Alþýðublaðið - 18.02.1967, Page 14

Alþýðublaðið - 18.02.1967, Page 14
Firmakeppni Framhald af bls. 11 IjO. Skósalan Laugvegi 1. 11. Dráttarvélar h.f., Suðurlands- braut 6. 12. Klúbburinn, Lækjarteigi 2. 13. Birkiturninn, Hringbraut /Birkimel. 14. Ölgerð Egill Skallagrímsson, Ægisgötu 10. 15. Ferðaskrifstofa Saga, Ingólf- stræti. 16. Heildverzlun Þórhalls Sigur- jónssonar, Þingholtsstræti 11. Af 189 fyrirtækjum er þátt itóku í keppninni eru aðeins þessi sextán eftir. Búast má við mörgum jöfnum og hörðum leikj um, því keppendur hafa verið •dregnir saman til að ná sem jöfn ustum leikjum, til þess að fyrir- tækin hefðu sem jafnasta mögu- leika til sigurs. Verðlaun verða afhent á árshátíð félagsins sem haldin verður um kvöldið í fé- lagsheimilinu í Kópavogi -niðri) og hefst hún kl. 8,30. Skorað er á félagsmenn að mæta á árshá- tíðina. (Allar laugardagsæfingar falla niður). ÍR vann Framhald 11. síðu. þeim mjög vel. Þeir náðu oft góðum hraðupphlaupum, sem í eina tíð var helzta vopn liðsins. Beztur í liði ÍR var Birgir Ja- kobsson, sem skoraði 22 stig og var, ásamt Agnari og Hólmsteini, ágætur í vörn. Af öðrum í lið inu sýndi Jón Jónasson beztan leik. Honum hefur farið mikið fram og er orðinn einn af okkar beztu bakvörðum. Hjá KFR var Marinó beztur. Ilann, Einar og Ólafur eru mátt- arstólpar liðsins, en þótt hinir ungu leikmenn liðsins standi þeim enn nokkuð að baki hafa þeir tekið miklum stakkaskiptum frá því í fyrra, og haldi sem stefnir, er mikils að vænta af þessu liði. Dómarar í leiknum voru Krist- björn Albertsson ÍKF og Hall- grímur Gunnarsson Á. t KR-.ÍKF 80:39 Fr.á upphafi leiksins var mun- urinn á getu liðanna slíkur, að aldrei var um neina keppni að ræða. KR-ingar tóku þegar í sín- ar hendur öll völd og skoruðu hvað eftir annað hjá ÍKF, án þess að um verulega mótspyrnu væri að ræða. Komst KR fljótlega í 22:14 og var þar aðallega að verki Kolbeinn Pálsson, sem ,„stal“ mörgum boltum af ÍKF og skauzt upp völlinn og 'skoraði. í seinni Iiluta hálfleiksins tóku ÍKF-menn á sig rögg og skoruðu 10 stig gegn 10 stigum KR-inganna ug var stað an í hálfleik 32:14. Í^síðari hálfleik héldu KR-ing- ar uppteknum hætti og juku stigamismuninn jafnt og þétt. Lokastigin urðu 80 gegn 39, KR , í vil. Einar og Kolbeinn voru beztu menn KR liðsins að þessu sinni pg voru jafnframt stigaliæstir. Veikti það liðið mikið, að þá Gunnar Gunnarsson og Kristin Stefánsson vantaði, en þeir eru báðir rúmfastir. Stöðu Kristins sem miðherji hefur Ágúst Svav- 14 18. febrúar 1967 - ALÞÝÐUI arsson tekið, hávaxinn og efnileg ur leikmaður, sem greinilega á eftir að ná langt í þessari íþrótt, leggi hann sig fram. Hjá ÍKF bar mest á Friðþjófi og Hilmari, en Ingi Gunnarsson stjórnaði liði sínu af röggsemi. Einnig vakti Helgi Hólm athygli fjTir ágæta frammistöðu sína. Hólmsteinn Sigurðsson ÍR og Davíð Jónsson Á dæmdu þennan leik vel, en leikur þessara liða hefur um árabil verið helzti höf- uðverkur ikörfuknattleiksdómara, ýmissa hluta vegna. Bogi Þorsteinsson, formaður KKÍ, útskýrði leikina fyrir áhorf- endum og setur sú nýbreytni mjög skemmtilegan svip á keppn- ina, auk þess að vera nauðsynleg þeim, sem ekki þekkja reglurnar til hlítar. AÖalfundur Fram Aðalfundur Knattspyrnufélags- ins Fram verður haldinn í félags- heimilinu laugarda'ginn 25. febrú- ar n,k. og hefst kl. 14. Venjuleg aðalfunda’rstörf. — Stjórnin. Knattspyrnudeild U.B.K. heldur spila- og skemmtikvöld sunnudag- inn 19. febrúar kl. 8.30 í Æsku- lýðsheimili Kópavogs Álfhólsvegi 32. Fjölmenniö og mætið stund- víslega. Nefndin. §Cína Framhald af 2. síðu. um stuðningsmanna og andstæð- inga Maos á svæði einu í Tíbet. Enn berast fréttir af andstöðu gegn Mao í Shanghai. Sagt er að valdatöku stuðningsmanna Maos í borginni sé ekki lokið og bráða- birgðastjórn sé við völd í Shang- íhai. ★ BÓKUM ÚTRÝMT Rauðir varðliðar hafa tekið að sér stjórn stærstu vöruverzlunar- innar í Peking og sett fyrrverandi yfirmenn stofnunarinnar í að þvo gólf og gera hreint í byggingunni. Tass hermir, að rauðu varðlið- arnir í Kína haldi áfram að eyði- leggja erlendar