Dagur - 12.02.2000, Side 10
10 - LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000
FRÉTTIR
X^ur
Segj a brest í
stj ómarsamstarfi
Margrét Frimaims-
dóttir segir að ekki
hafi gróið um heilt
síðau hankasölumálin
komu upp sl. sumar.
Steiugrímur J. Sigfús-
son segir framsóknar-
menn vera að reyna að
rétta sinn hlut í
stjómarsamstarfinu.
Á síðasta kjörtfmabili var öllum
ágreiningi milli stjórnarflokk-
anna haldið bak við tjöldin
þannig að svo virtist sem engin
snurða hlypi á þráðinn. Nú er
staðan önnur. Sá mikli ágrein-
ingur sem kominn er upp í
kvótamálinu og varðandi söluna
á Landssímanum, og ekki hvað
síst í Evrópumálunum, vekur at-
hygli. Stjórnarandstaðan segir
brest kominn í stjórnarsamstarf-
ið.
„Mér sýnist sem samstarfið
hafi ekki verið gott hjá stjórnar-
Margrét Frímannsdóttir.
flokkunum alveg frá því sl. sum-
ar þegar bankamálin komu upp,
með söluna á FBA efsta á baugi.
Þá byrjaði togstreita sem virðist
hafa farið vaxandi. Og miðað við
málflutning þingflokksformanns
Framsóknarflokksins í kvótamál-
inu þá er það öllum ljóst að uppi
er mikill ágreiningur. Það er
himinn og haf milli þess sem
hann er að segja og þess sem
þingmenn og ráðherrar Sjálf-
stæðisflokksins eru að segja.
Steingrímur J. Sigfússon.
Gleymum því ekki að formaður
flokksins bakkar hann upp,“ seg-
ir Margrét Frímannsdóttir.
Hún bendir á að sömuleiðis sé
deila um sölu á ríkisfyrirtækjum
eins og Landssímanum og að sér
virðist vera fátt um kærleika í
dag þótt reynt sé að breiða yfir
þá og þræta fyrir ágreining.
„Við erum ekki heyrnardauf,
við erum læs og við sjáum þetta,“
segir Margrét Frímannsdóttir,
talsmaður Samíylkingarinnar.
Aukaverkanir
„Maður tekur eftir því að það eru
uppi nokkrir núningsfletir í sam-
starfinu. Því miður held ég að
þeir leiði ekki til alvarlegra breyt-
inga, því auðvitað vil ég losna við
þessa ríkisstjórn. Eg sé þetta
meira sem ákveðna viðleitni
framsóknarmanna til að marka
sér einhverja stöðu. Þeir hafa
legið ansi flatir fyrir og verið
undir ágjöf en Sjálfstæðisflokk-
urinn verið í vari og sloppið
miklu betur frá hlutunum. Þess
vegna held ég að framsóknar-
menn séu að reyna að rétta sig
svo lítið af og minna á sig og það
að þeir lifi í einhverri sjálfstæðri
tilveru sem stjórnmálaflokkur,“
segir Steinarímur j. Sigfússon,
formaður VG.
Hann segir að þessi tilraun
framsóknarmanna geti ef til vill
styrkt þeirra stöðu eitthvað en
það veiki um leið ríkisstjónar-
samstarfið.
„Það er því greinilegt að þeir
eru í þeirri stöðu að það geta
orðið aukaverkanir af lyfjatök-
unni,“ segir Steingrímur Jóhann.
- S.DÓR
Björn Bjarnason.
Yfírfærsla
gnmnskóla
endurmetm
Menntamálaráðherra, Björn
Bjarnason, hefur skipað nefnd
til að annast endurmat á kostn-
aði og tekjuþörf sveitarfélaga
vegna framkvæmdar grunn-
skólalaganna. Nefndinni er ætl-
að að semja við hlutlausan aðila
um framkvæmd matsins, fylgjast
með þeirri vinnu, veita matsað-
ila upplýsingar og stuðla að því
að hann fái greiðar upplýsingar
frá öðrum. I nefndinni eiga sæti
af hálfu ríkisins Hrólfur Kjart-
ansson, menntamálaráðuneyti,
formaður nefndarinnar; Her-
mann Sæmundsson, félags-
málaráðuneyti og Leifur Ey-
steinsson, fjármálaráðuneyti. Af
hálfu sveitarfélaganna eiga sæti
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður Sambands íslenskra
sveitarfélaga; Sigrún Magnús-
dóttir, borgarfulltrúi og Garðar
Jónsson, bæjarstjóri Hornafjarð-
arbæjar. — GG
Alþingi sem
homkerling
„Mér finnast þessi áform og
þessi okurleiga með ólíkindum
og að sjálfsögðu rifjast upp til-
laga mín frá því fyrir 10 árum
um að kaupa Hótel Borg, en þá
bauðst Alþingi að kaupa hótelið
á 120 milljónir króna. Hug-
myndin var að selja á móti Skóla-
brú 2 og jafnvel Vonarstræti 12
og hugsanlega fleiri hús. Ríkis-
endurskoðandi mælti með
þessu, en flestum óx þetta í aug-
um,“ segir Guðrún Helgadóttir,
fyrrum forseti Alþingis, spurð
um þá fyrirætlan þingsins að
Ieigja hið nýja hús að Austur-
stræti 8 á 28 milljónir króna á
ári.
