Dagur - 29.02.2000, Blaðsíða 5
ÞRIDJUD AGUR 29. FEBRÚAR 2000 - S
FRÉTTIR
l.
Álversbygging
dregst til hausts
Tolvumynd af fyrirhuguðu álveri í Reyöarfirði.
Skipulagsstjóri segir
ákvörðim Sivjar Frið-
leifsdóttur íunhverfis-
ráðherra kalla á að
allt ferlið verði skoð-
að upp á nýtt. Kol-
hrún Halldórsdóttir
alþingismaður segir
niðurstöður ekki
muni liggja fyrir fyrr
en næsta haust.
Stefán Thors, skipulagsstjóri rík-
isins, segir að augljóslega hefði
hann kosið að ráðherra hefði
staðfest úrskurð stofnunarinnar.
Það komi sér líka svolítið á óvart
sú megin niðurstaða að óheimilt
sé að fallast á hluta fram-
kvæmda, sem eru í skoðun og úr-
skurða svo aðra hluta fram-
kvæmdarinnar í frekara mat.
Fyrir því séu ákveðin fordæmi.
„Þessi niðurstaða ráðherra
kallar á að þetta ferli verði skoð-
að upp á nýtt. Hins vegar er það
alfarið undir framkvæmdaaðil-
anum komið og hvernig hann
bregst við þessu hvort úrskurður
ráðherra veldur einhverjum um-
talsverðum töfum á að fram-
kvæmdir hefjist. Þó er augljóst
að ekki verður ráðist í þessar
framkvæmdir á þeim tíma sem
fyrirhugað var,“ sagði Stefán
Thors.
Nýtt umsagnarferli
Kolbrún Halldórsdóttir alþingis-
maður, einhver harðasti um-
hverfisverndarsinni á Alþingi,
segir að enda þótt ráðherra telji
sig vera að liðka til fj'rir að fram-
kvæmdir við 120 þúsund tonna
álver geti hafist, þurfi málið allt
að fara í umsagnarferli. Sam-
kvæmt lögunum um mat á um-
hverfisáhrifum þarf skipulags-
stjóri nú að auglýsa frummats-
skýrsluna. Það eru um það bil
fjórar vikur, sem almenningur og
félagasamtök og aðrir þeir sem
vilja gera athugasemdir, hafa til
að gera það. Eftir það hefur
skipulagsstjóri ákveðinn tíma til
að fara yfir þær umsagnir og
birta sinn úrskurð. Þá opnast
kærumöguleiki á þann úrskurð
það tekur allt ákveðinn tíma. Ef
kærur koma fram þarf umhverf-
isráðherra vissan tíma til að fara
yfir þær.
„Allt þetta ferli gæti aldrei ver-
ið búið fyrr en í fyrsta lagi næsta
haust. Og ef svo fer að nýi úr-
skurðurinn fyrir álverið verður
ekki tilbúinn fyTr en í haust þá
hafa menn allan næsta vetur
líka, ef vilji er til þess, að láta
Fljótsdalsvirkjun fara í lögform-
Iegt umhverfismat, vegna þess
að menn hefja ekki virkjunar-
framkvæmdir að vetri til,“ segir
Kolbrún Halldórsdóttir.
Hún segist hafa lagt inn beiðni
um utandagskrárumræðu um
málið þegar þing kemur saman
aftur næsta mánudag, en nú
stendur yfir nefndavika svoköll-
uð. Hún sagðist þó vilja sjá
hverning málið þróast áður en
hún ákveður endanlega með ut-
andagskrárumræðuna. — S.DÓR
Tugir björgunarsveitarmanna voru
uppteknir við að leita vélsleða-
mannana
Vélsleða-
meirn lieilir
Leit var gerð að alls sjö vélsleða-
mönnum í tveimur hópum sem
komu ekki í leitirnar eftir óveðrið
á sunnudag og fram á mánudag.
Allir komu þeir óskaddaðir í leit-
irnar.
