Dagur - 07.01.2000, Blaðsíða 2
f - 'n 0 0 S v n •,» ». <* ilT ». (S
2 — FÖSTUDAG U R 7 ■ JANÚAR 2 0 0 0
FRÉTTIR
Um 179 vikna bið
eftir lýtalækningnm
Um sjö þiisimd nianns
voru á biðlistum
sjúkrahúsanna í októ-
ber sl. og virðist hafa
fækkað. Meðalbið
tími á deildum er frá
6 til 179 vikur.
„Sérstaklega voru athugaðir
sjúklingar sem biðu eftir maga-
minnkun. Alls bíða 25 eftir slíkri
aðgerð og hafa beðið að meðal-
tali í tæp fimm ár eftir meðferð,"
segir meðal annars í yfirliti land-
læknisembættisins í Læknablað-
inu um biðlista á almennum
skurðdeildum sjúkrahúsanna í
haust. Fram kemur að heildar-
biðlistar eftir skurðaðgerðum þar
voru lengri í haust en síðustu
árin, nema á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur þar sem listinn hefur styst
um helming, þrátt fyrir þessa
löngu bið þeirra sem þurfa
magaminnkun. Alls voru um
920 manns á biðlistum skurð-
deilda níu sjúkrahúsa. Meðal-
biðtíminn var tæpar 25 vikur,
lengstur 40 vikur hjá FSA en
stystur sex vikur á
I leilbrigðisstofnun Suðurnesja.
6.990 maans á biðlistum
Landlæknisembættið kallaði eft-
ir stöðu á biðlistum á öilum
sjúkradeildum Iandsins í október
síðastliðnum. Alls töldu þeir
6.990 manns, álíka marga og
1997. Tölurnar eru þó tæpast
samanburðarhæfar, þar sem
miklu fleiri deildir skiluðu inn
tölum til embættisins í haust
Islenska heilbrigdiskerfið þykir vera fyrsta flokks i alþjóðlegum samanburði, en samt erþað svo að margir þurfa að bíða í
talsverðan tima eftir að fá bót meina sinna. Unnið er að því að biðlistar styttist.
heldur cn nokkru sinni áður. Sé
aðeins litið á biðlista þeirra
deilda sem sendu inn tölur
haustið 1997 hafa þeir síðan
styst um fimmtung.
Flestir á bæklimardeildum
Flestir bíða aögerðar á bæklun-
ardeildunum, eða alls 1.170
manns, þrátt fyrir talsverða
fækkun á öllum deildum nema á
FSA og Akranesi. Á síðastncfnda
staðnum bíða nú miklu Ileiri að-
gerða en áður. Meðalbiðtími er
rúmar 49 vikur, lcngstur á St.
Jósefsspítala 77 vikur og 64 vik-
ur á SHR, en stystur sex vikur á
Suðurnesjum.
Almennu skurðdeildinar hafa
næst lengsta lista, en þriðji
stærsti hópurinn bíður á háls-,
nef- og eyrnadeildum, 860
manns, þrátt fyrir mikla fækkun.
Mestu munar að á SHR hefur
fækkað úr 1.000 manns í 420 á
tveim árum. Meðalhiðtíminn er
nú 31 vika.
Bíða 179 vikur eftir lýta-
aðgerð
Litlu færri bíða eftir lýtaaðgerð-
um, þ.e. 735 á Landspítalanum,
þar sem biðlistinn er 179 vikur,
eða hálft fjórða ár, svo þolin-
mæði er gulls ígildi í þessum
hópi.
Um 800 manns bíða endur-
hæfingar, þar af um 660 á
Reykjalundi, þar sem biðtími er
27 vikur.
Á Vífilstaðaspítala bfða 450
eftir svefnrannsóknum, í rúmt ár
að meðaltali. Um 390 bíða hjá
augndeildum og er biðtíminn að
jafnaði 16 vikur. Á kvensjúk-
dómadeildum eru álíka langir
listar, eða 18 vikur. Þá bfða 335
konlir eftir glasafrjóvgun, álíka
rnargar og undanfarin ár.
