Dagur - 05.07.2000, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGU R S. JÚLÍ 2000 - 9
IÞROTTIR
Það besta og versta
Hollendingurinn Frank de Boer hlýtur titilinn „versta vítaskyttan" eftir aö hafa
klúðrað tveimur vitum gegn ítölum.
Frakkar áttu án efa besta liðið í keppninni og hér fagnar Didier
Deschamps fyrirliði þeirra Evrópumeistaratitlinum.
Eftir að keppni laiik á
EURO-2000 hafa
knattspymuspekmgar
víða um Evrópu keppst
við að meta árangur
liða og leikmanna á
mótinu og sýnist þar
sitt hveijum. Þessi
samantekt hér á eftir
sýnir hvað simium þyk-
ir hafa farið hest og
verst í því helsta sem
þykir skipta máli í
slíkum keppnum.
Mest speiuiandi leikuriim
Leikur Spánverja gegn Júgóslöv-
um í riðlakeppninni, þar sem
Spánveijar unnu 4-3 sigur á Júgg-
um, eftir að hafa verið 3-2 undir
mínútu fyrir leikslok hlýtur að telj-
ast sá mest spennandi í keppninni.
Leikurinn réði úrslitum um það
hvort Iiðið kæmist áfrarn í 8-liða
úrslitin og eftir að hafa orðið þris-
var sinnum undir í leiknum tókst
Spánveijum á undraverðan hátt að
tryggja sér sigurinn með tveimur
mörkum á síðustu mínútum við-
bótartíma.
Leiðinlegasti leikurmn
Leiðinlegasti leikur keppninnar
var eflaust markalaus leikur Svía
og Tyrkja, þar sem ekkert var að
gerast í heilar 90 mínútur. Hreint
út sagt hundleiðinlegur leikur sem
allir vilja gleyma.
Glæsilegasta innkoman
Júgóslavar eiga án efa heiðurinn
að bestu innkomunni á mótinu,
þegar þeir náðu að jafna leikinn
gegn Slóvenum eftir að Sinisa
Mihajlovic hafði verið rekinn af
leikvelli í stöðunni 0-3. Þrátt fyrir
það tókst Júgóslövum að skora
þijú mörk á sjö mínútna leikkafla
og jafha í 3-3.
Mestu vonbrigðin
0-2 tap Belga gegn Tyrkjum eru ef-
laust mest svekkjandi úrslitin í
riðlakeppninni. Belgar þurftu að-
eins jafntefli til að komast í 8-liða
úrslitin, en Tyrkir sem aldrei áður
höfðu unnið leik í úrslitum Evr-
ópukeppni náðu að sigra og kom-
ast áffam.
Besta ntarkið
Besta mark keppninnar er án efa
mark Portúgalans Luis Figo sem
hann gerði í 3-2 sigrinum gegn
Englandi, þegar hann náði hörku-
skoti í gegnum klofið á Tony Ad-
ams beint í vinkilinn, óverjandi
fyrir enska markvörðinn. Aðdrag-
andinn var heldur ekki til að
skemma fyrir, auk þess sem mark-
ið skipti sköpum í leiknum, því
Englendingar höfðu þá náð 2-0
forystu.
Undarlegasta niarkið
Fyrsta mark Rúmena í 3-2 sigur-
leiknum gegn Englendingum, sem
Christian Chivu skoraði verður að
teljast undarlegasta mark keppn-
innar. Fyrirgjöf Chivus lenti í
stönginni fjær og rúllaði þaðan yfir
marklínuna.
Besta iiuiáskiptingin
Besta innáskiptingin í keppninni
hlýtur að vera ákvörðun Roger
Lemerre, þjálfara Frakka, að senda
þá Sylvain Wiltord, David
Trezeguet og Robert Pires inn í úr-
slitaleiknum gegn Itölum í stöð-
unni 0-1 fyrir ítala. Wiltord skor-
aði jöfnunarmarkið í viðbótartíma,
en Pires átti sendinguna á
Trezeguet þegar hann skoraði sig-
urmarkið í framlengingunni.
