Dagur - 07.01.2000, Blaðsíða 4
4 - FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000
FRÉTTIR
Aldraðir eru sá þjóðfélagshópur sem hefur hvað flesta sjúkdóma og neytir flestra lyfja. Þeir munu m.a. njóta þeirrar tækni sem
lyfjaskömmtunarvélin býður upp á og heilbrigðisráðherra kynnti á dögunum.
Aldraðir á allt
að 18 lyfiiun
Aldraðir sem leggjast iim á
bráðasjúkrahús eru á fjölda
lyíja og eiga aukaverkauir
lyfja nokkum þátt í inn-
lögnnm. AIl nokkuð vantar
npp á að bestu lyfjameðferð
sé beitt.
Rannsókn sem náði til allra 75 ára og
eldri sem Iögðust inn bráít á lyflækninga-
deild Borgarspítalans á þremur mánuð-
um vorið 1995 - 208 manns - leiddi með-
al annars í ljós að að þeir voru á allt að 18
Iy§um við innlögn (6-7 að meðaltali).
Um tveir þriðju hlutar hópsins voru á 4-
10 lyljategundum og sjötti hver ennþá
fleiri. „I 8% tilvika þóttu miklar líkur á að
sjúklingur hefði lagst inn vegna auka-
verkana Iyfja,“ segir í glænýju Lækna-
blaði, þar sem Iæknar öldrunarlækninga-
deildar Borgarspítalans og fVá læknadeild
Hl segja frá þessari rannsókn sinni á
lyljanotkun aldraðra. Við útskrift hafði
meðalljöldi lyfja auldst um eitt lyf, sem
læknamir telja að geti að einhverju Ieyti
endurspeglað vissa tregðu til að endur-
FRÉT TA VIÐTALID
skoða lyfjameðferð og hætta þeim sem
ekki sé lengur þörf á.
Bæði of og van
„Hvað varðar meðferð á kransæðasjúk-
dómi, hjartabilun, beinþynningu, svefn-
truflunum og langtímameðferð með syk-
ursterum kom fram að all nokkuð vantar
upp á að bestu meðferð, samkvæmt nið-
urstöðum rannsókna, sé beitt,“ er meðal
ályktana greinarhöfunda.
Rannsóknarhópurinn var 133 konur
og 75 karlar, 75-98 ára - 82ja ára að með-
altali. Um tveir þriðju hlutar voru á
hjartalyljum, um helmingur á hægðalyfj-
um, álíka margir á geðlyfjum og fjórð-
ungur á verkjalyfjum.
Að sögn læknanna má leiða líkum að
því að aldraðir séu vanmeðhöndlaðir
hvað varðar betablokkandi lyf og magnýl
við blóðþurrðarsjúkdómum í hjarta, en
róandi Iyf og svefnlyf séu mögulega of-
notuð. Bólgueyðandi gigtarlyf séu ein al-
gengasta orsök lyljatengdra innlagna.
í mestri hættu á aukaverkiuium
„Aldraðir eru sá þjóðfélagshópur sem
hefur hvað flesta sjúkdóma og neytir
flestra lyfja. Þeir eru einnig sá aldurshóp-
ur sem er í mestri hættu á auka- og hjá-
verkunum. Breytingar á vökvajafnvægi
líkamans, lifrarstarfsemi, magni bindi-
prótína í blóði, nýrnastarfsemi og virkni
ýmissa taugaboða í heila gera það að
verkum að lyfjameðferð hins aldraða er
vandaverk,“ segja greinarhöfundar. Fjöldi
rannsókna hafi sýnt tengsl lyfjanotkunar
við minnkaða hreyfifærni og vitræna
getu, hættu á rugli og skerðingu lífsgæða.
Fjöllyfjanotkun sé sjálfstæður áhættu-
þáttur fyrir áföllum háaldraðra og auki
enn frekar hættu á auka- og hjáverkun-
um. Til að flækja máiin enn frekar komi
aragrúi nýrra Iyfja á markaðinn á hverju
ári og rannsóknir sem færi nýjar ábend-
ingar fyrir lyfjameðferð.
