Dagur - 29.02.2000, Qupperneq 11

Dagur - 29.02.2000, Qupperneq 11
Þ RID JUD A GU K 29. F F. 11 R Ú A R 2 00 0 - 11 FRÉTTIR Umferðin tók fj ögur maimslíf Umferðin tók sinn toll um helgina. Fjór- ir létust í tveimur slysum. Þrír biðu bana í umferðarslysi á Kjalarnesi á föstudagskvöld í einu mesta hópslysi í umferðinni hér á landi hin síðari ár. Jeppa- bifreið og rúta rákust saman skammt frá Grundarhverfi um kvöldmatarleytið. Flytja þurfti tugi manns á sjúkrahús í Reykja- vík, þar af nokkra alvarlega slas- aða, en flestir voru þetta farþeg- ar úr rútunni sem jeppinn hafn- aði á og eins rútu sem var í sam- floti. Um var að ræða ferðaskrif- stofufólk á leiðinni í óvissuferð norður í Bakkaflöt í Skagafirði. Að sögn Jóhannesar M. Gunn- arssonar, lækningaforstjóra Sjúkrahúss Reykjavíkur, þurftu 1 7 manns að leggjast inn á stóru sjúkrahúsin tvö en flestir þeirra höfðu verið útskrifaðir í gær. Þó lágu fjórir enn inni, þar af einn með alvarleg beinbrot. Mesta vinna lækna- og hjúkrunarfólks fór þó í að veita áfallahjálp þar sem fólkið þekktist vel innbyrðis sem lenti í slysinu. Jóhannes sagði Ijóst að þetta væri um- fangsmesta slysið sem hefði orð- Björn Gíslason. ið í umferðinni í langan tíma en hópslysaáætlun sjúkrahúsanna hefði gengið vel upp. Tekist hefði að taka á móti, skoða og greina alla um einum og hálfum tíma eftir að fyrsti sjúklingurinn kom í hús. Það væri vel að verki staðið. Þeir sem fórast Um miðjan dag á laugardag varð annað banaslys þejgar tveir bílar rákust saman á Olafsvíkurvegi, skammt vestan við Olafsvík- urenni. Fimmtán ára piltur, sem var farþegi í öðrum bílnum, lét samstundis lífið. Ökumenn beggja bíla voru fluttir með Einar Kristjánsson. sjúkraflugi til Reykjavíkur og annar þeirra var vanfær kona. I aftursæti hennar bíls var 6 ára stúlka sem slapp við meiðsl. Líð- an konunnar er góð eftir atvik- um. Pilturinn sem fórst hét Adam Bednarik, fæddur 1984 í Póllandi. Hann hafði verið bú- settur á Hellissandi í nokkur ár ásamt foreldrum sfnum og tveimur systkinum. Þeir sem létu lífið í slysinu á Kjalarnesi skilja allir eftir sig fjölskyldur; konur og börn. Benedikt Ragnarsson, 31 árs, til heimilis að Borgartanga 2 f Mos- fellsbæ, lætur eftir sig sambýlis- konu og 6 ára son. Hann var starfsmaður vélsleðadeildar bíla- Benedikt Ragnarsson. leigunnar Geysis og var farþegi í rútunni. Björn Gíslason, lögreglumað- ur og forstjóri Bátafólksins, var bílstjóri rútunnar. Hann hefði orðið 37 ára í gær. Hann var til heimilis að Háagerði 41 í Reykjavík og lætur eftir sig eigin- konu og börn á aldrinum 4 til 15 ára. Einar Kristjánsson skipstjóri, 71 árs, var einn í jeppanum. Hann var til heimilis að Dalhús- um 86 í Reykjavík. Einar lætur eftir sig sambýliskonu og íjóra uppkomna syni. Átak stendur nú yfir í umferðar- málum á Suðvesturiandi. Átak í notk- un bílbelta Lögreglulið á Suðvesturlandi standa nú að sameiginlegu átak í umferðarmálum sem stendur til laugardagsins 4. mars nk. Að þessu sinni verður sérstök áher- sla lögð á notkun öryggisbelta í bifreiðum og annars öryggis- og verndarbúnaðar s.s. ungbarna- bílstóla, barnabílstóla og sætispúða. I tilkynningu frá lög- reglu segir að niðurstöður ný- legrar könnunar á notkun örygg- isbelta á suðvesturlandi séu í mörgum tilvikum „uggvænleg- ar“. Til dæmis var gerð talning á 337 bifreiðum á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar milli kl. 16 og 17 í nokkurri hálku þar sem aðeins um 60% ökumanna og farþega í framsæti voru í belti. Sérstök athygli skal vakin á því að stór hluti þeirra sem lét- ust í bifreiðum á síðustu árurn notuðu ekki öryggisbelti. Það er ljóst að þeir sem nota ekki örygg- isbelti taka stóraukna áhættu. Þetta á einnig við þótt eknar séu stuttar vegalengdir í þéttbýli, því þar verða flestir árekstrar. Þj ófar létu greipar sópa 21 ökumaður var grunaður um ölvun við akstur í Reykjavík um helgina samkvæmt dagbók lögreglu. Samkvæmt dagbók lögregliumar í Reykjavík var í nógu að snúast um helgina. Auk umferðaróhappa var talsvert um inn- hrot, þjófnaði og lik- amsárásir. Að sögn