Dagur - 23.12.1999, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999- 27
halda ekki jól liggur í upp-
runa hátíðarinnar. Svan-
berg segist fara í heimsókn
til tengdamóður sinnar en
þar verði ekki haldin jól.
Efnislega sé ekkert til-
stand í kringum þetta.
„Jólin eru að uppruna til
heiðin hátíð og Arni
Björnsson, þjóðháttafræð-
ingur, hefur verið manna
iðnastur við að sýna okkur
fram á það. Hátíðin kom
inní kristnina á sínum
tíma þegar trúin varð að
ríkistrú í Róm. A þessum
árstfma var hvort sem er
haldin hátíð og það hafi
ekki verið neitt vinsælt að
afnema hana. Til þess að
réttlæta að hún væri tekin
upp í kristninni, voru
fengnir reiknimeistarar til
þess að finna út að Jesús
hefði fæðst á þessum
tíma. Okkur finnst ekki
rétt að halda hátíð sem á
þennan uppruna og ber
nafn Krists ranglega. Það
er eiginlega ástæðan fyrir
því að við höldum ekki jól.
Það er ekki stafkrókur
fyrir því í Biblíunni að við
eigum að halda upp á
fæðingu Jesú Krists, það
er aðeins ein hátíð sem
okkur er ætlað að halda
og það er minningarhátíð
um dauða Jesú. Ef þetta
væri Biblíuleg skylda að
halda þess hátíð hefði
Biblían eflaust sagt
hvenær meistarinn hefði
fæðst. En það er ekki staf-
krókur um það í Biblí-
unni. Það er eiginlega
rökrétt að það hafi verið
tekið fram því nógu vel er
nú margt annað tímasett í
Bihlíunni. Það er til að
mynda all nákvæmnlega
tímasett til dæmis hvenær Jesú
hóf þjónustu sína. Það Iiggur í
hlutarins eðli að ef það væri
hvatt til jólahalds í Biblíunni þá
væri að sjálfsögðu sagt þar
livenær Kristur hefði fæðst.“
Endurkoma
sólarinnar
„Jólin eru upphaflega ásatrúar-
hátíð og við höfum eiginlega
haldið öllum gömlu siðunum.
Þannig að hin kristna jólahátíð
er keimlík gömlu hátíðinni,"
segir Jörmundur Ingi Hansen,
allsherjargoði ásatrúarmanna.
Hann segir að í heiðni hafi
menn haldið að minnsta kosti
fimm ef ekki níu daga veislur
og miðar þá við það sem menn
brugguðu af öli til jólanna.
„Jól voru alltaf haldin með
dálitlum ærslum og látum og
það hefur síðan færst yfir á
gamlárskvöld og Þorláksmess-
una. Það var a.m.k. siður á
einni lítilli eyju í Danmörku að
þá klæddu menn sig upp í
grímubúninga á aðfangadags-
kvöld og gengu á milli húsa og
heimtuðu öl. Þetta er einasti
dagur ársins sem menn komast
upp með þetta, en þetta er
æfaforn jólasiður,11 segir Jörm-
undur Ingi.
Jólakertin galdur
Það er ótalmargt sem við ger-
um sem að tengist fornum jóla-
siðum, og nefnir Jörmundur
það að kveikja á kertum. „Það
eru til sagnir um það frá Nor-
egi að jólageitin, sem er þeirra
Grýla, komi alltaf nær og nær
bænum eftir því sem að líður
að jólum og nóttin verður
styttri. A lengstu nótt ársins þá
er jólageitin komin alveg inní
bæ og þá verða menn að
kveikja Ijós allsstaðar. Annars
' *aai \
Jörmundur Ingi Hansen, allsherjargoði ásatrúarmanna, minnir á að jólin eigi rætur sínar í
fornum siðum heiðinna manna. mynd: e.ól
nær myrkrið yfirhöndinni og
nóttin hættir aldrei. Jólakertin
eru í sjálfu sér ekkert annað en
ósk eða ákveðinn galdur til
þess að fá sólina upp á himin-
inn. Það sem verið er að fagna
og allir vita, hvort sem þeir eru
kristnir eða heiðnir að jólin séu
hátíð ljóssins.
Svo er æfaforn siður sem
hefur borist hingað til Iands
annað hvort frá Litháen eða
Skandinavíu. Það er að bera
jólagreinar inní hús. Greinarn-
ar eru náttúrulega tákn Asks
Iggldralsins sem er lífsins tré.
Askurinn er borinn þarna inn í
hús og hengdar á hann stjörnur
himinsins með ljósum. Siðirnir
eru eiginlega í sjálfu sér þeir
sömu nema nú hafa menn bætt
kristsmessunni þarna inn.“
Allt fornir siðir
Jörmundur segir að fjölskyldu-
samkoman sé hluti af jólunum
og sjálfur fer hann í fjölskyldu-
boð á jólum. „Ef að einhver vill
hlusta á messu þá er ég ekkert
að fetta fingur útí slíkt. Þannig
að þetta er allt saman ósköp
álíka nema að við höldum okk-
ar jól, ýmist nákvæmlega á sól-
hvörfum eða næsta sunnudag á
undan. Ásatrúarmenn héldu
jólablót sitt síðastliðinn sunnu-
dag og tókst það vel. En svo
hefur myndast sú hefð að þetta
sé gert nokkrum dögum fyrr.
Það eru ekki dagsetningar sem
skipta máli heldur er það
hugarfarið og það sem maður
gerir er aðalatriðið.“
Með jólunum er verið að
halda uppi á endurkomu sólar-
innar og segir Jörmundur að
jólin þýði það einfaldlega.
