Dagur - 22.10.1999, Side 4
Xfe^eiir
r j
4- FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999
iarðgöng á Austurlandi
Aðalfundur Sambands sveitarfé-
laga á Austurlandi, sem haldinn
var fyrr í haust, skorar á þing-
menn kjördæmisins að tryggja að
fyrri ákvarðnir og áform um jarð-
göng á Austurlandi nái fram að
ganga. Aðalfundurinn heitir á
samgönguráðherra að veita máli
þessu brautargengi og vitnar til
samkomulags þess efnis að
næstu jarðgöng hérlendis verði á
Austurlandi.
Þeirri áskorun er beint til
Vegagerðarinnar að tryggt verði
að þjóðvegur 1 um Mývatns- og
_____________________ Möðrudalsöræfi verði ruddur
alla daga vikunnar þegar aðstæð-
ur leyfa. Hið sama gildi um veg-
inn um Vopnaljarðarheiði niður í Vopnaljörð. Eini raunhæfi möguleiki
þeirra sem ferðast þurfa landleiðina til og frá Vopnafirði sé um Vonaíjarð-
arheiði. Til að tryggja eðlilegar vetrarsamgöngur um heiðina er mjög
brýnt að snjóruðningsþjónusta þar verði í samræmi við reglur þær sem
gilda hverju sinni um þjóðleiðina milli Austur- og Norðurlands.
Þeirri áskorun er beint til Vegagerðar-
innar að tryggt verði að þjóðvegur 1
um Mývatns- og Möðrudalsöræfi verði
ruddur alla daga vikunnar þegar að-
stæður leyfa.
Samstarf SSA og Eyþings
Aðalfundur SSA samþykkti að samstarf SSA og Eyþings hæfist nú þegar.
Samstarfið miði að því að samtök sveitarfélaga í væntanlegu Norð-Aust-
urlandskjördæmi verði eins samstíga og frekast er kostur og geti starfað
sem öflugur málsvari allra sveitarfélaga í nýja kjördæminu. Skipuð verði
samráðsnefnd SSA og Eyþings og eiga í henni sæti þrír aðilar frá hvoru
sambandi. Haft verður að leiðarljósi að samböndin eru málsvarar sveit-
arfélaganna og vinna að sameiginlegum hagsmunamálum þeirra. Sam-
böndunum er ekld ætlað að fást við rekstur stofnana eða verkefna og
áhersla verður Iögð á gott samstarf við alþingismenn kjördæmanna.
Meira framboð af læknum
og hjiíkrunarfræðmguni
SSA skorar á Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigð-
isráðherra að efla ráðstafanir til að tryggja meira
framboð af læknum og hjúkrunarfræðingum til
starfa í dreifbýli og tryggja þannig að gæði heil-
brigðisþjónustu þar verði ekki lakari en á þétt-
býlli svæðum landsins, sbr. lög um heilbrigðis-
þjónustu. Hvatt er til þess að námsframboð í
Ijórðungnum fyrir heilbrigðisfólk verði aukið
stórlega, sem allra lyrst verði komið á sérstöku
námi fyrir lækna, hjúkrunarfræðinga og annað
fagfólk í heilbrigðisþjónustu sem hyggst starfa í
dreifbýli og sérstaklega verði sinnt málefnum
sjúkraflutninga og sjúkraflugs til að tryggja ör-
yggi íbúa Austurlands og veita heilbrigðisstarfs-
fólki baktryggingu í erfiðum tilfellum.
SSA skorar á Ingi-
björgu Pálmadóttur
heilbrigðisráðherra að
efla ráðstafanir til að
tryggja meira framboð
af læknum og hjúkr-
unarfræðingum.
Reynsluverkefoi í heibrigðismálum á
Homafirði
Skorað er á heilbrigðisráðherra að ganga til samninga við sveitarfélagið
Hornafjörð um framhald reynsluverkefnis á sviði heilbrigðismála til
tveggja ára þannig að meiri og betri reynsla fáist af verkefninu. Nauðsyn-
legt er að slíkur samningur skili nægjanlegu fjáríramlagi til reksturs Heil-
brigðisstofnunarinnar á Hornafirði þannig að hún geti sinnt nauðsyn-
legri heilbrigðisþjónustu á starfssvæði sínu.
