Dagur - 02.11.1999, Page 1
Margt hálf hlaegi-
legt 1 sMpuIaginu
Svæðisskipulag iiöf-
uðborgarsvæðisins.
Garðbæiugum ekki
skenunt. Finnst sinn
hlutur ekki sem
skyldi. Ætla sér stóra
hluti með sinn mið-
bæ.
Ingimundur Sigurpálsson, bæjar-
stjóri í Garðabæ, segir að ýmislegt
í tillögum samvinnunefndar um
svæðisskipulag höfuðborgarsvæð-
isins sé hálf hlægilegt. I það
minnsta það sem snýr að hlut
Garðabæjar í þeim. Að því leyti
segist hann líta á margt af því sem
fram kemur í tillögunum sem
frumorð á blaði. Hinsvegar telur
hann að vitræn umræða um
skipulagsmálin sé af hinu góða.
Það á síðan eftir að reyna á það
hvort menn komast að sæmilegri
pólitískri niðurstöðu um svæðis-
sldpulagið.
Verulegar at-
hugasemdir
Bæjarstjórinn
segir að bæjar-
stjórn Garðabæj-
ar sé ekki búin að
móta neina af-
stöðu til fram-
kominna tillagna
samvinnunefnd-
arinnar um svæð-
isskipulagið
höfuðborgar-
svæðinu, enda sé
málið enn
vinnslustigi.
Hann bendir þó
á að bæjarstjórn-
in sé búin að gera verulegar at-
hugasemdir um skilgreiningar
nefndarinnar á svonefndum
kjörnum. I því sambandi telja
menn að það liggi ekki fyrir rök-
studd skilgreining á því hvernig
eigi að útfæra þessa kjarna og
hvernig þeir séu hugsaðir. Sem
dæmi nefnir bæjarstjórinn að það
sé hálf cinkennilegt að horfa uppá
það að miðbæjarkjarni Reykjavík-
ur sé skilgreindur
Irá Kvosinni og
inn í Skeifu. A
sama tíma sé ver-
ið að skilgreina
tvo kjarna í
Kópavogi. Ann-
arsvegar Smár-
ann og hinsvegar
Hamraborgina
sem Garðbæing-
um finnst vera
hálf einkennileg
framsetning.
Ingimundur segir
að menn séu að
bíða eftir frekari
skýringum, enda
sé enn verið að vinna að þessu
máli í nefndinni og meðal sveitar-
stjórnarmanna í þeim átta sveitar-
félögum seni hlut eiga að máli. Þá
telur hann að vinnan við svæðis-
skipulagið hafi út af fyrir sig ekk-
ert með sameiningarmál sveitar-
félaga að gera á svæðinu, enda sé
það allt annað mál. Hinsvegar sé
viðbúið að þetta geti leitt til auk-
innar samvinnu sveitarfélaganna.
Bam í brók
Ingimundur segir að menn hafi
allan þann tíma sem til þarf til að
skoða kosti og galla á öllum þeim
hugmyndum og tillögum sem
fram koma um svæðisskipulagið.
Hann segir að svona skipulag
verði aldrei barn í brók nema að
menn nái samkomulagi um aðal-
þættina í því. Í því sambandi
bendir hann á að Garðbæingar
ætla sér stóra hluti með sinn mið-
bæ. Af þeim sökum munu þeir
ekld sætta sig við það að hann
verði settur á einhvern annan pall
cn aðrir miðbæir í kringum þá.
Þessvegna gefur bæjarstjórinn
ekki mikið fyrir þá hugmynd að
miðbær Garðabæjar verði flokk-
aður sem einhver C-kjarni eins og
gert sé ráð fyrir í tillögum sam-
vinnunefndarinnar. Samkvæmt
þeim sé gert ráð fyrir að núver-
andi kjarni verði styrktur með fyr-
irtækjum úr upplýsingaiðnaði í
góðu samræmi og sátt við nær-
liggjandi íbúðahverfi. — GRH
Ingimundur Sigurpálsson bæjar-
stjórí í Garðabæ.
