Dagur - 05.07.2000, Side 5
MIÐVIKUDAGVR 5. JÚLÍ 2000 - 5
Tkgur.
FRETTIR
Aðför að toppum
úmanVMSI
Bakvakt
Formaður ASA í
fótspor Bjöms
Grétars. Ósk um af-
sögn og starfsloka-
sanming.
Ekkert lát virðist vera á átökun-
um innan VMSI vegna starfsloka
Björns Grétars Sveinssonar. Sig-
urður Jngvarsson, formaður AI-
þýðusambands Austurlands, sem
óskað hefur eftir starfslokasamn-
ingi og lausn frá störfum, segir
að upphafið að þeim „uppspuna
og lygum“ sem haldið hefur ver-
ið á lofti í gagnrýni á hendur sér
og fleirum vegna starfsloka
Björns Grétars megi rekja til Að-
alsteins A. Baldurssonar, for-
manns Alþýðusambands Norð-
urlands. Sigurður segir að efnis-
lega hafi Aðalsteinn sagt í fjöl-
miðlum að hann og fleiri í fram-
kvæmdastjórn VMSÍ hefðu „selt
Björn Grétar til að tryggja stöðu
sína í nýju sambandi." Sigurður
segir að þetta hafi leitt til þess að
hann hafi misst stuðning innan
ASA og óskað eftir starfslokum í
framhaldi af þvf.
Sorglegt
Aðalsteinn A. Baldursson, for-
maður AN, segist vera undrandi
á þessum ummælum Sigurðar og
vfsar þeim til föðurhúsanna.
Hann segir að það sé meira vald-
ið sem hann hefur ef allt það
sem hann segir hafi þær afleið-
ingar að menn þurfi að segja af
sér. Hinsvegar sé engin launung
á því að hann
hafi gagnrýnt
vinnubrögðin
við starfslok
Björns Grétars
á fundi fram-
kvæmda-
stjórnar
VMSÍ. Hann
telur að meira
hljóti að liggja
að bald þess-
um hræring-
um fyrir austan með störf Sig-
urðar innan ASA og því sé þáttur
hans í starfslokum Björns Grét-
ars ekki nema hluti af þeim.
Hann áréttar þá skoðun sína að
vinnubrögðin vegna starfs-
lokanna hafi verið verkalýðs-
hreyfingunni til skammar og
sorglegt ef þeir sem að þeim
stóðu séu að reyna að draga aðra
niður með sér.
200 þúsiuid í mánaðarlann
Stjórn ASA hefur til skoðunar þá
ósk Sigurðar að láta af störfum,
en hann hefur verið formaður
síðan 1988. Hann gerir ráð íyrir
að nýta starfslokasamninginn til
að endurmennta sig, en hann er
húsasmiður
að mennt eins
og Björn Grét-
ar. Hinsvegar
er óvíst hversu
starfsloka-
samningurinn
muni ná til
langs tíma en
Sigurður seg-
ist hafa tæpar
200 þúsund
krónur í heild-
arlaun á mánuði og engin fríð-
indi. Ef gengið verður að óskum
Sigurðar má gera ráð fyrir að
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir,
formaður Vökuls á Höfn í
Hornafirði og varaformaður
ASA, taki við stjórnartaumunum
þangað til nýr formaður verður
kosinn á þingi þess í haust.
Ekki gert neitt af sár
Innan framkvæmdastjórnar
VMSÍ hafa einkum þrír menn
verið gagnrýndir fyrir þátt sinn í
starfslokamáli Björns Grétars.
Það eru þeir Sigurður Ingvars-
son, Hervar Gunnarsson og
Björn Snæbjörnsson. Nokkru
áður en Sigurður tók ákvörðun
sína hafði Hervari Gunnarssyni,
ritara VMSÍ og formanni Verka-
lýðsfélags Akranes, verið tilkynnt
af félagsmönnum að ákveðið hafi
verið að bjóða fram lista gegn
honum við næsta stjórnarkjör.