Smiði nýrrar ferju íagnað
Aðalfundur SSA fagnar því að samgönguráðuneytið setji aukið fé í að
lengja ferðamannatímann. Leita þarf allra leiða tíl að hægt sé að reka
ferðamannaþjónustu um allt land. Einnig þarf að efla upplýsingamið-
stöðvar með auknu (járframlagi frá ríkinu þar sem þessi atvinnugrein er
veikburða um allt land. Fagnað er áformum Smyril Line um smíði nýrr-
ar farþegaferju og eflingu feijusiglinga milli útlanda og Austurlands.
Skertur fjárhagur landshyggðarsveitar-
félaga
Það sem af er þessum áratug hafa sveitarsjóðir verið reknir með halla ár
hvert er nemur samtals á þriðja tug milljarða króna. A sama tíma hefur
verulega hallað á sveitarfélögin í landinu í samskiptum þeirra við ríkis-
valdið. Samkvæmt skýrslu nefndar um fjármálaleg samskipti ríkis og
sveitarfélaga 1990 til 1997 kemur í ljós að þær aðgerðir ríkisvaldsins sem
hægt er að meta með beinum hætti, hafi skert fjárhag sveitarfélaga um
samtals 14 til 15 milljarða króna á tímabilinu. Því er beint til tekjustofna-
nefndar að hún taki til sérstakrar skoðunar þá íjölmörgu þætti í sam-
skiptum ríkis og sveitarfélaga sem leitt hafa til skerðingar á fjárhag sveit-
arfélaga, annað hvort með auknum álögum eða skerðingu á tekjustofn-
um. Einnig er því beint til nefndarinnar að sérstakt tillit verði tekið til
landsbyggðarinnar í störfum hennar í Ijósi þeirra búferlafiutninga sem
átt hafa sér stað á undanförnum árum, og áhrifum þeirra.
Sameining sveitarfélaga
Aðalfundur SSA nvetur stjórn sambandsins að fylgjast vel með umræðu
um sameiningu sveitarfélaga í Austurlandsfjórðungi og styðja við undir-
búning sameiningar þar sem það á við. - GG
Svanbjörn Sigurðsson rafveitustjóri kynnti í gær, ásamt samstarfsfólki sínu, fullmótað gæðakerfi fyrirtækisins, sem
unnið hefur verið að undanfarin rúm fjögur ár. 77/ hægri er Agnar Árnason markaðsstjóri. Vonast er til að gæða-
kerfið auki afhendingaröryggi raforku til neytenda og geri allt starf innan fyrirtækisins árangursríkara,- mynd: brink
Rafveita Akureyrar
fyrst með gæðakerfi
Forsvarsmeim Raíveitu
Akureyrar kynutu í
gær gæðakerfi, sem
unnið hefur verið að
iiman fyrirtækisiiis í
rúm fjögur ár og er nú
fullklárt.
Eftir því sem næst verður komist
er Rafveita Akureyrar sú fyrsta á
Iandinu til að fullldára gæðakerfi
til notkunar innan fyrirtækisins.
Fyrsti hlutinn var raunar tekinn í
notkun 13. febrúar 1996 en síðan
í áföngum eftir því sem þróun og
vinnslu gæðakerfisins hefur mið-
að síðan þá og að fullu um liðin
mánaðamót. Ekki hefur verið tek-
in ákvörðun um það enn hvort
Rafveitan sækir um vottun gæða-
kerfisins en ætlunin er að Iáta
reynsluna af notkun þess ráða því.
Evktir afhendingaröryggi
Að sögn Svanbjörns Sigurðssonar
rafveitustjóra er megin markmið
fyrirtækisins með gæðakerfinu að
ná fram meira öryggi í rekstri,
meiri hagkvæmni og um leið að
auka gæði og afhendingaröryggi
rafmagns til neytenda. Gæðakerf-
ið er uppbyggt af 18 stefnuskjöl-
um, 60 verklagsreglum og 116
eyðublöðum og vinnulýsingum.
