Dagur - 11.04.2000, Qupperneq 12
rD^tr
12 -ÞRJÐJUDAGUK 11. APRÍL 2 000
ERLENDAR FRÉTTIR
Leiðtogafundur
haldinn í júni
Kórea hefur verið . J—Ji
Kim Jong-il, leidtogi Norður-Kóreu, féllst á að eiga leiðtogafund með
forseta Suður-Kóreu I júní.
IÞROTTIR
Úr leik Hauka gegn Aftureldingu.
Afturelding
jafnaði metni
klofin í tvö fjandríki
í meira en hálfa öld.
Nú á að reyna að
sættast.
Þeir Kim Dae-jung forseti Suð-
ur-Kóreu og Kim Jong II leið-
togi Norður-Kóreu ætla að hitt-
ast í júní. Frá þessu var skýrt í
gær, og verður fundurinn hald-
inn dagana 12.-14. júní í
Pyongyang, höfuðborg Norður-
Kóreu.
Þetta verður fyrsti leiðtoga-
fundur ríkjanna frá því Kórea
skiptist í tvö ríki árið 1945, og
verður að teljast veruleg tíma-
mót í sögu þeirra. Enn hefur þó
ekkert verið ákveðið um dag-
skrá fundarins, að öðru Ieyti en
því að honum er ætlað að
stuðla að frekari samskiptum,
sáttum og friðsamlegri samein-
ingu ríkjanna. Deilumál þeirra
eru mörg og sum hver erfið
viðureignar. Akveðið hefur ver-
ið að halda undirbúningsfundi
síðar í þessum mánuði, til þess
að fara yfir framkvæmdaratriði.
Bæði Kínverjar, sem stutt
hafa kommúnistastjórnina í
Norður-Kóreu, sem og Japanir
og Bandaríkjamenn, sem styðja
stjómvöld í Suður-Kóreu, sögð-
ust í gær fagna þessum fréttum.
Það mun hafa verið Kim Dae-
jong, forseti Suður-Kóreu, sem
stakk upp á því að leiðtogafund-
ur yrði haldinn. Talsmaður for-
setans sagði að það hefði komið
honum á óvart að norðanmenn
féllust svo fljótt á að halda
fund. Fulltrúar ríkjanna hafa
þó undanfarið átt nokkra leyni-
fundi í Kína.
Norður- og Suður-Kórea áttu
í hatrömmu stríði árin 1950-
53, og nutu Suður-Kóreumenn
þar stuðnings bandaríska hers-
ins. Endanlegur friðarsamning-
ur var aldrei undirritaður,
þannig að formlega séð eiga rík-
in enn í stríði.
Árið 1994 höfðu Norður- og
Suður-Kórea reyndar ákveðið
að halda leiðtogafund, en hon-
um var frestað eftir að Kim II
Sung, leiðtogi Norður-Kóreu,
lést.
Efnahagur Norður-Kóreu
hefur verið afar bágur síðustu
árin og uppskerubrestur hvað
eftir annað valdið hung-
ursneyð, sem erfitt hefur verið
að fá fréttir af. Suður-Kórea
hefur sent Norður-Kóreu mat-
væli af þessum sökum, en full-
yrt er að megnið af þeim hafi
farið til hermanna.
Nú síðustu mánuðina hefur
Norður-Kóreu þó heldur verið
að draga úr einangrunarstefnu
sinni og meðal annars tekið
upp stjórnmálasamband við
Italíu í byrjun þessa árs. Þá
hafa Norður-Kóreumenn rætt
við fulltrúa frá Bandaríkjunum,
Bretlandi, Japan og fleiri ríkjum
um bætt samskipti.
Weizman
segir
af sér
Ezer
Weizman,
forseti Isra-
els, skýrði
frá því á
sunnudag
að hann
ætli að
segja af sér
embætti
áður en
kjörtímabil
hans renn-
ur út árið 2003. Weizman er
orðinn 75 ára, og sagði heilsu-
farsástæður vera fyrir þessari
ákvörðun.
Fláværar kröfur hafa verið
um að Weizman segi af sér
vegna Ijármálahneykslis, en í
desember síðastliðnum komu
fram ásakanir um að hann
hefði þegið meira en 20 millj-
arða króna í gjafir frá frönsk-
um milljónamæringi á árun-
um 1988-93, en á þeim tíma
var Weizman þingmaður og
ráðherra. Weizman hélt þess-
um greiðslum leyndum og gaf
þær ekki upp til skatts.