Astæðan var sögð uppsöfnuð óá-
nægja og þáttur hans f starfslok-
um Björns Grétars. Sigurður
segir að þetta sé þetta hrein og
ldár aðför að Hervari sem eigi
það ekki skilið. Þriðji maðurinn,
Björn Snæbjörnsson formaður
Einingar - Iðju á Akureyri, virðist
hinsvegar vera traustur í sessi. í
það minnsta segist hann ekki
hafa orðið var við annað, enda
segist hann ekki hafa gert
nokkurn skapan hlut af sér frek-
ar en Hervar og Sigurður. I það
minnsta segist hann ekki hafa
neinar spurnir af því að það eigi
að fara setja hann af. - GRH
Vöktun á jarð-
skjálftadeild
Veðurstofunnar
hefur verið
breytt. Frá 17
júní sl. þegar
fyrri risaskjálft-
inn reið yfir,
hefur verið
samfelld sólar-
hringsvakt jarð-
skjálftasérfræð-
inga á Veður-
stofunni en nú er búið að taka
upp bakvaktakerfi hjá þessum
sérfræðingum.
„Við erum í rauninni að auka
eftirlitið hjá vaktfólkinu á veður-
spádeildinni. Þau hafa fengið
ákveðin gögn til að vinna úr og
við sjáum ekki að þessi breyting
þýði verri vöktun þótt við hætt-
um að vera hérna allan sólar-
hringinn," segir Ragnar Stefáns-
son jarðskjálftafræðingur.
Bakvaktakerfið er nýjung
meðal skjálftafræðinganna.
Ragnar segir að menn sem vaki
alla nóttina séu oft ekki til mik-
illar vinnu daginn eftir. Spurður
hvort Ragnar hafi sjálfur yfirhöf-
uð náð að sofa eitthvað dagana
sem mest gekk á svarar hann:
„Ja, það var ansi mikið upp og
ofan. Maður tekur þessa hluti
inn á sig og reynir að sinna þeim
eins og hægt er. Alls konar
vandamál komu upp, t.d. í
mælakerfinu, þannig að maður
hugsaði kannski meira um að
leysa vandamálin heldur en
sofa.“ - BÞ
Sigurður
Ingvarsson.
Ragnar Stefáns-
son jarðskjálfta-
fræðingur.
Átök á aðalfimdi
„Látum ekki leiða
okkur til slátrunar
frekar en kýrin í Ön-
undaríiröi“, segir
Konráð Eggertsson.
Senn líður að aðalfundi Vélbáta-
ábyrgðarfélags Isfirðinga, sem
svo mjög hefur verið í fréttum að
undanförnu vegna ákvörðunar
meirihluta stjórnar um að hætta
starfsemi félagsins og flytja alla
tryggingastarfsemi til Sjóvár - Al-
mennra. Þeir sem tiyggja hjá
Vélbátaábyrgðarfélaginu eru eig-
endur þess og þeir hafa ekki ver-
ið spurðir álits á þessu. Mjög
ntargir þeirra eru sára óánægðir
með þessa ákvörðun stjórnar og
munu ætla að fjölmenna á aðal-
fundinn. Smölun er hafin fyrir
aðalfundinn og vinna hafin hjá
báðum aðilum við að tryggja sér
atkvæði á fundinum.
Konráð Eggertsson, útgerðar-
maður á ísafirði, er einn þeirra
sem eru mjög óánægðir með að
leggja starfsemi félagsins niður
Konráð Eggertsson.
og færa hana til Sjóvár-Al-
mennra.
Látum ekki leiða okkur til
slátrunar
„Fjölmargir hafa haft samband
við mig vegna þessa máls. Síðast
í morgun hringdi í mig maður og
talaði við mig í um klukkutíma
vegna þessa. Hann og allir aðrir
sem hafa talað við mig eru á einu
máli unt að það geti ekki gengið
að leggja bara félagið niður og
flytja starfsemina til annars
tryggingafélags," sagði Konráð
Eggertsson.
