Dagur - 11.04.2000, Blaðsíða 2

Dagur - 11.04.2000, Blaðsíða 2
2 - ÞRIÐJUDAGU R 11. APRÍL 2 0 00 FRÉTTIR L a Vill j afnadarstefnu í nýju samhengi Össur Skarphéðinsson: Vill að afraksturinn afsölu samkeppnisreksturs Landssímans renni til stofnunar upplýsingaháskóla. Össur leggur fram stefnuskrá. Nýjar hugmyndir á grunni samhjálpar og atorku. Ahersla á mótun þekkingarsamfélags- ins og á afnám gjafa- kvótakerfisins í áföngum. Össur Skarphéðinsson, fram- bjóðandi til formanns í Samfylk- ingunni, hefur sent frá sér stefnuskrá í 10 köflum, þar sem hann leitast við að setja jafnaðar- stefnuna í nýtt samhengi. „Við þurfum - eins og í hreyfingu jafnaðarmanna erlendis - að endurnýja og umskapa hug- myndir okkar í takt við breytta tíma,“ segir Össur. „Við eigum að einsetja okkur að breyta íslensk- um stjórnmálum með nýjum hugmyndum á grunni samhjálp- ar og atorku," bætir hann við. Meðal áhersiuatriða er að menntun verði notuð til að jafna lífskjör og tækifæri, að upp rfsi upplýsingaháskóli, kostaður af sölu samkeppnisfyrirtækja, að tekin verði upp auðlindaleiga, sem verði nýtt til að lækka tekju- skatt og svo boðar hann Evrópu- stefnu. „Eg vil ekki að við sitjum af okkur áhrif í Evrópu, m.a. á mótun framtíðarstefnu um sjáv- arnytjar og verndun hafsins," segir Össur. Ná tokiun á upplýsingatækn- tnnl Meðal annarra afgerandi stefnu- atriða eru að landið verði eitt kjördæmi, þjóðaratkvæðagreiðsl- ur um mikilvæg mál, barátta gegn vítahring fákeppni og ein- okunar og fjölgun þjóðgarða og friðlýstra svæða. „Þetta er mín tilraun til að taka þátt í mótun stefnu fyrir hinn nýja Jafnaðarmannaflokk sem við stofnum í byrjun maí. Það hafa verið brotalamir á stefnumótun hans, því enn er þetta bandalag þriggja eða eftir atvikum fjögurra flokka og því hefur vantað stefnu sem eina heild. I þessu framlagi mínu er talsvert nýjabrum af þeirri áherslu sem ég legg á þróun þekkingarsamfélagsins. Eg er þeirrar skoðunar að farsæld ís- lendinga í framtíðinni muni helgast að stórum hluta af því hversu vel tekst til við að ná tök- um á upplýsingatækni og þróun nýjunga þar. Samfélagið sem við erum að sigla inn f er þess eðlis að menntunin mun skera úr um hvort einstaklingurinn nær að spjara sig í því í tiltölulega harð- skeyttu markaðssamfélagi. Ég legg því mikla áherslu á að menntakerfið verði ekki bara að nýju jöfnunartæki, heldur sem allra fyrst stokkað upp með tilliti til þekkingarsamfélagsins." Burt með gjafakvótakerfíð Annað stefnuatriði sem Össur leggur mikla áherslu á er að gerðar verði breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. „Það þarf að tryggja nýliðun í greininni og að allir hafi jafnan aðgang að sameigninni. Ég vil að gjafakvótakerfið verði afnumið í áföngum, þannig að á hverju ári verði ákveðinn hluti þess leigður út og að verðið myndist á mark- aði. Þar með er búið að tryggja jafnræði þegnanna, að öllum lík- indum búið að tryggja aukinn arð af fiskveiðum og jafnframt mun með þessu það loksins ger- ast að byggðirnar njóta nálægð- arinnar við miðin. Því verður þetta mikil lyftistöng fyrir héruð eins og Vestfírði, þar sem sjávar- útvegurinn er í mikilli ldemmu,“ segir Össur. - FÞG Ólafur Ólafsson. Samsldp gegn likni- efimin Samskip hafa ákveðið að verja 10 milljónum króna til baráttu gegn fí'kniefnavandanum. Þetta kom fram í ræðu Ólafs Ólafs- sonar forstjóra á aðalfundi Sam- skipa sem hófst á Hótel Sögu í gær. Leitað verður samráðs við fagfólk um hvernig þessum fjár- munum verði best og áhrifarík- ast varið í forvarnastarfi, rann- sóknum eða meðferðarmálum. Hjá Ólafi kom fram að ástæða þessa hafi verið sá atburður „þegar lögregla og tollayfirvöld upplýstu síðsumars eitt um- fangsmesta smygl á fí'kniefnum til Islands sem dæmi eru um. Nokkrir starfsmenn Samskipa tengdust málinu og misnotuðu trúnað og traust félagsins í þágu skipulagðrar glæpastarfsemi undir stjórn manna sem einskis svífast við iðju sína“. „Þetta er táknræn yfirlýsing um að félagið ætli að leggja sinn skerf af mörk- um til að uppræta starfsemi sölumanna dauðans. Félagið hvetur til þjóðarátaks gegn