Dagur - 29.02.2000, Page 6
6 - ÞRIDJUn AGU R 29. FEBRÚAR 2000
ÞJÓÐMÁL
_ nr
Útgáfufélag: oagsprent
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: elías snæland jónsson
Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo OG eoo 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@daour.is
Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 KR. A mánuði
Lausasöluverð: iso kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: boo 7080
Netföng auglýsingadeildar: greta@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is
Símar auglýsingadeildar: (reykjavík)563-i615 Amundi Amundason
(REYKJAVÍK)563 -1642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYR 1)460-6192 Karen Grétarsdóttir.
Slmbréf auglýsingadeildar: 460 6i6i
Simbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyrí) 551 6270 (REYkjavík)
Fyrsta áfanga flýtt
í fyrsta lagi
Ákvörðun umhverfisráðherra um að fella úr gildi úrskurð
skipulagsstjóra um 480 þúsund tonna álver í Reyðarfírði og
ógilda um leið alla málsmeðferðina virðist hafa komið ýmsum
á óvart. Þau fyrstu viðbrögð margra, að með þessari niður-
stöðu ráðherra væri verið að fresta framkvæmdinni verulega,
hljóta hins vegar að vera á misskilningi byggð. Ef ráðherra
hefði fallist á úrskurð skipulagsstjóra ríkisins í málinu hefði
þurft verulegar framhaldsrannsóknir, en hann gerði kröfu um
slíkt í þrettán liðum. Það hefði tekið mildu lengri tíma en það
ferli sem framundan er vegna ákvörðunar ráðherra.
í öðru lagi
Það er kjarni málsins í niðurstöðu umhverfíráðherra, að þar er
fallist á þá kröfu að einungis skuli miða umhverfísmat við fyrs-
ta áfanga álvers, eða 120 þúsund tonn. I reynd er því verið að
búa í haginn fyrir tiltölulega skjóta afgreiðslu á leyfum til að
fara út í slíkar framkvæmdir. Það mun ekki taka þá sem að
framkvæmdum standa langan tíma að ganga frá skýrslu um
slíkt og senda til skipulagsstjóra. Með úrskurði ráðherrans er
því í reynd verið að reyna að flýta því að íslensk stjórnvöld geti
veitt leyfi til að hefja framkvæmdir við álverið.
í þriðja lagi
Nú liggur Ijóst fyrir að Norsk Hydro telur að einungis með því
að stækka álverið á Reyðarfirði í 480 þúsund tonn muni það
skila ásættanlegum hagnaði. Urskurður skipulagsstjóra bar
með sér að gera verður umfangsmiklar nýjar rannsóknir á
áhrifum slíks álvers. Nú verður augljóslega farið að þeirri
kröfu framkvæmdaaðila að þær rannsóknir fari þá fyrst fram
þegar fyrsti áfanginn er orðinn að veruleika. Þegar til þess er
litið að ætlunin er að íslenskir fjárfestar, þar á meðal lífeyris-
sjóðirnir, leggi mikla fjármuni í nýja álverið, mun þrýstingur-
inn á að leyfa frekari stækkun eftir nokkur ár, með tilheyrandi
nýjum virkjunum, verða gífurlegur. Og niðurstaðan væntan-
lega í samræmi við það.
Elías Snæland Jónsson
Jeppaþjóðin
Samspil óveðursins um helg-
ina og Heklugossins hefur
dregið fram í dagsljósið ein-
staklingseðlið í íslendingum.
Þjóðin hefur undanfarin
misseri verið að kaupa sér
jeppa af ölluni stærðum og
gerðum, og þeir sem ekki eru
komnir á jeppa eru í það
minnsta á nýjum og dýrum
fjórhjóladrifnum fólksbílum
og á leiðinni að kaupa sér
jeppa. Menn hafa Iagt stórfé
í þessar Ijárfestingar og verið
iðnir við að sannfæra sjálfa
sig og aðra um réttmæti þess
að setja mikla pen-
inga í að hafa gott
farartæki til að kom-
ast á milli staða.
Sannfæringarkraftur-
inn hefur raunar ver-
ið slíkur að þeir eru
orðnir fáir efasemd-
armennirnir um nauðsyn þess
að eiga jeppa. íslendingar eru
því orðnir að sannkallaðri
jeppaþjóð.