Ljótasta brotið
Flestir ef ekki allir hljóta að vera
sammála um það að fólskubrot
Rúmenans Gheorghe Hagis á ítal-
anum Antonio Conte í 8-liða úrslit-
unum, hljóti að vera það ljótasta í
keppninni. Hagi fékk þó aðeins að
Ifta gula spjaldið, en fékk síðan
sem betur fer að h'ta það rauða
nokkru seinna. Conte lá óvígur eft-
ir með alvarleg meiðsl, sem von-
andi batna með tímanum.
Besta vítaskyttan
Vítaspyma Zidanes, þegar hann
skoraði sigurmarkið, gullmarkið,
gegn Portúgölum í undanúrslitun-
um var óaðfinnanleg. Þrátt fyrir
fimm mínútna þref Portúgala við
línuvörð og dómara leiksins áður
en Zidane gafst tækifæri til að taka
spymuna, mætti hann yfirvegaður
á punktinn og skaut hnitmiðuðu
skoti efst í vinstra hornið. Full-
komin vítaspyrna.
Besta vítið
Þrátt fyrir þessa fullkomnu víta-
spyrnu Zidanes, verður ítalinn
Francesco Totti að fá prik fyrir vít-
ið sem hann skoraði úr gegn Hol-
lendingum í vítaspyrnukeppni
undanúrslitaleiksins fræga sem
Hollendingar klúðruðu. Totti
skaut beint á markið í gegnum Ed-
win van der Sar, sem átti ekki von
á þessu kuldalega víti frá Italan-
um.
Versta vítaskyttan
Hollendingurinn Frank de Boer
hlýtur titilinn „versta vítaskyttan“
eftir að hafa klúðrað tveimur vít-
um í undanúrslitunum gegn Itöl-
um. Fyrst í venjulegum leiktíma og
síðan í vítaspyrnukeppninni, en
Francesco Toldo, markvörður ítala
varði frá honum í bæði skiptin.
Lélegasta vitð
Lélegasta víti keppninnar flokkast
á Hollendinginn Jaap Stam, sem
skaut himinhátt yfir markið í víta-
spymukeppninni gegn Itölum.
Besti vítabaniim
Vítabani keppninnar hlýtur að
vera Italinn Francesco Toldo, sem
varði þijú víti í margnefndum und-
anúrslitaleik gegn Hollendingum.
Tvö áðurnefnd frá Frank de Boer
og það þriðja frá Paul Bosvelt.
Besti leikniaðurinn
fyrir utan Zidane
Þar sem Zidane leikur á annari
plánetu veljum við Portúgalann
Luis Figo, sem leikmann mótsins,
svo Zidane vinni ekki allt., sem
væri ósanngjarnt. Figo sannaði sig
með Portúgölum sem firamúrskar-
andi leikstjórnanda, vinnuhest og
mikla skyttu.
Lélegasta frammistaðan
Þegar kemur að þessum titli er
erfitt að velja, en að athuguðu
máli, kemur Júgóslavinn Sinisa
Mihajlovic vel til greina. Þessi
sterki varnarmaður, sem Ieikur
með Italska liðinu Lazio lék langt
undir getu og þá þijá leiki sem
hann lék í vöminni hjá Júgóslöv-
um láku þrettán mörk í gegnum
mígleka vörnina. Aðeins í leiknum
gegn Norðmönnum tókst
Júgóslövum að halda hreinu, en þá
var Mihajlovi í fríi, þar sem hann
fékk að líta rauða spjaldið gegn
Slóveníu.
Mesta glappaskotið
Belgíski markvörðurinn, Filip de
Wilde, hlýtur heiðurinn af því að
hafa gert mesta glappaskotið í leik,
þegar hann steig á boltann og datt
í leiknum gegn Svíum. Johan
Mjallby náði þá af honurn boltan-
um og skoraði eitt auðveldasta
mark keppninnar. De Wilde, á Iíka
næst mesta glappaskotið, þegar
hann braut klaufalega af sér gegn
Tyrkjum og var rekinn útaf lyrir
vikið.
