Dagur - 11.04.2000, Síða 8
8 - ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000
ÞRIDJUDAGUR 11. APRÍL 2000 - 9
FRÉTTA SKÝRING
Tfe^uf-
SIGURD0R
SIGURDORS-
SON
SKRIFAR
Halldór Ásgrímsson
utanríldsráðherra hef-
ur lagt fram mjög ítar-
lega skýrslu sem hann
kaQar Stöðu íslands í
Evrópusamstarfi. Þar
koma fram kostir og
gaUar þess fyrir ís-
lendinga að standa
utanvið eða ganga í
Evrópusamhandið.
Halldór Asgrímsson utanríkis-
ráðherra hefur um árabil gert AI-
þingi, með reglulegu millibili,
grein fyrir stöðu alþjóðamála, lagt
fram skýrslur þar að lútandi og
efnt til umræðu. Nú hefur utan-
ríkisráðherra látið framkvæma
úttekt á stöðu íslands í Evrópu-
samstarfi og birt í skýrsluformi.
Margir halda því fram að EES
samningurinn sé að byrja að tros-
na og muni veikjast enn ef og
þegar aðildarríkjum íjölgar í Evr-
ópusambandinu. Ekki sfst í Ijósi
þessa er þessi skýrsla athyglis-
verð. Þrennt virðist mikilvægast
fyrir Islendinga þegar staða ís-
lands í Evrópusamstarfi er skoð-
uð. f fyrsta Iagi er það hinn mikli
kostnaður sem væri því samfara
að íslands gengi í Evrópusam-
bandið. Síðan er það að sjálf-
sögðu staða höfuð atvinnugreina
okkar, sjávarútvegs og landbún-
aðar ef af inngöngu yrði.
Lítum fyrst á fjárlög Evrópu-
sambandsins og kostnað íslands
við að ganga í sambandið.
Kostar 7-8 milljarðar
í skýrslunni segir:
„ísland er vel stætt ríki miðað við
flest aðildarríki Evrópusam-
bandsins og þjóðarframleiðsla á
mann er mjög mikil. Af þessari
ástæðu cinni er ljóst að framlag
íslands, sem aðildarríkis að ESB,
yrði mun hærra en sú fjárhæð
sem kæmi aftur inn í íslenskt
efnahagslíf úr sjóðum sambands-
ins. Ef miðað er við tilteknar for-
sendur kaflans gæti árlegt fram-
lag íslands umfram það sem nú
er greitt vegna EES-samningsins
orðið á bilinu 7 til 8 milljarðar.
Til baka gætu samkvæmt tiltekn-
um forsendum í kaflanum runnið
um fimm milljarðar úr sameigin-
legum sjóðum en það yrði háð
samningum og aðstæðum. Með
stækkun ESB eru líkur á að fram-
lag íslands hækkaði og endur-
greiðslur úr sjóðum sambandsins
Iækkuðu, allavega þar til efna-
hagur hinna nýju aðildarríkja
batnar.“
Útgjöld - niðurstaða
Síðar í kaflanum um fjárlög ESB
segir:
„Evrópusambandið er samstarf
þjóða Evrópu sem hefur margvfs-
leg markmið. Mestu fjármagni er
varið í að tryggja fjölbreytt hlut-
verk landbúnaðar og fæðuöryggi í
álfunni, og að stuðla að jöfnum
lífsskilyrðum fyrir þegna hennar,
jafnt í dreifbýli sem stórborgum.
Aðildarríkin hafa komið sér sam-
an um að þær ljárhæðir sem Evr-
ópusamstarfið velti megi ekki
vera hærri, en sem nemur 1,27%
af samanlagðri þjóðarframleiðslu
þeirra allra. Arið 1999 var hlut-
fallið 1,1%. Um er að ræða sam-
tryggingarkerfi margra þjóða á
takmörkuðum sviðum. Stærstu
útgjaldaliðir hins opinbera í að-
ildarríkjum ESB eru að mestu
fyrir utan þetta samstarf, þ.e. lið-
ir eins og heilhrigðisþjónusta,
varnarmál, menntun og félagsleg
aðstoð.