í leit að útsýni
Það er því nánast óhjákvæmi-
legt að þegar spennandi eld-
gos verður að þá fer þjóðin út
í bílana sína og ekur í áttina
að betra útsýni. Það er auðvit-
að aukaatriði þótt húið sé að
tilkynna í nær ölum Ijölmiðl-
um að ckkert útsýni sé til
gossins, menn fara upp á von
og óvon í þeim efnum. Sama
er að segja um ótryggt veður-
útlit. Islendingurinn lætur
slíka smámuni ekki aftra sér,
auk þess sem vond veðurspá
gefur bíleigendum tilefni til
að fagna framsýni sinni að
hafa keypt sér svo góðan og
dýran bíl eða jafnvel jeppa. I
ljós komi hversu sniðug fjár-
festing nýi bíllinn var, því nú
gcti menn farið út að aka
þrátt fyrir veðrið, af því bíll-
V
inn er svo góður!! Þúsundum
saman flykktist jeppaþjóðin
því út á vegina í sama mund
og starfsmenn Veðurstofunn-
ar urðu hásir af því að hrópa
stormviðvaranir!
Réttu græjumar
Það að Timmtánhundruð
manns skuli hafa orðið að
hafast við í Þrengslunun í
fyrrinótt er hins vegar nokkuð
áfall fyrir jeppaþjóðina. I ljós
hefur nefnilega komið að það
er alls ekki nóg að hafa fjár-
fest í fínuni bíl til að komast á
milli staða. Það þarf
að vera fært og jafn-
vel sæmilegt veður-
útlit líka. Þetta eru
vitanlega mjög
óvæntar upplýsingar
og kannski ekki von
að menn almennt
átti sig á þeim. En það gleð-
ur þó Garra að sjá að menn
hafa verið að koma sér sam-
an um skýringu á því hvernig
fór. I útvarpinu í gær var farið
nokkrum orðuni um þessi mál
og niðurstaðan var einróma
sú að rekja mætti vandræðin
til vanbúinna bíla. Það hafa
því trúlega verið á ferðinni
menn seni ekki voru á nýjum
bílum eða sem ekki höfðu
fjárfest f réttu græjunum.
Það er mikill léttir að heyra
að vandamálið er tæknilegs
eðlis, en snertir ekki öku-
mennina eða það eðli og nátt-
úru jeppaþjóðarinnar sjálfrar
að gefa náttúruöflunum langt
nef ef svo ber við. Með því að
ákveðnir bílaskussar kaupi sér
aðeins betri búnað, þá má
semsé forða svona vanda,
næst þegar eldgos verður og
jeppaþjóðin þarf að aka út í
niðdimma hríðina í leit að út-
sýni. GARRI
JÓHANNES
{ - SIGURJÓNS-
SON
skrifar
v- 1
Umferðarsprengigos
Gömul kona á Norðurlandi
fy'lgdist eins og fleiri með frétt-
um um helgina af eldgosinu í
Heklu og af hundruðum kolföst-
um bifreiðum á Hellisheiði og í
Þrengslum. Hún hristi auðvitað
höfuðið yfir öllum þessum
ósköpum og sagði: „Óskaplega
hlýtur lífið að vera dauflegt og
tilbreytingarsnautt þarna í
fásinninu á höfuðborgarsvæð-
inu, þegar menn eru svo tilbúnir
að leggja líf og limi í hættu með
því að ana út í óvissuna þegar
eitthvað óvenjulegt gerist í
grennd við Reykjavík. Mikið
hlýtur aumingja fólkinu að leið-
ast heima hjá sér.“
Og sjálfsagt fleiri sem undrast
þetta undarlega æði sem reglu-
lega rennur á borgarbúa og
finnst ekki síður sérkennilegt
þetta brenglaða ófærðarskyn
sem flestir þar syðra virðast búa
við. Jafnvel konur komnar á
steypirinn láta draga sig út í tví-
sýnu í því skyni að berja hugsan-
legan reyk úr Heklu augum ef
skyggni leyfði sem engar líkur
voru raunar til.
Gönuhlaupm
I þessum árvissu
gönuhlaupum
borgarbúa er
gjarnan talað um
að það séu að-
eins örfáir öku-
menn á litlum og
vanbúnum bif-
reiðum sem beri
ábyrgð á öng-
þveitinu sem alla
jafnan er fylgi-
fiskur þessara furðuferða. En í
þetta sinn sátu hinir öflugustu
stórjeppaeigendur Iíka fastir í
sköllum, fjóra daga að dreyma,
eins og segir í textanum.
