Dagur - 11.04.2000, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 - 11
D^ir
FRÉTTIR
I árekstri viö
gæsír á fLugi
Fámennt var í miö-
borginni aðfaranótt
laugardags samkvæmt
dagbók lögreglunuar,
enda veður litt faQið
til útiveru.
IVlinniháttar afskipti voru af ein-
staklingum, einn handtekinn eft-
ir að ætluð fíknielni fundust.
Mjög lítið var um ungmenni á
svæðinu í andstöðu við útivistar-
ákvæði sem er jákvæð þróun.
Sömu sögu er að segja frá laugar-
dagskvöldinu sem einnig var ró-
Iegt og tíðindalítið fyrir lögreglu-
nienn í miðbænum.
Enn á ný sönnuðu eftirlitsmyndavélar gildi sitt þegar þær urði til þess að
maður sem sparkaði I höfuð annars manns náðist. mynd:hilli
Gæsír flugu á bíl
Okumaður sem ók bifreið sinni á
Skothúsvegi á laugardagskvöldið
varð fyrir því óhappi að gæsahóp-
ur flaug á bifreið hans. Nokkrar
skemmdir urðu á bifreiðinni og
varð lögreglan að aflífa tvær gæs-
ir.
Sextíu stútar við stýri
Um helgina voru 16 ökumenn
kærðir vegna hraðaksturs og 60
vegna gruns um ölvun við akstur.
Einn ökumaður var stöðvaður
eftir að hafa mælst aka bifreið
sinni á 126 km hraða í Artúns-
brekku á laugardagskvöldið og
annar á 125 km hraða á Vestur-
landsvegi í Lögbergsbrekku. Síð-
degis á föstudag var bifreið bakk-
að á mann þar sem hann stóð við
bilaða bifrerð sína. Maðurinn
klemmdist á milli ökutækjanna
en slasaðist ekki alvarlega. Um-
ferðarslys varð á Kringlumýrar-
braut við Miklubraut skömmu
eftir miðnætti á laugardag. Ann-
ar ökumaður fékk minniháttar
áverka í andliti.
Brotist inn í veitingahús
Tilraun var gerð til að brjótast
inní veitingahús við Tryggvagötu
aðfaranótt föstudags. Klippt
hafði verið gat á bárujárnsklæðn-
ingu. Viðvörunarkerfi hússins fór
af stað. Enginn hefur verið hand-
tekinn vegna málsins. Þrir 18 ára
piltar voru handteknir vegna
skemmdarverka á Hverfisgötu.
Spark myndað
Karlmaður var handtekinn eftir
að hafa sparkað í höfuð manns
sem lá í Hafnarstræti. Atvikið
kom fram í eftirlitsmyndavélum
lögreglu. Hinn slasaði var fluttur
á slysadeild með áverka í andliti.
Handtekinn vega fíkniefna-
brots
Við leit í bifreið sem stöðvuð var
á Njálsgötu aðfaranótt Iaugar-
dags fundust ætluð fíkniefni. Að
morgni laugardags var bifreið
stöðvuð í austurborginni. Við leit
í bifreiðinni fundust ætluð fíkni-
efni og tæki til slíkrar neyslu auk
tækja til að ná eldsneyti af öku-
tækjum. Einn maður var hand-
tekinn og fluttur á stöð.
Ungmennum vísað heim
Lögreglan hefur að undanförnu
sinnt eins og kostur er útivistar-
málum barna. Samkomulag er
milli lögreglu og samtaka for-
eldra vegna inngripa þegar úti-
vistarákvæðum er ekki fylgt. I
Mosfellsbæ var 9 ungmennum
vísað heim á föstudagskvöld. I
Arbæ var fimm ungmennum vís-
að heim af sömu ástæðum
Ölvaðlr á almannafæri
Nokkuð hefur borið á því undan-
farna daga að áberandi ölvaðir
einstaklingar eru á ferli í mið-
bæjarsvæðinu að degi til. Í flest-
um tilvikum hafa viðkomandi
einstaklingar átt við langvarandi
neysluvandamál að stríða og hafa
verið á meðferðarstöðvum með-
an kaldara er í veðri. Lögreglan
ásamt fleirum vinna að því að
koma viðkomandi til aðstoðar
eftir því sem hægt er hverju
sinni.
