Dagur - 28.03.2000, Blaðsíða 8
II
8- ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2000
ÞJÓÐMÁL
rD^ftr
ÞRIÐJUDAGU R 28. MARS 2000 - 9
FRÉTTIR
Lottóhagn aður hristir upp í
GEIR A.
GUÐSTEINS
SON
SKRIFAR
íþróttaþing íþrótta- og
ólympíusambands ís-
lands var haldið um
helgina á Akureyri,
það 2. í röðinni eftir
sameiningu ÍSÍ og Óí.
Helstu mál þingsins
voru samþykkt tillögu
um að stefna að því að
koma ÍSÍ og UMFÍ í
ein samtök, sem var
„sáttatillaga“ eftir
mikil átök um skipt-
ingu Lottótekna; sam-
þykkt tillögu um nýja
dómstóla íþróttahreyf-
ingarinnar og nýja af-
reksstefnu ÍSÍ.
íþróttaþing samþykkti að fela
framkvæmdastjórn ISI að stofna
sérsamband um dansíþróttina,
Dansíþróttasamband Islands
(DSI). Samþykkt var ályktun um
að óska eftir auknum fjárstyrkj-
um frá Alþingi til íþróttahreyfing-
arinnar, en um miðjan febrúar
sótti ÍSI um 150 milljóna króna
styrk á fjárlögum 2001 til sérsam-
bandanna. Rekstur sérsambanda
ÍSÍ kostar um 550 milljónir króna
á ári. Þá var á þinginu samþykkt
að beina því til sambandsaðil-
anna að þeir hlutist til um að öll
tóbaksnotkun verði bönnuð í
íþróttamannvirkjum sem tengjast
íþróttasvæðum og félagsheimil-
um. Alloft reyndi á þingforsetana,
þvf oftar en ekki var tekist á um
fundarsköp, atkvæðagreiðslur
o.fl. Við setningu þingsins, m.a.
að viðstöddum forseta Islands,
var Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra sæmdur heiður-
skrossi ISI og sá heiður féll ein-
nig í skaut sundkappanum fyrr-
vcrandi, Sigurði „Þingeyingi"
Jónssyni frá Ystafelli. Fimm
menn sem hafa unnið íþrótta-
hreyfingunni ómetanlegt og fórn-
fúst starf í gegnum tíðina, þeir
Sigurður Magnússon í Reykjavík
og Akureyringarnir Haraldur Sig-
urðsson, Haraldur M. Sigurðs-
son, Haraldur Helgason og Rafn
Hjaltalín, fengu heiðursviður-
kenningar frá ISI.
Hurðarás uni öxl
Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ,
sagði m.a. við setningu þingsins
að það væri engin launung að það
íþróttafólk sem skaraði fram úr í
dag krefðist greiðslna og ívilnana
fyrir þátttöku sína og þannig
reistu íþróttafélögin sér oft
hurðarás um öxl. Þess vegna hafa
mörg íþróttafélög, eða eru að
undirbúa stofnun rekstrarfélaga
eða hlutafélaga, sem Ellert telur
því miður að gæti verið eins og að
tjalda til einnar nætur. Iþróttirnar
dragi dám af þróun samfélagsins
og atvinnumennska og peninga-
greiðslur í einu eða öðru formi til
íþróttafólks og starfsmanna væri
kannski í ætt við þá nýju stefnu
um árangurstengd laun. „Sú tíð
er liðin þegar íslensk heljarmenni
gátu hrist af sér timburmennina,
bitið í skjaldarrendur og varpað
kúlum og kringlum lengra en aðr-
ir. Þeir tímar eru liðnir þegar
knattspyrnuleikir unnust með því
að sparka í rassgatið á leikmönn-
um og æpa, berjast strákar! Nú er
það frammistaðan í samanburði
við alþjóðavettvang sem gildir, og
hún kemur ekki af sjálfu sér held-
ur kostar þrotlausar æfingar, ein-
beitingu, sálrænan og líkamlegan
undirbúning, og peninga. Þessi
þróun lendir af fullum þunga á
þeim félögum sem hafa metnað
til að bera til að vera í fremstu
röð, og ekki síður sérsamböndun-
um sem hafa samböndin við út-
lönd á sínum snærum, tefla fram
landsliðum og bera allan kostnað
af æfingum og undirbúningi af
alþjóðamótum. Það er hér sem
alvarlegasti vandi íþróttahreyfíng-
arinnar blasir við, það er hér sem
skóinn kreppir. Tekjur af Lóttói
fara minnkandi og íþróttafélögin
eiga í vaxandi samkeppni við
menningu og listir sem í seinni
tíð hafa sótt styrki til atvinnulífs-
ins. Þær raddir verða háværari
hvort ekki væri sanngjarnt að
þjóðin kæmi til móts við þarfir
sérsambandanna í þessum efn-
um.“
Hlutur héraðssambanda
lækkaður imi 85%?
