Alþýðublaðið - 18.02.1967, Side 6

Alþýðublaðið - 18.02.1967, Side 6
Starfssvið arkitekta verði betur skilgreint Frá aðalfundi arkitektafélags íslands: Aðalfundur Arkitektafélags ís- lan is var haidinn í lok janúar sl. Fói þá fram stjórnarkjör og frá- farfendi stjórn igeröi grein fyrir starfi síðasta árs og helztu verk- efnum féiagsins. tsíðasca starfsári var stofnað- Lífeyrissjóður Arkitektafélags Islands, þótt enn sé félagið held- ur fámennt. Er lífeyrissjóður þessi ibyggöur upp á all nýstárlegan hátat og var það verk unnið af Þóri Bergssyni tryggingafræðingi, en til ráðuneytis stjórninni voru einjnig lögfræðingur félagsins, Guðmundur Ingvi Sigurðsson og Kr. Guðmundur Guðmundsson, tryggingafræðingur. Er t.d. í fyrista sinn hér á landi gefinn möguleiki á sjúkratryggingu. Únnið hefur verið að því að fá starfssvi'ö arWitekiln íbetur skilj- greint og starfsheitið virt. Er ali undarlegt ástand þeirra mála hér á landi. Starfsheitið er lögverndað síðan árið 1936 og geta þeir einir borið það, sem ráð- herra hefur veitt leyfi til þess, og hafa lokið prófi frá háskóla, uem er viðurkenndur af alþjóðasamtök um arkitekta og Arikitektafélagi íslands. Starfssvið arkitefkta er aftur á móti ekkert verndað, og er þetta líklega ein af mjög fáum starfsgreinum, sem ekki njóta laga verndar hér. Er þetta enn furðu- legra, er hugsa'ð er til þess, hvert verkssvið arkitekta í raun og veru er. Arkitektar eiga að forma og mynda ailt okkar daglega um- hverfi. Þeir hafa stundað nám frá 5 og upp í 10 ár við háskóla til að geta, á sem hagkvæmastan og feg- urstan hátt, teiknað hús okkar og híbýli, skipulagt bæjarliverfi eða heilar borgir, hjálpað ökkur við efnisval Og framkvæmd bygginga og verða oft að umskapa nátt- úruna umhverfis okkur. Arkitektinn hefur þannig hönd í bagga með formun alls þess um- hverfis, er við verðum að hrærast í, allt okkar jarðneska líf. Þetta starf er talið nær öllum fært án fullkominnar menntunar eða reynslu, þótt undarlegt megi virðast, en mjög nákvæm og ströng lög eru til um það, hverjir megi klippa h'ár á höfði okkar, eða mála forstofuna, og hverja mennt- un slíkir skuli hafa. Er það þó stærstur liður í menn ingarsvip hverrar þjóðar, hvernig hún byggir upp borgir sínar og hyggð, og skapar þegnum sínum fagurt og hagkvæmt umhverfi. Meginstarf félagsins er því og verður, að skapa Skilning almenn- ings og stjórnarvalda á mikilvægi starfs'greinar okkar og stöðugt að vera á verði, að hvergi slaki fé- lagsmenn á kröfum þeim til sjálfs sín, er starfsheitið ber í sér. Var á aðalfundinum gerð sam- þykkt um, að fela menntamála- nefnd félagsins, að kanna mögu- leika á því, að komið yrði á fót starfsréttindaprófi fyrir arkitekta hér. Yrðu þá allir arkitektar, er heim koma að loknu námi, að starfa 'hér á landi í minnst t.d. Framhald á 10. siðu. Marta í síðasta sinn Óperan Marta hefur nú verið sýnd 15 sinnum í Þjóðleikhús inu, en nú eru aðeins eftir tvær sýningar á óperunni og verð ur næst síðasta sýningin í kvöld, laugardaginn 18_ febrúar og síðasta sýning verður sunnudaginn 26. þ.m. Myndin er af Kristni Hallssyni og Sigurveigu Hjaltested í hlutverkum sín um í óperunni. j. MEELDSQLUBIRGÐIR:BIRGÐASTÖÐ SÍS REVKJAVÍK, EGGERT KRISIJÁNSSON REYKJAVÍK, HEILDVERZL.VALÐIMARS BALDVINSSONAR AKUREVRI. s s s s s s s s s s s s s s V s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s g 18. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.