Dagur - 05.07.2000, Blaðsíða 1
1
Alvarleg dgnirn
við stöðugleikaim
Þimgbúið siunar í ís-
lensku efnaliagslííi.
Þjóðhagsstofnun lýsir
yfir vonhrigðum með
verðhækkanir að und-
anförnu. Upplausnar-
ástand framundan að
mati ASÍ.
Heldur fer minna fyrir sólskininu
sem Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sagði framundan í ræðu
sinni á þjóðhátíðardaginn. Innan
við þremur vikum sfðar segir Ari
Skúlason, framkvæmdastjóri
ASI, að verðhækkanir undanfar-
íð bendi til þess að forsendur
kjarasamninga séu brostnar.
Þjóðhagsstofnun segir slíka spá
ekki tímabæra en viðurkennir
óveðursský. Verðbólga vex miðað
við síðustu spá.
„Eg hef verulegar áhyggjur af
því að forsendur kjarasamninga
muni bresta. Við gerðum kjara-
samninga í vetur og féllum frá
launahækkunum, þar sem meg-
inforsendan var sú að verðlag
hreinlega lækkaði. Síðan rekum
við okkur á það að
enginn hefur áhuga á
því að verðlag lækki.
Þar hlýtur ábyrgðin að
vera að stóru leyti hjá
stjórnvöldum en auð-
vitað líka hjá atvinnu-
rekendum. Við erum
að gera samning við
Samtök atvinnulífsins
og fyrirtæki eins og
Sjóvá- Almennar er
náttúrlega aðili að
þeim samtökum. Þeim
virðist bara nákvæm-
lega sama,“ segir Ari.
sama tíma og enginn virðist vilja
taka ábyrgð á því að halda stöð-
ugleikanum. Menn eru að velta
upp einhverjum siðferðilegum
spurningum hvað
varðar íhlutun á gengi
krónunnar. Það liggur
beint við að grunnur-
inn að þessu öllu sam-
an eru gróðah'kur og
þær eru ekki slæmar
eins og ástandið er
núna,“ segir Ari.
Arí Skúlason lýsir eftir
þreföldu kraftaverki til
að kjarasamningar
haldi.
liggur vel við höggi
Ari telur þjóðfélagið þurfa tvöfalt
eða þrefalt kraftaverk til að for-
sendurnar haldi og hann furðar
sig ekki á að gengi íslensku krón-
unnar hafi legið vel við höggi
undanfarið. „Menn segjast hissa
á að atlaga sé gerð að krónunni á
Vonbrigði
Dagur bar dökka
mynd ASI af ástand-
inu undir Þórð Frið-
jónsson hjá Þjóðhags-
stofnun. Honum
finnst Ari Skúlason
óþarflega svartsýnn og telur um-
ræðuna um uppsögn kjarasamn-
inga ekki tímabæra. Astandið sé
hins vegar ekkert til að hrópa
húrra yfir. „Verðbólga hefur verið
óhagstæðari en reiknað var með
frá því að kjarasamningar losn-
uðu og t.d. hafa bæði Þjóðhags-
stofnun og Seðlabankinn endur-
skoðað spár sínar til hækkunar.
Þannig reiknuðum við með að
verðbólga yrði 4,5% í nýlegri spá
okkar sem er nokkur lækkun frá í
fyrra en það eru blikur á lofti.
Venjulega hefur verið tíðindalítið
af verðbólgu á miðju sumri en nú
bregður svo við að horfur eru á
að vísitalan hækki töluvert mikið
núna í júlí. Þar má nefna hælck-
un bifreiðatrygginga, bensín, raf-
magn og flugfargjöld. Þetta veld-
ur auðvitað vonbrigðum,“ segir
Þórður.
Enn segir Þórður erfitt að segja
fyrir um áhrif þessa á kjarasamn-
inga og hann segist ekki geta
metið hve mikilli verðbólguaukn-
ingu fyrrnefndir liðir valdi.