Ef við íslendingar gætum
reiknað það út með einhverjum
hætti að hærri fjárhæð kæmi til
baka úr sjóðum ESB en sú fjár-
hæð sem ríkissjóður greiddi þar
inn, væri það einungis vísbending
um slaka stöðu íslensks samfé-
lags í samanburði við aðrar Evr-
ópuþjóðir. Það getur ekki verið
markmiðið. Spurningin er hvort
íslenska þjóðin þurfi og vilji
kaupa sér þá tryggingu að með
samstarfi við Evrópuþjóðir verði
ávallt reynt að stuðla að því að
lífsgæði á íslandi verði í samræmi
við lífsgæði annars staðar í Evr-
ópu. Önnur mikilvæg spurning
hlýtur að vakna, þ.e. hvort þjóðin
fallist á réttmæti markmiða sam-
starfsins um að stjórnvöld eigi að
stuðla að jöfnuði í svo miklum
mæli og verja til þess svo miklu
fé.“
Skaðsemi sjávarútvegs-
styrkja
Og áfram segir í skýrslunni:
„Efnahagsleg lífsgæði eru meiri
hér á landi en þau eru að meðal-
tali innan ESB. Það eitt veldur
því að framlag Islands yrði hærra
en sú fjárhæð sem kæmi aftur inn
í íslenskt efnahagslíf úr sjóðum
ESB. Ef gengið er út frá þeim for-
sendum, sem gefnar eru hér á
undan, gæti framlagið orðið á bil-
inu 7 til 8 milljarðar og hugsan-
lega gætu fimm milljarðar ratað
til baka í formi styrkja til land-
búnaðar, sjávarútvegs og byggða-
mála. Ólíklegt væri þó að Islend-
ingar mundu sækjast eftir styrkj-
um til sjávarútvegs þannig að
hugsanlegar endurgreiðslur yrðu
sem því næmi Iægri en þeir fimm
milljarðar sem áður nefndi. í því
sambandi þarf að haf'a í huga
skaðsemi styrkja í sjávarútvegi
sem íslendingar verða að forðast.
Hugsanlegar endurgreiðslur gætu
því lækkað sem því nemur.
„Nokkuð öruggt er að
matvælaiðnaðuriim
myudi eiunig eiga
undir högg að sækja
gagnvart frjálsum
innflutningi og hænd-
ur hér á landi gætu
þar með lent í vand-
ræðum með afsetn-
ingu afurða sinna.“
Stækki ESB til austurs er ljóst að
staða efnaðra aðildarríkja ESB
mundi versna þar sem þau ríki
sem sótt hafa um aðild standa
flest ekki vel efnahagslega, eða
þar til þau hafa rétt úr kútnum.
Aðild íslands að ESB hefði
alltaf einhver áhrif á stöðu ríkis-
iwtlil
Tjjl |
fffiF » k gf !
„Undanþága sú sem fékkst í EES-samningi frá fjárfestingafrelsi ísjávarútvegiyrði torsótt svo ekki sé meira sagt,“ segir m.a. ískýrslunni sem utanríkisráðherra lagði fram ígær.
