Dagur - 22.10.1999, Síða 9

Dagur - 22.10.1999, Síða 9
■-JBSW. Ttyur FÖSTUDAGVR 22. OKTÓBER 1999 - 9 8 ~ EÖS TUDAG UR :2 2 . OKTÓBER 1999 FRÉTTASKÝRING Oagur Fær Jón meira en Tensen? Að „kassadömum" frátöldum eru ráðstöfunartekjur danskra verslunarmanna ótrúlega jafnar, eða á billnu 100-124 þús.kr. á mánuði miðað við meðalgengi, en 90-113 þús.kr. reiknað á jafnvirðisgengi og aukavinna er nær engin. *.«• -jsn JIEIÐUK HELGA- DOTTIR K :ís y>\ ;/- SKRIFAR Einkaneysla á íslandi er nú um þriðjungi meiri en í Danmörku. íslendingar standa undir þessari umfram- neyslu með 7-8 stunda lengri viniiuviku en Danir. Dagvinnulaun eru miklu hærri í Dan- mörku en vegna mjög hárra skatta og gjalda eru útborguð laun fyr- ir dagvinnu oft eins há á íslandi - og kaup- máttur krónunnar meiri hér á landi. Ráðstöfunartekjur íslenskra verslunarmanna eru nú álíka háar og starfsbraeðra/systra í Danmörku - og hærri eftir að Is- Iendingarnir hafa bætt við auka- vinnunni - samkvæmt nýrri sam- anburðarrannsókn sem Hag- fræðistofnun Háskólans gerði fyrir Verslunarmannafélag Reykjavíkur. Þetta eru umskipti frá sams konar könnun 1995, en síðan þá hefur kaupmáttur launa vaxið mun meira hér. Þetta gildir þó ekki um lágmarkslaunin sem eru næstum tvöfalt hærri í Dan- mörku en hér - Iíka töluvert hærri eftir að skatturinn hefur tekið sinn skerf. MiMu meiri launamunur á Fróni Launamunur milli hinna ýmsu hópa verslunarmanna er nefni- lega miklu meiri á Islandi en í Danmörku - bæði íyrir skatt og eftir skatt. I báðum löndunum eru „kassadömur" á botninum, nánast á lágmarks dagvinnulaun- um, um 75.000 krónum á Islandi en 137.400 f Danmörku. A Fróni er hæst launaði hópurinn (inn- kaupafulltrúar) með 180% hærri laun, (210.000 kr.) en í Dan- mörku eru hæstu launin aðeins 75% hærri en þau Iægstu (240.000 kr.) Eftir skatt er mun- urinn 110% á Islandi en aðeins 58% í Danmörku. Það er því lík- lega að vonum að Danir stefna nú að því að hækka laun menntaðs fólks meira en þeirra ófaglærðu - sem sagt að auka launamuninn. Kassadömumar á botninum Að „kassadömum“ frátöldum eru ráðstöfunartekjur danskra versl- unarmanna ótrúlega jafnar, eða á bilinu 100-124 þús.kr. á mánuði m.v. meðalgengi, en 90-113 þús.kr. reiknað á jafnvirðisgengi og aukavinna er nær engin. Ráð- stöfunartekjur dagvinnulauna Ís- lendinga í sömu störfum eru aft- ur á móti á bilinu 76-140 þúsund krónur - og hækka upp í 100-1 50 þúsund eftir að aukavinnan bæt- ist við. Þetta sýnir að fólk í lægra launuðu störfunum - milli 80 og 120 þús.kr. á mánuði á íslandi - er stórum verr sett á íslandi en í Danmörku, en hæst launuðu hóparnir halda miklu meira af launum sínum hér á landi. Fleiri gjöld og hærri Þótt almenn mánaðarlaun versl- unarmanna fyrir dagvinnu séu allt að tvöfalt hærri í Danmörku fær Jón jafnvel meira útborgað en Jensen starfsbróðir hans að frá- dregnum; skatti, vinnumarkaðs- gjaldi (sem er 8% aukaskattur í Danmörku m.a. notaður til að fjármagna atvinnuleysistrygging- ar), stéttarfélagsgjaldi (sem er margfalt hærra í Danmörku) og Iífeyrissjóðsiðgjaldi (sem líka er mun hærra). Sýnd eru dæmi um hjón á íslandi og í Danmörku. Bæði eru í fullu starfi (afgreiðslu- og skrifstofustarfi), eiga 2 börn og skulda 80% af meðalverði 3-4 herbergja íbúðar (sem er talsvert dýrari í Kaupmannahöfn en Reykjavík). Dýrara að lifa í Danaveldi Mánaðartekjur íslensku hjón- anna eru 270 þúsund en þeirra dönsku 395 þúsund (46% hærri). En þrátt fyrir að dönsku hjónin megi draga íbúðalánavextina frá tekjuskattsstofninum þá verða þau að borga um 163 þúsund í skatta og lífeyrisiðgjald, eða hátt í fjórum sinnum meira en þau ís- lensku sem, að frádregnum vaxta- bótum, sleppa með 46 þús.kr. í skattinn og lífeyrissjóðinn. Barnabætur dönsku hjónanna eru hins vegar miklu hærri, enda ekki tekjutengdar. Reiknað á meðalgengi hefur Jensensfjöl- skyldan um 249 þúsund til ráð- stöfunar eftir skatt, 18 þúsund meira en sú íslenska. En á „jafn- virðisgengi" verður kaupmáttur- inn svipaður í báðum löndunum - því ótrúlegt nokk, þá er kaup- máttur krónunnar meiri á Islandi en f Danmörku. Þetta skýrist einkum af því að mjög stórir liðir eins og húsnæð- iskostnaðurinn og útgerð einka- bílsins kosta mun meira í Dan- mörku. Jensen-fjölskyldan þarf því raunverulega að borga jafn- virði fleiri íslenskra króna fyrir „heimilisrekstrar-pakkann" en Jón Jónsson. Þó eggin, gulræt- urnar og svínakjötið sé dýrara á Fróni vegur það svo miklu minna í heimilisútgjöldunum en íbúðin, orkureikningurinn og bíllinn, sem gleypa hátt í helming tekn- anna. íslensM skatturinn gráðugri íbætur Skýrsluhöfundar segja það al- gengara að bætur séu tekjutengd- ar og skattskyldar á lslandi cn í Danmörku. Þannig eru barna- bætur t.d. hvorki tekju- né eigna- tengdar í Danmörku eins og hér og mæðralaun og húsaleigubætur ekki skattskyldar í Danmörku eins og hérlendis. Þótt hámarksbarnabætur séu hærri hér - sérstaklega til ein- stæðra foreldra - verða barnabæt- ur íslensku hjónanna (í dæminu hér að framan) aðeins 40% af bótum dönsku hjónanna (6.200 kr. á móti 16.500 kr. á mánuði) og meðalbarnabætur á hvert barn í Iandinu þar af leiðandi um þriðj- ungi hærri í Danmörku. Einstæð- ir foreldrar fá þó hærri bætur hér á landi (og meðlagið er 70% hærra hér) - en mæðra/feðralaun eru aftur á móti mildu hærri í Danmörku. Samanlagðar barna- bætur, mæðra/feðralaun og með- lagsgreiðslur einstæðs foreldris á miðlungslaunum eru þó talsvert hærri á Islandi, eða 52 þúsund á mánuði á móti 41 þúsundi í Dan- mörku. Álíka fæðingarorlof - fyrir skatt Fæðingarorlof er jafn langt og skattskylt í báðum löndunum. Eftir skatt standa eftir 66 þúsund hér en 76 þúsund í Danmörku. Húsaleigubótakerfið miðast við tekjur, fjölskyldustærð og leiguupphæð í báðum löndunum en er samt ólíkt uppbyggt. Hjón- in í dæminu hér að framan fengju í hvorugu landinu húsaleigubæt- ur. En einstætt foreldri á miðl- ungs launum fengi álíka bætur í báðum löndunum, um 15 þús- und á mánuði, sem lækkuðu síð- an í 9.500 kr. eftir skatt á IslandL Atvinnuleysisbætur eru um tvö- falt hærri í Danmörku en eftir skatt aðeins um þriðjungi hærri. I skýrslunni eru einungis skoð- uð áhrif af millifærslum velferð- arkerfisins en hins vegar ekki hvort miklu hærri skattgreiðslur Dana skili sér til baka í ódýrari eða betri velferðarþjónustu, sem mundi þá bæta stöðu danskra fjölskyldna. Athygli vekur þó að á íslandi eru fleiri læknar á hverja 1.000 íbúa en í Danmörku og raunar fleiri en í nolrkru hinna Norðurlandanna, þótt aldrað fólk sé