Dagur - 22.10.1999, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 - 13
Chelsea lék vel og rúllaði
Galatasaray upp a útivelli
Norðmenn gera það
ekki endasleppt í
Meistaradeildinni,
en Molde vann gríska
liðið Olympiakos 3-2
eftir að Olympiakos
hafði komist í 2-0,
sem voru hálfleiks-
tölur leiksins.
Þrátt fyrir það að tyrkneskir
áhangendur tyrkneska liðsins
Galatasaray biðu Ieikmenn
Chelsea velkomna til „vítis“ er
þeir komu til leiks í Meistara-
keppni Evrópu í Istanbul, sigr-
uðu þeir stórt, 5-0. En í leikjun-
um 10 á miðvikudag var alls
skorað 31 mark. Mörk Chelsea
skoruðu Flo (2), Zola, Wise og
Ambrosetti. En sjálfsagt hafa
leikmenn Chelsea verið þeirri
stundu fegnastir er lokaflaut
leiksins gall við og þeir voru Iaus-
ir við tyrknesku áhorfendurna,
sem görguðu á þá allan leikinn.
Spurning hvort sumir þeirra
voru komnir til þess að horfa á
fótbolta. Þrátt fyrir sigurinn
tókst Chelsea ekki að ná efsta
sæti H-riðils, þar sem Hertha
Berlin, með landsliðsfyrirliðann
Eyjólf Sverrisson innanborðs,
vann sigur á AC-Milan, 1-0, með
marki Wosz í lok fyrri hálfleiks
og leiðir í riðlinum með 8 stig en
!
1 é '| §|p jS ‘-íss- 1
M >1
Eyjólfur Sverrisson [á lofti) og Kai Michalke, leikmenn Herthu Berlin,
kljást um boltann við Milan-leikmanninn Guly og hrósuðu sigri þegar upp
var staðið.
Galatasarayleikmaðurinn Hakan Sukur aðþrengdur af leikmönnum Chelsea, þeim Frank Lebeceuf t.v.
og Albert Ferrer t.h.
Chelsea er með 7 stig. Eyjólfur
Sverrisson var „yfirfrakki'1 á
Brasilíumanninum Leonardo í
leiknum og skilaði því hlutverki
svo vel að Brassinn var alveg
heillum horfinn.
Valencia og Bayern Munchen
skildu jöfn, 1-1, í F-riðli í Val-
encia, í Ieik hinna glötuðu tæki-
færa. Við það skutust Skotarnir í
Glasgow Rangers upp í 1. sæti F-
riðils með 4-1 sigri á PSV Eind-
hoven. Glasgow Rangers er með
7 stig, en Valcncia og Bayern
Munchen, sem lék eftirminni-
legan úrslitaleik í keppni gegn
Manchester United á síðasta
vori, en tapaði, er með 6 stig svo
framundan er hörkubarátta í
þessum riðli en Glasgow
Rangers mætir Valencia-liðinu í
næstu umferð, og er leikið í
Glasgow.
FC Girondins de Bordeaux,
eins og franska meistaraliðið
heitir fullu nafni, vann sann-
gjarnan sigur 2-1 á Spartak
Moskva á Luzhniki-leikvangin-
um í Moskvu og er efst í G-riðli
með 10 stig og ætti að vera nokk-
uð öruggt með sæti í 16-liða úr-
slitum Meistaradeildar UEFA.
Sparta Prag vann austurríska lið-
ið Willem II 4-3 en austurríska
Iiðið lék með aðeins 10 menn
seinni hluta síðari hálfleiks, þar
sem einn leikmanna þess fékk að
sjá rauða spjaldið. Austurríska
Iiðið er það eina í Meistara-
keppni Evrópu sem er án stiga.
Sparta Prag er með 8 stig í 2.
sæti riðilsins.
Brasilíumaðurinn Mario Jar-
del skoraði bæði mörk Porto er
Iiðið lagði Real Madrid 2-1 í
Oporto. Mark Real Madrid var
sjálfsmark. Porto er í efsta sæti
E-riðiIs eftir þennan sæta sigur
með 9 stig, en Real Madrid kem-
ur í 2. sæti með 7 stig. Porto
leikur við norska liðið Molde í
næstu umferð og getur tryggt sér
sæti í 16-Iiða úrslitum með sigri
í þeim leik. Norðmenn gera það
ekki endasleppt í Meistaradcild-
inni, en Molde vann gríska liðið
Olympiakos 3-2 eftir að Olympi-
akos hafði komist í 2-0, sem voru
hálfleikstölur leiksins.
Næsta umferð í Meistaradeild
Evrópu verður leikin 26. og 27.
október nk. — GG
ÍÞRÓT TA VIDTALID .
