Dagur - 11.04.2000, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 - 13
ÍÞRÓTTIR
Liverpool í airnað sætið
Liverpool styrkti uin
helgina stöðu sína í
slagnum um Meistara-
deildarsæti að ári, eft-
ir 2-0 sigur á Totten-
ham og sendu Leeds
sem tapaði 0-1 gegn
Aston Villa niður í
þriðja sætið.
Liverpool komst í annað sæti
ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-
0 sigur á Tottenham á Anfield
Road á sunnudaginn, þar sem
þeir Patrik Berger og Michael
Owen skoruðu mörkin. Berger
gerði fyrra markið á 34. mínútu
eftir að hafa komist á auðan sjó
utarlega í teignum og þrumuskot
hans þandi netmöskvana. Þetta
var níunda mark hans á leiktíð-
inni. Owen gerði það seinna á
61. mínútu eftir sendingu frá
Emile Heskey. Liverpool er þar
með án taps í síðustu ellefu leikj-
um og hefur aðeins tapað tveim-
ur af síðustu 24 deildarleikjum.
Síðasti tapleikur liðsins var ein-
mitt gegn Tottenham á White
Hart Kane í janúar. Þeir höfðu
því harma að hefna ekki síst
vegna þess að Tottenham sló
Liverpool út úr deildarbikarnum
á Anfield fyrr í vetur. Þetta var
annað tap Tottenham í röð, því á
mánudaginn töpuðu þeir gegn
Middlesbrough á heimavelli.
Meistaradraumar úr sögunni
Julian Joachim skoraði sigur-
mark Aston Villa í 1 -0 sigri liðs-
ins gegn Leeds á Villa Park í
Birmingham á sunnudaginn.
Markið kom á 39. mínútu og
gerði endalega út um veika von
Leeds um enska meistaratitilinn.
Leikmenn Leeds voru ekki sáttir
við markið og sögðu að Joachim
hefði ýtt við Gary Kelly, varnar-
manni Leeds, til að skapa sér
pláss í teignum áður en hann
skoraði. Mfnútu þögn var fyrir
leikinn til að minnast tveggja lát-
inna stuðningsmanna Leeds,
sem voru drepnir fyrir Evrópuleik
Leeds gegn Galatasaray í Istan-
bul f Tyrklandi á miðvikudaginn.
Hutchmson tryggði Everton
jafntefli
Gerry Taggert kom Leicester í 1 -
0 strax á 8. mínútu, þegar hann
skoraði í 1-1 jafntefli gegn Ev-
erton á Filbert Streret á laugar-
daginn. Hann fékk sendingu frá
Mussy Izzes og boltinn söng í
netmöskvunum eftir dúndur-
skalla. Don Hutchinson, sem er
kominn á söluslista hjá Everton
og í fyrsta skipti í byrjunarliðinu í
síðustu átta leikjum skoraði jöfn-
unarmarkið á 35. mínútu.
Pahars skoraði eftir 25
sekúndur
Marian Pahars tryggði South-
ampton 1-2 sigur á Bradford,
þegar liðin mættust á heimavelli
Bradford á laugardaginn og skor-
aði Pahars markið aðeins 25 sek-
úndum eftir að honum var skipt
inná fyrir Matt Le Tissier. Chris
Marsden skoraði fyrra mark
Dýrðlinganna á 56. mínútu, en
Robbie Blake lagaði stöðuna fyr-
ir Bradforn á 78. mfnútu. Þetta
var fimmti ósigur Bradford í röð.
Þriðji sigur Sunderland í röð
Sunderland vann 2-1 sigur á
Hermanni Hreiðarssyni og félög-
um í Wimbledon þegar liðin
mættust á heimavelli Sunderland
á laugardaginn. Mörk frá þeim
Niall Quinn á 54. mfnútu og
Kevin Kilbane tryggðu Sunder-
land sigurinn en mark Kilbane
var hans fyrsta fyrir Sunderland
síðan hann var keyptur frá West
Bromwich Albion. Þetta var
þriðji sigurleikur Sunderland í
röð f deildinni, en um leið og
Ieikurinn var fjórða tap
Wilmledon í röð. Það var Mich-
ael Hughes sem skoraði jöfnun-
armark Wimbledon á 73. mín-
útu, en lök vörn Donana gat ekki
komið í veg fyrir að Kilbane skor-
aði sigurmark „Svörtu kattana".