hlutfallslega mun færra hér. Jensen duglegri í vinnunni Skýrsluhöfundar eru almennt sammála um það, að verg lands- framleiðsla (VLF) á hvern lands- mann gefi best til kynna hvaða lífsgæða landsmenn njóta. Og að VLF sé núna nokkru hærri á Is- landi en í Danmörku. Landsfram- leiðsla á hverja unna vinnustund er þó töluvert meiri í Danmörku, sem þýðir að Danir eru í rauninni talsvert duglegri - meðan þeir eru í vinnunni. En Islendingar ná þeim, og komast frani úr þeim, bæði með því að hér er um 5% hærra hlutfall karla og kvenna í vinnu, auk þess sem lslendingar vinna jal'naðarlega um 7-8 stund- um lengur í hverri viku - sem svarar til þess að þeir vinni um tvo aukamánuði á ári. En Jón duddar lengux og eyðir meiru Með þessu móti tekst Jóni að fjár- magna miklu meiri einkaneyslu en Jensen. Arið 1990 var einka- neysla á mann um 40% meiri hér en í Danmörku, bilið mjókkaði niður í 10% á samdráttarárunum (1994) en íslendingar voru al’tur komnir 34% umfram í fyrra. fs- lendingar áttu t.d. 40% fleiri einkabíla í fyrra heldur en Danir. Sterkar líkur þykja benda til að Islendingar hafi fjármagnað tölu- verðan hluta þessarar um- frameinkaneyslu með lánsfé. Þannig hafa skuldir íslenskra hcimila aukist um 65% síðustu sjö árin (og aldrei meira en 1998), en skuldir danskra heimila aukist helmingi hægar, auk þess sem meðalskuldir á heimili eru líka töluvert lægri. 2.700 prósenta kauphæMom Skýrslan sýnir nánast grátbroslegt dæmi þess hvað kjör fólks ráðast í rauninni lítið af kauphækkunum. Frá 1980 hefur meðaltímakaup í iðnaði hælikað um 160% í Dan- mörku en 2.700% á lslandi. Þessi hækkun hefur gefið Dönum hæga en jafna kaupmáttaraukningu^ samtals um 20% á tímabilinu. Á Islandi hefur kaupmátturinn aft- ur á móti tekið ógurlegar dýfur og oftast aukist miklu minna en hjá Dönum, ef frá eru taldir toppar; 1982, 1988-89 og síðan mikil hækkvin frá 1996. En þessi 2.700% kauphækkun hefur að- eins skilað okkur kringum 27% kaupmáttaraukningu á síðustu átján árum - en 2.673% brunnu upp í verðbólgunni. Lág verðbólga besta vörnin Enda er Edda Rós Karlsdóttir hagfræðingur ASI á þeirri skoðun að besta vörn kaupmáttarins sé lág verðbólga. Og eina leiðin til þess að koma í veg fyrir að fólk dragist aftur úr um tugi prósenta á örfáum árum sé jafn og stöðug- ur hagvöxtur en ekki þessir miklu toppar og lægðir sem við þekkjum svo vel hér á landi og ævinlega leiða til þess að einhverjir hópar sitji eftir. Þenslan sé mesti óvinur láglaunamannsins, þegar upp er staðið. Fáir á kauptaxta-laiuiakerfi I Danmörku eru aðallega notuð þrjú launakerfi. Kauptaxtalauna- kerfi (sem við þekkjum best) hef- ur verið á hröðu undanhaldi og vinnur nú aðeins sjötti hver Dani eftir slíku kerfi, og fá þá eingöngu laun samkvæmt kauptöxtum kjarasamningsins, sem eru margir og nákvæmlega kveðið á um röð- un í flokka og þrep. Langflestir, eða 2/3, vinna eftir svokölluðu lágmarkslaunakerfi og afgangurinn eftir kerfi „engra kauptaxta", sem breiðist hratt út. Astæðuna segja menn m.a. óskina um sveigjanlegri launamyndun. 