 17 sinnum hlotið refsingu fyrir ölvun við akstur. Ekki var fallist á að honum hefði verið nauðugur kostur að aka í eitt skiptið vegna aðsúgs, sem gerður var að honum, enda hafi honum verið önnur úrræði tæk. Líkamsmeiðingar af gáleysi Okumaður hefur í Hæstarétti verið dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi, sviptur ökuréttindum í tvö ár og til að greiða 80 þúsund króna sekt fyr- ir að hafa ekið bifreið sinni yfir óbrotna línu, fram úr annarri bif- reið og framan á bifreið sem kom úr gagnstæðri átt á Reykjanes- braut þann 1 1. janúar á þessu ári en við áreksturinn hlutu öku- maður og farþegi í bifreiðinni sem kom úr gagnstæðri átt áverka. Annar ökumaður var í Hæsta- rétti dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi, 1 50 þús- und króna sekt og til sviptingar ökuréttinda í tvö ár fyrir að aka fram úr tveimur bifreiðum og framan á bifreið sem kom úr gagnstæðri átt þann 1. júní 1997 á Vesturlandsvegi. Okumaður bifreiðarinnar sem kom úr gagn- stæðri átt og farþegar í báðum bifreiðum hlutu stórfelld meiðsl. Dæindur fyrir línuveiðar á Breiðafirði Skipstjóri hefur verið dæmdur til 600 þúsund króna sektar sem renni í Landhelgissjóð íslands, auk þess sem verðmæti fiskilínu og afla, rúm ein milljón króna, rennur til sjóðsins. Skipstjóran- um var gefið að sök að hafa verið á línuveiðum á Breiðafirði þann 1. desember, inni í hólfi sem lok- að var fyrir línuveiðum sam- kvæmt reglugerð. Hæstiréttur féllst ekki á þá vörn ákærða að þær takmarkanir á heimildum til fiskveiða, sem mælt er fýrir um í regiugerð nr. 262/1994, séu skorður á atvinnufrelsi manna í skilningi 75. gr. stjórnarskrárinn- ar, sbr. 13. gr. stjórnarskipunar- laga nr. 97/1995. Laudsbauktnn veiti upplýsiugar Landsbankinn var í gær dæmd- ur fyrir Hæsta- rétti til að veita Ríkisskattstjóra upplýsingar um innistæður 1.347 einstaklinga en með kröfunni um upplýsingarnar vildi Ríkisskattstjóri bera saman framtaldar Ijármagnstekjur þeirra og þær fjárhæðir sem bankar og sparisjóðir höfðu reiknað og dregið af þeim í staðgreiðslu fjár- magnstekjuskatt. Dómur Hæsta- réttar staðfestir fýrri dóm Hér- aðsdóms í málinu. — hi

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.