Dagur - 22.01.2000, Page 11

Dagur - 22.01.2000, Page 11
Xfc^MT LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 - 27 MATARGATIÐ „Sumir segja að súrmat- ur sé skemmdur matur en við erum ekki sam- mála því. Hann er ekkert annað en geymsluað- ferð," segir Brynjar Ey- mundsson veitingamað- ur. Uppvafin siög og bringukollar þykja ómissandi á þorraborðið, þá eru hrútspungarnir mjög vinsaslir en Brynjar saknarþess að fá ekki hvalrengi á þorrabiótin. mynd: teitur Selshreifar oa kindalappir - vantar á þorranum? íslendingar borða pits- ur, hamborgara og kín- verskan mat með góðri lyst og eru tregir til að smakka hefðbundinn þorramat. Þorrablótin eru þó enn við lýði og verða alls ráðandi í fé- lagslífi landans næstu vikurnar. „Þorramatur er mikið á undan- haldi enda allt að verða einn heimur. Það er sama hvort það er kínverskt, ítalskt eða amerískt - það er orðið jafn íslenskt og ís- lenskur þorramatu r,“ segir Brynjar Eymundsson veitinga- maður sem rekur fyrirtækið Veisluna á Seltjarnarnesi. „I seinni tíð er nýmeti farið að blandast inn í blótin, til dæmis lambasteik, lambapottréttur og á allra seinustu árum er farið að setja blönduð hlaðborð inn í þetta til að þjóna öllurn." Lambaréttirnir koma inn Þorrablót höfðu tíðkast í gegn- um tíðina mismunandi þó eftir tíma og landsvæðum en það var ekki fyrr en á fimmta og sjötta áratugnum sem þorrablót breiddust út svo að um munaði í gegnum ýmis félög. Þorrablótin urðu að algengum sið að til- stuðlan veitingamanns í Naustinu í Reykjavík sem ákvað að bjóða upp á þorramat í trog- um til að lífga upp á viðskiptin á sjötta áratugnum. Til þorramat- ar taldi hann súr svið, lunda- bagga, hangikjöt, súrsaða hrútspunga, hákarl, bringukolla, glóðarbakaðar flatkökur og rúg- brauð með smjöri og bar fram í trogi að fyrirmynd úr Þjóðminja- safni. Islendingar hafa sótt þorrablót af miklum krafti síðustu áratugi, bæði matarins vegna og félags- skaparins, en svo virðist sem að- sókn í þau sé heldur að minnka þó að aðstandendur hafi komið til móts við hina veisluglöðu eft- ir bestu getu með Iambapottrétt- um og öðrum réttum. Brynjar Eymundsson, eigandi Veislunn- ar á Seltjarnarnesi, telur að áhugi fyrir þorramat og þor til að smakka ólíklegustu rétti fari vaxandi eftir því sem aldur veislugestanna fer hækkandi. „Það eru tvær til þrjár kyn- slóðir í þessum veislum og við þurfum að sinna öllum. All- margir borða ekki síldarrétti fyrr en þeir eru komnir á miðjan ald- ur, það sama gildir um hákarl. Aðeins lítill hluti af unga fólk- inu borðar hákarl en þegar fólk sem ekki hefur smakkað síld eða hákarl er komið á fertugs- eða fimmtugsaldur fer það að borða hákarl. Þetta er þroskamerki," segir Brynjar. Súrmatur er ómissandi En hvað er ómissandi á Þorra- blótið? Ekki er víst að sama svarið fengist frá tvítugum og unglingi eða fimmtugri móður svo að Dagur fékk Brynjar til að útlista það hvað þarf á borðið. Það eru nýsoðin svið og ef til vill sviðasulta, hangikjöt, harðfiskur, hákarl, síldarréttir (þó að Islend- ingar hafi aldrei verið neitt sér- staldega duglegir að borða síld- ina) og saltkjöt. Meðlæti er hefðbundið, uppstúfur, kartöfl- ur, rófustappa, hugsanlega grænar baunir. Súrmaturinn þykir ómissandi þó að fáir eða engir treysti sér til að leggja í súr. „Sumir segja að súrmatur sé skemmdur matur en við erum ekki sammála því. Hann er ekkert annað en geymsluaðferð,'1 segir Brynjar. Uppvafin slög, soðin og súrsuð, eru ómissandi, bringukollarnir að sjálfsögðu líka en þeir eru neðsti hluti skrokksins og algjört feitmeti. Þá eru hrútspungarnir langvinsælastir á þorraborðinu. „Það fer alltaf mest af þeim en ég kann enga skýringu á því,“ segir Brynjar og getur sér til að hrútspungarnir séu „aðgengileg- ur matur“, matur sem auðvelt sé að borða, lítt feitur og „hugsan- lega er einhver spenna við að borða hann.