sjóðs. Ljóst er að réttur ríkissjóðs
til að ráðstafa 8 milljörðum króna
af þeim tekjum sem hann hefur
til nú, yrði færður í hendur stofn-
ana ESB. Hluta af þeirri Ijárhæð
yrði varið til landbúnaðar, sjávar-
útvegs og byggðamála á íslandi,
sem hlyti að Ieiða af sér að núver-
andi framlag ríkissjóðs til þessara
mála lækkaði. Það kæmi í hlut ís-
lenskra stjórnvalda að ákveða
með hvaða hætti íslenskur land-
húnaður og dreifð byggð Iandsins
yrði aðlöguð nýjum aðstæðum og
réðu þær ákvarðanir miklu um
hvaða áhrif aðild hefði á afkomu
ríkissjóðs. Breytingar á toll-
skránni og áhrif þeirra á vöruvið-
skipti hefði líklega áhrif á afkomu
ríkissjóðs, en erfitt er að meta
með einhverri vissu hversu víð-
tæk þau yrðu.“
ESB-aðild og íslenskur land-
búnaður
Helstu niðurstöður skýrslunnar
varðandi áhrif aðildar Islands að
ESB á íslenskan landbúnað eru
þessar:
„Ljóst er að ESB-aðiId myndi
hafa veruleg áhrif á starfsum-
hverfi íslensks landbúnaðar. Það
er hins vegar erfitt að spá fyrir
um það með fullri nákvæmni
hvað aðlögun að hinni sameigin-
legu landbúnaðarstefnu ESB
myndi þýða fyrir afkomu Iand-
búnaðar hér á landi. Gera má þó
ráð fyrir að sauðfjárbúskap,
mjólkurframleiðslu og jafnvel
nautgriparækt myndi geta vegnað
þokkalega og betur en öðrum bú-
greinum - fyrst og fremst vegna
fremur greiðs aðgangs að stuðn-
ingi frá ESB. Sérstaklega myndi
ýmis umhverfis- og harðbýlis-
stuðningur, sem tengist flatar-
máli ræktaðs lands, nýtast þess-
um búgreinum. Hins vegar er svo
til enginn stuðningur til svína-
kjöts-, kjúklinga- og eggjafram-
leiðslu fjármagnaður af ESB.
Nokkuð öruggt er að matvælaiðn-
aðurinn myndi einnig eiga undir
högg að sækja gagnvart frjálsum
innflutningi og bændur hér á
Iandi gætu þar með lent f vand-
ræðum með afsetningu afurða
sinna.
Hugsanlegar undanþágur frá
reglum sambandsins um frjáls
viðskipti með landbúnaðarafurðir
milli aðildarríkjanna gætu byggst
á sérstöðu íslands hvað varðar
sjúkdómahættu. Ef slíkar undan-
þágur fengjust gætu þær tak-
markað innflutning lifandi dýra
auk ýmissa afurða úr hráu kjöti
og ógerilsneyddri mjólk frá viss-
um löndum innan ESB.
Ekki er unnt að áætla með full-
ri nákvæmni hvaða fjárhæðir ís-
lenskur landbúnaður fengi frá
ESB. Stuðningur ESB til íslensks
landbúnaðar og mótframlög ís-
lenskra stjórnvalda gætu numið
samtals meira en 5 milljörðum
kr., að því gefnu að skilgreiningar
á harðbýli og stuðningsbærri
framleiðslu væru svipaðar og ger-
ist í norðurhluta S\iþjóðar og
Finnlands. Möguleikar eru einnig
fyrir hendi á að veita innlenda
viðbótarstyrki, bæði tímabundna
og viðvarandi, svipað og gert hef-
ur verið í Svíþjóð og Finnlandi.
Astæða er til að taka áætlun sem
þessari með vissum fj'rirvara, sér-
staklega sökum óvissu um þróun
landbúnaðarstefnu ESB í náinni
framtíð.
Sj ávarútvegsmál
Um kosti og galla aðildar olvkar
að ESB varðandi sjávarútveginn
segir f skýrslunni:
„EES-samningurinn tryggði
betri kjör á evrópskum markaði
fyrir íslenskar sjávarafurðir og
samræmingu heilbrigðiseftirlits.
Fullt tollfrelsi fékkst hins vegar
ekki. Sjávarútvegsstefna ESB er
utan samnings. Þó markmið
hennar séu svipuð og íslenskra
stjórnvalda hefur framkvæmd
verið gjörólík á mörgum sviðum.
