Alþýðublaðið - 18.02.1967, Side 3
Kennedy hefur sókn
gegn stefnu LBJ
WASHINGTON, 17. febr. (NTB-
AFP-Reuter) — Robert Kennedy
öldungadeildarma'ður sagði í dag,
að hann ætiaði að halda stórræðu
í öldungadeildinni eftir nokkrar
vikur um allar Iiliðar Vietnamdeil
unnar. Að hans dómi verður að
leysa deiluna við samningaborðið.
Hann efast um að loftárásirnar á
Norður-Vietnam liafi áhrif.
Þrálátur orðrómur er á kreiki
um það í Washington, að Kenne-
dy muni i ræðu sinni taka ský-
lausa afstöðu gegn stefnu John-
sons forseta í Vietnammálinu.
Samkvæmt góðum heimildum hef
ur hann skýrt stjórninni frá þess-
ari ætlun sinni, og er því talið
að bilið milli hans og forsetans
muni breikka enn.
Kennedy öldun'gadeildarmaður
hefur verið pólitískur keppinaut-
ur Johnsons forseta síðan bróðir
hans var veginn. Upp á síðkastið
ihefur hann dregið úr gagnrýni
sinni iá stefnu stjórnarinnar í mál-
efnum Suðaustur-Asíu. En nú virð
ist hann aftur að vera að skipta
um skoðun, þar sem hann hefur
gagnrýnt ákvörðun Johnsons um
að hefja að nýju loftárásir á Norð
ur-Vietnam eftir vopnahléið á ný- '
árshátíð Vietnammanna.
Kennedy er ósammála Johnson
um það, að nauðsynlegt hafi verið
að hefja loftárásirnar á ný, þar
sem Norður-Vietnammenn hefðu
notað vopnahléið til stórfelldra
birgðaflutninga suður á bóginn.
Kennedy telur, að framlengja
hefði átt hléið á loft'árásunum og
reyna að ganga úr skugga um hvað
Kosygin forsætisráðherra átti við
þegar hann lýsti yfir í London, að
framlenging á hléinu mundi stuðla
að friðsamlegri lausn Vietnam-
deilunnar.
Samkvæmt góðum heimildum
er Kennedy þein-ar skoðunar, að
bæði Norður-Vietnammenn og
Bandaríkjamenn og bandamenn
þeirra hafi notað 'hléið á loftárás-
unum til stórfelldra hergagna-
flutninga og endurskipulagning-
ar á herliði sínu. Hann telur að
Bandarílcjastjórn verði að stíga
fyrsta skrefið til að kanna skoðan-
ir Norður-Vietnamstjórnar á frið-
arviðræðum.
Lögfræðingafélagið styður
Bandalag háskólamanna
Annar hélt á buddunni en hinn á kaffipakkanum.
GAMAN AÐ FUÚGASl Á
Það var næstum orðið vor-
lefft I Reykjavík í gær, Sólin
skein, svo lengi sem hún mátti
og það var eins og fólki fynd
ist þegar komið vor, þó að ekki
væri golan hlý.
A túninu við Snorrabraut og
Þorfinnsgötu hittum við tvo
stráka sem voru að fljúgast á
Það er ekki svo að skilja, að
strákar fljúgist ekki á allt ár
ið um kring, en þessir tveir
sögðu, að það væri svo gaman
að fara í áflog, þegar veðrið
væri svona gott. — Það er að
koma vor, sögðu þeir, og nú
er grasið svo þurrt og hreint
að það er alveg óhætt að velta
sér á því, við ’skemmum ekkert
fötin okkar þó að við fljúg-
umst á.
Við Snorrabrautina hefur ver
ið plantað nokkrum grenitrjám
og er það vel. Það hefur komið
í ljós að trén sem gróðursett
voru fyrir nokkrum árum við
gamla kirkjugarðinn við Suður
götu, hafa dafnað vel og eru
nú orðin stærðartré og mikil
bæjarprýði og því ekki úr vegi
að gróðursetja grenitré sem víð
ast um borgina.
Þegar við tókum rnynd af
strákunum í áflogunum, hitt'
um við þriðja drenginn rétt
hjá. Hann stóð við eitt greni
tréð og var að bíða eftir strætó.
Hann var að koma úr skólanum
sagði hann.
Inni á Laugavegi rákumst við
á tvíburadrengi varla eldri en
þriggja, fjögurra ára, sem voru
Framhald á 15. síðu.
Grenitrén á Snorrabrautinni eru bæjarprýði.
Þeim fannst gaman að fljúgast
á í þurru og hreinu grasinu.
Lögfræðingafélag íslands hélt
félagsfund þriðjudaginn 14. febr-
úar sl. í Tjarnarbúð. Fundarefni
var hlutverk og þátttaka Lögfræð-
ingafélagsins í Bandala'gi háskóla
manna, og voru frummælendur
prófessor Ármann Snævarr há-
skólarektor og Ólafur W. Stefáns-
son deildarstjóri.
Gerði fyrri frummælandi eink-
um grein fyrir tildrögum þess, að
Ársþing UMSE
Ársþing Ungmenhasámbands
Eyjafjarðar verður haldið á Dal
vík laugardaginn 25. og sunnu
daginn 26. febrúar og liefst fyrri
daginn kl. 2,30 eftir hádegi Að
venju verður gerð grein fyrir
starfinu á sl. ári og gerð starfsá
ætlun fyrir yfirstandandi ár. í
Ungmennasambandi Eyjafjarðar
eru nú 15 félög, sem hafa rétt
til að senda rúmlega 60 full
trúa á þingið
Bandalag háskólamanna var stofn-
að, stofnaðild Lögfræðingafélags-
ins að bandalginu og starfi þess
fyrstu árin. Síðari frummælandi
gerði einkum að umræðuefni störf
bandalagsins síðustu áíjn. Sé|r-
staklega gerði hann grein fyrir
því baráttumáli bandalagsins, að
Framhald á 14. síðu.
Fundur í Iðnó í dag klukkan
12.10.
18. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3