Sdrnoor klúðraði viti
Stefan Schnoor, leikmaður Der-
by, lét Alex Chamberlain, mark-
vörð Watford, verja frá sér víta-
spyrnu þegar liðin gerðu marka-
laust jafntefli á heimavelli
Watford. Vítaspyrnan var mjög
vafasöm og augljóst í endursýn-
ingu sjónvarps að brotið, þar sem
Robert Page braut á Darryl
Powell, átti sér stað utan víta-
teigs. Heiðar Helguson var ekki í
byrjunarliði Watford, en kom
inná í lok leiksins og átti þá strax
stangarskot í fyrstu snertingu.
Sóknarleikur Watford hresstist
til muna með innkomu Heiðars.
Úrslit leikja um helgina:
Aston Villa - Leeds 1-0
Liverpool - Tottenham 2-0
Bradford - Southampt. 1-2
Leicester - Everton 1-1
Sunderland - Wimbled. 2 - 1
Watford - Derby 0-0
Næstu leildr á morgun:
Chelsea - Coventry
West Ham - Newcastle
Wimbledon - Sheff. Wednesday
Poyet hetja Chelsea
Tvö mörk frá Gustavo
Poyet trggðu Chelsea í
úrslitiu á Wembley.
Gustavo Poyet, framherjinn
snjalli frá Urúgvæ, batt um helg-
ina enda á bikardrauma
Newcastle United, þegar hann
skoraði bæði mörk Chelsea í 2-1
sigrinum gegn Newcastle, í und-
anúrslitum enska bikarsins á
Wembley-leikvanginum í London
á sunnudaginn. Poyet sem kom
inn í lið Chelsea eftir tveggja
leikja fjarveru skoraði fyrra mark-
ið á 17. mínútu leiksins og það
seinna átján mínútum fyrir leiks-
lok, eftir að Robert Lee hafði
jafnað leikinn fyrir Newcastle um
miðjan seinni hálfleik, með skalla
að marki eftir fyrirgjöf frá Alan
Shearer. Seinna mark Poyets var
líka með skalla og eftir fyrirgjöf
frá Jon Harley.
Sex hreytingar hjá Chelsea
Gianluca Vialli, stjóri Chelsea var
að vonum ánægður með Poyet
eftir leikinn og sagði að hann
væri frábær leikmaður. „Eflaust
hefur hann verið óánægður með
að fá ekki tækifæri í tveimur síð-
ustu leikjunt og viljað sanna sig
þegar hann fékk tækifæri. Þetta
er líka aðferðin til þess, þegar
leikmenn þurfa að minna á sig,“
sagði Vialli. Vialli hafði gert sex
breytingar á byrjunarliðinu sínu
frá sigurleiknum gegn Barcelona
í meistaradeild Evrópuí síðustu
viku og voru þeir Chris Sutton og
Líberíumaðurinn George Weah
nú aftur komnir f byrjunarliðið
fyrir þá Gianfranco Zola og Tore
Andre FIo sem skoruðu gegn
Barcelona. Einnig voru þeir Jon
Harley, Frank Leboeuf, Roberto
Di Matteo og Poyet aftur mættir
í slaginn.
Einnig breytingar hjá
Newcastle
Bobby Robson, stjóri Newcastle
hafði einnig gert breytingar á
sínu liði og stillti þeim Steve
Ilowey og Nikos Dabizas upp í
vörnina í stað Frakkans Alain
Goma og Portúgalans Cristovao
Helder. Shay Given var líka aftur
kominn í markið eftir að hafa
hvílt í Ieiknum gegn Bradford um
helgina, þar sem Steve Harper
leysti hann af. Einnig var Per-
úmaðurinn Nolberto Solano aft-
ur í liðinu eftir landsleikjafrí og
leysti af Frakkann Didier Domi.
