Dagur - 07.01.2000, Blaðsíða 1
Mngnefndin
kölluð saman
Aðstandendur Frjálslynda flokksins efndu til blaðamannafundar í gær og hér kynna þingmenn flokksins sér Vatn-
eyrardóminn, þeir Guðjón A. Kristjánsson og Sverrir Hermannsson. Með þeim eru, frá vinstri, Lúðvík Emil Kaaber,
lögmaður skipstjórans á Vatneyrinni, Jón Sigurðsson og Valdimar Jóhannesson. Að baki þeim er Margrét Sverris-
dóttir, framkvæmdastjóri fiokksins. mynd: hilmar þór.
Sj ávarút vegsnefnd
köUuð saman í dag
vegna Vatneyrardóms-
ins. Kvótalausir báta
sjóbuast í óþökk
Fiskisktofu. Mjög ólík
túlkun á dóminum.
Að sögn Kristins H. Gunnars-
sonar, varaformanns sjávarút-
vegsnefndar Alþingis, verður
nefndin kölluð saman til fundar
í dag, föstudag, vegna Vatneyrar-
dómsins. Þá höfðu bæði Jóhann
Arsælsson, fulltrúi Samfylking-
arinnar í nefndinni, og Guðjón
A. Kristjánsson, fulltrúi frjáls-
lyndra, óskað eftir því formlega
að nefndin kæmi saman. Full-
trúar í sjávarútvegsnefnd eru
sammála um að dómurinn sé
mikil tfðindi, þó menn greini á
um hversu mikl áhrif og hversu
hröð hann muni hafa á núverndi
fiskveiðistjórnunarkerfi verði
hann staðfestur í Hæstarétti.
Kristinn H. Gunnarsson, segir
að dómurinn vilji breyta fyrir-
komulagi fiskveiðistjómunarinn-
ar og tekur fram að menn megi
gefa sér tíma til þess þannig að
hann gefi aðlögunartíma að nýju
fyrirkomulagi. „Þess vegna þarf
ekki að skapast neitt óvissuá-
stand ef Hæstiréttur staðfestir
dóminn,“ segir Kristinn H.
Gunnarsson.
Jóhann Arsælsson segir hins
vegar að dómurinn þurfi í raun
ekki að kollvarpa efnahagskerf-
inu verði hann staðfestur eins og
haldið hefur verið fram. Tvær
leiðir séu í stöðunni. Annars veg-
ar sóknarstýring og hin Ieiðin sé
að breyta kvótakerfinu ekki neitt
en setja allan kvótann á leigu-
markað sem allir landsmenn hafi
jafnan aðgang að. Það væri ein-
falt kerfi og hægt að gera það
með ýmsu móti til að tryggja að
allir landsmenn hefðu samam
rétt til að bjóða í kvótann, segir
Jóhann.
Guðjón A. Kristjánsson þing-
maður Frjálslyndaflokksins
kveðst eiga von á að dómurinn
verði staðfestur í Hæstarétti og
telur það hugrekki hjá einum
dómara að kveða upp úrskurð af
þessu tagi. „En það sem maður
kannski óttast mest er að nú fari
þeir sem hafa verið að eignast
auðlindina á undanförnum
árum út í það að beita dómara
einhverskonar þrýstingi í gegn-
um sín sambönd, pólitísk sem
önnur," segir Guðjón Arnar
Kristjánsson.
I gær höfðu á milli 10-15 bát-
ar sem tilheyra Félagi kvótalítilla
útgerða hafið undirbúning að því
að fara á sjó á kvótalausum bát-
um. Bentu þeir á að réttaróviss-
an nú hlyti að vera túlkuð þeim í
hag. í því sambani var notuð
samlíking við áfengisauglýsingar
á dögunum þar sem undirréttur
heimilaði slíkar auglýsingar á
grundvelli tjáningarfrelsisá-
kvæða stjórnarskrárinnar, en
Hæstiréttur sneri síðan dómin-
um við. í því millibilsástandi var
áfengi auglýst og þótt Iögregla
hafi talað um að óbreytt lög giltu
hafi ekkert verið gert í málinu.
Því myndu þessir bátar róa, þrátt
fyrir ítrekuun Fiskistofu um að
lögin væru í gildi þar til úrskurð-
ur félli í Hæstarétti.