Á sunnudagskvöldið var farið að
svipast um eftir þremur vélsleða-
mönnum sem farið höfðu frá
Litlu kaffistofunni á sunnudags-
morguninn. Um miðnætti var
ákveðið að hcfja formlega leit að
mönnunum og voru tveir snjóbíl-
ar og sjö snjósleðar sendir til leit-
arinnar. Ekki var hægt að senda
fleiri til leitarinnar þar sem mikið
af mönnum og tækjum voru í
Þrengslunum við björgunarstörf.
Vélsleðamennirnir komu síðan
fram í morgunsárið í gær og am-
aði ekkert að þeim, en þeir höfðu
grafið sig í fönn við Geitafell og
gleymt að hafa með sér farsíma.
Um hádegið hófst síðan leit að
fjórum vélsleðamönnum, sem
lögðu af stað frá skála í Lunda-
reykjardal. Þeir fundust síðdegis í
gær nálægt þjónustumiðstöðinni
á Þingvöllum. Um 60 björgunar-
sveitarmenn tóku þátt í þeirri leit.
- FÞG
Flýtir 120.000
tonna álveri
Ákvörðtm lunhverfis-
ráðherra um að fella
úrskurð skipulags-
stjóra um 480 þúsund
tonna álver úr gildi
mim flýta íýrir fram-
kvæmdum við 120 þús-
und tonna álver. Jón
Kristjánsson alþingis-
maður segir þessa
ákvörðun engu hreyta
með umhverfismat á
Fljótsdalsvirkjun.
Ákvörðun Sivjar Friðleifsdóttur
um að fella úr gildi úrskurð skipu-
lagsstjóra um 480 þúsund tonna
álver við Reyðarljörð og frummats-
skýrslu Hrauns vegna álversins, er
til þess gerð að flýta fyrir þvi að
framkvæmdir geti hafist við 120
þúsund tonna álver. Umhverfismat
fyrir 120 þúsund tonna álverið er
svo gott sem tilbúið en ekki fyrir
stækkun þess í
tveimur áföng-
um upp í 480
þúsund tonn.
Umhverfismat
fyrir tveimur síð-
ari áföngunum
hefði orðið að
liggja fyrir áður
en framkvæmdir Jón Kristjáns-
gætu hafist ef son, alþingis-
ráðherra hefði maður.
staðfest úrskurð ----
skipulagsstjóra
um 480 tonna álver, en það var sú
stærð sem framkvæmdaaðilarnir
lögðu inn til skipulagsstjóra.
Jón Kristjánsson, þingmaður
Framsóknarflokksins í Austur-
landskjördæmi, segist vona að
menn Iáti nú hendur standa fram
úr ermum og ljúki umhverfismati
fyrir 120 þúsund tonna álveri.
Vegna lögboðins auglýsingafrests
og kærufrests rnuni það taka
nokkra mánuði en það seinki ekki
að marki fyrri áformum um að
hefja framkvæmdir. Hann segir að
með þessum úrskurði sínum sé Siv
Friðleifsdóttir í raun að flýta fyrir
því að framkvæmdir við 120 þús-
und tonna álver hefjist.
Breytir engu lyrir virkjunina
Jón Kristjánsson hafnar því alfarið
að tækifærið verði notað til að Iáta
fara fram lögformlegt umhverfis-
mat á Fljótsdalsvirkjun.
„Að mínum dómi er það mál
endanlega afgreitt. Það var farið
eftir öllum reglum við afgreiðslu
þess, þannig að ég tel engar líkur á
því að þetta hafi nein áhrif þar á,“
sagði Jón.
Hann var spurður hvort hann
óttaðist að þessi ákvörðun um-
hverfisráðherra verði til þess að
Norsk Hydro missi áhuga á þessu
álveri, Norðmennirnir hafi alla
tíð talað um að álverið verði að
vera 480 þúsund tonna ef það eigi
að verða hagkvæmt?