Leikurinn byrjaði með miklum
látum og sköpuðu bæði lið sér
góð marktækifæri. Gary Speed
komst einn innfyrir vörn Chelse
strax á fimmtu mínútu eftir að
hafa platað Frakkann Didier
Deschamps, en Ed de Goey
bjargaði með góðri markvörslu.
Þremur mínútum síðar tókst Ge-
orge Weah að skora mark, þegar
hann renndi boltanum í gegnum
klofið á Shay Given, en markið
var dæmt af vegna rangstöðu.
Nolberto Solano olli miklum usla
í vörninni hjá Chelsea með leikni
sinni og hraða og átti bakvörður-
inn Harley í mesta basli með Per-
úmanninn.
Þriðja tap Newcastle í röð á
Wembley
Sókn Newcastle þyngdist til
muna eftir því leið á Ieikinn og
þurfti De Goey oft að taka á hon-
um stóra sínum. Þeir reyndu allt
til að jafna metin, en án árangurs
og öruggur sigur Chelsea í höfn.
Newcastle var þar með slegið út
úr bikarnum á Wembley-leik-
vanginum í þriðja skipti á jafn-
mörgum árum, en í fyrra komust
þeir alla leið í úrslitin og töpuðu
þar gegn Manchester United eins
og þeir gerðu einnig gegn Arsenal
árið áður.
íris Sæmundsdóttir í baráttu um
boitann við Miahan, leikmann USA.
Þóra lokar markinu.
Aðeins þremur dögum eftir 8-0
ósigurinn gegn heimsmeisturum
Bandaríkjanna í kvennaknatt-
spyrnu, gerði íslenska kvenna-
landsliðið sér lítið fyrir og náði
markalausu jafntefli þegar Iiðin
mættust aftur á Ericsson-leik-
vanginum í Charlotte á laugar-
daginn. Fyrri leikurinn, sem
fram fór á Ieikvelli Davidson há-
skólans í Charlotte, var gegn
hálfgerðu varaliði Bandaríkjanna
og því kom þessi frammistaða ís-
lensku stelpnanna í seinni leikn-
um, gegn svo að segja fullskip-
uðu liði heimsmeistaranna,
verulega á óvart.
Samkvæmt fréttum banda-
rískra fréttastofa, var það heist
fyrir frábæra frammistöðu fs-
lenska markvarðarins, Þóru
Helgadóttur, að íslenska liðinu
tókst að halda jöfnu. Þar segir að
Þóra hafi hreinlega haldið ís-
lenska liðinu á Iloti, þegar hún
varði hvert skotið af öðru frá
sóknarmönnum heimsmeistar-
anna og tilgreina sérstaklega sex
skipti í fyrri hálfleik.
Þóra
lokaði
mark-
inu
Þóra hélt svo uppteknum hætti
í seinni hálfleik og var þá í nógu
að snúast þar sem bandaríska lið-
ið sótti stíft. Tiffeny Milbrett,
skæðasti sóknarmaður banda-
ríska liðsins átti ijölda skota á
markið, sem öll lentu í öruggum
höndum Þóru, en á 77. mínútu
þurfti hún heldur betur að hafa
fyrir hlutunum og varði þá á ótrú-
legan hátt skalla frá Milbrett,
með því að henda sér eins og
köttur á boltann, eins og segir í
einni fréttinni.
Tveimur mínútum síðar varði
hún dúndurskot af 20 metra færi,
frá Mia Hamm, þekktasta Ieik-
manni bandaríska liðsins og í lok-
in erfitt skot frá Brandi Chastain
15 sekúndum íyrir leikslok.
Rúmlega tíu þúsund áhorfend-
ur mættu á seinni leik liðanna á
Ericsson-Ieikvanginn á laugar-
daginn, en leikirnir voru liður í
undirhúningi bandaríska liðsins
fyrir Olympíuleikana í Sydney.