Dagur - 11.04.2000, Síða 1
Hætt við hótel
vegna fj ár skorts
Júlíus Hafstein: Fékk 340.000 kr.
relkning en vill borga 100.000 kr.
Lítil arðsemi hótela.
Fjárfestar halda að
sér höndiun. 100 her-
bergja Fosshótel sleg-
ið af. Óvíst með
stækkun á Grand hót-
eli. Opinherir sjóðir
styðja landshyggð.
Vegna fjárskorts verður ekkert af
því að nýtt 100 herbergja Foss-
hótel verði tekið í notkun í sum-
ar að Suðurlandsbraut 12 eins
og gert var ráð fyrir. Þá hefur
gengið erfiðlega að fá fjármagn í
fyrirhugaða stækkun á Grand
hótel um 100 ný herbergi og
sömuleiðis við endurbætur á
Hótel Mar við Brautarholt.
Astæðan fyrir þessu bakslagi
er tregða fjárfesta við að leggja fé
í hótelbyggingar vegna lítillar
arðsemi þeirra. Að öllu óbreyttu
er viðbúið að enn frekari hót-
elskortur verði í höfuðborginni
en verið hefur sé tekið mið af sí-
vaxandi fjölda er-
lendra ferðamanna
hingað til lands,
eða um 10% á ári.
Lítil arðsemi
Aætlaður kostnað-
ur við Suðurlands-
braut 12 var um
650 miljónir króna
og talið er að
stækkun á Grand
hóteli kosti 800 -
900 miljónir
króna. Þess í stað
er ætlunin að brey-
ta Suðurlandsbraut 12 í skrif-
stofu- og verslunarhúsnæði.
Þessi breyting hefur valdið Foss-
hótelum nokkrum vandræðum
og fjárútlátum því þegar var byrj-
að að bóka og auglýsa hótelið
fyrir sumarið. Arðsemi hótel-
bygginga er talin vera um 9% en
þyrfti að vera 15 - 20%. Þorleifur
Jónsson hagfræðingur hjá Sam-
tökum ferðaþjónustunnar segir
að ástæðan fyrir
Iítilli arðsemi sé
m.a. vegna þess að
verð á hótelgist-
ingu sé í alþjóð-
legri samkeppni og
því ekki unnt að
hafa þau mikið
hærri en gengur og
gerist á alþjóða
markaði. Á sama
tíma sé allur
rekstrarkostnaður
hár, Iitlar einingar
og dýrt fjármagn.
Verulegt áhyggjuefni
Olafur H. Magnússon fram-
kvæmdastjóri Fosshótela segir að
sl. haust hefðu þeir gert samning
við eigendur Suðurlandsbrautar
12 um að leigja væntanlegt hótel
til 20 ára. 1 febrúar sl. hefðu
komið í ljós erfiðleikar eigenda
við að fá fjármagn til að breyta
húsnæðinu. Þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir síðan þá hefur ekki tek-
ist að fá fjárfesta til að leggja fé í
hótelið. Hann segir að það sé
verulegt áhyggjuefni fyrir ferða-
þjónustuna að ekki skuli vera
hægt að fá Ijármagn inní þessa
grein sem stafar af slakri arðsemi
á undanförnum árum. Hann
segir að rótin að þessum vanda
sé m.a. sú gengisþróun sem átt
hefur sér stað að undanförnu.
Sem dæmi bendir hann á að frá
því verð var ákveðið fyrir ári síð-
an hefur gengið lækkað um 13%
sem hefur komið sér mjög illa
fyrir afkomu ferðaþjónustunnar.
Afþeimsökum vilji menn teng-
ja krónuna við evruna. A sama
tíma og afkoman er ekki sem
skyldi koma um 13% af útflutn-
ingstekjum þjóðarinnar úr ferða-
þjónustunni, eða 25-30 miljarð-
ar króna. Aðeins sjávarútvegur-
inn gefur meira af sér.