1 þessum kjarasamningum er ráð fyrir því gert að starfsmenn og at- vinnurekendur taki tillit til að- stæðna á viðkomandi vánnustað. Langflestir á lágmarkslaunakerfl 1 lágmarkslaunakerfi er bara samið um eina launatölu, sem segir til um lágmarkslaun. Síðan er gert ráð fyrir að einstaklings- bundnar greiðslur og álög komi til viðbótar, en um þau skulu at- vinnurekandi og launamaður semja sín á milli. Þegar stéttarfé- lagið semur um hækkun lág- markslaunanna er heldur ekki sjálfgefið að laun þeirra sem eru yfir lágmarkslaunum hækki sjálf- krafa. Atvinnurekanda er í raun heimilt að lækka einstaklings- bundin álög um það sem lág- markslaunin hækka. Hins vegar skuldbindur hann sig til þess að leggja kerfisbundið mat (á hæfni, færni, sveigjanleika, menntun og fleira) til grundvallar einstaklings- bundnum álögum, og að gæta sér- staklega að kynjajafnréttti við það mat. Kaupt axt al aiisiun sanmmgiun fjölgar Kauptaxtalausum kjarasamning- um hefur fjölgað mjög síðasta ára- tuginn og eru fyrst og fremst gerðir fyrir skrifstofufólk og sér- fræðinga. Sérhver starfsmaður og atvinnurekandi hans skulu semja um laun sfn í milli og skulu þau endurspegla vinnuframlag, hæfni, menntun og færni einstaklings- ins. Þessir samningar innihalda líka skuldbindingarákvæði um að árlega skuli meta hugsanlegar breytingar á launakjörum. Engin tryggingarákvæði gagn- vart verðbólgu tíðkast í dönskum kjarasamningum. A hinn bóginn hafa opinberir starfsmenn trygg- ingu fyrir því að fá 80% af því launaskriði sem verður á almenn- um vinnumarkaði. Meira fyrir samninga en lögbindingu Samkiptareglurnar á dönskum vinnumarkaði eru að stærstum hluta ákvarðaðar í samningum milli aðila vinnumarkaðarins. Mikilvægastir er svokallaður „Rammasamningur", sem tekur á mörgu sem á íslandi er lögbund- ið, „Samningur um samráð“. Og samkvæmt svokallaðri „Friðar- skyldu" hafa aðilar vinnumarkað- arins skuldbundið sig til að fara ekki í verkfall eða setja á verk- bann meðal kjarasamningur er f gildi - og síðan ekki með minna en 3ja mánaða fresti. Embætti sáttasemjara er líka mög valda- mikið í Danmörku, samningsaðil- ar geta t.d. ekki slitið viðræðum nema með hans samþykki. I stórum dráttum er vinnu- markaður landanna ekki mjög ólíkur. Alíka margir eru í iðnaði (19%), verslun og veitingarekstri (17-18%) og samgöngum. Heldur fleiri Danir eru í þjónustu (38%) og trygginga- og peningastofnun- um (11%) en tvöfalt fleiri Islend- ingar (8%) við landbúnað og fisk- veiöar. FRÉTTIR Vegna fyrirhugaðra virkjanaframkvæmda á Fljótsdal og álvers í Reyðarfirði hafa Náttúruverndarsamtök íslands kært stjórnvöld til EFTA. - mynd: gva Kæra til EFTA Miklir náttúruvemdar- hagsmimir em í húfi að mati samtakanna og því hafa Náttúmvemd- arsamtökm óskað þess að kæran fái flýtimeð- ferð hjá Eftirlitsstofn- uninni. Náttúruverndarsamtök íslands hafa kært íslensk stjómvöld til Eft- irlitsstofnunar EFTA (European Surveilence Authority) fyrir að brjóta gegn tilskipun ráðsins frá 27. júní 1985 nr. 85/337/EBE um mat á áhrifum sem tilteknar fram- kvæmdir á vegum hins opinbera eða einkaaðila kunna að hafa á umhverfið. Enn fremur hafa Nátt- úruverndarsamtökin óskað eftir flýtimeðferð í ljósi þess að stjóm- völd, Norsk Hydro og Landsvirkj- un stefna að því að ljúka samn- ingsgerð um fyrirhugaða byggingu álvers á Reyðarfirði og sölu á orku frá fyrirhugaðri Fljótsdalsvirkjun. Miklir náttúruvemdarhagsmunir eru í húfi að mati samtakanna og því hafa Náttúruverndarsamtökin óskað þess að kæran fái flýtimeð- ferð hjá Eftirlitsstofnuninni. Náttúruverndarsamtökin kæra stjórnvöld fyrir að bijóta gegn 1. málsgrein 2. greinar, sbr. 1. máls- grein 4. greinar tilskipunarinnar sem lögleidd var með 5. grein, sbr. 12. grein laga nr. 63/1993 um mat á umhverfisáhrifum. Náttúru- verndarsamtökin kæra stjórnvöld einnig fyrir brot á samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samninginn) fyrir að hafa ekki uppfyllt skyldur sínar skv. samningnum um að gera allar nauðsynlegar ráðstafanir innan til- skilins tíma til að tryggja rétta inn- leiðingu tilskipunarinnar í íslensk lög og reglugerðir. Náttúruvernd- arsamtökin telja Fljótsdalsvirkjun og fyrirhugað miðlunarlón við Eyjabakka vera eitt erfiðasta mál úrlausnar, sem Islendingar hafi staðið fi*ammi fyrir hin síðari ár. Sveigja leibreglur „Því miður virðast stjómvöld ætla að beita öllum brögðum til að komast hjá því að umhverfisáhrif Fljótsdalsvirkjunar verði metin í samræmi við gildandi lög. Nú hyggst ríkisstjórnin beita Alþingi fyrir sig í því skyni að afla væntan- legri skýrslu Landsvirkjunar um umhverfisáhrif Fljótsdalsvirkjunar trausts og fylgis í þjóðfélaginu. Með slíkum vinnubrögðum hyggst framkvæmdavaldið sveigja Iýðræð- islegar leikreglur að vilja sínum og virða að vettugi kröfur almennings um að fram fari lögformlegt mat á hinni umdeildu framkvæmd,“ seg- ir m.a. í yfirlýsingu Náttúruvernd- arsamtaka íslands. — GG UNIFEM á Is- landi 10 ára í tilefni af Degi Sameinuðu þjóð- anna 24. október nk. stendur UNIFEM á íslandi fyrir hátíðar- morgunverðarfundi að morgni sunnudagsins á Hótel Loftleiðum. Heiðursgestur verður sjálfur fram- kvæmdastjóri alheimssamtaka UNIFEM, hún Noeleen Heyser. UNIFEM er þróunarsjóður Sam- einuðu þjóðanna til styrktar kon- um í „þróunarlöndum". Sjóðurinn var stofnaður 1976 í kjölfar fyrstu kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna sem haldin var í Mexíkó 1975 fyrir tilstuðlan kvenna sem störfuðu innan SÞ. Nú eru 10 ár síðan UNIFEM stofnaði deild hér á landi. Núverandi formaður er Sigríður Margrét Guðmundsdótt- ir, umsjónaður menningarþáttar- ins Kristals á Stöð 2 með meiru. UNIFEM-sjóðurinn styrkir í dag þróunarverkefni kvenna í 60- 70 löndum. Sjóðurinn er rekinn fyrir frjáls framlög aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna og er mark- mið hans að berjast gegn fátækt á meðal kvenna í þróunarlöndum og hjálpa þeim til sjálfsbjargar. Meg- ináhersla er Iögð á að aðstoðin skili varanlegum árangri sem síðan hafi marfeldisáhrif inn í samfélag- ið. Noeleen Heyser, framkvæmdastjóri UNIFEM. UNIFEM minnist 10 ára af- mælis um þessar mundir og var að gefa út vandað afmælisrit þar sem málsmetandi menn skrifa um þró- unaraðstoð og sagt er frá starfi UNIFEM á Islandi ogýmsu fleiru. Auk þess verður á morgunverö- arfundinum hylltur fyrsti heiðurs- félagi UNIFEM á Islandi en það er stofnandi samtakanna, Sæunn Andrésdóttir. Tónlistar- og dansat- riði verða Ilutt og ávarp flytja Noeleen Heyser, Sigríður Margrét og Sigríður Dúna Kristmundsdótt- ir. .iouu 1 1 j ltí<j Ht Ji- iii«;uilO(ej I -ii|ilo mtnnu* nniálifj>i nnoin licd cnugniíiy! ibdBtmv z*Ji*>vdirm mugav ou uuna w '.JOl

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.