Lögreglunefnd, sem rann-
sakaö hefur þessar ásakanir,
komst í síðustu viku að þcirri
niðurstöðu að réttast væri að
Iáta málið niður falla. Ástæða
þess var þó eingöngu sú að
mikill hluti hinna meintu af-
brota er fyrndur samkvæmt
fimm ára reglu í ísraelskum
lögum.
Afturelding tryggði
sér í fyrrakvöld odda-
leik í 4-liða einvíginu
við Hauka í úrvals-
deild karla í hand-
knattleik, þegar liðiu
mættust á heimaveHi
Haukanua í Hafnar-
firði.
Eftir afleitan leik á föstudags-
kvöldið í fyrsta leik úrslitaeinvíg-
isins við Hauka náðu deildar-
meistarar Aftureldingar að vinna
Haukana í öðrum leiknum sem
fram fór á heimavelli Haukanna í
Hafnarfirði í fyrrakvöld og trygg-
ja sér þar með oddaleik sem fram
fer að Varmá í kvöld. Afturelding
vann leikinn þó aðeins með eins
marks mun, 23-24 og var nú allt
annað að sjá til Iiðsins en í fyrri
leiknum í Mosfellsbæ á föstudag-
inn. Mestu munaði þar um frá-
bæran leik Bergsveins Berg-
sveinssonar sem var Haukunum
mjög erfiður og einnig var varn-
arleikurinn nú mun betri með
endurkomu Alexei Trufans, sem
var í leikbanni á föstudaginn.
Óðagot á Haukum
Eftir að Afturelding hafði leitt
lengst af og náð mest þriggja
marka forskoti þegar leið á seinni
hálfleikinn, náðu Haukarnir góð-
um leikkafla og þegar um það bil
sex mínútur voru til Ieiksloka
höfðu þeir minnkað muninn í
eitt mark. Afturelding missti þá
tvo Iykilmenn, Litháana Gintas
og Gintaras útaf með nokkurra
sekúndna millihili og útlitið því
ekki gott fyrir Islandsmeistarana.
En þá greip Haukana eitthvað
óðagot og með ótrúlegum hætti
tókst þeim að klúðra hverri sókn-
inni á fætur annari á meðan Aft-
urelding jók muninn aftur í tvö
mörk. Afram hélt óðagotið hjá
Haukum, sem héldu boltanum
þó lengst af síðustu mínúturnar
og tókst þeim aðeins að minnka
muninn í eitt mark.
Óskar í strangri gæslu
Hjá Haukum er erfitt að gera upp
á milli leikmanna og helst að
nefna Magnús Sigmundsson í
markinu, sem varði vel á köflum.
Þeir Halldór Ingólfsson og Jón
Karl Björnsson, sem voru marka-
hæstir Haukanna í l'yrri leiknum,
voru nú ekki svipur hjá sjón og
eins var með Kjetil Ellertsen. Sig-
urður Þórðarson átti góða inn-
komu í seinni hálfleiknum og
gerði þá mikilvæg mörk úr hægra
horninu. Oskar Ármannsson var í
strangri gæslu allan leikinn, svo
strangri að hann gerði ekki eitt
einasta mark utan af velli og fékk
hann oft að finna fyrir sterkri
vörn Aftureldingar, þar sem
nokkuð bar á að farið væri gróf-
lega í andlitið á kappanum.
Markahæstir hjá Haukum voru
þeir Aliaksandr Shamkuts, Hall-
dór Ingólfsson, Sigurður Þórðar-
son og Oskar Ármannsson allir
með fjögur mörk.
Hjá Aftureldingu var Berg-
sveinn langbestur og varði hann
alls 22 skot í leiknum. Hann var
Haukunum sérstaklega erfiður á
lokamínútunum og varði þá oft
frábærlega eins og reyndar allan
leikinn. Af útileikmönnunum átti
Gintaras bestan leik og var hann
markahæstur með 8 mörk. Bjarki
átti líka góðan leik og varð hann
næst markahæstur með 7/3
mörk.
Haukarnir láku við hvern
sinn fingur
I fýrri leiknum sem fram fór að
Varmá á föstudaginn, var auðséð
að Afturelding saknaði Alexei
Trufan, kjölfestunnar í vörninni
og má segja að heimaliðið hafi
aldrei átt möguleika gegn frísk-
um Haukunum, sem náðu þægi-
legri forystu strax í upphafi leiks.