Fyrir fþróttaþingi lágu margar til-
lögur, m.a. tillaga frá ÍBR, ÍBH
og IBA um breytingar á skiptingu
Lottóhagnaðar til þess að koma
fram leiðréttingu á því misræmi
sem þau telja að sé á úthlutun-
inni. Lagt var til að 8% framlag til
Afreksmannasjóðs ÍSI, 5% fram-
lag til ÍSÍ og 17% framlag í út-
breiðslustyrk yrði óbreytt en af af-
ganginum - 70% - færi 55% til
héraðssambanda og íþrótta-
bandalaga og 45% til sérsam-
banda. Hlut héraðssambanda
yrði skipt þannig að 12% skiptist
jafnt milli þeirra en 88% eftir
íbúatölu. Þó yrði hlutur héraðs-
sambanda með aðild bæði að ÍSÍ
og UMFÍ lækkaður um 85%, en
nú er 22% skerðing á viðkomandi
héraðssambönd. Flutningsaðildar
töldu óviðunandi að lítið félag
sem bæði væri aðili að ÍSÍ og
UMFI fengi miklu meira fjár-
magn á hvern iðkanda heldur en
stórt félag sem aðeins er aðili að
ÍSÍ. Auk þess úthluti UMFÍ engu
til Afreksmannasjóðs eða sérsam-
banda.
Hefði tillagan fengið samþykki
hefði hlutur héraðssambandanna
sem fluttu tillöguna hækkað sam-
tals úr 35,3 milljónum króna upp
í 41,7 milljónir króna. A hinn
bóginn hefðu t.d. tekjur UMSK,
sem m.a. er með Breiðablik í
Kópavogi innan sinna vébanda,
Iækkað úr 1 5,1 milljón króna nið-
ur í liðlega 10 milljónir króna.
Mikið fjaðrafok varð við fram-
Iagninu tillögunnar, jafnvel þó
svo hún hefði Iegið fyrir sl. þrjár
vikur. Framsögumaður tillögunn-
ar, Reynir Ragnarsson, formaður
ÍBR, sagði að þetta misræmi yrði
að jafna og 22% skerðing á hér-
aðssambönd sem einnig fengju
lottóframlag frá UMFI væri eng-
an veginn næg, en hann gerði sér
grein fyrir að þessar breytingar
kæmu misjafnalega niður að á
félögunum.
Valdimar Leó Friðriksson, for-
maður UMSK, sagði samþykkt
þessarar tillögu ekki koma til
greina, tekjutap UMSK yrði um 4
milljónir króna hennar vegna,
það riðlaði allri starfsemi sam-
bandsins, og það væri einfaldlega
óásættanlegt. Eftir nokkurt orða-
skak í ræðustóli, sem og úti í sal,
lagði Valdimar til að tillögunni
yrði vísað frá. Þá gerði þingfor-
seti, Kristján Þór Júlíusson, fund-
arhlé, meðan leitað var sátta um
Valdimar Leó Friðriksson: Hefði til-
iagan náð fram að ganga hefðu öll
héraðssamböndin yfirgefið þingið.
framhaldið, og má segja að Ioft
hafi verið mjög rafmagnað. Ekki
síst vegna þess að hvisast hafði að
ef tillagan yrði samþykkt myndu
fulltrúar þeirra héraðssambanda
sem einnig eru innan vébanda
UMFÍ, yfirgefa Iþróttaþing, og
þannig í raun kljúfa ÍSÍ, aðeins
tveimur árum eftir að það sam-
einaðist Olympíusambandi Is-
lands. Eftir drykklanga stund
samþykkti Valdimar með semingi
að falla frá frávísunartillögu og að
tillagan læri til fjárhagsnefndar,
sem taka átti til starfa strax að
þingfundi Ioknum á föstudags-
kvöldið.