Sparlega farið með bætiefnin
Athygli vekur að aðeins 16% alls hópsins
tók Ijölvítamín við innlögn en tæpur
fjórðungur við útskrift. Og að einungis
tveir þeirra fimmtán sem greinst höfðu
með beinþynningu hafði verið gefið við-
bótarkalk.
Rannsóknina gerðu læknarnir Olafur
Samúelsson, Sigurbjörn Björnsson, Bessi
H. Jóhannesson og Pálmi V. Jónsson.
- HEI
í pottinum var að þessu simii
verið að ræða nýja Kastljósið hjá
Sjónvarpinu, sem er í umsjón
þeirra Gísla Marteins Baldurs-
sonar og Rögnu Söru Jónsdóttur.
Pottverjar vissu nokkur deili á
Gísla Marteini vegna starfa hans
við fréttastofu Sjónvarps og
tengsla hans við Sjálfstæðis-
flokkinn og Heimdall. Minna vissu menn um
stúlkuna, ekki nema það þó að hún væri systir
Evu Maríu Jónsdóttur, sjónvarpskonunnar geð-
þekku. Töluðu pottverjar um að „litla systir"
væri heldur „giybbulegri" og hefði ekki eins
„mjúklega ásýnd“ og Eva María. En hvað um
það. Pottveijar höfðu meiri áhyggjur af viðmæl-
endavali þáttastjómenda. Miimtu þeir á að í
fyrstu fjómm þáttunum hefði þeim tekist að fá
til sín þrjá ráðherra Sjálfstæðisflokksins, þá
Áma Mathiesen, Bjöm Bjamason og Davíð
Oddsson. Sannarlega vel af sér vikið, að mati
pottveija, og efnisvalið frumlegt hjá Sjónvaipi
Sjálfstæðisflokksins. Spuming er bara hvenær
við sjáum Sólveigu, Sturlu og Geir...
Pottveijar vora einnig að ræða
annan gest Kastljóssins í vik-
unni, eiini af þeim fáu sem ekki
em réttir ráðherrar, þ.e. Lindu
Pétinsdóttur, fegurðardís að ei-
lífu. Hún kom i þáttinn til að
ræða samkeppnina í fegurðar-
bransanum en pottverjar veittu
því athygli að hún fékk um leið
gott tækifæri til að auglýsa Baðhúsið sitt. En
pottverjar vora frekar að velta sér upp úr öðra,
þ.e. áformum Ilndu og stallsystra í Ungfrú ís
land.is að stefna að heimsmeistaratitli í fegurð.
Fannst pottverjum vera kominn atviimuíþrótta-
keimur að málinu og veltu því iyrir sér hvort feg-
urðardísir gangi kaupum og sölum í framtíð
inni. Kannski endar þetta með því að fegurðar-
dís verði kjörin íþróttamaður ársins árið
Linda Péturs-
dóttir.
Jónas Magnússon
formaður Landssambands
lögreglumattna
Kjaramál lögreglumanna
hafa komist í brennidepil
vegna ráðninga á ófagiærðum
löreglumönnum. Krafa er
komin um verkfallsrétt á ný
til handa stéttinni.
Setjum púður í næstu baráttu
- Hvenær var það sem þið „misstuð“ verkfalls-
réttinn, efsvo ntá að orði komast?
„Það var árið 1986. Ríkið var í rauninni búið
að taka þá ákvörðun að taka af okkur verkfalls-
réttinn eftir að við höfðum í tvö skipti tekið
virkan þátt í verkföllum BSRB. Þá fengum við
svokallaðan viðmiðunarsamning, þar sem að
auk samningsréttar eru kjör okkar borin sam-
an við meðaltal valdra hópa opinberra starfs-
manna. Það átti að tryggja að við sigum ekki
aftur úr.“
- Hefur það orðið rannin, engti að siður, að
þið itafið dregist aftur úr?