Skýringar á þessum ótrúlega
æðibunugangi ökumanna þegar
eitthvað er tíðinda í grennd, er
varla hægt að rekja eingöngu til
einskærrar forvitni. Því í þessu
tilfelli vissu auðvitað allir að ef
menn vildu sjá eitthvað af gosinu
og komast sem næst eldstöðinni,
þá var gáfulegast að bíða eftir
sjónvarpsfréttun-
um. Enda sáu
þeir sem heima
sátu margfalt
meira af eldgos-
inu en þeir sem
húktu á Hellis-
heiði og Þrengsl-
um og sáu ekki
glóru í hálfan
sólarhring.
Nei ástæðunn-
ar er ugglaust að leita í taum-
lausum leiðindum þeirra sem
búa í tilbreytingarieysi höfuborg-
arinnar með öll sín leikhús og
synfóníur og súludansstaði sem
öðru fremur ku draga til sín
sveitamenn úr fásinninu utan af
landi.
Eldgos innan frá
Hitt er svo annað mál að þessir
nýfíknu borgarbúar eru auðvitað
himnasending fyrir fjölmiðla og
fréttamenn, þegar náttúruham-
farir bregðast og reynast til-
komuminni en vonir stóðu til í
upphafi, eins og reyndar gerðist
með Heklu nú. Því þegar mesti
ljóniinn var farinn af gosinu,
þegar hraunstraumurinn tók að
hægja á sér, þá gátu fjölmiðlar
snúið sér að því að flytja fréttir af
asnastrikum gosfíkla sem sátu
fastir hver um annan þveran í
Þrengslunum.
Staðreyndin er auðvitað sú að
stærstu og hættulegustu nátt-
úruhamfarirnar koma að innan.
Og fyrr verður örugglega hægt að
koma í veg lyrir að eldfjöll gjósi
en að hamla því að mannskepn-
an hagi sér eins og hún er inn-
réttuð til.
svaorauð
Erfólk hættað táka
mark á veðurspám?
(Mikill fjöldi fólks komst i hann
krappan í Þrengslunum í fyrrinótt,
því margir fóru austur á Hekluslóð-
ir jafovel þó veðurspá væri ekki
sem best.)
Tómas Jónsson
yflrlögregluþjónti á Selfossi.
„Það er misjafnt,
en mikið virðist
þó um að fólk
ætli bara að stóla
á Guð og lukk-
una. I sumum til-
vikum virðist
einu gilda þó fólk
sé að hafa samband við okkur og
spyrja hvernig færðin sé og við
segjum að Hellisheiðin sé nánast
ófær, þá er oftar en ekki svo að
fólk Ieggur samt af stað. Þá spyr
maður sjálfan sig hví í ósköpun-
um fólk sé að hringja.11
Hjörleifur Ólafsson
deildastjóri í þjónustudeildar
Vegagetóar.
„Meginmálið er
að fólkið í land-
inu er svo mikið
komið úr tcngsl-
um við náttúru-
öflin. Með þeim
breytingum seni
orðið hafa á at-
vinnuháttum þjóðarinnar á und-
anförnum áratugum fylgist fólk
ekki eins með veðurspám og
áður var. Þó tel ég að traust fólks
til Veðurstofunnar sé til staðar,
enda væri annað ástæðulaust.
Spárnar eru sífellt að verða betri
og áreiðanlegri."
Július Júlíusson
talsniaöurVeóurfdúbbsins d Dalvflt.
„Greinilega. I dag
á fólk minna
undir veðri en var
og margir hafa
misst takt við
náttúruna. Nýtt
fyrirkomulag
vindmælinga hef-
ur sín áhrif, nú eru mældir metr-
ar á sekúntu en ekki er lengur
talað um andvara, golu, kalda,
rok og hvassviðri - heldur er
þetta allt komið út í tölfræðina.
Með nýju fyrirkomulagi minnkar
tilfinning fólks fyrir því hvernig
viðrar í raun."
Einar Sveinbjörnsson
veöirrjrædiiigur ogaðstoðarm.
umhverflsráðherra.
„Eg tel að svo sé
ekíd. Hins vegar
er það svo að í
fjölmiðlun nú-
tímans vilja veð-
urspár og viðvar-
anir fara ofan
garðs og neðan. Þá vilja menn
blanda óljósum fréttum um veð-
urhorfur næstu daga saman við
nokkuð öruggar spár fyrir næsta
sólarhring. Vegna síendurtek-
inna vandræða í samgöngum
þarf Veðurstofan að skoða hvern-
ig best sé að miðla viðvörunum
um versnandi veður og færð - og
það verður vart gert nema með
samstarfi við Vegagerð. Það er
umhugsunarefni að þessar tvær
stofnanir skuli hvor í sínu lagi
þjónusta vegfarendur á sama
tíma, en í sitthvoru lagi.“