-GRH
Aðild yrði
mjög dýr
I skýrslu sem Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra hefur látið taka
saman um stöðu Islands í Evrópu-
samstarfi eru vegnir og metnir
kostir þess íyrir okkur íslendinga
að standa áfram utan Evrópusam-
bandsins eða að gerast aðildarríki.
Það sem ef til vill kemur mest á
óvart er hversu dýrt það yrði fyrir
ísland að gerast aðildarríki eða 7-
8 milljarðar króana á ári umfram
það sem nú er greitt vegna EES
samningsins. I skýrslunni segir
m.a. um sjávarútvegsþáttinn: „ Ef
ísland yrði aðili að ESB flyttist
ákvarðanataka í mikilvægum mál-
um til stofnana Evrópusambands-
ins, s.s. ákvörðun leyfilegs heildar-
afla og stjórnun veiða úr flökku-
stofnum á borð við úthafskarfa,
kolmunna og norsk-íslenska síld.
Undanþága sú sem fékkst í EES-
samningi frá fjárfestingafrelsi í
sjávarútvegi yrði torsótt svo ekki
sé meira sagt.“
Sjá ítarlega umjjöllun á bls. 8-9
Veðrið hefur leikið við landsmenn síðustu daga og virðist svo sem vor sé víða í lofti. Norðan heiða er því þó spáð
að veturinn geri vart við sig á ný. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir að krakkarnir hafi tekið fram hjólin og þeg-
ar krakkarnir eru farnir að hjóla er vorið alla jafna ekki langt undan. -mynd brink.
Listamenní
mál viö kristni
hátíðamefhd
Hilmar Jónsson leikstjóri og Finnur
Arnar Arnarsson leikmyndateiknari
hafa stefnt kristnihátíðarnefnd og
íslenska ríkinu til greiðslu á rúm-
lega 340 þúsund krónum vegna
vinnu sem þeir inntu af hendi við
útfærslu hugmyndar um sérstaka
„sögugöngu" á kristnihátíðinni.
Júlíus Hafstein framkvæmda-
stjóri kristnihátíðarnefndar hafnaði
hugmynd þeirra að sögugöngu og
neitaði að borga uppsettan reikn-
ing á þeirri forsendu að hann væri
allt of hár. Bauðst hann til að
greiða þeim félögum saman 100
þúsund krónur. Málið var tekið íyr-
ir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær
og ekkert útlit með sættir og má því
búast við að aðalmeðferð málsins
fari fram á næstu vikum og að
dómur verði kveðinn upp þegar
nær dregur hátíð.
Barátta góðs og ills
Stefnendur vildu ekkert tjá sig um
málið í gær. Júlíus Hafstein segir
hins vegar að um sé að ræða
ágreining um reikning. „Þeir vilja fá
340-350 þúsund krónur lýrir viðvik
sem við báðum um, sem okkur
finnst allt of hátt. Við buðum þeirn
100 þúsund krónur“.
Júlíus segir að sættir hafi ekki
náðst og því sé niðurstaðan sú að
þriðji aðili verði að skera úr um
málið. „Við báðum þá um að skoða
hugmynd okkar urn sögugöngu á
kristnihátíðinni, þar sem lýsa skyldi
sögu þjóðarinnar í 1000 ár. Þeir
vildu koma með aðra tillögu og við
samþykktum að fá frá þeim stutta
greinargerð. Þeirra hugmynd var að
lýsa baráttu góðs og ills. Okltur leist
einfaldlega ekki á hugmynd þeirra
og horfið var frá frekara samstarfi.
Það er engin vonska í málinu af
okkar hálfu, heldur eingöngu
ágreiningur um upphæð reikn-
ings,“ segir Júlíus.
I kristnihátíðarnefnd eiga sæti
forseti íslands, forsætisráðherra,
biskup íslands og forseti Hæsta-
réttar. - FÞG
Góð hönnun þarf ekki að kosta meira
Glæsilegur sýningarsalur með
innréttingum hjá okkur i
Lágmúla 8, 3. hæð