Dagur - 22.01.2000, Qupperneq 18
34 - LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000
Alltaf annars lagið dettur inn á borð umsjónarmanns
síðunnar efni sem e.t.v. fellur ekki alveg undir hið hefð-
bunda umfjöllunarefni, en þó er full ástæða til að eyða
orðum að. Tónleikar tenórsins Garðars Cortes, óperu-
söngvara og yfirmanns Islensku óperunnar frá upphafi
til síðasta árs er hann lét af störfum (gegndi því með
örlitlum hléum og var þá Ólöf Kolbrún Harðardóttir í
starfinu) þarf vart að kynna lyrir landsmönnum. Hann
skapaði sér gott nafn sem söngvari áður en að hann
snéri sér að óperustjórninni og söng hlutverk víða um
heim. Síðla vetrar 1984 hélt Garðar etirminnilega tón-
leika í Austurbæjarbiói ásamt píanóleikaranum Erik
Werba á vegum Tónlistarfélags Reykjavíkur. Eru upp-
tökur frá þessum tónleikum nú komnar út á
geislaformi með samtals 24 söngverkum, innlendum
sem erlendum, eftir óh'ka höfunda frá ýmsum tímum
svo sem Claude Monteverdi og Karl Ó. Runólfsson.
Reyndar er um tvöfalda útgáfu að ræða, seinni geisla-
platan er að mestu með sömu lögum en ekki af tónleik-
um. Það er Polarfonía sem gefur plötuna út, en útgáfan
stóð einnig að plötu Guitar islandciu, þeirri vönduðu
smíð, sem kom Iíka út fýrir jólin. Að útgáfunni stendur
Þórarinn Stefánson píanóleikari með meiru frá Akur-
eyri.
Metnaðrfullt blað
Þegar í snarheitum huganum er rennt yfir sögu ís-
lenskra tónlistarblaða koma nöfn ýmissa blaða upp
í hugann. Flest hafa þau átt það sameiginlegt, að
hafa átt frekar stuttan líftíma, þó á því hafi verið
undantekningar. I dag eru þó merkilegt nokk, til
blöð sem náð hafa þokkalegri fótfestu. Þar er átt
við seinni tíma SMELL og ekki hvað síst Undir-
tóna. Þau blöð hafa eftir því sem best er vitað lifað
sæmilegu lífi, hið fyrrnefnda á vegum Æskulýðs-
hreifingarinnar, en hitt á vegum einstaklinga og
gefið út og rekið eingöngu með auglýsingum,
dreift frítt. Um mitt síðasta ár bættist svo nýtt blað
í hópinn, SAND, sem auk tónlistar sem þunga-
miðju, sinnir áhugamálum ungs fólks á borð við
tölvur, tísku, kvikmyndir o.fl. Nú skömmu fyrir jól
kom út þriðja tölublaðið, jólaútgáfa sem dreift var
í 10.000 eintökum um allt land, frítt. Þar kennir
margra og Ijölbreyttra grasa, umfjöllun um hljóm-
sveitir á borð við Jagúar, Maus, Sigur rós og
Gyllinæð, Ijallað um íslensku og erlendu útgáfuna,
plötur tölvuleikir og kvikmyndir dæmdar, fregnir
sagðar og margt fleira. Að útgáfu blaðsins og
rekstri standa nokkrir ungir menn með ritstjórann
með meiru, Ingiberg Þorsteinsson, einna fremstan
meðal jafningja. Um dreifingu út á land hefur svo
Japís séð. Verður ekki annað sagt en að um athygl-
isvert og metnaðarfullt blað sé að ræða, sem eigi
vonandi langra lífdaga auðið.
