Dagur - 23.12.1999, Blaðsíða 5

Dagur - 23.12.1999, Blaðsíða 5
 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999- 21 eru auðvitað sérstakir hlutir því okkar líf er mjög einfalt og klaust- urhættirnir þannig að það mundi flokkast undir fátækt annars stað- ar. En við þurfum sokka og jafn- vel hlífðarföt til að nota þegar við förum út í garð.“ Búnar að stofna tvö ný klaustur Klaustrið í Hafnarfirði var upp- haflega stofnað 1939 af hollensk- um systrum sem síðar urðu að yf- irgefa það fyrir aldurs sakir. 1984 komu pólsku systurnar, meðal þeirra systir Agnes. Hún heldur áfram að segja frá: „Þegar stúlka gerist nunna þá er hún eftir það alltaf í sama klaustri. Nema ef stofnað er nýtt. I okkar reglu megum við bara vera 21 í sama klaustri og þegar fleiri sækja um að koma þá fáum við fyrst leyfi til að fjölga tíma- bundið og svo verðum við að skipta okkur upp og búa til nýtt ldaustur. Við komum hingað 1984 og síðan þá erum við búnar að stofiia tvö ný klaustur. Arið 1990 varð til eitt í Tromsö í Nor- egi og annað í Hannover í Þýska- Iandi á síðasta ári.“ - Hafið þið samband við ætt- ingja ykkar í Póllandi? „Já, já við skrifumst á við þá, þeir hringja til okkar og stundum koma þeir í heimsókn. - Hefnr aldrei verið hér íslensk nunna? „Nei, það voru 4 íslenskar hjá st. Jósepssystrum en engin ennþá hjá okkur í Karmel en ég vona að Guð muni líka kalla íslenskar stúlkur hingað." - Lærið þið tslensku? „Já, það er líka starf hjá okkur að læra íslensku og alltaf koma nýjar og nýjar stúlkur að utan þannig að það þarf að halda kennslunni við. Hér var kaþólsk kona sem kenndi okkur sem kom- um hingað 1984 og síðan önnur sem var kennari í Flensborg." - Fylgjast íslendingar með ykkar helgihaldi dags daglega? „Við förum með bænir í kapell- unni oft á dag og á hverjum degi er messað kl. 8 á morgnana og 1/2 9 á sunnudögum. Þá kemur kaþólskur prestur og hann mcssar alltaf á íslensku." - Haftð þið mikil samskipti við Islendinga? „Já, við eigum marga vini sem koma í heimsóknir. Þeir hjálpa okkur, fara á pósthús og kaupa fyrir okkur það sem okkur van- hagar um. Hingað hringja margir á hverjum degi og hiðja um bænir og svo kemur fólk líka til að tala um andleg mál, um vandamál sín og hvað sem er.“ - Farið þið eitthvað lít úr klaustrinu? „Við förum daglega út í klaust- urgarðinn en ekki út fyrir hann nema við þurfum til læknis eða eitthvað annað brýnna erinda. Það eru skýrar reglur um allt slíkt. Kaþólsku reglurnar eru mis- mundandi. Við vitum að Jesú vann við margt, stundum var hann að predika, stundum að Iækna og stundum að hiðja. Þessi viðfangsefni skiptast svolítið milli reglna. Sumar starfa í sjúkrahús- um, aðrar við að predika og kenna fólki og enn aðrar loka sig af til að biðja. Karmelreglan vinn- ur mest þannig. Samt vinnurn við svolítið í höndununt líka eins og ég gat um áðan og við lifum af okkar vinnu. Margir sem leita til okkar koma með eitthvað handa okkur, fisk, ávexti og fleira og við erum að sjálfsögðu sparsamar." - Fáið þið fjárhagsslyrk frá regl- unni ytra? „Nei, hvert Iíarmelklaustur er sjálfstætl og á að sjá um sig sjálft. En við höfum mjög góð samskipti við Karmclklaustur víða í veröld- inni. Ef eitthvert þeirra er í neyð hlaupa hín un'dir haggá.“' Guðríður Karlsdóttir og Árni Rosenkjær að versla í klausturbúðinni. Þau eru meðal þeirra mörgu sem koma reglulega í klaustrið, sér tii sáluhjálpar og nunnun- um til aðstoðar. Guðríður og Árni eru Lútherstrúar en segja það engin áhrifhafa á vinskap þeirra við systurnar. að útiloka mig frá mjög mörgu, það væru ótal hlutir sem ég gæti ekki gert ef ég tæki þessa stefnu. En eftir þennan eina dag tók ég ákvörðun og sagði já. Þá fylltist ég svo mikill gleði að ég geislaði af hamingju. Fólk horfði á eftir mér á götu og sagðist ekki þekkja mig fyrir sömu manneskju. Ein vin- kona mín sem er prestur sagði, „hvað er þetta með þig, það mætti halda að þú værir ástfangin!