Dagur - 23.12.1999, Page 21
Ð^ur-
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999- 37
' y t
r
Þrautir
Jólastjarna
Þú getur teiknað þessi form á stífan
pappa og klippt þau út. Síðan er hægt
að raða þeim saman og mynda
stjörnu? Athugið síðan hvort vinir ykk-
ar geti líka myndað stjörnu úr formun-
um.
Felumynd
Gunnar litli vaknaði á jóladagsmorgun og þá sat jólasveinninn í hægindastóln-
um í stofunni. Hann sagðist hafa falið 7 gjafir handa honum víðsvegar um stof-
una. Getið þið hjálpað honum að finna þær?
5 villur
Skralli skrapp í hæinn að kaupa jólagjafir. A aðra
myndina vantar fimm hluti geturðu fundið út hvað
það er?
Bótin
Hvaða bót á að vera í gat 1, 2, og 3 á sundbolnum?
Leiðin til kirkjunnar
Hjónin að Mélagötu 3 ætla í kirkju á að-
fangadagskvöld. Getur þú hjálpað þeim að
fíiriHy'lfcfð^'4iPKfcHjliiHHfíf?«I muuitf mue
Þríhyrningar
Geturðu skipt þessum fleti í sex
þríhyrninga, með því að draga
fjórar beinar línur á hlaðið.
Uppskrift
Á jólunum er skemmtilegt að fá
sér eitthvað gott að borða og
hérna er uppskrift sem allir ættu
að geta lagað að eigin smekk:
1.
Brytjaðu niður:
banana,
_____________epli,___________
kíví, appelsínu eða mandarínu,
döðlur, eða einhverja aðra
ávexti,
bökunarsúklmlaði.
2.
Blandaðu þessu saman og settu
í litlar skálar og dreifðu kókos-
mjöli yfir.
3.
Það er gott að bera þetta fram
með þeyttum rjóma og ís.
Brandarar
Þú kemur of seint í skólann
hvern eingasta dag! Áttu ekki
vekjaraklukku?
- Jú, jú. En hún hringir alltaf
áður en ég vakna svo að ég heyri
aldrei í henni.
***
Ert þú búinn að eingast Iítinn
hróður?
- Já, það er víst.
- Hvað heitir hann?
- Það veit ég ekki, það skilur
enginn neitt í því sem að hann
segir.
***
Tveir grísir komu saman inn í
hús og sáu rafmangsinnstungu á
veggnum. Þá sagði annar grísinn
við hinn:
- Sérðu vesalinginn? Hann er
múraður inní vegginn!
***
Kona hringdi í ferðaskrifstofuna
og spurði hvað það tæki langan
tírna að fljúga til Rómar.
- Augnablik! sagði símastúlk-
an.
- Kærar þakkir sagði konan þá
og lagði á.
***
Síminn hringdi á skrifstofunni
hans Jóns. það var Oli.
- Pabbi, hún amma er í sjón-
varpinu.
- Er það sattt?
- Já, hún datt um leikfanga-
lestina mina.
* **
- Læknir ég hrýt svo hátt að ég
vek sjálfan mig. Hvað á ég að
gera?
- Sofðu í öðru herbergi.
Ábending Skralla
„Mamma, ég og þau hin hiðja að
heilsa öllum meö ósk um gleði-
iJágjiikihigt'Tiðuyeiinlnttþað'/'j