Leildð og flautað í 30 ár
Kárí
Gunnlaugssoti
fyrrutn leikmaðurKeflavíkur og
knattspymudómari
Lék um 100 leikimeð
KeflavíkurWinu. Kári tel-
ursjdlfurað hann hafi
ekki verið grófurleikmað-
ur, en fasturfyrir, og hann
hafi fengiðnokkur gul
spjöld áferlinum sem leik-
maður, en engin rauð.
Kári Gunnlaugsson í Keflavík
hefur látið af störfum sem dóm-
ari á vegum KSI. Hans síðasta
starf var að vera aðstoðardómari
(línuvörður) á úrslitaleiknum í
bikarkeppninni milli KR og
Akraness á þjóðarleikvanginum í
Laugardal 26. september sl.,
sem KR vann svo eftirminnilega
3-1. Kári verður 45 ára síðar á
þessu ári og á að baki langan fer-
il, fyrst sem leikmaður með
Keflavíkurliðinu og síðan sem
knattspyrnudómari, alls í allt að
þrjá áratugi. Síðustu árin hefur
Kári Gunnlaugsson verið alþjóð-
legur aðstoðardómari FIFA, en
þeir láta sjálfkrafa af störfum við
45 ára aldurinn. Hann dæmdi
um 30 alþjóðlega leiki á þeim
tíma í um 20 löndum.
- HvaÖ veldur þessari ákvörð-
un, kannski önnur áhugamál
setn eru farin að vega þytigra?
„Mér fannst það vera rétti
tímapunkturinn að hætta þegar
ég er ekki lengur á FIFA-listan-
um. Mín atvinna er staða deild-
arstjóra fíkniefnadeildarinnar í
flugstöð Leifs Eiríkssonar og ég
sit í aðalstjórn Keflavíkur, og þar
eru mikil verkefni en ég er ekki
hættur að dæma fyrir mitt félag,
t.d. í yngri flokkunum. Við Kefl-
víkingar vorum ekki ánægðir
með árangur liðsins í úrvals-
deildinni í sumar, en við bindum
miklar vonir við það að nýr þjálf-
ari, Páll Guðlaugsson, nái góð-
um árangri næsta sumar. Svo er
verið að byggja hér yfirbyggt
knattspyrnuhús og það á von-
andi eftir að skila okkur enn
betri knattspyrnumönnum."
Kári segist eiga margar eftir-
minnilegar stundir sem knatt-
spyrnudómari, en kannski hafi
fyrsta ferðin á Evrópuleik sem
aðstoðardómari til Portúgal á
leikvang, sem telur 80 þúsund
áhorfendur, verið eftirminnileg-
ust. Hann byrjaði knattspyrnu-
ferilinn sem framlínumaður en
færðist stöðugt aftur eftir því
sem árin liðu, þó ekki í markið
og lék um 100 leiki með Kefla-
víkurliðinu. Hann telur sjálfur
að hann hafi ekki verið grófur
leikmaður, en fastur fyrir, og
hann hafi fengið nokkur gul
spjöld á ferlinum sem leikmaður,
en engin rauð. Kári segir það
mjög eftirminnilegt þegar Kefla-
víkurliðið sló út sænska liðið
Kalmar f Evrópukeppninni og
mætti síðan Hadjuk Split frá
Tékkóslóvakíu.
- Þú dætndir í efstu deild
árin 1990 til 1992 en þá varst
þú færður niður í 2. deild þar
setn þú fékkst ekki nógu góða
utnsögn og dótna utn slötfþín á
knattspyrnuvellinuin með
flautuna frá eftirlitstnönnum
KSÍ. Þú sagðir m.a. í hita leiks-
ins þá að dómarar værtt ekki
dæmdir affagmennsku afeftir-
litsmönnum. Ertu enn sama
sinnis?
„Já, mér var heitt í hamsi þá og
ekki bætti úr skák að ég fékk ekki
að vita hvað ég hefði gert svona
rangt. Síðan hefur margt gerst.
Knattspyrnusambandinu er í dag
stjórnað mun fagmannlegar og
störf eftirlitsmanna eru einnig
meira samræmd og þá um leið
einnig fagmannlegri."
- Þú munt kannski í framtíð-
inni gatiga í stétt eflirlits-
tnanna?
„Það er dómaranefnd Knatt-
spyrnusambandsins sem ákveður
hverjir starfa á þess vegum sem
eftirlitsmenn. Verði eftir því leit-
að við mig og talið að ég geti gert
knattspyrnunni gagn á þann
hátt, þá mun ég sjálfsagt sldpa
þann hóp manna sem ég gagn-
rýndi svo hart hér um árið. Enda
eru nú aðrir tímar." — GG