Lislar hjartadeilda telja um
290 manns og er biðtími um 17
vikur. Einna fæstir bíða á
þvagfæraskurðdeildum, eða 181,
en biðtíminn er samt Iangur, eða
70 vikur. Aðeins 120 eru á
biðlistum öldrunarlækninga-
deildanna og víðast stuttur bið-
tími. - HEl
Visa verður lánastofnuu
Valgerður Sverrisdóttir afhendir Sóloni og Einari starfsleyfið.
%
____________________JS
Búnaðarbankinn græðir vel - meira
að segja svo að viðvörunar er þörf.
Bimaðar-
ígóðum
málum
Búnaðarbankinn sá ástæðu til
að senda Verðbréfaþingi af-
komuviðvörun í gær vegna betri
afkomu á síðasta ársfjórðungi
1999 en áætlanir gerðu ráð fyr-
ir. Endurskoðað . ársuppgjör
verður birt í næsta mánuði.
Fram kom í útboðslýsingu vegna
sölu á 15% hlutnum fýrir ára-
mót að hagnaður bankans fyrir
skatta yrði a.m.k. 1,3 milljarðar.
Nú virðast endurskoðendur
bankans hafa séð mun hærri
tölu og séð ástæðu til að „vara“
fjárfesta við. Hluthafar bankans
geta brosað, ekki síst þeir sem
keyptu af ríkinu á genginu 4,10.
Géngið rgáer stóð T 5,4 01
- BJB
Fyrsta opinbera embættisverk
hins nýja viðskiptaráðherra, Val-
gerðar Sverrrisdótlur, var að af-
henda VISA íslandi - Greiðslu-
miðlun hf sérstakt starfsleyfi sem
lánastofnun. Var það gert við sér-
staka athöfn í ráðuneyti Valgerð-
ar þar sem forstöðumenn VISA,
þeir Sólon R. Sigurðsson, stjórn-
arformaður og Einar S. Einars-
son, framkvæmdastjóri veittu
formlegu skjali þar að Iútandi
viðtöku.
„Þessi breyting á starfsgrund-
velli fyrirtækisins opnar því nýja
möguleika á aukinni þjónustu á
sviði lánastarfsemi, einkum
gagnvart sölu- og þjónustuaðil-
um, svo sem varðandi skamm-
timafjármögnun á innsendum
sölunótnabunkum vegna
greiðslukortaviðskipta og á rað-
greiðslusamningum. Þá hefur
fyrirtækið fjármagnað erlend við-
skipti korthafa um Ianga hríð og
borið ábyrgð á almennum
greiðslukortaviðskiptum með
VISA innanlands frá stofnun
þess árið 1983,“ segir í tilkynn-
ingu frá fyrirtækinu.
Heildarvelta VISA íslands í
kreditkortaviðskiptum á árinu
1999 nam 82.5 milljörðum kr. og
jókst um tæpa 12 milljarða frá
árinu á undan eða um 16.5%
Engu sorppokatilboði tekið
Framkvæmdanefnd Akureyrar-
bæjar ákvað á fundi sínum milli
jóla og nýárs að taka engu þeirra
aðaltilboða sem bárust í sorp-
poka til notkunar í bænum. Yfir-
verkfræðingi bæjarins var hins
vegar faliö að ganga til víðræðna
við Gámaþjónustu Norðurlands
á grundvelli frávikstilboðs. Frá-
vikstilhoðið felst í því að Gáma-
jijónustan tekur að sér sorphirðú
f bænum, leggur til sorptunnur
og að samið vcrði til fimm ára.