Hann segir að menn samþykki
ekki að láta „Ieiða sig svona til
slátrunar," og muni því and-
mæla.
„Einar Oddur stjórnarformað-
ur ætti nú manna best að muna
eftir kúnni sem menn voru að
leiða til slátrunar í Önundarfirð-
inum forðum daga en hún sleit
sig lausa og lét ekki leiða sig í
sláturhúsið heldur synti yfir Ön-
undarfjörð, sem frægt varð. Við í
Vélbátaábyrgðarfélagi ísfirðinga
ætlun líka að slíta okkur lausa
og því munum við mæta á aðal-
fundinn og láta í okkur heyra,"
sagði Konráð Eggertsson.
Ekki hcfur enn verið ákveðið
hvenær aðalfundurinn verður
haldinn. Verið er að yfirfara
reikninga félagsins, en upp
komst um fjármálamisferli fram-
kvæmdastjórans rétt fyrir aðal-
fund sem halda átti í lok maí sl.
Hann var þá látinn hætta störf-
um en mun vera komin til starfa
að einhverju leyti á ný. - S.DÓR
Fyrirheitna
landið
Forseti íslands, herra Ólafur Ragnar
Grímsson, fær leiðsögn á sýningunni
„Fyrirheitna landið" í Frændgarði, nýju
húsi 1/esturfarasetursins á Hofsósi, frá
David Ashby, fulltrúa íslenska samfélags-
ins í Utah. Sýningin, var opnuð á Hofsósi
sl. mánudag og fjallar um fyrstu kynni
íslenskra mormóna af búsetu í Vestur-
heimi. Við hlið Ólafs eru Valgeir Þorvalds-
son, frumkvöðull framkvæmda á Hofsósi,
og kona hans, Guðrún Þorvaldsdóttir.
mynd: feykir/þóhallur ásmundsson.
Truboðar léttir í lirnd
Það var léttyfir fulltrúum trúfélaganna utan þjóðkirkjunnar þegar þeir
gengu til messu sinnar á Lögbergi á Kristnihátíðinni á Þingvöllum. Fremst-
ir í flokki meðal jafningja voru þeir Snorri Óskarsson í Betel og Gunnar
Þorsteinsson í Krossinum. Þeir mótmæltu harðlega þeim áformum að
söfnuðir þeirra fengju aðstöðu i Hestagjá á hátíðinni og eftir sérstakt
samkomulag fengu þeir að messa á besta stað. Eða eins og Gunnar i
Krossinum orðaði það í viðtali í Degi í síðustu viku að þeir voru færðir „frá
hommunum í Hestagjá yfir á þingpallinn hjá forsætisráðherra." mynd: gva.
Miðborgargötum lokað
Borgarráð hefur samþykkt erindi miðborgarstjórnar um að loka hluta
miðborgarinnar fyrir bílaumferð á laugardögum. Þessi tilraun á að
koma til framkvæmda í þessum mánuði og standa fram í næsta mán-
uð, eða fram yfir menningarnóttina sem verður þann 19. ágúst n.k.
Þarna er um að ræða Laugaveg frá Hlemmi, Bankastræti, Austur-
stræti, hluta Skólavörðustígs, Aðalstræti og Pósthússtræti. Borgarráö
hefur jafnframt beint þeim tilmælum til lögreglustjórans í Reykjavík
að hann loki þessurn götum í sumar í samráði við framkvæmdastjóra
miðborgarinnar og Þróunarfélagsins á meðan þcssari tilraun stendur.
Með þessari tilraun á að minnka bílaumferð í miðborginni og draga
úr rnengun. Fyrirmyndin að þessu er m.a. sótt til Bretlands þar sem í
vaxandi mæli er farið að loka eða takmarka bílaumferð urn þarlendar
miðhorgir. I viðræðum við hagsmunaaðila í miðborginni komu hins-
vegar fram skiptar skoðanir á því hversu víðtækar þessar lokanir á
bílaumferð ættu að vera. - GRH