Dagur - 22.10.1999, Page 10
10- FÖSTUDAGVR 22. OKTÓBER 1999
SMÁAUGLÝSINGAR
Dekk til sölu__________________
Til sölu 4 nagladekk á Hyundai.
Upplýsingar í síma 462 4947 eftir kl. 19.
Takið eftir______________________
Frá Sjónarhæð. Unglingafundir á föstu-
dagskvöldum kl. 8:30.
Á mánudögum kl. 18 verða fundir fyrir drengi
og stúlkur. Vonumst til að sjá vini okkar frá
Ástjörn. Verið öll velkomin.
Til sölu______________________________
Til sölu eru IKEA-kojur i fullri lengd úr
furu, seljast ódýrt.
Upplýsingar í síma 461 -3777 og 898-3300.
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA
Sunnudagaskóli í Safnaðarheimili kl. 11:00
sunnudag. Messa kl. 14:00. Sopi og spjall
eftir messu, þar sem kirkjugestum gefst
kostur á að ræða efni predikunarinnar.
Biblíulestur í Safnaðarheimilinu mánudag kl.
20:00 í umsjá sr. Guðmundar Guðmunds-
sonar héraðsprests. Yfirskrift lestranna fram
að jólum er „Á tali við Drottin". Allir vel-
komnir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN, AKUREYRI
Gospelkvöld unga fólksins. Valdimar Júlíus-
son predikar.
HJÁLPRÆÐISHERINN, AKUREYRI
Ellefu plús 11 + fyrir 11 og 12 ára böm kl.
17:30, Flóamarkaður frá kl. 10-18.
KAÞÓLSKA KIRKJAN, AKUREYRI
Messa laugardag kl. 18. Messa sunnudag
kl. 11.
Laugarneskirkja
Morgunbænir kl. 6:45. Mömmumorgunn kl.
10-12. Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun
fyrir börn.
Vinur okkar
GUNNAR KRISTJÁNSSON
áöur til heimilis aö Noröurgötu 15, Akureyri
er lést 15. október aö Dvalarheimilinu Hlíð verður jarö-
sunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn
25. október kl. 13.30.
Sigurrós Jónsdóttir, Páll Garöarsson
VIÐ ERUM MIÐSVÆÐIS
MELVEGUR 17 • HVAMMSTANGA
SlMI 451 2617 • FAX 451 2890
Sýnishorn af bilum og tækjum
á sýningarsvæði
Hyundai Stavex 7 manna Diesel 4x4
árg.99
Subaru Legacy nýr árg. 99
Landrover douplecap 5 cyl. Diesel árg.
99
Nissan Diesel 4x4 árg. 99
Suzuki Grand vitara 6 syl. nýr árg. 99
Suzuki Balleno st. 4x4 nýr árg. 99
MMC douple cap 4x4 árg.95
Subaru Legacy árg.90
Hyuandai Elantra árg. 95
Hyuandai Sonata árg. 97
Lada Sport árg. 88
Grand Cherocy 6 syl. árg. 93
Toyota Turing árg. 95
Ford Explorer árg. 91
MF 4255 95ha 4x4 árg. 99
Ford newholland 6640 4x4 árg. 96
Ford newholland 5635 árg.97
Rúlluvél Wermer 504 árg. 99
Pökkunarvél K 7335 árg. 99
Pökkunarvél Tangó árg. 99
Sláttuvélar
Kunn GMD 700 árg. 99
Niemeyer Eurodiese 260 árg. 99
Sturtuvagn 8,5 tonn
Muavél nyemaier RS 340-DA árg. 99
Springmaster hestaflutningakerra árg.
99
Vegna mikillar sölu vantar allar gerð-
ir af bílum og tækjum á söluskrá.
Véla - Pallaleiga
Skógarhlíd 43, 601 Akureyri
fyrir ofan Iiúsasmiðjuna
Leigi út álvinnupalla.
Henta vel við málningu
og viðgerðir á litlum og
stórum húsum.
461-1386 og
892-5576
Laugardaginn 23.10.1999 kl. 10.30
verður Alfreð Þorsteinsson,
borgarfulltrúi, gestur okkar
á Léttspjallsfundi.
Fundarefni: Borgarmál
Fundarstaður: Hverfisgata 33, 3. hæð
Félagar fjölmennið,
Framsóknarfélag Reykjavíkur.
Undur oq stórmerki...
))
www.vis■ r is
FYRSTUB MEO FRÉTTIRNAR
Megawati kos-
in varaforseti
Stuðningsmenn Megawati fagna ákaft þegar úrslit varaforsetakosning-
anna eru tilkynnt í sjónvarpi.
Varaforsetaembættið
hefur mikla þýðingu
íyrir Megawati, enda
forsetinn ákaflega
heilsuveill.
Megawati Sukarnoputri, helsti
leiðtogi stjórnarandstöðunnar á
Indónesíu, er orðin varaforseti
landsins. Að þessu sinni heyrð-
ust engar óánægjuraddir í
Jakarta, höfuðborg landsins, og
vonast var til að þessi ráðstöfun
myndi binda enda á óeirðirnar
sem spruttu upp eftir að
Megawati tapaði í forsetakosn-
ingunum á miðvikudag.
Varaforsetaembættið, sem
jafnan hefur verið meira tákn-
ræn staða heldur en raunveruleg
áhrifastaða, þykir nú hafa mun
meiri þýðingu en ella vegna þess
hve heilsufar forsetans, Abd-
urrahman Wahid, er bágborið.
Falli Wahid frá eða láti af emb-
ætti vegna heilsubrests tekur
Megawati sjálfkrafa við embætti
forseta landsins. Margir telja litl-
ar líkur á að Wahid, sem er 59
ára gamall, endist heilsa til þess
að gegna forsetaembættinu í
heilt kjörtímabil, sem er fimm
ár. Hann hefur tvisvar fengið
hjartaáfall og er blindur.