Sjávarútvegur á Islandi er grund-
völlur atvinnulífs f Iandinu. Sjáv-
arútvegur flestra aðildarríkja Evr-
ópusambandsins er í gjörólíkri
stöðu og treystir að verulegu leyti
á byggðastyrki. Ef Island yrði að-
ili að ESB ílyttist ákvarðanataka í
mikilvægum málum til stofnana
Evrópusambandsins, s.s. ákvörð-
un leyfilegs heildarafla og stjórn-
un veiða úr flökkustofnum á borð
við úthafskarfa, kolmunna og
norsk-íslenska síld. Undanþága
sú sem féldíst í EES-samningi frá
fjárfestingafrelsi í sjávarútvegi
yrði torsótt svo ekki sé meira sagt.
1 ljósi deiina innan ESB um
svokallað kvótahopp og í ljósi
málsmeðferðar fyrir dómstólnum
„Af þessari ástæðu
einni er ljóst að fram-
lag íslands, sem að-
ildarríMs að ESB,
yrði iniiu hærra en sú
fjárhæð sem kæmi
aftur iiui í íslenskt
efnahagslíf úr sjóðum
sambandsins.“
er erfitt að sjá hvernig áfram yrði
unnt að takmarka eignarhald á
sjávarútvegsfyrirtækjum við ts-
lendinga ef Island gerðist með-
limur í ESB.“
Varðandi umdeilt styrkjakerfi
ESB í sjávarútvegi segir m.a. að
ekki sé auðvelt að ná yfirsýn yfir
þá möguleika sem felast í styrkja-
kerfinu enda um flókið samspil
að ræða milli sjóða sambandsins
og styrkjakerfa einstakra rfkja.
Enn fremur segir að í fyrra hafi
verið samþykktar nýjar reglur um
stuðning til mála er varða upp-
byggingu í sjávarútvegi fyrir árin
2000-2006. Megin markmiðið
styrkjakerfis Evrópusambandsins
varðandi sjávarútveg séu að
stuðla að jafnvægi milli sóknar og
afrakstursgetu fiskistofnanna. Að
efla samkeppnishæfni í sjávarút-
vegs í Evrópu og þróa hann til að
verða efnahagslega sjálfstæða at-
vinnugrein. Að auka framboð á
mörkuðum og auka virðisauka við
framleiðslu. Og loks að aðstoða
við enduruppbyggingu svæða sem
eru háð veiðum og eldi.
Skattar og gjöld
Varðandi skatta og gjöld segir
m.a. í skýrslunni:
„ESB hefur takmarkaðar heim-
ildir til þess að setja reglur á
skattasviðinu og setning slíkra
reglna þarfnast samhljóða sam-
þykkis enda hefur samræmingin
á þessu sviði verið mjög takmörk-
uð. Samræmingin hefur náð
lengst á sviði virðisaukaskatts
enda rennur hluti af stofni til
virðisauksatts til ESB í formi að-
ildargjalds.
Settar hafa verið reglur um lág-
marksskatthlutföll, hvaða vöru og
þjónustu á að skattleggja, skatt-
verðið, hverjir eru skattskyldir,
hvar á að greiða skattinn, undan-
þágur, uppgjörstímabil, skrán-
ingu, innheimtu og eftirlit. Meg-
inreglan er sú að þjónusta er
skattlögð þar sem seljandinn býr
en um vöruviðskipti milli ESB-
rfkja gildir að varan er skattlögð í
ríki kaupanda. Þá hafa verið sett-
ar reglur um vörugjöld á tóbak,
áfengi og olíu en með þeim er
sett ákvæði um lágmarksskatt-
hlutföll og útreikning skattsins.
Samræming gengur miklu
skemmra en á sviði virðisauka-
skatts og reglurnar hafa ekki áhrif
á rétt aðildarríkjanna til að leggja
vörugjöld á aðrar vörur, svo sem
bfla og rafmagnsvörur. Lögð hef-
ur verið fram tillaga um skatt-
lagningu orku en hún hefur ekki
náð fram að ganga.
Lítið hefur verið um samræm-
ingu á sviði beinna skatta."
