Dagur - 22.01.2000, Qupperneq 12
MATARLÍFD
nÉÉfiAKfiBfifinfifeBM
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000
Máltíöin er ekki fullkomin nema eftirréttur fylgi
með. Gallinn við marga eftirrétti er hitaeininga-
fjöldinn sem í þeim er en hér koma uppskriftir að
hollari eftirréttum en gengur og gerist.
|jj|
imm
Jf
■B
|i||í
■
; '■ v
lljíjli
H
ii—
'
H
1111*
Döðlu og carobkaka
Þessi kaka inniheldur engan
sykur, súkkulaði eða hvítt
hveiti.225 gr. þurrkaðar döðlur,
brytjaðar
vatn
100 gr smjör
2 vel þroskaðir bananar, stapp-
aðir
_____________2 egg____________
75 gr heilhveiti
(1 dl er ca 55 gr)
50 g carob duft
100 gr valhnetur, brytjaðar
1 tesk. vanilludropar
Sjóðið döðlurnar í vatni sem rétt
flýtur yfir þær í ca 20 mín eða
þar til þær eru orðnar að mjúku
puré. Kælið.
Hrærið síðan smjörinu saman
við döðlurnar þar til blandan er
orðin nokkuð létt í sér. hrærið
eggjunum saman við stappaða
bananana einu í einu. Blandið
saman heilhveiti, carob, valhnet-
um og vanilludropum. Hrærið þvf
næst öllu saman vandlega en
varlega og setjið í smurt mót
(kringlótt eða ferkantað) Bakið
við 180 gráður í 40 mínútur.
Kælið. (Þeyttur rjómi er nánast
ómissandi með þessari!)
Döðlupie
Engin egg, mjólkurvörur, sykur
né hvítt hveiti
Botninn
1 bolli heilhveiti
1 bolli hýðishrfsgrjónamjöl
1 bolli kókosmjöl
smá salt
5 msk. smjör
3 msk. ólífuolía
heitt vatn eftir þörfum
Mjölinu og saltinu blandað
saman, smjöri og olíu nuddað
saman við (má líka nota ein-
göngu olíu). Vatni bætt við eftir
þörfum þannig að deigið Ioði
saman. Því er síðan þrýst upp
með hliðunum á bökumóti,
pikkað aðeins með gaffli og bak-
að tómt í ca 1 5-20 mínútur.
Fyllingin
500 gr. döðlur þurrkaðar
safi úr einni sítrónu
tæplega 1/2 tesk. salt
1 tesk. vanilludropar
ca 7 5 gr kókosmassi
Döðlumar settar f pott með
sítrónusafanum (og e.t.v smá
vatni) salti og vanilludropum.
Þetta er látið malla við vægan
hita í smá stund þar til döðlurn-
ar eru mjúkar. Þetta á að vera
frekar þykkt mauk. Þá er
kókosmassinn bræddur saman
við og síðan er öllu skellt f mix-
ara til að fá sléttari áferð. Þessu
kremi er síðan smurt á botninn
þegar búið er að baka liann.
Kakan er síðan kæld, skreytt t.d.
með ferskum jarðarberjum og
kókosmjöli og borin fram með
þeyttum rjóma.
Kókos gulrótarkaka
1/2 bolli hrásykur
1 bolli sólblómaolía
1 1/2 bolli heilhveiti
1 bolli hakkaðar valhnetur
1 bolli kókosmjöl
1/2 - 3/4 bolli fínrifnar gulrætur
_____________2 egg____________
2 tesk. lyftiduft
1 teks. kanill
1 tesk. vanilludropar
Þeytið saman egg og hrásykur,
blandið olíunni saman við. Oll
þurrefnin sett í skál og síðan er
vökvanum blandað varlega sam-
an við. Bakað í hringlaga formi
við 175 gráður í ca 40 mínútur.
Ostakrem
1/2 bolli rjómaostur
4 tesk. hunang
1/4 tesk. vanilludropar
1 msk. jógúrt eða AB mjólk
ÖIIu skellt í mixara og bland-
að þar til slétt. Smurt á kökuna
og skreytt með söxuðum hnet-
um. Ef kremið er of þykkt má
þynna það með jógúrt eða AB
mjólk.
Epla og granola
_________eftirrettur___________
1/2 kg epli
125 döðlur, saxaðar
3 dl epladjús
1/2 teks kanill
1.5 dl rjómi
75 gr granola eða annað hung-
ansristað morgunkorn (m.a.
með hnetum, höfrum og kókos)
Setjið epli, döðlur, epladjús og
kanil í pott og sjóðið í 10-15
mínútur þangað til eplin eru
mjúk. Merjið með gaffli, setjið
síðan lokið á og látið kólna. Setj-
ið helminginn af þessari blöndu
í 4 skálar, dreifið helmingnum
af rjómanum yfir og þvf næst
helmingnum af granólinu. End-
urtakið þessi lög og endið á rest-
inni af granólanu.
(Úr bæklingi frá Hollum mai
Höfundur Halla Magnúsdóttir)
SUBARU LEGACY 4X4 1998 EM 37 þús sjálfsk.
SUBARU LEGACY 4X4 1997 em 49 þús sjáifsk.
SUBARU LEGACY 4X4 1996 EM 84 beinsk.
IktJÚA u-
SUZUBJ BALENO 4X4
1998 EM 27 þús beinsk.
Verð 1.480.000,-
TOYOTA COROLLA
1999 EM 11600 beinsk.
Verð 1.280.000,-
NISSAN ALMERA
1996 EM 73 þús beinsk.
Verð 960.000,-
Þetta er aðeins sýnishorn af bílum á skrá,
verð og greiðslukjör við aUra hæfi.
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 462 2520 - Akureyri
BÍLASALA - Sími 461 2960
Verð 1.860.000,-
Verð 1.750.000,-
Verð 1.550.000,-
I .l-.ii 11 Lí ,
VOLVO 460
1995 EM 60 þús beinsk
Verð 930.000,-
NMC Lanser 4x4
1996 EM 84 þús beinsk
Verð 1.150.000,-
Spennandi umræda og fréttir
af íslenskum og erlendum
stjórnmálum.