„Aö verulegu leyti hefur þetta haldið en
menn greinir á um forsendur, þ.e. hvort taka
eigi mið af heildarlaunum eða fastakaupi. Síð-
ustu misserin hefur mikið verið að gerast í
þessum aðlögunar- og stofnanasamningum
sem hafa lyft fastakaupinu verulega þótt
heildarlaunabreytingar hafi ekki orðið svo
miklar."
- Er það almenn skoðun lögreglumanna að
fá verkfallsrétlinn á ný?
„Sú skoðun á vaxandi fylgi. Við þurfum að
hafa öllugri þvingunarúrræði en við höfum í
dag. 1 rauninni höfum við ekkert annað en ef
mönnum dytti í hug að grípa til uppsagna.
h ',y. >1^.1, r, il
Hópuppsagnir eru ekki líklegar þar sem menn
eru hvort eð er að segja upp vegna bágra
Iaunakjara og betri boða annars staðar. Tölu-
vert hefur verið um uppsagnir í vetur og er
enn. 1 fljótu bragði man ég eftir um 20 tilfell-
um á skömmum tíma. Þar hafa einfaldlega
boðist betri kjör annars staðar og margt er
þetta fólk á góðum jildri með drjúga reynslu að
baki. Ég held að hátt í 10% af liðsstyrk lögregl-
unnar sé afleysingarfólk án menntunar. Við
erum að detta í sama far og kennarar og leik-
skólakennarar að vera með mikið af ófaglærðu
fólki, sem er ekki gott.“
- Hafa ykkar yfirboðarar ekki vaknað til
vitundar um ástandið?
„Mér finnst menn hugsa ansi skammt fram
á veginn í þessum efnum. Ég hef á tilfinning-
unni að þótt fastakaup lögreglumanna myndi
hækka um helming þá yrði samt uppi spurn-
ing um hversu aðlaðandi starfið væri. Sá sem
er að byija í dag nær ekki 80 þúsund krónum
í fastakaup. Menn sjá ekki orðið tilgang í |jví
að vinna fyrir þetta kaup.“
- Hver verða næstu skreft ykkar baráltu?
„Við erum með kjarasamning gildan lram í
október. Menn horfa til þess að setja púður í
baráttlí naéstu kjarasamninga. \ ið ætl^rp^j^^
að hlaupast undan gildandi samningi en við
þurfum að ræða við ráðamenn og upplýsa
þingmenn og aðra um ástandið."
- Er þessi staða eins hjá lögreglumönnum
yfir allt lattdið?
„Þetta er mjög svipað á Iandsbyggðinni. Á
nokkrum stöðum er hlutfall afleysingafólks
orðið 50%. Ég man t.d. eftir Keflavík og Hafn-
arfirði, þar er mikið af afleysingafólki. Því
minna sem lögregluliðið er því erfiðara er
ástandið. Það er mun erfiðara að manna stöð-
urnar úti á Iandi. Ég minni á í þessu sambandi
að nýlega féll dómur í Danmörku í hraðakst-
ursmáli. Viðkomandi var sýknaður vegna þess
að danskir dómstólar samjrykktu ekki „mann í
lögreglubúningi“. Þeir felldu málið niður. Mér
þykir í raun ekki ólíklegt að farið verið að
spyrja lögreglumenn hér á landi hvort þeir séu
með réttindi. Við erum að spytja aðra um slíkt,
t.d. um ökuréttindi. Þetta hefur verið mikið til
umræðu innan stjórnar Norræna lögreglu-
sambandsins. Þar eru menn að tala urn þetta
vald til að meðhöndla fólk og réttindi þcss. Til
að takast á við það verkefni þurfi menn að
hafa einhverja menntun að hald. Við myndum
ekki sætta okkur við að einhver menntaskóla-
nemi færi að skera okkur upp,“TO[1, - lijli