Dagur - 11.04.2000, Blaðsíða 7

Dagur - 11.04.2000, Blaðsíða 7
 ÞRIDJUDAGUR 11. APRÍL 2000 - 7 ÞJÓÐMÁL UtanrikLsJijón- usta í sextíu ár sem starfar þar. Hlutverk þessa sendiráðs er að sjá um samskipti okkar við Evrópusambandið, ásamt fleiri verkeffium. Þetta er flókið og afar vandasamt verkefni, þar sem samskiptin sem byggjast á EES samningnum eru mjög náin. Þessi samskipti verða í sviðsljós- inu áfram, ekki síst í kjölfar mjög vandaðrar skýrslu um Evrópusam- skiptin sem utanríkisráðherra Ieggur fram þessa dagana. Vandamál oklrar er að koma inn í ákvarðanatökur á þessum vett- vangi sem varða okkur vegna þeir- ra samninga sem í gildi eru. „Brauð og lelkir“ Islenska utanríldsþjónustan hefur því mörg jám í eldinum og mikil- vægi hennar verður seint nægjan- lega undirstrikað. Fólki hættir oft til þess í erli daganna að van- meta þetta hlutverk og telja vinnu diplomata snúast um brauð og leiki. Það er víðs Ijarri að svo sé. Móttökur eru samskiptamáti nú- tímans til þess að hittast og mynda sambönd til þess að fylgja eftir síðar. Að taka þátt í slíku er vinna, sem getur stundum verið sh'tandi eins og hvert annað erfiði. Það kemur einnig í hlut utanríkis- þjónustunnar að byggja upp sér- þekkingu um milliríkjamál og bera ábyrgð á öllum milliríkja- samningum sem eru fleiri en tölu verður á komið í nútíma samfélagi og byggjast á flóknu lagaumhverfi. Verkefnin eru því næg og fyrir- ferðarmikil. Hin viöbnrðaríka ferð Það var löng og viðburðarík ferð sem var formlega hafin á nætur- fundi íAlþingi 10. apríl 1940. Þá voru ógnartímar í Evrópu, og sagnfræðingar hafa dregið upp einangrun landsins og öryggisleysi á þessu tímabili. Síðan heims- styijöldinni lauk hafa þjóðir heims reynt að stuðla að friði með al- þjóðasmtökum, fjölþjóðasamning- um og hvers konar samskiptum þjóða í milli. Oflug utanríkis- þjónusta er lykilatriði í þessu efni. STJÓRNMÁL Á NETINU Forsætísráðherra og stjómarskrám „Dómsorð dómara Hæstaréttar eru vel rökstudd, bæði álit meiri- hlutans og minnihlutans. I stað þess að leita í dóminum að veg- vísi fyrir framtíðina eiga menn að horfast í augu við það að deilurn- ar um fiskveiðimál eru pólitískar en ekki lögfræðilegar þótt á tíma- bili hafi skapast óvissa um lög- fræðileg álitaefni sem nú er húið að skera úr um. Hæstiréttur er ekki pólitískur veðurviti. Það hef- ur alltaf legið ljóst fyrir að lög- gjafinn getur breytt fiskveiði- stjómunarkerfinu með eðlilegum aðdraganda og tekið gjald fyrir veiðiheimildir. Það er áréttað í dómnum en það er ekkert nýtt. Það hefur ekld verið pólitískur vilji til breytinga og dómur Hæstaréttar breytir engu í deil- unum um sjávarútvegsmál," segir Ágúst Einarsson, varaþingmaður, á vefsíðu sinni. Og hann heldur áfram: „Merkilegustu ummælin í kjöl- far dómsins voru af hálfu Davíðs Oddssonar. Hann sagði að hefði dómur hér- aðsdóms ver- ið staðfestur hefðu menn „sjálfsagt endað með því að gera breytingar á stjórnarskránni". Þetta eru ótrúleg ummæli en sýna að Davíð vill fyrr breyta stjórnarskránni en fiskveiði- stjórnunarkerfinu. Halldór sagði svipað þegar fyrri dómur féll og þetta viðhorf ríkisstjórnarinnar sýnir óhugnanlegan ósveigjan- leika og ófyrirleitni. Það er illa komið fyrir samfé- Iaginu þegar ráðamenn tala um að breyta stjórnarskrá til að laga hana að skoðunum þcirra í deilu- málum. Þetta er þeim mun fá- heyrðara vegna þess að jafnræð- isreglan