Bókhaldslegt tap
- ekki raimverulegt
Meint tap á bílatrygg-
ingum er bókhalds-
legt en ekki raunveru-
legt segja NS - sem
spyrja hvaða trygging-
ar beri annars kostn-
aðinn af tapinu.
Meint tap á lögboðnum öku-
tækjatryggingum er bókhalds-
legt, en ekki raunverulegt, segja
Neytendasamtökin, sem mót-
mæla hækkunaráformun vá-
tryggingafélaganna á þessum
tryggingum, sem séu líka órök-
studd. Enda hafi tryggingafélög-
in hagnast á lögboðnum öku-
tækjatryggingum á undanförnum
árum, en ekki tapað. Þó vátrygg-
ingafélögin hafi lengi haldið því
fram að lögboðnar ökutækja-
tryggingar séu gerðar upp með
tapi þá sýni ársreikningar þeirra
aftur á móti verulegan hagnað af
tryggingastarfseminni á hverju
ári. Svo sé það satt og rétt að fé-
lögin tapi á bílatryggingunum þá
hljóti þau að taka allt of hátt ið-
gjald fyrir aðra vátryggingastarf-
semi. „Spurningin er þá, hvaða
vátryggingar bera uppi kostnað af
meintu tapi á lögboðnum öku-
tækjatryggingum?" segja Neyt-
endasamtökin.
Ofáætluð tjón
Neytendasamtökin minna á að
þau hafi í athugasemdum til
Fjármálaeftirlitsins bent á að ið-
gjöld hafi verið mun hærri en
bókfærð tjón á síðustu 5 árum.
Sú afstaða Fjármálaeftirlitsins
liggi líka fyrir, að hægt sé að ráð-
stafa 2 milljörðum króna vegna
ofáætlaðra tjóna áranna 1991-
1996. Neytendasamtökin skora
á Fjármálaeftirlitið að standa
dyggilegan vörð um hagsmuni
neytenda gcgn þarflausum og
órökstuddum hækkunum trygg-
ingafélaganna og beita sér fyrir
heildarúttekt á kostnaði við lög-
boðnar ökutækjatryggingar.
Muxiar 38 þús. kr. á hvern
bíl í landinu
Jafnframt benda Neytendasam-
tökin á að sex milljarða munur
hafi verið á bókfærðu og áætluðu
tjóni á 5 ára tímabili 1994-1998,
sem samsvarar um 38.000 krón-
um á hvern einasta skráðan bíl í
landinu. Þótt eftir sé að greiða
einhver tjón vegna þessara ára,
geti tryggingafélögin hávaxtað
fjármunina í bótasjóðnum, en
þeir sem eiga inni bótagreiðslur
fái mjög lága vexti. Avöxtun fjár-
muna sem lagðir eru til hliðar á
bótasjóð eru hluti tryggingastarf-
semi og á að taka með við upp-
gjör á lögboðnum ökutækjatrygg-
ingum. Og á ríkisvaldinu, sem
skyldar landsmenn til að taka
þessar tryggingar, hvílir sérstök
skylda til að standa vörð um eðli-
lega verðlagningu, að mati Neyt-
endasamtakanna. - HEI
Spurt uin ýmislegt
Að jafnaði eru lagðar fram fjölmargar fy;rirspurnir á
Alþingi og svo er einnig þessa dagana. Isólfur Gylfi
Pálmason spyr umhverfisráðherra hvað líði rann-
sóknum á umhverfi Hagavatns á afrétti Biskups-
tungna. Katrín Fjeldsted spyr samgönguráðherra um
símakostnað og sfmanotkun Iandsmanna. Kolbrún
Halldórsdóttir spyr umhverfisráðherra um erfðar-
breyttar afurðir. Pétur Bjarnason spyr menntamála-
ráðherra um svæðisstöðvar Ríkisútvarpsins. Guð-
mundur Hallvarsson spyr um fjölmargt tengt smíði
I Iríseyjarferju og útboð á ferjusiglingum.
ísó/fur Gylfi
Pálmason.