ítarlega er fjallað um viðbrögð
við dómnum á blaðst'ðum 8 og 9
ílugvirkjamáli vísað frá í Svíþjóð
Hæstiréttur í Svíþjóð staðfesti
rétt fyrir áramótin niðurstöðu
neðri dómstiga þar í landi að vísa
beri frá dómstólum kröfum
V%csterAs-sveitarfélagsins á
hendur íslenska ríkinu um
greiðslu kostnaðar vegna mennt-
unar íslenskra flugvirkja í
V%osterÁs.
V%cSterÁs stefndi mennta-
málaráðuneytinu íslenska 1997
til greiðslu kostnaðar vegna
náms íslenskra framhaldsskóla-
nema í flugvirkjun í skóla í
V%osterÁs. Krafði V%csterÁs
menntamálaráðuneytið um
greiðslu kostnaðar er nam um
fjórum milljónun sænskra króna
eða um 33 milljónum íslenskra
króna. Á grundvelli norræns
samnings frá 1992 um greiðslu
kostnaðar vegna framhalds-
menntunar Norðurlandabúa
utan heimalands á öðrum Norð-
urlöndum féllst menntamála-
ráðuneytið ekki á kröfu Svíanna,
enda bar sænskum yfirvöldum að
greiða umræddan kostnað sam-
kvæmt samningnum.
I forsendum dóms Hæstaréttar
er meðal annars vísað til þessa
samnings og byggt á því að í mál-
inu nyti íslenska ríkið friðhelgi í
Svíþjóð. Taldi Hæstiréttur Sví-
þjóðar að því væri ekki unnt að
fjalla um dómkröfur V%csterÁs á
hendur íslenska ríkinu fyrir
sænskum dómstólum. - hi
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra ásamt skýrsluhöfundi,
Halldóri Kristjánssyni.
mynd: hilmar þór.
Cantat-3
ónógiir
Svo hröð er þróunin á band-
breiddarþörf og -notkun íslend-
inga að útlit er fyrir að sæstreng-
urinn Cantat-3 dugi lands-
mönnum ekki lengur en næstu
tvö til þrjú ár. Ráðgjafar sam-
gönguráðherra hafa ráðlagt hon-
um að hregðast skjótt við og í
gær var upplýst að Landssíminn
hefði þcgar hafið viðræður við
erlenda aðila um lagningu nýs
sæstrengs, sem áætlað er að
muni kosta 3-4 milljarða króna.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra kynnti í gær skýrslu um
bandbreiddarmál eftir úttekt
Halldórs Kristjánssonar verk-
fræðings. Kom fram að þróunin
í síma- og netmálum væri svo ör
að niðurstöður skýrslunnar
hefði tekið breytingum fram á
síðustu stundu, meðal annars
vegna nýjustu tilboða um ókeyp-
is nettengingar. I megindráttum
eru niðurstöður skýrslunnar þær
að bandbreiddarþörf og -notkun
tvöfaldist á ári næstu 2-3 árin og
að innan fárra ára anni Cantat-
3 ekki þörf landsins fyrir teng-
ingum við útlönd. Einkum mið-
að við fyrirliggjandi markmið,
eins og að innan þriggja ára hafi
öll lögheimili aðgang að 128
kílóbita ISDN tengingu. Telur
Halldór nauðsynlegt að fljótlega
verði fyrir hendi þrjár óháðar
leiðir til útlanda, öryggisins
vegna, þar af ein um gervihnött,
sem nú er varaleið þegar
Cantat-3 klikkar.
Tryggaia öryggi
Ráðherra sagði að auk þess sem
mikilvægt væri fyrir landsmenn
að hafa möguleika á sem mestri
bandbreidd á heimilum sínum
væri mikilvægt að tryggja öryggi
t.d. viðskipta í gegnum netið,
tryggja að tæknin nýtist sem
best til Ijarkennslu og að tryggja
að tæknin geti á sinn hátt stuðl-
að að jafnvægi í búsetu á land-
inu. - FÞG
UTSALA UTSALA UTSALA
Tískuverslunin Stórar stelpur • Hafnarstræti 97 • 2. hæð Krónunni