Aðildarríkin hafa „samþykkt
rammareglur um fyrirtækjaskatt-
lagningu. Reglurnar eru þó ekki
bindandi heldur felst fremur í
þeim pólitísk yfirlýsing aðildar-
ríkjanna um að þau muni ekki
viðhalda eða taka upp skattalegar
ráðstafanir sem teljast skaðlegar
en sérstakur hópur á vegum ESB
hefur verið að skoða slíkar ráð-
stafanir í aðildarríkjunum.11
Tollabandalagið
Itarlegur kafli í skýrslunni er um
tollamál enda er ESB tollabanda-
lag. Kjarni málsins um tolla-
bandalagið f skýrslunni er þessi:
„ESB er tollabandalag. í því
felst að engir tollar eru f viðskipt-
um milli aðildarríkjanna, vöru-
flæði milli þeirra er frjálst og toll-
gæsla á sér ekki stað á innri
landamærum þó svo alltaf getið
átt sér stað annað slagið eftirlit
vegna t.d. fíkniefnaleitar. Ytri
tollar allra aðildarríkjanna eru
þeir sömu og eru byggðir á sam-
eiginlegri tollskrá og viðskipta-
stefna gagnvart þriðju ríkjum er
sameiginleg. Samningar við þau
eru á forræði ESB og sama gildir
um allar ákvarðanir um aðgerðir í
viðskiptum, svo sem beitingu
undirboðs- og jöfnunartolla og
annarra viðskiptaþvingana.
Um tollabandalagið er fjallað
bæði í Rómarsamningnum sjálf-
um og í ítarlegri afleiddri löggjöf.
Tollskrá ESB kemur út árlega.
Hún byggist á samræmdu vöru-
heitaskránni, eins og íslenska
tollskráin, og þar er að finna upp-
lýsingar um gildandi tolltaxta.
Samanburður á þeim og tolltöxt-
um fyrir iðnaðarvörur í íslensku
tollskránni leiðir í ljós að tollur á
bílum og hráefni til álvinnslu er
hærri í ESB en á íslandi en í
flestum öðrum vöruflokkum er
munurinn óverulegur. ToIItekj-
urnar renna til ESB en aðildar-
ríkin halda eftir 10% vegna inn-
heimtukostnaðar en samþykkt
hefur verið að hækka það hlutfall
í 25%.
Margt í tollalöggjöf ESB er
svipað og f þeirri íslensku. Þetta á
t.d. við um ákvörðun tollverðs,
niðurfellingarheimildir, uppruna-
reglur og reglur um umflutning
vöru. Annað er ólíkt, innan ESB
er t.d. í gildi umfangsinikið toll-
kvóta- og fríðindakerfi þar sem
aðildarríkjum GATT, tiiteknum
rfkjum eða ríkjahópum er heimil-
að að flytja vörur
inn tollfrjálst til
ESB eða á lægri
tollum. Hérlendis
eru aðeins í gildi
GATT-toIlkvótar fýr-
ir landbúnaðarvör-
ur og jafnframt hef-
ur ekki tíðkast að
beita undirboðs- og
jöfnunartollum hér-
Iendis en þeir eru
algengt úrræði inn-
an ESB.
Við aðild að ESB
myndi Island þurfa
að taka upp tollskrá
ESB og hin sameig-
inlcga viðskipta-
stefna myndi gilda
fvrir það. Allir tollar
myndu falla niður
milli Islands og ann-
arra ESB-ríkja, ekki
aðeins af iðnaðarvörum eins og
nú er heldur einnig á landbúnað-
arvörum og sjávarafurðum. Ekki
þyrfti lengur að tollafgreiða vörur
sem kæmu frá ESB-ríkjum og
sömuleiðis þyrfti ekki að tollaf-
greiða vörur sem héðan færu inn
til ESB en þetta gæti haft í för
með sér hagræði fyrir inn- og út-
flytjendur og sparnað fyrir tollyf-
irvöld en jafnframt má gera ráð
fyrir að viðskipti milli ESB og fs-
lands myndu aukast."