Miimkandi lottdtekjur
Það er áhyggjuefni forsvars-
manna Islenskrar getspár í dag að
tekjur hafa farið minnkandi af
Lottóinu og þar með sé minna til
skiptanna. Fjárþörfin er hins veg-
ar síst minni í dag en áður. Tekj-
ur Lottós voru á síðasta ári 1
milljarður og 70 milljónir króna.
Starfsemi tslenskrar getspár hófst
1986, og fyrsta starfsárið, en það
hefst 1. júlí ár hvert, voru tekj-
urnar tæplega 800 milljónir
króna. Þær fóru f liðlega 1,2
milljarða króna 1987/1988 og
nær 1,4 milljarða króna
1993/1994, fyrsta árið sem Vík-
ingalottó starfaði. Síðan hefur
tekjuleiðin legið niður á við, en
inn í tekjur Islenskrar getspár
hafa bæst síðan Kínó ogjóker.
Heggur sameining ÍSÍ og
IJMFÍ á hinitiim?
A laugardagsmorgni var svo lögð
fram tillaga fjárhagsnefndar um
Reynir Ragnarsson: Með þessu
erum við að samþykkja frestun í
tvö ár og gefa mönnum kost á að
vinna sína heimavinnu.
úttekt á hagkvæmni þess að sam-
eina ISl og UMFI þannig að ein
heildarsamtök hafi yfirumsjón
með íþróttastarfsemi í landinu.
Leiði úttektin til þess að sú sam-
eining sé hagkvæm, með tillliti til
heildarhagsmuna íþróttahreyfing-
arinnar að leiðarljósi, skal fram-
kvæmdastjórn ISÍ hefja samn-
ingaviðræður við stjórn UMFI
með það að leiðarljósi að hægt
verði að leggja fram tillögu til af-
greiðslu á næsta þingi UMFÍ og
næsta íþróttaþingi ÍSÍ um sam-
einingu UMFI og ISI. Fjárhags-
nefnd taldi vel koma til greina að
skoða reglur um skiptingu lottó-
hagnaðar, en Ijóst væri að þær
muni hafa áhrif að fjárhagsstöðu
héraðssambanda og íþróttabanda-
laga. Því sé nauðsynlegt að skoða
hvort hægt sé að ná fram hagræð-
ingu í rekstri íþróttahreyfingar-
innar í heild, t.d. með sameiningu
ÍSÍ og UMFI. í umfjöllun nefnd-
arinnar kom fram að tillagan nyti
stuðnings 9 héraðssambanda.
Einnig Iýstu flutningsmenn lottó-
tillögunnar, þ.e. IBR, IBH og
IBA, því yfir að yrði tillagan um
úttekt á hagkvæmni þess að sam-
eina ÍSÍ og UMFI samþykkt,
drægju þeir sína tillögu til baka,
enda yrði tíminn fram að næstu
þingum UMFÍ og ÍSÍ vel nýttur í
þessu máli. Það gekk svo eftir.
Útgöngu hótað
Valdimar Leó Friðriksson, for-
maður UMSK, sagði að samþykkt
tillögunnar hefði þýtt 4,2 milljóna
króna tekjuskerðingu og gífurlega
röskun á allri starfsemi aðildarfé-
laga UMSK. „Það er ekki hægt að
koma á Iþróttaþing með tillögu
sem kippir fótunum undan starf-
semi UMSK og félaga innan þess.
Þetta hcfði orðið um 25% tekju-
skerðing fyrir aðalstjórn Breiða-
bliks."
Hrikti istarfsemi ÍSÍ vegna þess-
arar tillögu?
„Hefði tillagan náð fram að
ganga hefðu öll héraðssamböndin
yfirgefið þingið. Við vorum allan
tímann að reyna að ná liðlega
þriðjungi atkvæða til þess að fella
tillöguna ef til atkvæðagreiðslu
kæmi, og ég tel að sérsamböndin
hafi verið komin inn á það þegar
tillagan um sameiningu UMFI og
ISI kom fram. Það hefur oft verið
rætt, en aldrei komið fram í al-
vöru fyrr en nú. LóttótiIIagan
mun koma aftur fram verði ekkert
gert í málinu, því þeir eru ósáttir
sem eiga hlut í lottóinu aðeins á
öðrum staðnum. Erfiðara rekstr-
arumhverfi krefst þess einnig að
þetta sé skoðað, ekki síst vegna
þess að starfsemi félaga breytist
sem og félagatalan," sagði Valdi-
mar Leó Friðriksson.