Tilboðsverð Gámaþjónustunnar
er rúmar 27 milljónir króna. Aðr-
ir bjóðendur voru Stiklir ehf.,
Tandur hf., Valgarður Stefáns-
son, Evró ehf., Hjördís
Björk/Áfangar ehf., Ako-PIastos,
Alkaup ehf., Islcnska innflutn-
ingsfélagið ehf. og Oson chf.,
auk Gámaþjónustu Norðurlands.
Jafnframt samþýkkti fram-
kvæmdanefnd að fela yfirverk-
fræðingi bæjarins að tryggja með
samningum við lægstbjóðanda,
Ako-PIastos, að ekki verði skort-
ur á sorppokum. Hver sem
ástæðan þó er þurfti blaðamaður
Dags, svo dæmi sé tekið, að grípa
til eigin sorppoka í fáein skipti
nýlega, einmilt vegna skorts á
pokum í sorpgeymslu íjölbýlis-
hússins þar sem hann býr. - lil
Föt til Sorpu
fyrir RKÍ
Samkvæmt samkomulagi sem
Sorpa og Rauði kross Islands
gerðu í gær þá verður innan
skamms tekið á móti notuðum
fatnaði fyrir Rauða krossinn á
endurvinnslustöðvum Sorpu.
Gefcndur á höfuðborgarsvæð-
inu þurfa því ekki lengur að l’ara
með notuö föt til Rauða kross-
ins heldur geta skilað þeim af
sér hjá Sorpu. Fé sem fæst lý'rir
fatnað sem sendur er í endur-
nýtingu rennur til alþjóðlegs
hjálparstarfs en í tilkynningu frá
Rauða krossinum kemur fram
að fatapeningar í fyrra hafi
numið 5 milljónum króna. Á
næstunni er ráðgert að koma á
fót flokkunarstöð fyrir fatnaðinn
og síðar að opna Rauða kross
verslun með notuð föt í Reykja-
vík.
Flugvölliiriim
landsbyggðimti
mikilvægur
Héraðsnefnd Eyjafjarðar hefur
sent frá sér ályktun þar sem
skorað er á borgarstjórn Reykja-
víkur að standa vörð um núver-
andi staðsetningu Reykjavíkur-
flugvallar. I ályktuninni segir að
Reykjavík sé höfuðborg allra
landsmanna og verði að standa
undir nafni sem slík, en meðal
annars í gegnum flugvöllinn
liggi leiðir landsbyggðarfólk í
mikilvægar stofnanir sem í borg-
inni eru. „Ljóst er að staðsetn-
ing flugvallarins skiptir lands-
byggðina miklu máli og því vill
Héraðsnefnd Eyjafjarðar minna
borgarstjórn á þær skyldur sem
höfuðborgin ber gagnvart lands-
mönnum ölluni og hafi það í
huga við umfjöllun sína um
framtíðarstaðsetningu innan-
landsflugvallarins," segir orðrétt
í ályktun þessari. - SBS.
Slagverkið í Hita-
veitubúsinu til
vorsius
Slagverkskennsla við Tónlistar-
skólann á Akureyri mun verða
áfram í Hitaveituhúsinu svokall-
aða fram á vorið en sem kunn-
ugt er hafði heilbrigðisfulltrúi
úrskurðað húsnæðið algjörlega
óviðunandi til kennslu. Ákveðið
var að leysa málið tii bráða-
birgða á þeim nótum sem Jakob
Björnsson bæjarfulltrúi nefndi á
bæjarstjórnarfundi fyrir jól, það
er að gera þær Iágmarksendur-
bætur á húsnæðinu sem þarf til
að geta nýtt það til vorsins.
Vinna við þær endurbætur
stendur nú yfir og er reiknað
með að kennsla heljist í næstu
viku. Ekki eru til áætlanir um
kostnað við þessa Iausn. Hús-
næðismál til framtíðar eru hins
vegar óleyst en eins og áður hef-
ur komið fram í fréttum hefur
bæjarráð samþykkt að húsið
verði rifið á þessu ári. - m