Haukarnir voru þarna að spila
sinn allra besta leik í vetur og átti
Afturelding aldrei möguleika
nema þá helst f upphafi seinni
hálfleiks er þeim tókst að minnka
muninn í tvö mörk. Þegar staðan
var 18-20 tóku Haukarnir mikinn
kipp og skoruðu þá þrjú mörk í
röð og breyttu stöðunni f 18-23.
Þar með opnuðust allar flóðgátt-
ir og eftirleikurinn var Haukum
auðveldur. Enda léku þeir við
hvern sinn fingur og skoruðu
mörk í öllum regnbogans litum,
með ævintýralegum hætti og varð
lokastaðnan 25-31. Halldór Ing-
ólfsson fór þar á kostum hjá
Haukum og varð markahæstur
með 7 mörk auk þess sem hann
spilaði féiaga sína oft skemmti-
lega uppi. Jón Karl Björnsson
skoraði einnig 7/4 mörk og Kjetil
Ellertsen kom næstur með 6/1
mörk. Hjá Aftureldingu var Gint-
as markahæstur með 7 mörk og
Bjarki næstur með 5/3.
ÚrsUt í
gærkvöld
Handbolti, úrslitakeppni
karla
Fram - KA 29-27
Körfubolti, úrslitakeppni
kvenna
KB - Keflavík 43-57
England, úrvalsdeild
Middlesbro - Man. Utd. 3-4
iÉDÍii'iiiiiiiWI
Merkel orðin leiðtogi CDU
ÞÝSKALAND - Angela Merkel hlaut 95,9% atkvæða á flokksþingi
Kristilega demókrataflokksins (CDU) í Þýskalandi í gær, og er þar
með orðin leiðtogi llokksins. Hún er fyrsta konan sem gegnir þessu
embætti, sem Helmut Kohl gegndi í aldarfjórðung. Hún er jafn-
framt fyrsti Austur-Þjóðverjinn sem verður leiðtogi CDU. Merkel
var í síðasta mánuði einróma valin til Ieiðtogaembættisins af forustu
flokksins, þannig að hún þótti fyrirfram örugg um kosningu á
flokksþinginu í gær. Hún hélt ræðu á þinginu þar sem hún þakkaði
Wolfgang Scháuble, forvera sínum í embættinu, sem sagði af sér
vegna leynireikninga Helmuts Kohls. Scháuble hafði áður haldið
ræðu á þinginu, þar sem hann hvatti flokksfélaga sína til þess að
óttast ekki sannleikann í hneykslismálinu, sem íþyngt hefur flokkn-
um á síðustu mánuðum
ÖnnuT umferð í Peru
PERU - Fujimori, forseti Perú, hlaut flest atkvæðin í fyrri umferð
forsetakosninganna á sunnudag. Hann náði hins vegar ekki hrein-
um meirihluta, hlaut 48% atkvæða, og þess vegna þarf að halda
aðra umferð þar sem kosið verður á milli þeirra tveggja sem flest at-
kvæði hlutu. Höfuðandstæðingur hans, Toledo, hlaut 41% atkvæða.
Toledo hélt því fram að niðurstöður kosninganna hafi verið falsað-
ar og hvatti stuðningsmenn sína til þess að mótmæla hástöfum.
Sjevardnadze sigraði í Georgíu
GEORGÍA - Edvard Sjevardnadze, forseti Georgíu, hlaut 79,9% at-
kvæða í forsetakosningunum sem fóru fram í Georgíu um helgina
og sigraði því með miklum yfirburðum. Sá frambjóðandi, sem hlaut
næstflest atkvæði, fékk 17,3% atkvæða. Kosningaþátttakan var um
80%.
Fílar og hvalir
KENÍA - Alþjóðleg ráðstefna um dýrategundir í útrýmingarhættu
hófst í Kenía í gær. Alls eru fulltrúar 1 50 ríkja á ráðstefnunni. Ráð-
stefna af þessu tagi er haldin á tveggja til þriggja ára fresti, og fylg-
ja henni jafnan harðar deilur milli verndarsinna og nýtingarsinna.
Eins og oft áður eru deilur um fíla og hvali áberandi, og meðal ann-
ars taka Islendingar virkan þátt í deilunni um hvalategundir.