Iögreglu var skemmt- anahald í miðborginni þó með rólegra móti, enda veður ekki heppilegt til útiveru að nætur- þeli. „Almennt var ástand þokka- legt og ölvun ekki mikil. Nokkuð var um kvartanir vegna láta í heimahúsum en þau mál Ieyst- ust öll á vettvangi," segir í upp- hafi dagbókarinnar. Alls var tilkynnt um 46 um- fcrðaróhöpp f umdæmi Reykja- víkurlögreglunnar um helgina, þar sem eignatjón varð, og 21 ökumaður var grunaður um ölv- un við akstur. Þá aðstoðaði lög- reglan björgunarsveitir og kollega sína fyrir austan fjall vegna ástandsins í Þrengslunum en því ævintýri eru gerð skil á öðrum stað í blaðinu, sem og umferðarslysinu hörmulega á Kjalarnesi á föstudagskvöld. Af öðrum tjónum helstum í borgar- umferðinni má nefna að öku- maður missti stjórn á bíl sínum við Sæbraut á laugardagskvöldið með þeim afleiðingum að hann keyrði á rafmagnsstaur. Slasaði maðurinn ekki alvarlega. Þá valt bíll á Kringlumýrarbraut að morgni sunnudags. Okumaður og farþegar voru fluttir slasaðir á sjúkrahús. Veskjum víða stolið Fjölmörg auðgunarbrot voru framin um helgina, að sögn lög- reglu. A föstudagsmorgun var farið inn í hús í miðborginni og stolið þaðan meðal annars veski og rafmagnstækjum. Veskið fannst seinna um daginn en ekki hefur enn náðst til þeirra sem þarna voru að verki. Seinna sama dag var lögreglu tilkynnt að hjólbarða hefði verið stolið und- an bifreið. Einnig voru unnar skemmdir á annarri hlið bifreið- arinnar en ekki var farið inn f hana. Um miðjan dag á föstudag var tilkynnt um innbrot í Breiðholti. Nokkuð hafði verið rótað í hús- næðinu og tekið eitthvað af geisladiskum. Um þrjúleytið að- faranótt Iaugardagsins var lög- reglu tilkynnt um að maður hefði stolið veski af konu inni á skemmtistað. Er lögregla kom á vettvang var maðurinn farinn út af staðnum en lögreglan náði honum fyrir utan og var hann fluttur á stöðina. Af fleiri innbrotum má nefna eitt í verslun uppi á Höfða, þar sem rafmagnstækjum var stolið, innbrot í bílskúr, nokkra bíla til viðbótar og þá var einn skápur laugargests í Vesturbæjarlaug- inni brotinn upp á laugardag og veski tekið þaðan ófrjálsri hendi. Svo segir frá sérstæðu máli er kom upp í Kringlunni síðdegis á Iaugardag. Þar var farsíma stolið og þegar hringt var í númerið kom í ljós að þjófarnir vildu ekki skila honum nema gegn loforði um fundarlaun. Þegar kom að því að eigandi símans ætlaöi að greiða fundarlaun hætti hann við með þeim afleiðingum að ör- yggisverðir Kringlunnar urðu að skerast í leikinn og kalla til lög- reglu. Þrír pörupiltar voru fluttir á stöð og var þeim sleppt eftir til- tal lögreglu. Loks segir í auðgunar- brotakalla dagbókarinnar frá því er maður tilkynnti lögreglu að morgni sunnudags að hann hefði verið rændur. Hann hafði boðið til sín manni um nóttina en þcgar hann vaknaði um morguninn var maðurinn horf- inn á hrott ásamt nokkru af skartgripum sem voru í íbúðinni. Tvö hiiífamál Nokkur líkamsárásarmál komu upp um helgina. I einu þeirra var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna slagsmála í heimahúsi. Maður og kona höfðu lent í deil- um. Þegar reynt var að stilla til friðar dró maðurinn upp hníf og ógnaði þeim sem reyndi að koma upp á milli þeirra. Hnífamaður- inn var handtekinn og fluttur á stöð. Annað hnífamál kom upp á Rauðarárstíg þegar maður réðist að öðrum manni með kuta á lofti. Ekki urðu nein meiðsl á þeim sem fyrir árásinni varð. Arásarmaðurinn var handtekinn af laganna vörðum. Reykspólað í miðborginni Af öðrum málum lögreglunnar um helgina má nefna að á föstu- dag var óskað eftir aðstoð við að flytja særða gæs á dýraspítala. Að aðhlynningu lokinni var gæsin flutt í Húsdýragarðinn í Laugar- dal. Starfsmenn við eftirlit á örygg- ismyndavélum í miðborginni urðu á sunnudagsmorgunn varir við mann sem gerði það að gamni sínu að reykspóla á bifreið sinni. Ekki fór betur en svo að dekk sprakk á bílnum og fóru gúmmítætlur yfir nærliggjandi bíla. Lögreglan náði ekki tali af þessum ökuþór en li'klega hefur bílnúmerið náðst á mynd. — BJB

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.