Menn vissn ekkert um hvað
málið snérist
Reynir Ragnarsson, formaður
IBR, segist sáttur við störf þings-
ins í heildina. Reynir segist aldrei
hafa búist við því að flutnings-
menn lottótillögunnar ynnu fulln-
aðarsigur í því máli, og undir niðri
hafí hann verið viss um að fara
yrði einhvern meðalveg, semja
um einhverja málamiðlun.
„Með þessu erum við að sam-
þykkja frestun í tvö ár og gefa
mönnum kost á að vinna sína
heimavinnu og við náum sameig-
inlegri lendingu innan næstu
tveggja ára. Það var augljóst í öll-
um umræðum um tillöguna að
menn vissu bókstaflega ekkert um
hvað málið snérist. Menn hafi
greinilega ekkert sett sig ofan í
það hvernig þessum tekjum er
skipt, hvað menn eru að fá og
hvort þessum tekjum sé réttlát-
lega skipt. Það má eiginlega segja
að það sé aðeins hálfleikur í þessu
máli. En umræðan var til góðs.“
Á þinginu var samþykkl tillaga
um nýskipan dómstóla ÍSÍ. Ertu
sáttur við þá niðurstöðu?
„Það hefði þurft að vinna það
mál betur áður, en gott mál þegar
til lengri tíma er litið og einfaldar
þetta. Þetta hefur verið ákveðið
álag á okkur í Reykjavík þar sem
fíest mál hafa byrjað þar og við í
vandræðum að fá menn í dóm-
inn,“ sagði Reynir Ragnarsson.
Formaður UMFÍ vHl ekki
samemingu
Segja má að Þórir Jónsson, for-
maður UMFI, hafi gefið tóninn
hvað varðar sameiningu ISI og
UMFI, og ekki verið í neinum
sameiningarhug, þegar hann
sagði við setningu Iþróttaþings að
markmið UMFI sé ræktun lýðs og
lands. Þegar talið barst að hug-
myndum um hugsanlega samein-
ingu ISI og UMFI sagðist hann
ekki vilja tala á neinum hugljúf-
um nótum. Afstaða framkvæmda-
stjórnar UMFl væri skýr, ekki
væri á dagskrá ungmennafélags-
hreyfingarinnar að ganga til sam-
einingarviðræðna við ISt, en ung-
mennafélagar væru alltaf tilbúnir
til samstarfs. Þess má geta að ÍBR
hefur sótt um aðild að UMFÍ.
Sambandsþing UMFÍ, sem haldið
var á Tálknafírði, taldi að lög ÍBR
væru ekki í samræmi við lög
UMFÍ og ÍBR hefði ckki fylgt
sínu máli eftir af áhuga. Það hefði
hest sýnt sig að IBR hefði ekki
þegið boð UMFI um að sitja sam-
bandsþing UMFI og ávarpa það.
Því væru ekki forsendur fyrir því
að samþykkja erindi ÍBR.
Endurkjör
Þeir sem sæti áttu í framkvæmda-
stjórn ÍSI, og gáfu kost á sér til
endurkjörs, náðu kjöri. Nýr mað-
ur í framkvæmdastjórn er Engil-
bert Olgeirsson HSK. Frambjóð-
andi frá Golfsambandinu náði
ekki kjöri, og voru golfarar veru-
lega ósáttir við jrað. Ellert Schram
var endurkjörinn forseti án mót-
framboðs. Til stóð að nota lottó-
vél til þess að telja atkvæði við
stjórnarkjör, en það heppnaðist
ekki og var gamla og góða talning-
araðferðin notuð. -GG
Revkjavík í
nordur suður
Reykj avíkurkj ðrdæmi
verður skipt í tvenut
og það eru Hringbraut
- Miklabraut og Vest-
urlandsvegur sem
verða kjördæmamörk-
in. Homafjörður til-
heyri Suðurkjördæmi.
í vikunni mun kjördæmanefndin
skila af sér tillöu til Alþingis um
hvernig endanleg kjördæmaskip-
an verður eftir breytinguna sem
tekur gildi við næstu alþingis-
kosningar. Eina breytingin frá
því sem áður hefur verið skýrt frá
í Degi er sú að Reykjavíkurkjör-
dæmi eigi ekki að skiptast í aust-
ur-vestur kjördæmi heldur norð-
ur-suður. Mun þá Hringbraut -
Miklabraut og Vesturlandsvegur
skipta borginni í tvö kjördæmi.