sem yrði þá breytt er grundvallaratriði í réttarríki sið- aðra þjóða. Jafnræðisreglan er mannréttindi sem enginn stjórn- málqjnaður getur breytt eða tek- ið af fólkinu. Ríkisstjórnin skipaði auðlinda- nefnd til að svæfa málið fyrir síð- ustu kosningar og það tókst. Síð- an var önnur nefnd skipuð til að endurskoða fiskveiðilögin en engin stefnubreyting hefur kom- ið fram af hálfu foringja stjórnar- flokkanna. Það er engin sátt í augsýn. Þótt dómurinn gefi ráð- rúm til að setja málin í þann skynsamlega farveg sem ég hef margoft lagt til, þ.e. að greitt sé sanngjarnt gjald fyrir nýtingu auðlindarinnar og afiamarkskerf- ið sé lagt til grundvallar, þá bend- ir enn lítið til þess að sú leið verði farin. Svo lengi sem mikill meirihluti almcnnings styður Sjálfstæðis- og Framsóknarflokk- inn breytist ekkert og landsmenn verða að búa við það að talað sé um stjórnarskrána eins og um matseðil á veitingahúsi.“ Fæðingarorlof tryggir jöfn tækifæri „Stórt skref í jafnréttisbaráttu hérlendis mun verða stigið ef til- Iaga ríkisstjórnarinnar um leng- ingu fæðingarorlofs verður sam- þykkt,“ segir Hreinn Hreinsson á vefsíðu Grósku. „Sérstaklega á þetta við um þriggja mánaða rétt feðra til fæð- ingarorlofs og þess að foreldrar geti nú ráðstafað þremur mánuð- um að vild. Það er einnig ánægjuefni að samkvæmt þess- um hugmyndum mun fólk halda tekjum sínum að mestu á meðan á fæðingarorlofi stendur enda er það forsenda þess að fólk geti al- mennt nýtt sér þennan rétt. Margir hafa að undanförnu rit- að um hvort fæðingarorlof sé hagkvæmt fyrir þjóðfélagið og hver það er sem eigi að bera þann kostnað sem af því hlýst. Það er skoðun jafnaðarmanna að eitt af hlutverkum ríkisins sé að tryggja það að börn geti notið samvista við foreldra sína í frum- bernsku. Þau tengsl sem unga- börn mynda við foreldra sína á fyrstu mánuðum ævi sinnar eru líklega eitt mikilvægasta skrefið á þeirri leið að þau geti þroskast eðlilega og verði seinna meir fær um að takast á við tengslamynd- un í eigin lífi en einn af horn- steinum vellíðunnar hvers ein- staklings er að vera í góðum tengslum við umhverfi sitt. Það er líklega mjög erfitt að reikna nákvæmlega í krónum og aurum hversu mikið það sparar þjóðfé- laginu í heilbrigðis- og félags- þjónustu að reyna að stuðla að því að foreldrum gefist tækifæri á að sinna uppeldi barna sinna.“ „íslensk utanríkisþjónusta er í dag vidamikil bæði hér heima og erlendis. Hún hefur einnig tekiö yfir stjórn utan- ríkisviðskipta, og hefur sá þáttur hennar vaxiö mjög síðari árin með stofnun viðskiptaskrifstofu, “ segir Jón Krist- jánsson m.a. í grein sinni. Myndin er af utanríkisráðuneytinu. J0N KRIST- JANSSON ALÞINGISMAÐUR OG VARAFORMAÐUR UTANRlKISNEFNDAR Alþingis. SKRIFAR Aðfaranótt 10. apríl 1940 var boð- að til fundar í Alþingi kl 2.25. Þessi óvenjulegi fundartími var í framhaldi af dramatískum atburð- um daginn áður, og til umræðu voru tværi þingsályktunartillögur. Sú fyrri hljóðaði á þessa leið: „Þar sem ástand það sem nú hefur skapast hefur gert konungi íslands ókleyft að fara með vald það, sem honum er fengið sam- kvæmt stjórnarskránni, lýsir Al- þingi yfir því að það felur ráðu- neyti Islands að svo stöddu með- ferð þessa valds". Sú seinni hljóðaði þannig: „Vegna þess ástands, er nú hef- ur skapast, getur Danmörk ekki rækt umboð til meðferðar utan- ríkismála Islands samkvæmt 7. grein