Spurt uui fleira
Ásta Möller spyr utanríkisráðherra um alþjóðasamn-
inga á sviði mannréttinda. Ogmundur Jónasson spyr
félagsmálaráðherra um lagalega stöðu byggðasam-
laga. Guðmundur Hallvarðsson spyr samgönguráð-
herra um úrbætur í öryggismálum sjómanna. Krist-
ján Pálsson spvr umhverfisráðherra um verndun
Þjórsárvera við Hofsjökul. Isólfur Gylfi Pálmason /\S{a fyjöl/er.
spyr umhvefisráðherra um heftingu sandfoks og ár- ---
angurinn af hækkun Sandvatns á Haukadalsheiði í
heftingu sandfoks.
Háskólanám á Austurlandi
Þuríður Backman fer fyrir hópi þingmanna sem hafa
lagt fram þingsályktunartillögu um háskólanám á
Austurlandi og á Vestfjörðum verði komið á árið
2001 undir stjórn Háskólans á Akureryi.
Rannsóknir á ferjuaðstöðu
Nokkrir þingmenn stjórnarflokkanna hafa lagt fram
þingsályktunartillögu um rannsóknir á ferjuaðstöðu
við Bakkaljöru undan Vestmannaeyjum.
Þuríður
Backman.
Draga úr mengun
Ólafur Örn Haraldsson og Kristján Pálsson hafa bor-
ið fram þingsályktunartillögu um að draga úr losun
mengandi lofttegunda með því að vinna og nýta
metangas frá öllum stærri sorphaugum og urðunar-
stöðum landsins. Líka að mótuð verði framtíðar-
stefna um sorpurðun. - S.DÓR
Ólafur Örn
Haraldsson.
Rekstrartap Búlandstinds 410 miHjónir
króna
Á síðasta rekstrarári, sem Iauk í september 1999, var Búlandstindur
á Djúpavogi rekinn með 410 milljóna króna tapi. Rekstrarár Bú-
Iandstinds er hið sama og fiskveiðiárið. Á fyrri sex mánuðum rekstr-
arársins nam tapið 362 milljónum króna, en reksturinn var í járnum
síðari hluta ársins.
I desember 1998 festi útgerðarfyrirtækið Vísir í Sandgerði kaup á
51% hlut í Búlandstindi og hófst þegar handa við að stokka upp
reksturinn en áhrifa fór að gæta á síðari hluta rekstrarársins. I milli-
uppgjöri var afkoma Búlandstinds fyrir fjármagnskostnað og afskrift-
ir neikvæð um 116 milljónir króna en var í lok árs neikvæð um 97
milljónir króna. Á síðari sex mánuðum rekstrarársins batnaði afkom-
an fyrir fjármagnskostnað um tæpar 20 milljónir króna. Vísir hefur
aukið hlut sinn í fyrirtækinu og á nú rúmlega 90%. Engin ákvörðun
hefur þó verið tekin um sameiningu fyrirtækjanna. - GG
900 króniir á hvem Viðeyjargest
Viðey fékk tæplega 25 þúsund gesti á síðasta ári, fleiri en nokkru
sinni fyrr, að sögn staðarhaldara. Kostnað Reykjavíkurborgar af starf-
inu í Viðey segir hann 203 krónur á hver borgarbúa, sem þýðir þá
22,3 milljónir króna. Samkvæmt því hefur borgin greitt um 900
krónur að meðaltali með hverjum gesti sem heimsótti eyna á árinu.
1 Viðeyjarkirkju voru níu almennar messur á árinu og 43 helgi-
stundir aðrar og auk þess 14 hjónavígslur, fjórar skírnir og ein útför.
Kirkjugestir töldust nær 1.800 á árinu. Staðarhaldari segir hátt í
1.200 manns hafa komið bæði í gönguferðir og staðarskoðun. Og
um 3.500 manns hafi hlýtt á frásagnir af sögu Viðeyjar áður en þeir
gengu til veislu í Viðeyjarstofu. Utkoma kannana um viðhorf gesta
til þess scm þeir nutu í eynni varð sú, að 90% til 100% gesta gáfu ein-
kunnina vel og mjög vel, að sögn staðarhaldara. - HEI