“ Byggist á smekk Þó að margir kaupi veislumatinn tilbúinn frá veislufyrirtækjum þá eru þeir lfka margir sem sjá um matinn sjálfir, sjóða og bera fram, en fæstir ganga svo langt að sjá um súrmatinn. „Það þarf að fylgja sýrunni ofsalega vel eftir, bæði út frá heilbrigðissjón- armiði og gæðum. Þetta er langt ferli og það þarf sífellt að vera að fleyta mysuna og bæta í, gæta þess að hafa rétt kælistig. Hrá- efnið þarf misjafnlega langan tíma og það þarf að gera þetta rétt,“ segir hann. Á þorraborðinu er gjarnan sýrð sviðasulta, sýrt slátur, bæði blóðmör og lifrarpylsa, og eistu eða hrútspungar. Slátrið og eist- un þurfa langan sýrutíma því að þetta er þéttur matur, sviðasult- an er hins vegar Iausari í sér og því mun fljótari að súrna. „En allt byggist þetta á smekk hvers og eins,“ segir Brynjar og mælir ekkert frekar með því að fólk sýri sjálft. „Sumir vilja minni súr og aðrir vilja svo súran mat að þeir geti brutt beinin. I bringu- kollunum tíðkaðist það að borða brjóskið því að það var orðið svo mjúkt." Allur matur var sýrður meðan sú geymsluaðferð var og hét á Islandi en þessi matur sést ekki lengur á þorraborðum lands- manna. Selshreifar og kindalappir eru meðal þess sem var lagt í súrinn þegar allur mat- ur var nýttur. „Það er hægt að sýra hvað sem er,“ segir Brynjar og saknar þess helst að fá ekki hvalrengi á þorraborðið. Laufabrauð og pokabaunir Fyrir utan hangikjöt, svið, slátur og súrmat er hákarlinn, grafinn og þurrkaður, algjört sælgæti. „Sama gildir um hákarl og síld- arrétti, mér finnst það haldast í hendur við aldur fólks. Eftir því sem fólk verður eldra fær það smekk fyrir þessum réttum.“ Brynjar vill bera fram laufa- brauð að norðlenskum sið ásamt flatbrauði og rúgbrauði. Einnig pokabaunir, það eru gular baun- ir sem voru soðnar f hangikjöts- soði með afskurði af hangikjöti að skaftfellskum sið. Að öðru leyti er meðlætið hefðbundið, uppstúfur, kartöflur og rófu- stappa. Sjá leiðbeiningar að matreiðsl- unni í eftirtöldum bókum: Matur og drykkur eftir Helgu Sigurðardóttur og Við matreið- um eftir Onnu Gísladóttur og Bryndísi Steinþórsdóttur. 30 manna þorrablót Sólveig og Smári eru ímynd- að par sem ætlar að halda þorrablót fyrir sína nánustu vini, alls 30 manns. Þau hafa aldrei haldið þorrablót áður og því hefur Dagur fengið Brynjar Eymundsson til að gefa þeim góð ráð fyrir inn- kaupin. Hér kemur magn í slíka veislu. Kaldir réttir 5 hausar ný soðin svið 3 kg hangikjöt 500 g harðfiskur 500 g hákarl 300 g svínasulta 300 g blóðmör 300 g lifrarpylsa 600 g (2-3 teg.) síldarréttir Súrmeti 400 g lundabaggar 400 g bringukollar 700 g pungar 600 g sviðasulta Heitir réttir 3 kg saltkjöt með beini 3 kg rófustappa 2 I uppstúfur 2,5 kg soðnar kartöflur 2 stórar dósir grænar baunir Aniiað 20 stk. laufabrauð 30 sneiðar rúgbrauð 15 stk. flatkökur 600 g smjör Hvað kostar veislan? Hvað kostar að halda þorra- blót? Ef veisla fyrir 30 manns er keypt hjá Brynjari kostar hún um 55.500 krón- ur með þjónustu og flutningi á staðinn að víninu ótöldu eða 1.850 krónur á mann. Ætli einstaklingarnir hins vegar að sjá sjálfir um veisl- una getur kostnaður minnst orðið um 14 þúsund krónur miðað við magnið hér að ofan. Rétt er að taka fram að um mjög grófan útreikning er að ræða, gróflega slegið á tölur og verðið kannað í ódýrri verslun. Inn í þennan reikning er ekki tekinn kostnaður við mjólk, sykur, salt, hveiti og svo framvcgis, hvað þá vinnu eða skemmti- atriði. Svið: 2.500 krónur Hangikjöt: 3.900 krónur Harðfiskur 850 krónur Hákarl 1.100 krónur Svínasulta 200 krónur Blóðmör 250 krónur Liffarpylsa 250 krónur Síldarréttir 450 krónur Lundabaggi 500 krónur Bringukollar 300 krónur Pungar 600 krónur Sviðasulta súr 600 krónur ný 500 krónur BI. saltkjöt m/beini 2.100 kr Rófur 500 krónur Kartöflur 300 krónur Grænar baunir 200 krónur i Rúgbrauð 400 krónur Flatkökur 900 krónur Smjör 184 krónur Samtals að lágmarki 13.884 krónur. Athugið að laufabrauðinu var sleppt þar sem það var ekki til í þeirri verslun sem hringt var í. Mörgum þykir íslenskt brennivín ómissandi með þorramatnum og myndi það kosta um 5.000 krónur ef tvær flöskur með 20 snöfsum hver eru keyptar. -GHS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.