Kaupverðið sem Guðrún nefn-
ir samsvarar um 155 milljónum
króna í dag og lætur nærri að
kaupverðið jafnist á við fimm og
hálfs árs Ieigu í húsinu. Alþingi
greiðir rúmar 2,3 milljónir á
mánuði í húsaleigu eða um 28
milljónir króna ári. Til stendur
að allt nefndasvið Alþingis flytji í
húsið og fái 2. og 3. hæöina. Þar
með væri nefndasviðið komið á
einn stað. Tvær efstu hæðirnar
verða notaðar fyrir skrifstofur
þingmanna. Alþingi hefur líka
tekið á Ieigu hæð í Austurstræti
Guðrún Helgadóttir fyrrum þingforseti: Mikill skaði að Hótel Borg var ekki
keypt.
10.
Sjaldan hlustað á konur
Guðrún fullyrðir að Hótel Borg
hefði verið mjög hentugt fyrir
starfsemi Alþingis, þótt veitinga-
húsið héldi sér á götuhæðinni.
„Það«e&<h»i«nung að vita til
þáráA^WAt,Tivfe[jfr?rsfr’
anr
með þau byggingaráform þings-
ins sem Iöngu eru afráðin, því
aðbúnaður þingmanna er fyrir
neðan allar hellur. Þingmenn
eru hlaupandi fram og til haka á
milli 8 eða 9 húsa og það er full-
komið vandræðaástand. Það er
óþolandi að láta jneð Alþingi
- -úins og einhver|í! nnmkerlingtn -
en eyða offjár í okurleigu. Þetta
er satt að segja með mestu ólík-
indum. Ég benti á þessa leið með
Hótel Borg fyrir 10 árum og það
er mikill skaði að ekki var farið
eftir henni, en því miður er sjald-
an hlustað á það sem frá konum
Jtemur," segir Guðrún. — FÞG
Samnini í endurskoðim
Tvör stór fyrirtæki í endurskoðun og ráðgjöf hér á landi hafa samein-
ast, KPMG og Ernst&Young. Nýja fyrirtækið verður það Iangstærsta
á sínu sviði á Islandi, með 1 milljarðs króna vellu og 180 starfsmenn.
Áðurvoru þessar endurskoðunarskrifstofur hluti af alþjóðlegum keðj-
um. Samruninn kemur til framkvæmda á miðju árinu.
Öryrkjar fá frítt í sund og á skíði
Bæjarráð Akureyrar leggur til við bæjarstjórn að staðfestar verði regl-
ur sem Iþrótta- og tómstundaráð hefur samþykkt um aðgang öryrkja
að sundlaugum og skíðamannvirkjum á Akurcyri. Lagt er til að þeir
sem metnir eru 75% öryrkjar fái frían aðgang að sundlauga- og skíða-
mannvirkjum bæjarins. Bæjarráð leggur til að reglurnar taki gildi þeg-
ar tryggt er að allir sem rétt eiga á fríum aðgangi hafi haft tækifæri til
að útvega sér þar til gerð kort. - HI
Ólafur nýr aðstoðarforstjóri Hafró
Sjávarútvegsráðnerra hefur ráðið dr. Ólafur S. Ástþórsson aðstoðar-
forstjóra Hafrannsóknarstofnunar. Ólafur lauk BS-prófi í líffræði frá
Háskóla Islands árið 1975 og Iauk doktorsprófi í sjávarlíffræði frá Há-
skólanum í Aberdeen 1980. Frá 1981 hefur Ólafur starfað sem sér-
fræðingur á Hafró, aðallega við rannsóknir á líf- og vistfræði dýra-
svifs, meðal annars í sambandi við afkomu lirfa og seiða nytjafiska.
Frá 1990 hefur Ólafur verið forstöðumaður sjó- og vistfræðasviðs
Hafró, setið í Rannsóknarráði Islands og verið fulltrúi íslands í
stjórnunarnefndum rammaáætlana Evrópusambandsins um hafvís-
indi og umhverfi. — gg
Símiim með ASP-þjónustu
Landssfminn hefur tekið ákvörðun um að snfða fjarskiptakerfi sitt að
þörfum kerfisþjónustuveitna (Application Service Providers, ASP) og
hjóða þeim uppá hýsingu hug- og vélbúnaðar í nýju húsnæði í Múla-
stöð, sem tekið verður sérstaklega til þessara nota. Kcrfisþjónustu-
veitur hafa í auknum mæli haslað sér völl erlendis og munu slík fyr-
irtæki verða til hér á landi á næstu mánuðum. Kerfisþjónustuveitur
sérhæfa sig í að reka tölvubúnað, hugbúnað og IJarskipti fyrir önnur
fyrirtæki, gjarnan íyrir fast verð á mánuði.
I tilkynningu frá Símanum segir að forsendur hafi skapast fyrir
ASP-þjónustu af þessu tagi með ört Iækkandi fjarskiptakostnaði, auk-
inni áherslu á áreiðanleika tölvu- og upplýsingakerfa og skorti á sér-
hæfðu starfsliði til að reka slík kcrfi. Eftir því sem fleiri lýrirtæki sæk-
ist eftir þjónustu,- /jiegi ætla að hjjun, y^Ghttgstajðaji,
kostur. ‘ J