Dagur - 11.04.2000, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 - S
X^ur.
FRETTIR
Rífandi hagnaður
hj á Landsvirkjim
Arid í fyrra var það hagstæðasta í rekstri Landsvirkjunar
frá stofnun fyrirtækisins.
Hagnaður tæpir 2
miUljarðar í fyrra.
Besta ár frá upphafi.
Sætaskipti hjá borgar-
toppum. Kjartan inn
sem varamaður.
Síðastliðið ár var hagstæðasta
rekstrarár Landsvirkjunar frá
stofnun fyrirtækisins en hagnaður
þess nam tæpum 2 miljörðum
króna. A samráðsfundi Landsvirkj-
unar sl. föstudag varð sú breyting
á aðalmönnum í stjórn að Helgi
Hjörvar forseti borgarstjómar kom
inn í stað Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttir borgarstjóra sem hefur
tekið sæti hans sem varamaður í
stjórn. Að öðru leyti er stjórn
Landsvirkjunar óbreytt frá þvf sem
verið hefur með Jóhannes Geir
Sigurgeirsson sem stjórnarfor-
mann og Arni Grétar Finnsson
sem varaformann. Auk borgar-
stjóra eru nýir varamenn í stjóm
Landsvirkjunar þau Kjartan
Gunnarsson framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins og Vigdís M.
Sveinbjömsdóttir bóndi sem koma
bæði inn sem fulltrúar ríkisins.
Heildaxeign um 100 miUj-
arðar
Þessi hagnaður fyrirtækisins í
fyrra eru mikil umskipti frá árinu
þar á undan þegar hagnaðurinn
var um 283 milljónir króna. Af
einstökum liðum í rekstri fyrir-
tækisins munaði mestu um lægri
fjármagnskostnað sem lækkaði
um tæpa 1,3 milljarð frá árinu
þar á undan. Tekjur af rafmagns-
sölu til almenningsveitna jukust
um 341 milljón króna, eða um
5,7% vegna 3% gjaldskrárhækk-
unar 1. júlf í fyrra og aukinnar
rafmagnssölu. Þá jukust tekjur
af rafmagnssölu til stóriðju um
765 milljónir króna, eða um
25%. Þar munar mest um aukna
sölu til Norðuráls. Rekstrartekj-
ur Landsvirkjunar í fyrra námu
alls rúmum 10 miljörðum króna
sem var um eins milljarðs hækk-
un frá fyrra ári, eða um 12%. I
fyrra nam handbært fé úr rekstri
tæpum 4 milljörðum sem er hag-
stæðasta útkoma í sjóðstreymi
Landsvirkjunar frá upphafi. Fjár-
festingar námu tæpum 9 millj-
örðum og lántölur umfram af-
borganir voru 6,6 milljarðar. Þá
hækkaði efnahagsreikningur
Landsvirkjunar um tæpa 8,9
milljarða króna á sl. ári. Það
skiptist þannig að eigið fé jókst
um 2,6 milljarða og skuldir um
6,3 milljarða. Heildareign
Landsvirkjunar í árlok í fyrra
nam tæpum 100 milljörðum
króna. Þá námu skuldir fyrirtæk-
isins 65,5 milljörðum og eigið fé
um 32,9 milljörðum, eða 33% af
heildareign fyrirtækisins. -GRH
Fékkþung-
andóm
Sautján ára
unglingspiltur
var í Héraðs-
dómi Reykjavík-
ur f síðustu viku
dæmdur í þrigg-
ja og hálfs árs
fangelsi íyrir að
stinga tvítugan
mann tvisvar „Hnifstungupilt-
með hnífi, fyrir urinn fékk
líkamsárás í þungan dóm i
Hafnarstræti og Héraðsdómi.
fyrir að „skalla"
Iögreglumann. Innifalið í dómn-
um er upptaka á skilorðsbind-
ingu fyrri dóms.
Dagur fjallaði ítarlega um mál
„hnífsstungupiltsins" í nóvem-
ber síðastliðnum, en mál hans
hafði lengi velkst um í félags-
málakerfinu og í raun hafði ver-
ið varað við því að hann væri lík-
legur til að grípa til örþrifaráða.
Hann var í hópi unglinga sem
rændu með ofbeldi tvær sjoppur
í Reykjavík, Kvöldúlf og Kjalfell.
Hnífsstunguárásin átti sér
stað við Nonnabita í Hafnar-
stræti í Reykjavík þann 3. nóv-
ember sl. og var dæmd sem til-
raun til manndráps. Hinn
dæmdi vildi meina að hann hafi
verið að verjast árás hins
mannsins og félaga hans, en
þeir hefðu verið undir áhrifum
fíkniefna. Hann sagðist ekki
hafa stungið manninn viljandi,
heldur hefði sá stungni hlaupið
á hníf sinn. Því var ekki trúað.