„Haróneskjugyöjan“ Hanin
Þrátt fýrir að Alec Empire hafi hér á síðunni
og víða annars staðar verið nefndur oftar en
einu sinni hjarta og heili hinnar írábæru
stafrænu rokksveitar Atari teenage riot, er sú
sveit skipuð fleirum og óneitanlega fegurri
meðlimum. Það á svo sannarlega við um
söngkonuna og meðstofnandann að Atari,
Hanin Elias, sem á skilið að kallast „Gyðjá
harðneskjunnar" (Goddess of digital, eins og
það mætti útleggjast á enskunni). Meðfram
því að syngja með hljómsveitinni, m.a. á
hinni afbragðsgóðu 60 second wipe out á
síðasta ári, hefur Hanin sjálf fengist við að
búa til tónlist. Nú fýrir viku eða svo kom
einmitt hennar fýrsta plata undir eigin nafni
á markað hjá DHR og kallast hún En flames.
A henni er að finna tónlist sem stúlkan fagra
hefur verið að semja og setja saman mest-
megnis í heimahljóðveri frá árinu 1995, auk
þess sem tónleikaupptaka er þar líka. Jafn
hörð, en kannski melódískari, er e.t.v. besta
lýsingin á innihaldinu þar sem hvergi er sleg-
ið af. Míkið er lagt í útgáfuna, sem væntan-
lega verður Hanin til farsældar.
Popp-
fregnir
*Von er á fjórðu plötu kappanna í Oasis, Standing on the
shoulder of giants, í næsta mánuði. Það sem ber til tíð-
inda við útgáfu hennar, er að hún kemur ekki út á merki
Creation, eins og þær fyrri, heldur á nýju mcrki, Big
brother, sem þeir Oasis félagar hafa stofnað og eiga sjálf-
ir. Eru menn þarna strax farnir að sjá hliðstæðu við Bítl-
anna, eins og stundum áður hjá Oasis, að það gæti orðið
sambærilegt veldi. Vonandi þó ekki með sömu vandræð-
um og Apple varð fyrir Bítlana.
*Eins og þeir sem hlusta á útvarp vita, er nýtt lag komið
frá Bellatrix, sem eitt sinn hét Kolrassa krókríðandi. Girl
with the sparkling eyes, heitir það og heyrir maður ekki
betur en þar sé um visst afturhvarf hjá stelpunum (með
stráknum eina) að ræða, til þess sem þær voru að gera á
Köld eru kvennaráð plötunni.
*M og M er nafnið á plötu sem þeir félagar úr Hálft í
hvoru, Eyjólfur Kristjánsson og Ingi Gunnar Jóhannsson
(m.a. líka í Islandica) hafa sent eða eru að senda frá sér.
Þeir félagar komu m.a. fram í Þorláksmessuþætti Mósaiks
í Sjónvarpinu þar sem þeir boðuðu komu plötunnar.
*Tveir af fyrrum félögum Richars Ashcrofts í The verve,
þeir Simon Jones og Nick McCabe, hafa snúið sér að
öðru í tónlistinni h'kt og söngvarinn. Jones hefur nú geng-
ið til liðs við nýja sveit gítarleikarans John Squire, fyrrum
meðlims í Stone roses og The seahorses og sá síðarnefndi
hefur verið að gera hitt og þetta með hinum og þessum.
Af Ashcroft er svo að segja meir síðar.
*GrammyverðIaunin, sem telja verður umfangsmestu verð-
laun tónlistariðnaðarins, verða afhent í ár þann 23. febr-
úar nk. í Staple center í Los Angeles. Eins og undanfarin
ár verða áreiðanlega margar ungstjörnur í sviðsljósinu og
þá aðallega poppspúsur á borð við Chrisina Aguilera og
Brittny Spears, en sá sem mun þó án efa stela senunni og
var raunar senuþjófur síðasta árs, er gamli gítarjálkurinn
Carlos Santana. Naut hann fádæma vinsælda með laginu
Smooth, sem söngvarinn Rob Thomas úr Matchbox 20
tók með honum og platan hans Supernatural, sú fyrsta
frá honum í um áratug, hcfur verið þaulsetin á toppi vin-
sældalista, m.a. í Bandaríkjunum. Er kappinn tilnefndur
til alls tíu verðlauna.