Dagur - 22.01.2000, Side 20
36- I.AUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000
R A Ð AUGLÝSINGAR
A T V 1 N N A ATVINNA ATVINNA
KOPAV OGSBÆR
Fé I a gs m i ðstöðva r
ÍTK
Laust er 50% starf tómstundafulltrúa vegna
afleysinga í félagsmiðstöðinni Ekkó. Þar sem
verið er að leitast við að jafna kynjahlutfall í
stafsmannahópnum eru karlmenn sérstaklega
hvattir til að sækja um.
Upplýsingar um starfstíma og launakjör veitir
Hrafnhildur Ástþórsdóttir forstöðumaður Ekkó í
síma 554-1384/696-1620.
_________J
---------\
KÓPAVOGSBÆR
HEFUR ÞÚ ÁHUGA Á
SPENNANDI OG GEFANDI
STARFI MEÐ MIKLA
FAGLEGA MÖGULEIKA
Við auglýsum eftir hressum starfskrafti, til að
vinna með 16 ára unglingi sem er fatlaður eftir
slys. Starfið er hlutastarf og felst í félagslegri
endurhæfingu og stuðningi.
Þér er ætlað að vinna að endurhæfingu
einstaklingsins í samvinnu við fagaðila og líklega
inn á endurhæfingardeild. Nauðsynlegt er að þú
getir unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði. Laun
eru samkvæmt kjarasamningum Starfsmanna-
félags Kópavogs.
Allar nánari upplýsingar veitir Helga Þorleifsdóttir
félagsráðgjafi í símatíma kl. 13:00- 14:00 á
þriðjudögum og fimmtudögum í síma 570-1400.
Einnig auglýsum við eftir stuðningsfjölskyldum
svo og einstaklingum til að annast tilsjón og
persónulega ráðgjöf við fjölskyldur og börn. Um
er að ræða hlutastörf frá nokkrum tímum á viku.
Hlutverk þessara aðila er að vera fjölskyldum og
börnum til aðstoðar, sinna ákveðnum verkefnum í
samráði við og undir verkstjórn starfsmanna
Fjölskyldudeildar. Við leitum að fólki með reynslu
af uppeldi og/eða með menntun á sviði uppeldis-
, sálfræði- eða félagsfræði. Nánari upplýsingar
gefa Gyða Hjartardóttir, deildarfélagsráðgjafi, og
Anna Jóhannsdóttir, fulltrúi í málefnum unglinga, í
570-1400.
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Kennarar
Vegna forfalla vantar kennara nú þegar við
Setbergsskóla.
Um er að ræða kennslu 6 ára barna. Allar
upplýsingar gefur skólastjóri, Loftur Magnússon í
síma 565 1011.
Skólafulltrúinn í Hafnarfirði
A
KOPAVOGSBÆR
Frá Smáraskóla
Kennari óskast til afleysinga í barnsburðarleyfi frá
og með 1. mars n.k. Um er að ræða kennslu í 1.
bekk.
Einnig óskast námsráðgjafi í 50% og 25%
kennslu (starfsfræðslu og lífsleikni.) Um er að
ræða áhugavert uppbyggingastarf.
Laun skv. kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og Kennarasambands íslands.
Upplýsingar veita Valgerður Snæland Jónsdóttir
skólastjóri og Elín Heiðberg Lýðsdóttir
aðstoðarskólastjóri í síma 554-6100.
Starfsmannastjóri
KÓPAVOGSBÆR
Starf við Fjölskyldudeild
Félagssviðs Kópavogs
Laus er til umsóknar hálf staða við
Fjölskyldudeild Félagssviðs Kópavogs.
Verksvið er einkum tvíþætt, málefni nýbúa og
vinna við fyrirbyggjandi málefni.
Um er að ræða fasta stöðu, en verksvið verður
háð þörfum hverju sinni.
Þannig eru ofangreind verkefni tímabundin til
eins árs frá ráðningu í stöðuna þó þannig að
reiknað er með að starf að fyrirbyggjandi málum
verði áfram á verksviði starfsmanns.
Krafist er félagsráðgjafamenntunar eða
sambærilegs háskólanáms á sviði félagsvísinda.
Laun eru skv. kjarasamningi Stéttarfélags
íslenskra Félagsráðgjafa og Launanefndar
sveitarfélaga eða kjarasamningi
Starfsmannafélags Kópavogs og
Kópavogsbæjar.
Umsóknarfrestur er til 31. janúar n.k. og
umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum
sem fást á skrifstofu Félagssviðs Kópavogs við
Fannborg 4.
Nánari upplýsingar gefur yfirmaður
í síma 570-1400.
^Fjölskyldudeildar í
KOPAVOGSBÆR
Lindaskóli
Lindaskóli auglýsir eftir starfsfólki í Dægradvöl
(heilsdagsskóla).
Um er að ræða skemmtileg störf innan um ungu
kynslóðina, góður andi ríkir á vinnustað.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Starfsmannafélags Kópavogsbæjar og
Kópavogsbæjar.
Upplýsingar gefur, Gunnsteinn Sigurðsson í
síma 554-3900.
Starfsmannastjóri.
*
KOPAVOGSBÆR
Kársnesskóli
Okkur vantar ræsti, konu eða karl í 50% starf á
milli kl. 13og 17.
í skólanum eru 340 nemendur á aldrinum 6 til 11
ára.
Tekið skal fram að kennslu er að mestu lokið á
þessum tíma.
Upplýsingar gefa skólastjórnendur í símum
554 1567 og 554 1477.
Umsóknarfrestur er til 20. janúar n.k.
Laun samkvæmt kjarasamningi Eflingar og
Kópavogsbæjar.
V J
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Starf
aðstoðarmanns
Starf aðstoðarmanns íðjuþjálfa við iðjuþjálfadeild FSA
Kristriesi er laus til umsóknar frá 15. febrúar nk. að
telja. Um er að ræða 100% starf í dagvinnu.
Aðstoðarmaður vinnur undir stjórn iðjuþálfa og
aðstoðar við ýmiskonar þjálfun og virkni. Laun eru
samkvæmt kjarasamningi STAK og ríkisins.
Umsækjandi þarf að hafa góða hæfileika til
mannlegra samskipta og vera hugmyndaríkur, einnig
er æskileg reynsla af leiðsögn, t.d. í félagsstarfi
aldraðra, og kunnátta í handverki.
Umsókn skal skila á umsóknareyðublaði FSA en þau
liggja frammi á skrifstofu FSA. Umsóknarfrestur er til
og með 7. febrúar n.k. Nánari upplýsingar um starfið
veitir Birgit Schov, forstöðuiðjuþjálfi FSA, i síma 463
1100 Kristnesi, og skulu umsóknir berast henni að
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, Kristnesi, 601
Akureyri.
Öllum umsóknum verður svarað.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri