Dagur - 03.02.2000, Page 13
FIMMTUDAGV K 3. FEBRÚAR 2000 - 13
ÍÞRÓTTIR
L ....
Beckham til Arsenal?
Devid Beckham.
Alex Ferguson, fram-
kvæmdastjóri
Manchester United,
stendur nú frammi
fyrir því ad þurfa að
sjá á eftir einhverjum
af uppalingum sínum
hjá félaginu og gæti
David Beckham orðið
sá fyrsti þeirra til að
yfirgefa félagið.
Bresldr fjölmiðlar sögðu frá því í
gær að Arsenal væri tilbúið til að
leggja fram allt að 40 milljónum
punda (um 4,7 milljarðar ísl.
króna) til að tryggja sér kaup á
enska landsliðsmanninum David
Beckham frá Manchester United
og munu háttsettir menn frá fé-
lögunum hafa sest niður til að
ræða málið, eftir jafnteflisleik fé-
laganna á Old Trafford í síðustu
viku.
Beckham í vanda
Hjónakornin Beckham og Spice-
stelpan Victoria, eiga hús í Suð-
ur-Hertfordsskíri nálægt
London, nærri þeim stað þar sem
Victoria bjóð áður en þau gengu í
hjónaband. Hún mun hafa sett
þau skilyrði að þar ætli hún að
búa áfram eða hvergi annars
staðar en í nágrenni London.
Það hefur sett Beckham í mikinn
vanda, þar sem hann þarf að
dvelja langdvölum í Manchester
vegna æfinga og keppni og hefur
það haft slæm áhrif á samband
þeirra hjóna. Ástandið er farið að
hvíla þungt á kappanum og er
það álit margra að það sé þegar
farið að hafa slæm áhrif á getu
hans á knattspyrnuvellinum og
sé jafnvel farið að íþyngja sálar-
tetrinu.
Arsenal meira en tilbúið
Þessu hafa forráðamenn Arsenal
fyrir löngu gert sér grein fyrir og
hafa þvi af og til látið út leka að
þeir væru meira en tilbúnir til að
auðvelda honum lífið, með því að
kaupa hann til Highbury í
London. Hugsanlegt kaupverð
hefur þó eitthvað vafist fyrir
þeim og hafa ýmsar tölur verið
nefndar á síðustu mánuðum.
United mun vilji fá að minnsta
kosti 30 milljóir punda í sinn
kassa, auk þess sem dágóð
summa myndi renna í vasa Beck-
hams sjálfs. Þar að auki er talið
að Beckham muni gera kröfu um
að minnsta kosti 60 jrúsund
punda vikulaun (um 7 milljónir
króna), sem er það sem kappinn
mun vilja fá ef hann endurnýjar
samning sinn við United. Það
eru meira en tvöföld vikulaun
Nígeríumannsins Nwankwo
Kanu, sem nýlega endurnýjaði
samning sinn við Arsenal.
Arsene Wenger, framkvæmda-
stjóri Arsenal, hefur ekki viljað
tjá sig mikið um málið og aðeins
sagt að hann kannist ekki við að
tilboð hafi verið gert í Beckham
og standi ekki til. Fjármögun
kaupanna ætti þó ekki að vefjast
fyrir forráðamönnum Arsenal,
því þetta ríka férlag á enn svo til
óhreyfðar þær 23 milljónir punda
sem félagið fékk fyrir Niocolas
Anelka í haust.
Stirt samband
Þó Beckham hafi stöðugt haldið
því fram að hann vilji vera áfram
hjá United og klára þau tvö ár
sem hann á eftir af samningnum
við félagið, er ljóst að samband
hans og Fergusons framkvæmda-
stjóra hefur stirðnað að undan-
förnu. Ferguson er ckki ánægður
með glanslífið sem lýlgir sam-
búðinni við Victoriu Adams og
hefur staðið hálfgert stríð milli
hans og Viktoriu um hylli eigin-
mannsins. Hvað gerist
í málum Beckhams, sem hóf fer-
ilinn hjá jjriðju deildar liðinu
Leyton Orient áður en United
uppgötvaði hann í knattspyrnu-
skóla Tottenham, er því enn
óráðið, en jió víst að málið mun
skírast fyrr en langt um líður.
Það er alla vega vilji Victoriu að
fá eiginmanninn heim til Hert-
fordsskíris, sem jjýðir að hann
verður að yfirgefa United. Beck-
ham stendur því frammi fyrir erf-
iðri ákvörðunartöku þar sem
hann í raun verður að velja á
milli eiginkonunnar og Sir Alex
Fergusons og því aðeins spurn-
ingin hvort þeirra verður ofaná.
Viktoria hefur meira að segja gert
sitt til að liðka fyrir hugsanlegum
félagaskiptum og sagt að hún
sætti sig jafnvel við Spán eða
Italíu, frekar en krummaskuðið
Manchester.
Fleiri áhyggjumál
Beckham er ekki eina áhyggjumál
Fergusons þessa stundina og ör-
ugglega í fleiri horn að Iíta eftir
misjafnt gengi United að undan-
förnu. Ferguson virðist nú loks
hafa komist að þeirri niðurstöðu,
að nauðsynlegt sé að styrkja liðið
með fyrsta flokks stjörnuleik-
mönnum ef ekki á illa að fara og
því aðeins spurning hvaða Ieiðir
hann fer. Hann virðist ekki
ánægður með framherja liðsins og
hefur kvisast út að staða Dwight
Yorke hjá liðinu hangi á bláþræði.
Yorke sem skoraði 29 mörk fyrir
United á síðustu leiktíð og virtist
þá ætla að fylla vel í skarð Erics
Cantona, hefur aðeins skorað 1 5
mörk í vetur, sem hefur orðið til
j)ess að hann hefur ekki átt fastan
sess í liðinu. Hann hyrjaði þó vel í
haust og skoraði 8 mörk í fyrstu
10 leikjunum, en hefur aðeins
skorað 5 í síðustu 17 leikjum.
Samvinnan við Cole hefur heldur
ekki gengið eins vel og í fyrra, en
þá skoruðu þeir félagar til dæmis
báðir mark í 10 leikjum, sem að-
eins hefur gerst fimm sinnum í
vetur. Markið sem Yorke gerði
gegn Necaxa á HM félagsliða í
Brasilíu var aðeins hans fjórða
mark síðan 16. október og J)að
finnst Ferguson ekki nógu gott.
Sama er að segja um árangurinn í
meistaradeildinni, þar hefur hann
aðeins skorað eitt mark í vetur,
sem var gegn austurríska liðinu
Sturm Graz á móti átta mörkum í
allri keppninni í fyrra.
Ungamir hans Fergusons
Það má því búast við að Ferguson
muni endurskoða leikmannamál-
in rækilega fyrir næstu leiktíð og
leggja af þá ofurást á uppalingum
sínum, sem hannn hefur haldið
hjá sér eins önd ungum, jrrátt fyr-
ir misjafnt gengi. Það getur eitt
besta félagslið í heimi ekki leyft
sér og breytinga er j)örf. Ferguson
má þó eiga það að hann hefur
gert fjölda tilrauna til að styrkja
lið sitt en verið afar óheppinn,
sérstaklega vegna aðhaldssemi
stjórnar félagsins hingað til. AUir
vita um áhuga hans á Rivaldo frá
Barcelona og spurning hvort
skriður sé komin á þau mál bakvið
tjöldin.
Sala á Beckham ætti þar að
liðka fyrir Ijárhagslega og gæti
ennfremur gefið Ferguson tæki-
færi til að hressa upp á fremstu
víglínu hjá félaginu. Þar myndu
framherjar eins og Chilebúinn
Salas eða Argentínumaðurinn
Batistuta sóma sér vel í besta fé-
lagsliði heims, frekar en súper
varamennirnir Sheringham og
Solskjær, sem eru að gróa fastir
við varamannbekkinn. Ekki ætti
að vera vandkvæðum bundið að
losna við þá fyrir ágætt verð, því
ensk stórlið hafa sýnt þeim mik-
inn áhuga að undanförnu. Má þar
nefna áhuga Tottenham á Sol-
skjær og West Ham á Shering-
ham. Til að standa undir nafni,
sem besta félagslið Evrópu, verð-
ur Ferguson að grípa til aðgerða,
annars fer illa.
ÍÞRÓTTAVIÐTALID
Árið í ár verður ár Breiðahliks
Logi
Kristjánsson
formaður afmælisnefndar Breiða-
bliks
Ungmennafélagið Breiða-
blik í Kópavogi verður 50
ára þann 12. febrúarog
verðurhaldið veglega upp á
tímamótin. Að sögn Loga
Kristjánssonar, formanns
afmælisnefndar ogfyrrver-
andiformannsfélagsins,
byrjarhátíðin á laugardag-
inn með dagskráfyrir þá
yngstu.
- Stendur mikið til hjú ykkur
Blikum vegna afmælisins?
„Það verður heilmikið að gerast
hjá okkur í tilefni afmælisins.
