Dagur - 12.02.2000, Qupperneq 11

Dagur - 12.02.2000, Qupperneq 11
ERLENDAR FRÉTTIR LAUGARDAGUR 12. FERRÚAR 2000 - 11 Óvissa um framhaldiö Skilti á Nordur-írlandi þar sem því er hótað að IRA snúi sér aftur að fyrri verkum, sem voru hryðjuverk. Reynt verður að semja um framhald mála á Norður-ír- landi. Hugsanlega verða málin sett í salt þangað til í maí. Ekki var annað að sjá en að írski lýðveldisherinn (IRA) ætlaði ekki að heija afvopnun eða lýsa yfir neins konar vilja til aívopn- unar í gær, en þá rann út frestur- inn sem bresk stjórnvöld settu. Samkvæmt lögum sem breska þingið hafði samþykkt átti því að Ieysa upp heimaþingið á Norður- írlandi, og um leið tók breska stjórnin við beinum völdum á Norður-írlandi af heimastjórn- inni, sem aðeins hafði setið í rúma tvo mánuði. Mikil óvissa ríkir þó um fram- haldið eftir þetta. Friðarsam- komulag milli sambandssinna og aðskilnaðarsinna á Norður-Ir- landi var undirritað á fösludag- inn Ianga árið 1998 eftir langar og þreytandi samningaviðræður. Deilunum var þó ekki lokið og nærri lá að samkomulagið færi út um þúfur síðastliðið sumar þegar mynda átti heimastjórn með þátttöku bæði sambands- sinna og aðskilnaðarsinna. Sambandssinnar, undir for- ustu Davids Trimble, gátu ekki sætt sig við að sitja í stjórn með fulltrúum frá Sinn Fein, sem er stjórnmálaflokkur í nánum tengslum við IRA, fyrr en af- vopnun IRA væri að minnsta kosti hafin. Enn á ný hófust þreytandi samningaviðræður sem lauk loks í nóvember síðast- Iiðnum með því að sambands- sinnar sættu sig við fulltrúa Sinn Fein í stjórninni um leið og Sinn Fein gaf út yfirlýsingu um að ótvírætt væri stefnt að afvopnun og IRA gaf sömuleiðis út yfirlýs- ingu um vilja til þess að semja um afvopnun. Heimastjórnin var síðan mynduð í byrjun desember og hefur því starfað í rúmlega 70 daga. Sambandssinnar skildu þetta samkomulag sem svo að afvopn- un IRA ætti að vera komin af stað í síðasta lagi í lok janúar. Sinn Fein og IRA hafa hins veg- ar ekki tekið mark á þessum fresti, á þeim forsendum að í upphaflega samkomulaginu var IRA og öðrum vopnuðum hóp- um á N-írlandi gefinn frestur þangað til í maí á þessu ári til að heíja afvopnun. Ekki þótti ólfklegt í gær að nú tækju við samningaviðræður um að veita IRA frest fram í maí, en heimastjórnin yrði lögð niður á meðan. Sfðan mætti hefja stjórnarsamstarfið að nýju þegar IRA væri tilbúinn til þess að af- vopnast. Bretar í vanda Hvað á að gera við gíslana sem sóttu um hæli? Bresk stjórnvöld standa nú frammi lyrir all snúnu vanda- máli varðandi fólkið frá Afganistan sem sótt hefur um hæli í Bretlandi eftir að hafa komið til Iandsins með flugvél- inni sem rænt var á sunnudag- inn. 74 af gíslum flugræningjanna hafa sótt um hæli, eða nærri helmingur allra sem voru um borð, en þrálátur orðrómur hef- ur verið um að stór hópur þeirra hafi verið í vitorði með ræningj- unum og markmið flugránsins hafi verið að komast til Vestur- landa í því skyni að fá þar póli- tískt hæli. Talebanastjórnin hefur fullyrt að gíslarnir geti óttalausir snúið heim, þeirra bíði engar