Eins og Dagur hefur áður skýrt
frá leggur kjördæmanefndin til
að Hornafjörur verði með svo
kölluðu Suðurkjördæmi sem nær
þá frá Lóni og að Reykjanestá.
Hornfirðingar óskuðu sjálfír eftir
því að tilheyra þessu kjördæmi.
Aðrar breytingar eru ekki lagðar
til og er nærri víst að tillaga
nefndarinnar muni ná fram að
ganga þótt búist sé við að ein-
staka þingmenn leggi fram breyt-
ingartillögur.
SamfylMng á móti
Guðmundur Arni Stefánsson á
sæti í kjördæmanefndinni. Hann
sagðist hafa kannað hug þing-
flokks Samfylkingarinnar um
þetta mál og þar hefði komið í
ljós að meirihluti þingflokksins
vill að Hornafjörður tilheyri
austurkjördæminu. Þá sagðist
hann eiga von á að þingflokkur
VG verði með fyrirvara og breyt-
ingartillögur. •
Nú stendur yfír' svo kölluð
nefndavika á Alþingi og eru þá
engir þingfundir haldnir. Samt
sagði Guðmundur Arni að tillög-
ur ncfndarinnar yrðu lagðar
fram vegna þess að það þarf að
gera fyrir 1. apríl. Astæðan er sú
að hefð er fyrir því að leggja ekki
ný frumvörp fram þegar innan
við 6 vikur cru til þingfrestunar
nema með algerunt undantekn-
ingum. -S.DÓR
Markmaðuriim að
gera skyldu sína
Héraðsdómur Reykjaness sýkn-
aði á föstudag markvörðinn
Gunnar Berg Runólfsson frá
Vestmannaeyjum, sem gefið
hafði verið að sök Iíkamsárás í
knattspyrnuleik milli HK og IBV
í íþróttahúsinu Digranesi 30.
janúar 1999, með því að hafa
„hlaupið 6-9 metra út frá rnark-
inu að Villy Þór Olafssyni, leik-
manni HK sem lék í átt að mark-
inu, rennt sér harkalega í fæt-
urna á honum og komiö höggi á
miðjan hægri sköflung hans,
með þeim afleiðingum að fót-
leggurinn þverbrotnaði".
I niðurstöðum fjölskipaðs
dómsins segir meðal annars að
ákærði hafi haft fulla stjórn á
tæklingunni og að sú staðhæfing
í ákæru, að ákærði hafi hlaupið
6-9 metra út frá marki sfnu að
Villy Þór, fái ekki staðist. Dóm-
urinn taldi sannað að ákærði
hafi verið of seinn í tæklinguna
og að það hafi orðið til þess að
Villy Þór slasaðist. A hinn bóg-
inn hefði ekkert fram komið sem
benti til þess að ákærði hafi
rennt sér fyrir Villy Þór með
þeim ásetningi að valda honum
líkamstjóni. Þó töldu vitni hann
hafa fagnað ógurlega eftir atvik-
ið.
Handteknir á staðnum?
„Vegna einkenna og eðlis knatt-
spyrnu er leikmönnum talið
heimilt að beita nokkurri hörku
til að stöðva mótherja og ná af
honum knetti þótt því fylgi iöu-
lega nokkur hætta fyrir hann,“
segja dómararnir en Ijóst að
skriðtækling markmannsins var
ólögleg samkvæmt knattspyrnu-
lögum. En þeir töldu að ákærði
hefði átt „raunhæfa möguleika á
að ná til knattarins, enda bar
honum sem markverði skylda til
að reyna að verja mark sitt“.‘Ekki
hafi verið „óforsvaranlegt af
ákærða að reyna að ná til knatt-
arins og háttsemi ákærða eigi svo
ófyrirséð með hliðsjón af að-
stæðum, að Villy Þór hafi eigi
mátt búast við henni“.
Þess má geta að í Bretlandi
hefur lögregla tekið þá sjálf-
stæðu ákvörðun, vegna atviks í
Ieik Wolves og Nottingham For-
est, þar sem tveir leikmenn lentu
í alvarlegum handalögmálum, að
hér eftir verði menn handteknir
á staðnum sem uppvísir verða að
ámóta árásum og þar átti sér
stað. - FÞG
I