Myntbandalagið
Ekki er nema rúmt ár síðan
myndbandalag Evrópu EMU var
tekið upp. Það er því takmörkuð
reynsla komin á kerfið. I skýrsl-
unni segir svo í samantekt um
myntbandalagið:
„Á því rúmlega eina ári sem lið-
ið er frá stofnun Efnahags- og
myntbandalags Evrópu hafa
markmið þess um stöðugleika,
lága vexti og hóflega verðbólgu
staðist í meginatriðum. Innan
fárra ára kann sú staða að vera
komin upp að flest aðildarríki
ESB verði orðin aðilar að Mynt-
bandalaginu og samstarfsríki
okkar í EFTA, eitt eða fleiri,
stefni jafnframt að aðild að
bandalaginu. Margt bendir hins
vegar til að mörg ár líði þar til
Bretland, stærsti markaður Is-
lendinga, verði aðili að mynt-
bandalaginu.
Þá er ljóst að ekki er pólitískur
vilji til þess innan aðildarríkja
ESB að þróa EES-samninginn
þannig að hann nái til efnahags-
og peningastefnu ESB og þar
með aðildar að EMU. Ef stjórn-
völd taka ákvörðun um að standa
utan ESB og EMU um ókomna
tíð verður helsti vandi atvinnu-
h'fsins gengisáhætta og vaxta-
munur. Þess vegna þarf að at-
huga vandlega möguleika þess að
tengjast gjaldmiðilssamstarfinu
þegar fram í sækir. í því sam-
bandi er skynsamlegt að haga
stjórn efnahagsmála þannig að
hagrænir þættir hindri ekki slfka
tengingu í fyllingu tímans. Is-
lensk stjórnvöld þurfa því að vera
viðbúin breyttum aðstæðum og
miða stefnu sína í efnahags- og
peningamálum við það að unnt
verði að aðlagast Myntbandalag-
inu með einum eða öðrum
hætti.“
Uppbyggingarsj óðimir
1 skýrslunni segir að eitt af meg-
inmarkmiðum Evrópusambands-
ins sé að stuðla að efnahagsleg-
um og félagslegum jöfnuði. Til
þess að jafna
aðstöðu innan
ESB hafa ver-
ið settir upp
uppbyggingar-
og fram-
kvæmdasjóðir,
sem ráðherra
ráðið setur
reglur um.
Um þessa
nppbvgginga-
sjóði segir
m.a.:
„Ef miðað
er við tiltekn-
ar forsendur
gætu heildar-
framlög til Is-
lands úr upp-
byggingar- og
frumkvæðis-
sjóðum Evr-
ópusam-
bandsins árlega numið um 1.500
til 2.000 milljónum kr. en slík
framlög kalla á 2.200 til 2.700
milljónir kr. sem mótframlag frá
íslandi. Þannig gæti heildarum-
fangið af uppbyggingar- og frum-
kvæðissjóðum Evrópusambands-
ins numið á bilinu 3.700 til
4.700 millj. kr. á ári. Þátttaka ís-
lands í uppbyggingar- og frum-
kvæðissjóðum ESB myndi kalla á
talsverða uppstokkun ríkisút-
gjalda og breytingar á þeirri
byggðastefnu sem rekin hefur
verið hér á landi. Hér er um
mjög grófar áætlanir að ræða
enda byggjast þær á nokkrum
breytum sem ekki er auðvelt að
spá fyrir um, s.s. niðurstöðum
samningaviðræðna, markmiðum
og skipulagi áætlana 0.11.“
„Viðaðildað ESB
myudi ísland þurfa
að taka upp tollskrá
ESB og Mu sameigiu-
lega viðsMptastefna
myudi gilda fyrir það.
Allir toHar myndu
faUa uiður milli ís-
lands og annarra
ESB-ríkja, eMd að-
eins af iðnaðarvörum
eins og nú er heldur
einnig á landbúnaðar-
vörum og sjávarafurð-
um.“