refsing- ar. Hins vegar segir stjórn Tale- bana að flugræningjanna bíði ekkert annað en dauðadómur ef þeir verða sendir til Afganistans. Breska lögreglan hefur hand- tekið 22 af þeim sem voru í flug- vélinni og var búist við að þeir verði kærðir í Bretlandi. Meira en 30 manns voru í gær að búa sig undir heimferð til Afganist- ans með leiguflugvél, sem breska stjórnin sendir væntan- lega af stað strax í dag. Áfram átök í Suðitr-Líbanon ISRAEL - Ekkert lát er á átökum ísraelska hersins og skæruliða Hisbolla-hreyfingarinnar í Suður-Líbanon. í gær Iést ísraelskur her- maður þegar Hisbollamenn gerðu árás á bækistöðvar ísraelska hers- ins. Tveir hermenn særðust í sömu árásinni. Alls hafa Hisbollamenn því valdið dauða sex ísraelskra hermanna frá því í síðustu viku, og ísraelsmenn jafnan svarað með loftárásum á Líbanon. Suharto kallaður í yftrheyrslu INDÓNESÍA - Suharto, fyrrverandi forseti Indónesíu, hefur verið kallaður til yfirheyrslu í rann- sókn á vegum indónesísku stjórnarinnar á spillingar- málum. Lögfræðingar Suhartos segja hann hins veg- ar orðinn of veikburða til þess að mæta í yfirheyrsl- una. Þeir segja heilsufari hans hafa hrakað mjög eft- ir að hafa fengið heilablóðfall nokkrum sinnum. Hann gæti jafnvel ekki svarað spurningum því hann væri orðinn svo þvoglumæltur. Suharto er orð- inn gamall eins og Pinochet. Clintou gæti misst lögmannsréttmdin BANDARÍKIN - Hugsanlegt er að Bill Clinton Bandaríkjaforseti missi lögmannsréttindi sín í ríkinu Arkansas. Þetta væri síðbúin af- leiðing af Lcwinsky-málinu. Hæstiréttur í Arkansas hefur tekið mál- ið upp að beiðni lögmannafélags ríkisins á þeirri forsendu að Clint- on laug vísvitandi fyrir rétti og braut þannig siðareglur lögmanna. Austurríki gagnrýnt á fundi ÖSE AUSTURRIKI - Arsfundur Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) fór fram í Austurríki í gær. Hin nýja hægristjórn í Austurríki sætti á fundinum nokkurri gagnrýni af hálfu fulltrúa annarra ríkja. Fulltrúar Frakklands og Belgíu yfirgáfu salinn meðan utanríkisráð- herra Austurríkis hélt ræðu sína. Og fulltrúi Bandaríkjanna sagði bandarísk stjórnvöld hafa áhyggjur af því að stjórnmálaflokkur, sem er undir forustu manns sem hefur lýst samúð sinni með nasistum og gert lítið úr helför Gyðinga, skuli nú vera orðinn þátttakandi í ríkis- stjóm Austurríkis: • ‘ ' betri verslun á Lónsbakka ✓ I tilefni breytinganna bjóðum við viðskiptavinum í kaffi og kleinur laugardaginn 12. febrúar. Krakkarnir fá íspinna. Nói verður með glœsilega málverkasýningu á Kaffibakkanum Skráðu þig « / vefklúbbinn v**** www.husa.is HÚ! Sími 46 IAN husa.is AKUREYRI TIL LEIGU 400 - 600 femetra IÐNAÐAR/VERSLUNAR- HÚSNÆÐI V/DALSBRAUT. Tækifærið Erum að hefja framkvæmdir við innréttingar og frágang 390 fermetra húsnæðis v/Dalsbraut. Möguleg hæð dyra 5,70 m mesta lofthæð hússins er 7 m. Hentugt að setja milliloft. Ótrúlegir möguleikar Athafnafólk gæti þessi staður á heitasta svæði bæjarins hentað þínum hugmyndum. Hafið þá samband í síma 894 4292 símboði 846 2620

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.