Litlu mátti muna að sá sem
stunginn var biði bana af. - FÞG
Halldór Ásgrímsson og Úlafur Ragnar Grímsson við opnun Ijósmyndasýningarinnar í Þjóðarbókhlöðunni í gær.
Hér afhjúpa þeir nýjan skjöld utanríkisþjónustunnar.
Ut andkisþj ónustan
orðin sextíu ára
Utanríkisþjónusta islands
minntist tímamóta í starfi sínu í
gær þegar sextíu ár voru liðin frá
því að Islendingar tóku fram-
kvæmd utanríkismála í eigin
hendur.
I tilefni afmælisins opnaði
Halldór Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra og Olafur Ragnar
Grímsson forseti ljósmyndasýn-
ingu í Þjóðarbókhlöðunni sem
helguð er 60 ára sögu íslenskrar
utanríkisþjónustu. Sainkvæmt
upplýsingum frá utanríkisráðu-
neytinu er tilgangur ljósmynda-
sýningarinnar sá að vekja athygli
á mikilvægum viðburðum er
tengjast sögu utanríkisþjónust-
unnar og endurspegla margvísleg
verkefni starfsmanna hennar í
sextíu ár. Við undirbúning sýn-
ingarinnar hcfur vcrið lögð áher-
sla á að safna saman fjölbreyttu
myndefni. Með Ijósmyndasýn-
ingunni er lagður grunnur að
ljósmyndasafni utanríkisráðu-
neytisins og hættri varðveislu
myndefnis á sviði utanríkismála.
Ljósmyndasýningin í þjóðarbók-
hlöðunni stendur frá 10. apríl til
10. maí næstkomandi. Stefnt er
aö því að sýningin verði sett upp
á fleiri stöðum í kjölfarið.
Fundu fíkniefni í sundlaugiuui
Starfsmenn Akureyrarlaugar fundu á laugardag tíu grömm af hassi
og tvö grömm af amfetanu'ni. Fíkniefnin Iágu uppi á fataskáp í karla-
klefa sundlaugarinnar og fundust við lok vinnudags á Iaugardag.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu eru taldar afar litlar Iíkur á að
eigandi efnanna finnist. Engar getgátur eru uppi um ástæður þess að
fíkniefnin voru falin þarna né heldur hver muni hafa átt þau. Þeim
hefur þó að minnsta kosti verið bjargað frá neyslu. - Hl
Samnmaáætlun imdirrituð
I gær komu bankaráð Is-
landsbanka og FBA saman
á Kirkjusandi til að undir-
rita samrunáætlun bank-
anna. Þetta er liður í hinu
formlega ferli í sameiningu
Islandsbanka og FBA.
Samrunaáætlunin verður
birt í Lögbirtingarblaðinu í
lok vikunnar og jafnframt
munu öll gögn vegna sam-
runans liggja frammi í
bönkunum tveimur frá
föstudegi.
Þá tilkynnti bandaríska
matsfyrirtækið Moody’s In-
vestors Service í gær að
fyrirtækið hefði tekið mat sitt á lánshæfi Islandsbanka og FBA til
endurskoðunar, með hugsanlega hækkun í huga. Tekur endurskoð-
unin til lánshæfiseinkunna á langtímaskuldbindingum og skamni-
tímaskuldbindingum, sem og fjárhagslegs styrkleika.
Endurskoðun á lánshæfismati fyrirtækjanna kemur í kjölfar samn-
ings þeirra um samruna. Núverandi lánshæfiseinkunnir íslands-
banka og FBA fyrir langtímaskuldhindingar er A3 og fyrir skamm-
tímaskuldbindingar Prime-2. Moody’s gefur fjárhagslegum styrkleika
FBA einkunnina D, en Islandsbanka einkunnina D+.
F.v. Einar Sveinsson, varaformaður banka-
ráðs íslandsbanka, Magnús Gunnarsson,
formaður stjórnar FBA, Kristján Ragnarsson,
bankaráðsformaður íslandsbanka og Eyjólfur
Sveinsson, varaformaður stjórnar FBA.
Sprengjugabb
Upp úr kl. 16:00 í gær var tilkynnt um að sprengju hefði verið kom-
ið fyrir í Ráðhúsi Rcykjavíkur, þar sem nú stendur yfir Reykjavíkur-
mótið í skák. Lögreglan taldi ekki ástæðu til að rýma húsið en
sprengjusérfræðingar og lögreglumenn voru engu að síður sendir á
vettvang. Þeir leituðu af sér allan grun á um þremur korterum.