Vonbrigði
með Bjork
„Jú, við getum ekki leynt vonbrigð-
um okkar þar sem við höfðum lagt
mikið í kynningu á aíbending-
unni,“ sagði Nanna Sveinsdóttir,
umboðsmaður danska fyrirtækis-
ins Bröste hér á landi. Aðstand-
endur Bjartsýnisverðlauna Bröst-
es, sem afhent voru í nítjánda og
síðasta sinn á laugardag, fengu
þau skilaboð rétt fyrir afhending-
una frá umboðsmanni Bjarkar
Guðmundsdóttur, að hún myndi
ekki mæta væru sjónvarpstöku-
menn og Ijósmyndarar blaðanna
viðstaddir. Svo fór að aðeins einn
ljósmyndari, sem Bröste-umboðið
réði, fékk að taka myndir.
„Mér fannst Björk bera merki
þess að hún væri feimin og ótta-
slegin. Skiljanlega fannst Peter
Bröste, stofnanda og aðstandanda
verðlaunanna, þetta ekki sniðugt
því þetta var jú hans veisla,“ sagði
Nanna, en þess má geta að fjöl-
miðlar fengu að mynda óáreittir þá
hátíðardagskrá sem fram fór í
Salnum í Kópavogi í tilefni þess að
verðlaunin voru afhent. - BJB
Unibank
Það var aðeins einn Ijósmyndari sem mátti taka myndir við verðlaunaafhendingu Bröste-verðlaunanna, Ijósmynd-
ari sem var á vegum Bröste-umboðsins hér á landi. Björk Guðmundsdóttir heldur á ávísuninni, milli þeirra Peters
Bröste, stofnanda verðlaunanna, og Úlafs Ragnars Grímssonar, forseta íslands, sem afhenti verðlaunin, 50 þús-
und krónur danskar, eða um 550 þúsund íslenskar krónur. - mynd: bragi
ðo OKTff/J 50 ooo
FEMTI Tuíj/NDE
éjörk amjNDGoörriR
FBA er á leiðinni úr eign ríkissjóðs.
Tilboði
sMlað
Gestur Jónsson, lögmaður fjárfest-
anna sem buðu í FBA, skilaði stað-
festingu síðdegis í gær þess efnis
að sölutilboði ríkisins hefði verið
tekið í 51 prósentið á genginu 2,8.
Um er að ræða tilboð 26 fjárfesta
að andvirði 9,7 mifljarða króna.
Markaðurinn tók við sér í gær og
fóru bréfin á Verðbréfaþingi hæst í
2,95 en enduðu í 2,87 sem er 3%
hækkun frá föstudeginum.
I framhaldi af kaupunum rnunu
eigendur Orca skipta upp hluta-
bréfum sínum þannig að þeir verði
beint hluthafar í FBA. Þangað til
af því getur orðið munu hlulhafar
í Orca fara beint með atkvæði sín
á hluthafafundum í FBA, þ.e. í
samræmi við sinn eignarhlut.
Eigriarhlutur Orca er nú 28%. Eft-
ir þessi viðskipti munu stærstu
hluthafar í FBA hver um sig l'ara
með um 7% atkvæðisrétt í félag-
inu.
Sameining við Kaupþing?
Bjarni Ármanns-
son, forstjóri
FBA, sagðist í
samtali við Dag
vera mjög
ánægður með
niðurstöðuna.
Dreifður hópur
einstaklinga, fyr-
irtækja og stofn-
anafjárfesta . BJarn'
kæmi að bankan- Armannsson.
um. Allri óvissu
um eignarhaldið væri nú eytt.
Bankinn væri að fullu kominn úr
ríkiseigu og gæti farið að einbeita
sér að nýjum verkefnum.
Aðspurður hvort eignaraðild
bankans ætti eftir að þéttast á eft-
irmarkaði sagðist Bjarni ekki geta
séð þá aðila í hópnum sem ætluðu
sér að selja sína hluti. Samþjöpp-
un væri ekki fyrirséð. Hvort vænta
mætti sameiningar á fjármála-
markaði sagði Bjarni erfitt að segja
um það á þessari stundu. Varðandi
sameiningu við Kaupþing sagði
Bjarni þann möguleika enn vera til
staðar. Með þessari eignatilfærslu
nú hcfðu líkurnar a.m.k. ekki
minnkað. — BJB
- Sja nánar á bls. 8-9.