Spurðir um hvort öll þessi eyðu-
blöð og reglur geri starfið ekki
þyngra í vöfum og auki skrifræði
segja forsvarsmenn fyrirtækisins
svo alls ekki vera. Að ýmsu leyti
auðveldi reglurnar og eyðublöðin
starfsmönnum vinnu sína og spari
jafnvel tíma frekar en hitt. Heild-
arkostnaður við gæðakerfið, þar
með talin ráðgjöf, tölvuforrit og
fleira, er um fimm milljónir króna
og segist Svanbjöm ekki í vafa um
að þær skili sér fljótt til baka.
Starfsmenn Rannsóknastofnunar
Háskólans á Akureyri veittu Raf-
veitunni ráðgjöf við smíð kerfis-
ins, fyrst Jón Skjöldur Karlsson en
síðan Einar Askelsson.
Lága raforkuverðið óþekkt
Meðal þess sem fram kemur í
gæðakerfinu er sú stefna Rafveitu
Akureyrar að halda rafmagnsverði
sem lægstu. Á kvnningarfundin-
um kom fram að verð á rafmagni
er urn tíu af hundraði lægra á Ak-
ureyri en á höfuðborgarsvæðinu
og allt að þrjátíu af hundraði
lægra en annarsstaðar í Eyjafirði.
1 könnun sem Ráðgarður gerði ný-
lega kom hinsvegar fram að að-
eins um níu af hundraði Akureyr-
inga vissu um þetta lága raforku-
verð en sautján af hundraði töldu
raforkuverð hærra á Akureyri en í
höfuðborginni. — HI
Ovissa uin minja-
vörslu í Eyjafirði
Staða minjavarðar fyr-
ír Norðiiriand eystra
er í uppnámi. Hvorki
Akureyrarbær né ríkið
gera ráð fyrir fjárveit-
ingu.
Guðrún Kristinsdóttir, minjavörð-
ur við Minjasafnið á Akureyri,
Ieitaði með erindi til bæjarstjóra
eftir heimild bæjarstjórnar Akur-
eyrar til framlengingar á samningi
milli Minjasafnsins á Akureyri og
þjóðminjaráðs, að því gefnu að
þjóðminjaráð veiti safninu áfram
umboð til minjavörslu á Norður-
landi eystra. Erindinu var hafnað
af bæjarráði á fundi þess í liðinni
viku og bent á skyldur ríkisins
varðandi stöðuna. Ekki er hins-
vegar gert ráð fýrir fjárveitingu
vegna stöðunnar í Ijárlögum fyrir
næsta ár.
Bæriim bendir á ríkið
I október 1998 var gerður samn-
ingur milli Minjasafnsins á Akur-
eyri og þjóðminjaráðs um að safn-
ið tæki að sér minjavörslu í Eyja-
firði. Samningurinn gildir til loka
þessa árs og var gerður í þeirri
von að við lok hans kæmist á föst
staða minjavarðar á Norðurlandi
eystra. Óvissa virðist hins vegar
ríkja um stöðu mála á næsta ári.
Samkvæmt þjóðminjalögum á að
vera búið að ráða minjaverði til
starfa á öllum minjasvæðum fyrir
árslok 2000 en hvorki ríki né Ak-
ureyrarbær vilji kosta stöðuna
næsta árið. Það sem um ræðir er
hálft stöðugildi miðað við óbreytt
fyrirkomulag frá því sem nú er.
I afgreiðslu bæjarráðs segir að
bæjarsjóður Akureyrar hafi í eitt
ár ljármagnað þetta verkefni rík-
isins og „sér bæjarráð sér ekki
fært að halda því áfram og bendir
á skyldur ríkisins í þessu sam-
bandi.“ Það sem um ræðir eru
laun og launatengd gjöld eins
starfsmanns ásamt bifreið og
skrifstofubúnaði ýmsum.
Verkefni í hættu
Guðrún Kristinsdóttir segir þessa
stöðu ekki góða, sérstaldega með
tilliti til ýmissa verkefna sem þeg-
ar eru komin i gang. Til að mynda
er það undirbúningur að opnun
sýninga á vegum Minjasafnsins á
nokkrum stöðum í Eyjafirði, forn-
Ieifaskráning og uppbygging
minjastaða með ferðamennsku
fyrir augum. Minjavarsla í Eyja-
firði og ýmis verkefni henni tengd
eru því í fullkominni óvissu eins
og stendur. - hi