bókmenntir í stór um stíl. Fólk, sem nýkomið er frá Peking, kveðst hafa séð endalausar raðir burðarkerra fullar af bókum eftir Púsjkin, Sjolokov, Balzac, Romain, Rolland og Dickens. Öll- um bókunum var ekið til pappa- verksmiðju. Útgáfu allra bóka nema verka Maos hcfur verið hætt i Kína. Lesendum er aðeins boðið upp á andsovézka pésa, ögrandi flugu- miða ogr ssföld, segir Tass. Hæra? . Framhald af 1. síðu. á rekstri málsins að rjúka með það fyrst í blöðin og kveða upp á- fellisdóm fyrirfram yfir stofnun inni og reyna þannig að gera þetta að æsingamáli. Grænmetisverzlun landbúnaðar- ins vill að sjálfsögðu eiga sem bezt samstarf við viðskintamenn sína, kaupmenn og neytendur, og reyna eftir megni að koma til móts við óskir þeirra. í þessu sam bandi er ástæða til að taka fram, að forráðamenn Neytendasamtak anna hafa ekki íeitað eftir slíku samstarfi. Stjórn Grænmetisverzlunarinnar hefur nú til athugunar, hvort þess skuli krafizt að forstöðumenn Neyt endasamtakanna verði látnir sæta ábyrgð fyrir óréttmæta árás á hendur stofnuninni. Þrír undir Framhald af 1. síðu. prestur, og af þeim hafa 23 náð sjötugsaldri, 32 eru milli sextugs og sjötugs, 27 á sex- tugsaldri, 30 milli fertugs og fimmtugs, 41 milli þrítugs og fertugs og 3 innan við þrítugt. Yngstur prestvígðra manna er séra Sigfús Jón Árnason, fædd ur 1938. Lögff ræðs ngaf élag Framhald af 3. siðu. það verði viðurkennt sem samn- ingsaðili fyrir hönd háskólamanna í þjónustu hins opinbera. Lögðu frummælendur áherzlu á, að Lög- fræðingafélagið veitti bandalag- inu fullan stuðning í baráttu þess fyrir áhugamálum sínum, Að framsöguræðum loknum tóku til máls Hrafn Bragason dóm arafulltrúi og formaður félagsins, Þorvaldur Garðar Kristjánsson. Að lokum voru kosnir fulltrúar í fulltrúaráð Bandalags háskóla- manna. AB-bék Framhald af 2. síðu. anlegra ljósmynda" eins og þýð- andinn segir. Engar tvær lífverur FRÉTTIR í STUTTU MÁLI ★ STÓRSÓKN í VIETNAM , □ í viðtali við „New York Times“ í dag bauðst Hailes Selassie Eþí- ópíukeisari til að fara til Hanoi að miðla málum í Vietnamdeil- unni. □ í Saigon var frá því skýrt, að hersvqitir Saigonstjórnar hefðu fellt 100 hermenn Vietcong á sömu slóðum og Suður-Kóreuher- menn felldu 243 hermenn úr hin- um reglulega her Norður-Viet- nam fyrir tveimur dögum. Bardag- ar þessir fóru fram á austurströnd Suður-Vietnam, þar sem hafin er stórsókn gegn Norður-Vietnam- hersveitum og Vietcong. □ Bandar.skar flugvélar hafa sett nýtt met í loftárásum á hermenn Vietcong. Níu stórfelldar loftárás ir voru gerðar á ýmsar stöðvar Vietcong á 30 tímum. □ Sífellt fjölgar þeim sem strjúka úr liði Vietcong. 3.465 Vietcong- menn svikust undan merkjum frá 1. jan. til 11. febrúar, 1822 fleiri en á sama tíma í fyrra. eru eins, en í bókinni fyl'gist les- andinn stig af stigi með þeim margslungnu athöfnum, sem liggja að baki vaxtar og þroska, og ber þá margt forvitnilegt á góma. Fullyrða má, að Vöxtur og þroski hafi að geyma ótrúlega mik ið af þeirri þekkingu, sem varðar hvem mann, jafnt gamlan sem ungan. Þar geta foreldrar leitað margrar hagnýtrar fræðslu við lausn uppeldislegra vandamála, og ugglaust getur æskulýðurinn einnig að sínu leyti lært þar heil- mikið — um foreldra sína. í Vexti og- þroska er talsvert á annað hundrað mynda, þar á með- al um föötíu litmyndasíður. Rit- stjóri Alfræðasafns AB er Jón Eyþórsson veðurfræðingur. Ég flyt öllum hjartans þakkir, sem cg á gott að þakka á Iífs leið' minni, og þá einnig og ekki sízt alla elskusemina á áttræðis afmælinu. Guðbrandur Magnússon. Eiginmenn og unnustar! MUNIÐ KONUDAGINN BLÓMASKÁLINN viö Nýbýiaveg, Laugavegi 63 og Vesturgötu 54. TOYOTA CORONA Glæsilegur og traustur einkabíll með frábæra ökuhæfileika. Innifalið í verði m.a. 74 HA. VÉL — SÓFASTÓLAR — ALTERNATOR GÓÐ MIÐSTÖÐ — TOYOTA RYÐVÖRN ÞYKK TEPPI — BAKKLJÓS — RÚÐU- SPRAUTA. Japanska bifrelöasalan hff. Ármúla 7 — Sími 34470. Systir mín ELÍNBORG AÐALBJARNARDÓTTIR kennari, Hjarðarliaga 30, andaðist 16. febrúar Fyrir hönd vandamanna SIGRÚN AÐALBJARNARDÓTTIR.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.