Hann segist ekki vera var við
að þeir sem tilheyra kirkjunni
hafi aðra afstöðu til jólanna en
ásatrúarmenn hafi. „Eg held að
jól þýði upphaf eða endurnýj-
un. Þannig að jólhreingerning-
in er líka siður sem á rætur
sínar í heiðni. Menn vildu
hyrja nýtt ár með því að hafa
allt hreinl. Þetta er náttúrulega
hátíð endurnýjunar, hátíð barn-
anna, hátíð Ijóssins og svo
framvegis. Það er gaman að
segja frá því að ég sá bók útí
Norræna húsi sem hét „Sænsk
jól“. Þar var mikið af myndum
af jólaskreytingum. Mikið af
myndum af allskonar kök-
um og öðru. A þessum sól-
arhátíðum þá borðuðu
menn kökur, smákökur,
þær eru kringlóttar, af því
að það er tákn sólarinnar.
Laufabrauðið sem yfirleitt
er með einhverjum táknum
á. Þetta eru sólarkökur
sem að menn éta til að
hjálpa sólinni og til að von-
ast eftir að sólin verði stór
og gul og falleg, eins og
laufabrauðið. Það er eigin-
lega sama hvað maður
grefur upp. Þetta eru eig-
inlega allt saman æfafornir
siðir sem að tengjast sólar-
dýrkun," segir Jörmundur
Ingi.
Hugguleg
helgi
„Ef að jólin hafa verið löng
þá höfum við verið með
það sem við köllum vetrar-
skóla. Þá höfum við fundið
einhverja fyrirlesara og
aðra slíka til þess að vera
með eitthvert efni í sam-
bandi við okkar trú,“ segir
Böðvar Jónsson, apótekari.
Hann er Bahaíi og segir
helgidaga þeirra tengjast
atburðum í sögu Bahaí-trú-
arinnar.
Að sögn Böðvars er það
þannig að Bahaí-fjölskyld-
ur nota fríið til þess að
gera eitthvað saman. „Það
hefur oft verið þannig að
Bahaí samfélagið leigir sér
hús og notar helgina til
þess að vera saman. Þá
fáum við gjarnan fyrirles-
ara erlendis frá og erum
með öfluga starfsemi á
þessum tíma. Eins og núna
þá eru þessi jóla bara helgi
þannig að það er of mikið mál
að leggja í svoleiðis þegar fríið
er svona stutt.“
Viðurkenna Krist
Bahaíar halda trúarhátíð í febr-
úarlok sem er sambærileg jól-
unum. Þá koma fjölskyldurnar
saman og það eru gefnar gjafir.
En helsta hátíð Bahaía er í apr-
ílmánuði og tengist hún því að
þá opinberaði höfundur trúar-
innar sig sem boðbera guðs.
„Bahaíar trúa því að öll trúar-
brögð séu sprottin úr einum og
sama jarðvegi. Það sé bara einn
guð og öll trúarbrögð eigi þar
sínar rætur. Það er því ekkert
vandamál fyrir okkur að taka
þátt í hátíðarhöldum kristinna
manna um jól. Það eru margar
fjölskyldur sem þannig eru
uppbyggðar að annað hjónanna
er kannski Bahaíi og hitt krist-
ið. Það verður kannski til þess
að á því heimili séu haldnar
tvær hátíðir á ári, annars vegar
jólahátíðin og hins vegar Ba-
haíhátíðin í apríl. Það kemur
ekkert í veg fyrir það að sá sem
er Bahaíi geti tekið þátt f því
sem snýr að andlegum þáttum
jólahaldsins.
Við viðurkennum Krist en
það eru takmörk fyrir því hvað
við getum haldið margar hátíð-
ir. Alveg eins og ég var að segja
áðan að kristnir menn viður-
kenna Móse og alla þá sögu
sem þar er á bakvið, en þeir
halda bara sínar hátíðir, þeir
halda ekki hátíðir gyðingdóms-
ins líka," segir Böðvar.
Ekki bannað
að gefa gjafir
Hann segir að fjölskyldan haldi
ekki uppá jólin á sama hátt og
var áður en eiginkona hans
gerðist Bahaíi. „Það liðu ein-
hver sex ár á milli þess að ég
gerðist Bahaíi og þangað til
hún gerðist það. Þetta var
hinsvegar ekkert vandamál hjá
mér og minni konu á sínum
tfma. Hún var mjög fús til þess
að halda Bahaíhátíðirnar líka
og meðan að það var þá héld-
um við þetta tvöfalt allt saman.
Við eigum þrjú börn, en ein
dóttir okkar býr hérna á Akur-
eyri og ætlum við að verja helg-
inni með henni og tengdasyni
okkar og barnabörnum. Þau
eru líka Bahaíar. Það er hins-
vegar ekkert sem bannar það
að utanaðkomandi ættingjar
sem að ekki eru Bahaíar gefi
krökkunum gjafir og ætla þau
að opna pakkana sína. Þannig
að ég býst við að þetta verði
mjög hugguleg helgi,“ segir
Böðvar.
„Við viðurkennum Krist en það eru takmörk fyrir þvi hvað við getum haldið margar hátíðir. Alveg eins og ég var að
segja áðan að kristnir menn viðurkenna Móse og alla þá sögu sem þar er á bakvið, en þeir halda bara sínar hátíðir,
þeir halda ekki hátíðir gyðingdómsins líka, “ segir Böðvar Jónsson, apótekari á Akureyri. mynd: brink