fíkni- efnum í samfélaginu", sagði for- stjórinn. - FÞG Kvótanefndir af stað að nýju Haldið áfram endiir- skoðun löggjafarinii- ar uiii stjdm fisk- veiða, segir Ámi M. Mathiesen. Vatneyrar- málið hefur tafið öH störf AuðHndanefnd- arinnar og Endur- skoðunamefndarinn- ar. Tvær svo kallaðar „kvótanefndir" hafa verið að störfum síðustu misserin og ekkert komið frá þeim enn sem komið er. Annars vegar erum að ræða Auðlinda- nefndina, undir forystu Jóhann- esar Nordal og síðan hina svo kölluðu endurskoðunarnefnd eða „sáttanefnd," eins og inargir kalla hana sem Arni M. Mathí- esen sjávarútvegsráðherra skip- aði eftir síðustu kosningar. Hennar hlutverk er að leita leiða til að ná sáttum meðal þjóðar- innar um kvótakerfið. Nú þcgar Hæstiréttur hefur fellt sinn dóm í Vatneyrarmálinu Árni Mathiesen, sjávarútvegsráherra. spyrja menn hvað nú taki við í þessu eilífa deilumáli þjóðarinn- ar. Arni M. Mathíesen sjávarút- vegsráðherra segir að nú verði haldið áfram endurskoðun lög- gjafarinnar um stjórn fiskveiða, með það að markmiði að ná um hana víðtækari sátt meðal þjóð- arinnar eins og ákveðið hefur verið. Nefndarstopp „Það er alveg Ijóst að þetta dómsferli hefur tafið vinnuna hjá þessum nefndum. Auðlinda- nefndin skilaði ekki af sér eins og við höfðum ætlað í janúar sl. vegna þessa dómsmáls. Endur- skoðunarnefndin getur ekki byrj- að á sinni aðal vinnu lyrr en Auðlindanefndin hefur skilað af sér. Þetta þýðir að það sem ég hafði ætlað að enndurskoðunar- nefndin myndi skila af sér fýrir 1. september, þannig að ég gæti Iagt fram frumvarp fyrir jól, sem afgreitt yrði fyrir næsta vor og tekið gildi 1. september 2001, getur tæplega orðið. Ef nefndin skilar ekki af sér fyrr en undir næstu áramót þá get ég ekki ver- ið tilbúinn með frumvarpið fyrr en á seinni hluta þingsins. Þá er óvíst að næðist að afgreiða það. Þá myndi þetta allt saman tefjast um heilt ár frá fyrri áætlun,“ sagði Arni Mathiesen. Miðað við viðbrögð manna við Vatneyrardómi Hæstaréttar er alveg Ijóst að h'till sáttatónn cr í mönnum. „Sáttancfndarinnar," býður hins vegar það verkefni að sætta þjóðina í kvótamálinu. Verkefni sem varla er á mann- legu valdi að leysa. -S.DÓH 20.000 túristar á „klákann44 í maxs Heldur færri íslendingar fóru nú utan í marsmánuði en í fyrra, eða 17.200 og heimkomnir frá áramótum eru aðeins 2% fleiri en fyrstu þrjá mánuði síðasta árs (þó þá væru líka apríl páskar). Á hinn bóg- inn voru erlendir ferðamenn á íslandi þriðjungi fleiri í hinum óvenju snjóþunga marsmánuði en lyrir ári. Um 20.000 „túristar" fengu þannig að upplifa það þennan mánuð að klöngrast upp og niður snjó- hraukana sem ýtustjórar voru svo lagnir að búa til og skrika á gler- hálum gangstéttum, þar sem m.a.s. innfæddir, sem ættu þó að vera öllu vanir, brutu bein sín í hundraðatali. Um 4.300 mars gestanna voru Bandaríkjamenn, 4 þúsund Bretar, kringum 2 þúsund frá þrem Norðurlandanna, um 1.400 Þjóðverjar, 900 Hollendingar og 500 frakkar. Alls voru erlendir gestir okkar 42 þúsund frá áramótum til marsloka, næsturn fimmtungi fleiri en í fyrra og meira að segja heldur fleiri en heimkomnir Islendingar erlendis frá, sem er fremur óvenjulegt á þessum kaldasta tíma ársins. -HEI Breytiiigar hjá Sæplasti Aðalfundur Sæplasts var haldinn sl. laugardag. Fyr- irtækið var rekið með 25,6 milljón króna hagnaði á sl. ári. Afkoman var nokluið lakari en gert var ráð fyr- ir, m.a. vegna samdráttar í sölu í desembermánuði ásamt meiri kostnaði vegna fjárfestinga en ráð var fyrir gert. Stjórnskipulagi Sæplasts verður breytt þannig að Steinþór Ólafsson verður ráðinn sem for- stjóri að félaginu og verði ábyrgur fyrir samræmingu á öllum rekstri félagsins en Torfi Guðmundsson tek- ur við starfi Steinþórs sem framkvæmdastjóri Sæplasts á Dalvík, en hann hefur gegnt stöðu mark- aðs- og sölustjóra. Pétur Reimarsson, fý'rrum framkvæmdastjóri Sæplasts var kjörinn stjórnarformaður en aðrir stjórnarmenn eru Valdimar Snorrason, Bjarni Jónasson, Eli'as Gunnarsson, og Þórir Matthíasson. -GG Pétur Reimarsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.