dansk - íslenskra sambands- Iaga né landhelgisgæslu sam- kvæmt 8. grein téðra laga, og Iýsir Alþingi þess vegna yfir því, að Is- land tekur að svo stöddu meðferð mála þessara að öllu leyti í sínar hendur“. Frá þessu er greint í bók Þórs Whitehead „Milli vonar og ótta“ og þar er skýrt frá því rafmagnaða andrúmslofti sem ríkti í Alþingi á þessum óvenjulega fundartíma. Þar er einnig skýrt frá þeirri tor- tryggni sem ríkti og varð þess valdandi að þingmenn Sósíalista voru ekki hafðir með í undirbún- ingi málsins. Astæðan fyrir þess- ari afgreiðslu var innrás Þjóðveija í Danmörku þann 9. apríl 1940, sem varð þess valdandi að það slitnaði á tengsl Danmerkur og íslands. Fjórum árum seinna, ár- inu áður en heimsstyrjöldinni lauk var síðan stofnað lýðveldi á Islandi. Sextíu ára saga Eg rilja þetta upp núna vegna þess að 60 ár eru liðin frá þessum atburðum og nú þessa dagana er þess minnst að formlega tókum við utanríkismálin í okkar hendur þann 10. apríl 1940. Þetta er upphaf að viðburðaríkri sögu. ís- lensk utanríkisþjónusta er í dag viðamikil bæði hér heima og er- lendis. Hún hefur einnig tekið yfir stjórn utanríkisviðskipta, og hefur sá þáttur hennar vaxið mjög síðari árin með stofnun viðskipta- skrifstofu. Halldór Asgrímsson, núverandi utanríkisráðherra hefur lagt sérstaka áherslu á þennan þátt í starfi hennar, og hafa við- skiptasendinefndir fylgt honum víða á ferðum hans erlendis. Auk þessa er hlutverk utanríkis- þjónustunnar afar margþætt. Það er að fylgjast með þróuninni erlendis og halda fram íslenskum hagsmunum og starfsmenn henn- ar eru fulltrúar þjóðarinnar á er- lendum vettvangi. Þetta hlutverk er afar mikilvægt í okkar samfé- Iagi, þar sem lifskjör okkar f víðum skilningi byggjast á samskipum okkar við aðrar þjóðir. Þessum hagsmunum og skoðunum stjórn- valda á íslandi þarf að halda fram gagnvart öðrum þjóðum og gagn- vart þeim alþjóðasamtökum sem við eigum aðild að. Nýskref A þessu ári eykst umfang utanrík- isþjónustunnar á erlendi grund enn. Ætlunin er að opna sendi- ráð í Kanada sem er Iöngu tfma- bært, vegna viðskipahagsmuna og sérstakra tengsla við þetta víð- feðma ríki í vestri. Sennilega eru hvergi jafn margir af Islensku bergi brotnir eins og einmitt í Kanada, auk þess sem við getum átt þangað margt að sækja. Vest- urhluti landsins býður upp á stór- fenglegt landslag og margs konar afþreyingu fý'rir ferðamenn og beinar ferðir eru til Halifax sem opnar leið að áhugaverðum ferða- mannaslóðum á Novia Scotia sem er á Atlandshafsströndinni. Einnig er ætlunin að opna sendiráð í Japan, sem er mikið fyr- irtæki, en hefur verið í undirbún- ingi um nokkra hríð. Viðskipta- hagsmunir okkar í Asíu eru ótví- ræðir og með því að hafa sendiráð í Japan og Kína er utanríkisþjón- ustan þar styrkt stórlega. Það má því segja að á þessu af- mælisári séu tekin stór skref í efl- ingu utanríkisþjónustunnar. Enn vantar þó íslensk sendiráð í þremur heimsálfum, en það er ekki hægt að gera allt í einu á þessum vettvangi frekar en annars staðar. Við eigum umtalsverð viðskipti við þjóðir Suður Ameríku, stundum hjálparstarf í Afríku, þannig að íslendingar eiga mörg erindi á þessar slóðir. Sainsldptijn við Evrópusambandið Stærsta íslenska sendiráðið er í Brussel. Það er á stærð við minnstu ráðuneytin hér heima, enda hafa mörg þeirra fulltrúa

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.