Sjálfur afmælisdagurinn er 12.
febrúar, sem er laugardagurinn í
næstu viku, en afmælisdagskráin
hefst núna á laugardaginn 5.
febrúar, með dagskrá fyrir þau
yngstu f Smáranum. Félagið hef-
ur um árabil rekið íþróttaskóla
fyrir börn á aldrinum þriggja til
sex ára og okkur fannst við bæfi
að þau, sem eru framtíð félags-
ins, fengju að hefja afmælishátíð-
ina. Þeirra dagskrá verður í
íþróttasal Smárans, frá klukkan
10 til 12 og þar verður ýmislegt
til gamans gert. Snuðra og Tuðra,
sem krakkarnir þekkja vel, munu
koma í heimsókn og taka þátt í
Ieikjum með krökkunum og ein-
nig mun Tóti Trúður koma í
heimsókn.
Eftir hádegið, frá klukkan 14 til
17, er svo dagskrá fyrir næsta ald-
urshóp sem er á aldrinum sjö til
tólf ára. íþróttaálfurinn ásamt
Glanna glæp og félögum úr Lata-
bæ mæta á staðinn og skemmta
krökkunum auk Tóta Trúðs. Þar
verðum við líka með diskótek og
danssýningu frá dansfélaginu í
Kópavogi."
- Hvenær verður svo aðal «/'
rnælisiuítíðin?
„Hún byrjar reyndar daginn
fyrir afmælið, föstudaginn 11.
febrúar, á sérstakri hátíð fyrir
unglinga 17 ára og yngri. Hún
stendur frá klukkan 19 til 23 og
er skipulögð í samvinnu við fé-
lagsmiðstöðvarnar í bænum og
því sniðin að þörfum krakkanna.
Á sjálfan afmælisdaginn hefst
dagskráin klukkan 18:00, með
opnun sögusýningar í Smáran-
um, sem við köllum „Brot úr sögu
Breiðsbliks". Ólafur Rag nar
Grímsson, forseti Islands, mun
opna sýninguna. sem verður í fé-
Iagsaðstöðunni á annarri hæð, en
hann verður síðan heiðursgestur
á afmælishátíðinni. Borðhald
hefst svo strax á eftir, þar sem
ýmislegt verður til skemmtunar,
en hápunkturinn er þó flutningur
stórhljómsveitar Jóns Ólafssonar
á skemmtidagskrá eftir Valgeir
Skagfjörð, sem er nokkurs konar
svipmyndir úr sögu Breiðabliks
og bæjarins í máli, músík og
myndum og verður Hjálmar
Hjálmarsson sögumaður."
- Áttu von ú miklu jjölmenni
á hátíðina?
„Ég á von á því að þarna verði
að minnsta kosti 600 manns
mættir til að halda upp á afmæl-
ið. Við höfum reyndar sæti fyrir
um j>að bil 900 manns, þannig að
ég hvet alla félagsmenn og vel-
unnara til að mæta og taka með
sér gesti. Þetta er upplagt tæki-
færi fyrir gamla félaga til að hitt-
ast og rilja upp gömul kynni og
ekki síst til að sjá sögusýninguna
og hlýða á dagskrána sem henni
er tengd. Miðasalan fer fram í
Smáranum og ég vil hvetja fólk til
að kaupa þá eða panta borð sem
fyrst.“
- Verður eittlivað annað á dag-
skrá afmælisársins?
„Starfið innan félagsins hjá
þeim sjö deildum sem eru starf-
andi er mjög umfangsmikið og
þegar við fórum að skoða málið
kom í ljós að þar er af nógu að
taka. En auðvitað munum við
tengja alla íþróttaviðburði sem fé-
lagið stendur fyrir á einhvern hátt
afmælinu, þannig að það mun ör-
ugglega standa alveg til loka árs-
ins. Það byrjaði reyndar með
glæsilegri flugeldasýningu og
brennu um áramótin og síðan
erum við búin að fá tvær glæsi-
legar afmælisgjafir, sem eru ís-
landsmeistaratitlarnir tveir í inn-
anhússknattspyrnu. Þegar kemur
að einstökum íþróttagreinum
munu deildirnar sjá um þau mál,
en í lok ársins mun aðalstjórnin
gefa út veglegt afmælisblað, þar
sem sögunni oj> afmælisárinu
verða gerð skil. Árið í fyrra hefur
verið kallað ár KR-inga, en við
erum ákveðin í að árið í ár verði
ár Breiðabliks."
- Hvaða tþróttagreinar eru
stundaðar innan félagsins?
„Hjá okkur eru starfandi sjö
deildir sem hafa knattspyrnu,
körfuknattleik, frjálsar íþróttir,
sund, handknattleik, skíðaiðkun
og karate á dagskrá. Mjög blóm-
legt og öflugt starf er hjá þeim
öllum, sem eykst með hverju ár-
inu. Framtíð félagsins er því björt
og ástæða til að halda veglega
upp á þessi tímamót."