396 þingmenn greiddu
Megawati atkvæði sitt, en 284
kusu Hamzah Haz, leiðtoga
flokks múslima. Tveir aðrir
frambjóðendur, Wiranto hers-
höfðingi og Abkar Tandjung
frambjóðandi Golkar-flokksins,
drógu framboð sitt til baka á síð-
ustu stundu og tryggðu þar með
í raun Megawati sigurinn.
Golkar flokkurinn hefur þar
með haft afgerandi áhrif á úrslit
bæði forseta- og varaforseta-
kosninganna, því það var stuðn-
ingur flokksins við Wahid sem
tryggði honum forsetaembættið.
Megawati er dóttir Sukarnos,
fyrsta forseta landsins, og nýtur
hún mikilla vinsælda. Flokkur
hennar hlaut flest atkvæði í
þingkosningunum í sumar, en
náði þó ekki meirihluta á þingi.
Miklar óeirðir brutust út í
Jakarta og víðar á Indónesíu eft-
ir að Megawati tapaði í forseta-
kosningunum á miðvikudag.
Stuðningsmenn hennar voru
æfir margir hverjir og héldu mót-
mælaaðgerðirnar víða áfram allt
þar til ljóst var að hún hafði ver-
ið valin í varaforsetaembættið,
en fljótlega upp úr því datt allt í
dúnalogn.
Kosning Wahids í forsetaemb-
ættið réðst verulega af ótta
Golkar við reiði múslima ef kona
yrði kosin í embættið, en
Megawati hlaut hins vegar vara-
forsetaembættið af ótta við reiði
stuðningsmanna hennar. Lítið
þarf til að hleypa öllu í bál og
brand í Indónesíu, sem er eitt
fjölmennasta ríki heims.
Mikið er í húfi að halda friði
og stöðugleika í landinu því
stjórnvöld þurfa að takast á við
það erfiða verkefni að ná
Indónesíu upp úr einni verstu
efnahagskreppu sem riðið hefur
yfir landið. Athyglisvert er að
gengi gjaldmiðils Indónesíu
hafði hækkað nokkuð eftir því
sem nær dró forsetakosningun-
um, þar sem talið var líklegast að
Megawati myndi hljóta það. Eft-
ir að Wahid var kosinn lækkaði
gengið á ný, en hækliaði síðan
aftur eftir að Megawati hafði
verið valin í varaforsetaembætt-
ið.
HEIMURINN
Fyrrverandi ráðherra myrtur
TYRKLAND - Ahmet Taner Kislali, blaðamaður og fyrrverandi
menningarmálaráðherra Tyrklands, lést í gær þegar sprengja sprakk í
bifreið hans. Sprengjan var í plastpoka á framrúðunni og sprakk þeg-
ar hann tók pokann upp. Kislali er þekktur fyrir andstöðu sína gegn
bókstafstrú og fjölmiðlar í Tyrklandi fullyrtu að samtök íslamskra
bókstafstrúarmanna hafi lýst yfir ábyrgð á tilræðinu. Það hafði þó
ekki fengist staðfest í gær.
Rússar þrengja æ meir að Grosní
RUSSLAND - Rússneski herinn þrengir stöðugt hring sinn um
Grosní, höfuðborg Téténíu, en megnið af þorpum og bæjum um-
hverfis höfuðborgina er nú þegar á valdi Rússa. Varnarmálaráðherra
Rússlands segir þó að ekki sé í bígerð að leggja borgina undir sig í
einu lagi með stórárás, heldur muni herinn fikra sig smám saman inn
í borgina.
Netanyahn yfirheyrður
ISRAEL - Benjamin Netanjahu, fyrrverandi forsætisráðherra Israels,
var yfirheyrður á miðvikudag og gerð var húsleit bæði heima hjá hon-
um og á skrifstofu hans. Eiginkona hans, Sara, var einnig yfirheyrð.
Við húsleitina fannst mikið magn af verðmætum hlutum sem honum
voru færðir sem gjöf meðan hann var forsætisráðherra. Gjafirnar
voru þó ekki ætlaðar honum sjálfum, heldur forsætisráðherraemb-
ættinu og hafði hann enga heimild til að slá eign sinni á þær og
geyma þær heima hjá sér.
Papon var í Sviss
SVISS - Enn er ekki vitað hvar Maurice Papon, fyrrverandi ráðherra
í Frakklandi sem nú er dæmdur stríðsglæpamaður, heldur sig, en
hann mætti ekki til réttarhalda í gær þar sem taka átti fyrir áfrýjun
hans. Nú er komið í ljós að hann var staddur í Sviss í síðustu viku,
en óvíst er hvort hann sé þar ennþá. Papon hlaut tíu ára fangelsi fyr-
ir að hafa flutt 1.500 gyðinga burt frá Frakldandi á stríðsárunum, en
Ieið þeirra lá beint í útrýmingarbúðir nastista. Papon er 89 ára gam-
all.
Ekki má miimast á Drakúla
RUMENÍA - Stjórnvöld í Rúmeníu vilja ekkert vita af Drakúla og
vilja alls ekki að minnst verði á það einu orði í sögukennslubókum að
Vlad Tepes fursti, sem uppi var á miðöldum, hafi verið fyrirmynd
blóðsugunnar frægu sem enn lifir góðu lífi í bókum og bíómyndum.
Miklar deilur hafa því risið á þjóðþingi Rúmeníu vegna þess að á
þetta er minnst í nýrri kennslubók. Einn þingmaðurinn gekk meira
að segja svo langt að krefjast þess að upplagið af þeirri bók verði
brennt.