“ - En þurfa stúlkur ekki að lenda í ástarsorg eða annarri sárri lífs- reynslu áður en þær taka svo stóra ákvörðun að ganga í klaustur? „Nei, ég veit að mörgum finnst þetta óeðlilegt líf að njóta ekki þessara svokölluðu lystisemda heimsins en við hljótum alveg sérstaka náð hjá Guði um skiln- ing og löngun til þess að þjóna honum einum." Búnar að skjóta rótum í Stykkishólmi í Stykkishólmi er st. Frans- iskuklaustur og þar búa tíu nunn- ur af fimm þjóðernum, Austur- ríki, Frakklandi, Hollandi, Kanada og Spáni. Þær eru á aldr- inum 40 til 86 ára. Fimm þeirra starfa á sjúkrahúsinu við hjúkrun, þvotta og í bókhaldi. „Við hjálp- um allsstaðar sem hægt er,“ segir systir Petra, sent við náðurn síma- sambandi \nð eitt kvöldið. En hvernig undirbúa þær jólin? Því svarar hún svo: „Það gerum við rnikið í bæn og ritningalestri. Og líka í okkar tíð- um sem við syngjum að morgni, í hádeginu og á kvöldin. Svo erum við eins og aðrir Islcndingar að við skrilum okkar jólapóst sem við sendum ættingjum okkar og vinum. Við fýlgjumst mjög vel með systrum um heim allan og erum f bréfasambandi við þær. Fáum mikinn jólapóst bæði er- lendis frá og frá vinum okkar hér á landi. Við erum búnar að vera hér svo lengi og þekkjum orðið marga.“ Systir Petra er frá Haag í Hollandi og er búin að vera í Stykkishólmi síðan 1961. Hún er því búin að skjóta rótum. „Hér er fólk eins og ein stór fjölskylda og tdð systurnar erum hluti af þeirri tjölskyldu. Við erum rneðal fólks- ins, störfum með því á spítalan- urn og förurn stundum í lúth- erskar messur," segir hún. Þar sem klaustrið er við hlið st. Fransiskuspítalans horða systurn- ar á spítalanum, ásamt öðru starfsfólki hans, bæði á jólum og f annan tíma. Þær sniðganga ckki kjöt en eru hrifnari af grænmeti. „Grænmeti og ávextir er það sem okkur þykir best að fá en við borðum hara það sem cr á horð borið," segir systir Petra. A jólanótt er næturmessa í klaustrinu og systir Petra segir jafnan koma margt fólk til þeirrar helgiathafnar. „A eftir bjóðum viö því í kakó og kökur uppi í spítal- anum, eins og venja er á Islandi því þá eru komin jól.“ Eins og ástfangin Systir Agnes er falleg kona og yfir henni er sérstök heiðríkja. Hvað skyldi hún hafa verið gömul þegar hún tók þá ákvörðun að gerast nunna og ganga í klaustur? „Eg var 21 árs og það er algengt að á því skeiði taki fólk ákvörðun um lífsstarfið. Ég var byrjuð að læra náttúru-líffræði í háskóla og hitti þar fólk sem kom saman og las biblíuna, fór í ferðalög og skemmti sér saman á kristilegan hátt. Þegar ég tengdist þessum hópi og fór að lesa biblíuna þá fann ég æ meira að Guð getur gefið miklu meiri gleði og ham- ingju en nokkuð annað í heimin- um. Mig langaði að aðrir fýndu þá hamingju líka. Því bytjaði ég að boða fólki sem ég þekkti orð Guðs. Samt varð þetta ekki til að Ég veit að mörgum finnst þetta óeðlilegt líf að njóta ekki þessara svokölluðu lystisemda heimsins en við hljótum alveg sérstaka náð hjá Guði um skilning og löngun til þess að þjóna honum einum. ég tæki þá ákvörðun að gerast nunna. Ég þekkti enga Kar- melnunnu og fór aldrei í Kar- melldaustur." - Hvað varð það þá „Ég átti gott líf, hafði gaman af að Iæra og var að byija þriðja árið í háskóla. Dag einn þegar ég var ein í herbergi fann ég fýrir Jesú þótt ég sæi hann ekki. Hann kall- aði mig til starfa og spurði hvort ég vildi gerast Karmelnunna. Ég vissi að hann var að spyija mig af sínum kærleika af því hann elskaði mig og vildi hafa mig í þjónustu sinni. Ég vissi líka að hann gæfi mér frelsi til að svara hvort sem væri játandi eða neit- andi. Ég varð að taka ákvörðun. Ég fór í skólann næsta dag og háði stranga baráttu innra með mér. Vissi að ef ég segði já væri ég „Þótt þú hafi oft áður lesið einhvern texta í Biblíunni geturþú alltaf fundið eitthvað nýtt iþeim texta, “ segir systirAgnes.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.