„Það hefur legið fyrir alla tíð að
480 þúsund tonna álver verður að
fara í umhverfismat þegar þar að
kemur. Það er vilji lýrir því hjá mér
og mínum líkum í þessu máli, að
umhverfismat fari fram á 480 þús-
und tonna álveri. En ég hef enga
ástæðu til þess að óttast eitthvert
bakslag hjá Norsk Hydro vegna
þessa, enda leggja Norðmennirnir
mikla áherslu á að l’arið verði eftir
reglum í þessu máli öllu,“ sagði
Jón Kristjánsson. — S.DÓR
Beið bana í vélsleðaslysi
Vélsleðamaður lést á Súðavík í
gær þegar hann ók fram af um
þriggja metra hárri snjóhengju og
lenti undir sleðanum. Lögregl-
unni á ísafirði barst tiikynning
um slysið um tuttugu mínútum
fyrir klukkan sex í gær og voru
björgunarsveitarmenn þá strax
sendir á staðinn. Þegar að var
komið reyndist ökumaður vélsleð-
ans látinn og báru lífgunartil-
raunir ekki árangur. Ekki er unnt
að greina frá nafni hins látna að
svo stöddu. — Hi
Besta ár Lyfjaverslimar íslands
Hagnaður af rekstri Lyljaverslunar Islands hf. árið 1999 nam rúmum 58
milljónum króna, sem er besta rekstrarniðurstaða félagsins til þessa.
Arðsemi miðað við eigið fé í upphafi árs var 10,4%. Velta félagsins nam
1.647 milljónum króna sem er 6% hækkun frá árinu 1998. Veltufé frá
rekstri var 58 milljónir króna, en handbært fé frá rckstri 79 milljónir
króna. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 38 milljónum króna, en
óreglulegir liðir skiluðu hagnaði að upphæð 20 milljónir króna. Oreglu-
legir liðir samanstanda af innlausn hluta hagnaðar vegna sölu fram-
leiðsludeildar félagsins til Delta hf. árið 1998 auk kostnaðar vegna yfir-
töku dreifingar á framleiðsluvörum Delta á seinni hluta ársins 1999.
íbúðaveltan 81 milljarðiix
Velta í viðskiptum með íbúðarhús-
næði hefur aukist 54% síðustu tvö
árin, í 81 milljarð króna á nýliðnu
ári, samkvæmt Hagvísum Þjóðhags-
stofnunar - sem samsvarar til dæm-
is hátt í 1,2 milljónum á hverja fjög-
urra manna Ijölskyldu í landinu.
Um 80% allra viðskipta með íbúðar-
húsnæði hafa verið á höfuðborgar-
svæðinu síðasta áratuginn. Þar eru um 88% viðskipta með íbúðir í Ijöl-
býli og um 60% allra viðskipta með sérbýli (einbýli og raðhús). Velta í
sölu sérbýlis hefur þó aukist mun meira en í Ijölbýli frá 1994, eða meira
en þrefaldast. Sala fjölbýlisíbúða stóð í stað frá 1990 til 1993 og fór
ekki á verulegt skrið fyrr en árið 1995, en hefur síðan u.þ.b. tvöfaldast.
- HEI
Samskiptalausn frá Oz
Netfyrirtækið OZ.COM hefur sett á markað samskiptalausn sem hlotið
hefur nafnið mPresence. Það er víðtæk þjónusta fyrir netviðskipti sem
fjarskiptafyrirtæki geta boðið notendum sínum. Segja má að mPresence
sé fyrsta skrefið í átt að þráðlausum netviðskiptum en OZ.COM er að
kynna nýtt hugtak í þráðlausa Ijarskiptaheiminum; „M-business“ eða
„Mobile business". Lausnin verður formlega kynnt í tengslum við
Wireless 2000 sýninguna í New Orleans í þessari viku. mPresence er
hannað með samskipti einstaklinga í fjarskiptakerfum í huga og býður
m.a. upp á hraðar sendingar skilaboða. mPresence byggist á iPulse
tækninni sem þróuð var í samvinnu OZ.COM og Ericsson og sameinar
notkun lnternetsins, farsímaneta og hefðbundinna símneta.