Spurður hvort hann telji rétt að
ríkið bregðist sérstaklega við, t.d.
með lækkun hlutdeildar í elds-
neytisverði, segir Þórður að slík-
ar aðgerðir geti haft þveröfug
áhrif til Iengri tíma. „Það er tví-
eggjað sverð að fara í aðgerðir
sem miðast að því að ríkið greiði
niður verðbólguna." - BÞ
Hópreið
Landsmót hestamanna, sem
þessa dagana fer fram á félags-
svæði Hestamannafélagsins
Fáks í Víðidal, var formlega sett
í gærdag. Fyrir setninguna var
efnt til 1000 manna hópreiðar,
þar sem forseti íslands, Herra
Olafur Ragnar Grímsson og
Haraldur Haraldsson, stjórnar-
formaður landsmóts 2000, riðu
í broddi fylkingar, auk sjö ráð-
herra og Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur, borgarstjóra.
Hópreiðin mun vera sú fjöl-
mennasta sem efnt hefur verið
til hér á landi, en safnast var
saman á skeiðvelli Fáks í Víðidal
og þaðan riðið umhverfis
Rauðavatn og til baka á skeið-
völlinn, þar sem formleg setn-
ingarathöfn fór fram. Við setn-
ingu mótsins héldu forseti Is-
lands, landbúnaðarráðherra og
borgarstjóri ávörp, auk þess sem
séra Valgeir Astráðsson, sóknar-
prestur í Seljasókn og félagi í
Fák, stjórnaði helgistund.
Haraldur Haraldsson, stjórnarformaðurLandsmóts 2000, fór ásamt Úlafi Ragnari Grimssyni, forseta íslands, fyrir
þúsund manna hópreið.
Jón Kristjánsson, formaður fjár-
laganefndar.
Forsendur
skoðaðar
Menn hafa fyllst óróa og ótta
vegna þeirra verðhækkana sem
átt hafa sér stað að undanförnu.
Bensínið komið yfir 100 kr. lítr-
inn, Flugleiðir og Flugfélag Is-
lands hafa hækkað fargjöld,
Landsvirkjun hækkað rafmagns-
verð og nú hækka tryggingafé-
lögin, með Sjóvá-Almennar í far-
arbroddi, iðgjöld af bifreiðatrygg-
ingum um allt að 30%. Ljóst þyk-
ir að verðbólgan muni hækka.
Jón Kristjánsson, formaður
fjárlaganefndar Alþingis, sagðist
bera ákveðinn ugg í brjósti vegna
alls þessa. Hann sagði að þessar
hækkanir muni hafa áhrif á verð-
bólgumarkmiðin við gerð fjárlaga
fyrir næsta ár en hún er þegar
hafin.
„Eg hefði talið ástæðu til þess
að spyrjast fyrir um forsendur
þessara hækkana hjá trygginga-
félögunum. Eg sé ekki betur en
þau séu aftur að skírskota til
skaðabótalaganna. Þau báru það
líka fyrir sig í fyrra þegar þau
hækkuðu bifreiðatryggingaið-
gjöldin. Þess vegna tel ég að
stjórnvöld ættu að kanna ræki-
lega hvað liggur hér að baki,“
sagði Jón, aðspurður hvað stjórn-
völd gætu gert.
Inngrip erfið
Vilhjálmur Egilsson, formaður
efnahags- og viðskiptanefndar
Alþingis, sagði að stjórnvöld
gætu ekki gripið inni í. Það hefði
oft verið reynt en með engum ár-
angri. „Eg veit ekki hvort ég ótt-
ast það svo mjög að verðbólgan
sé að fara úr böndunum en mér
finnst hún hins vegar of mikil.
Það er óásættanlegt að verðbólg-
an fari yfir 3%.“
Aðspurður hvort hann óttaðist
að forsendur kjarasamninga
væru brostnar sagði Vilhjálmur
að aðilar vinnumarkaðarins yrðu
að svara því hvort svara ætti
verðbólgu með verðbólgu. „Þá
værum við aftur komin inn í
gamla vítahringinn," sagði Vil-
hjálmur. - s.DÓR
IIHHHHHHfiBHHHHHHHHHHRBHHHHflHHÍHi
www.ormsson.is
RöDIOM«UST
Glerárgötu 32 • Síml 462 3626
SjÓÓVél AR-A220 •-
• 5/30 vöruflokkar • Allt að 500 PLU númer
• 4 afgreiðslumenn • Sjálfvirk dagsetning og tími
• Hljóðlaus hitaprentun
ER-A150 verð 23.900 stgr.