Neyðarlegasta markvarslan
Heiðurinn að henni á Þjóðverjinn
Oliver Kahn sem mistókst að grípa
knöttinn eftir skot Portúgalans
Sergio Conceicao í Ieik sem Portú-
galar unnu 3-0.
Besta fxanunistaða varaliðs
Þegar Portúgalir stilltu upp hálf-
gerðu varaliði gegn Þjóðverjum og
unnu þá 3-0, þar sem Conceicao
skoraði þrennu fyrir Portúgal.
Mesta ævintýraliðið
Hollendingar eiga skilinn heiður-
inn af því að eiga mesta ævintýra-
liðið í keppninni. Unnu fyrst Dani
3-0 og síðan Frakka með sama
mun, áður en þeir unnu Júgóslava
6-0.
Minnsta ævintýraliðið
Þann titil hljóta Norðmenn, sem
skoruðu aðeins einu sinni í keppn-
inni í þremur leikjum og var lítil
eftirsjá af þeim heim eftir riðla-
keppnina.
Mestu aulamir
Englendingar hljóta þann titil fyrir
að missa niður 2-0 forystu gegn
Portúgölum og síðan 2-1 forystu
gegn Rúmenum. Þeir töpuðu báð-
um leikjunum 3-2.
Mesta samúðarliðið
Slóvenar fá mesta samúð allra liða
í keppninni og eignuðust marga
aðdáendur eftir sína fyrstu stór-
keppni eftir góða, óvænta frami-
stöðu og jafnteflin gegn Norð-
mönnum og Júgóslövum.
Óheppnasta liðið
Oheppnasta liðið í keppninni var
án efa lið Tékka, sem komust alla
lcið í úrslitaleik síðustu keppni á
undan. Þeir voru með eitt af fimm
bestu liðunum í keppninni, en
drógust í afar sterkan riðil með
Frökkunt og Hollendingum og
tókst ekki að komast áfram. Ekki
má heldur gleyma Dönum sem
léku í sama riðli og Tékkar.
Mesta stjömuhrapið
Þjóðverjinn Lothar Matthaeus
varð fyrir valinu að þessu sinni, en
hann lék fyrst í úrslitum Evrópu-
keppninnar árið 1980. Á 39. ald-
ursári var hann greinlega of svifa-
seinn og skilaði því engu fyrir liðið
eða sjálfan sig ef frá er talið að
hann lék sinn 150. Iandsleik í
keppninni og setti þar með heims-
met.
Versta hegðun áhangenda
Þennan titil vinna Englendingar
með stæl í öllum sínum leiðind-
um, þegar þeir gerðu allt vitlaust
fyrir, í og eftir leikinn gegn Þjóð-
veijum.
Versta hegðun liðs
Þann titil vinna Portúgalir eftir
mótmælin í undanúrslitaleiknum
gegn Frökkum, þar sem þeir veitt-
ust að öðrum línuverði leiksins,
sem hafði flaggað umdeilda víta-
spyrnu á Abel Xavier fyrir að
handleika knöttinn. Þeir Abel Xa-
vier og Nuno Gomes, sem fengu
að líta rauða spjaldið eftir leik, fá
báðir þunga refsingu hjá aganefnd
UEFA, auk Paul Bento sem einnig
hafði sig mikið í fr-ammi.
Iiðið sem erfiðast var að finna
Tyrkir hljóta þann titil, en þeir
voru alla keppnina í fjölmiðla-
banni og í felum fyrir pressunni og
breyttu sífellt boðuðum tíma á
blaðamannafundum, sem gerði
mörgum lífið leitt.
Draniatiskasta uppsögnin
Uppsögn Frank Rijkaard, þjálfara
Hollendinga er án efa dramatís-
kasta uppsögn nokkurs þjálfara
eftir keppnina. Hann tók þá
ákvörðun og tilkynnti hana án þess
að tala við leikmenn Iiðsins, þegar
það sleikti sárin eftir tapið gegn
Itölum í undanúrslitunum.
Mestu fjöliniðlainistökin
Hollenska sjónvarpið gerði mestu
fjölmiðlamistökin þegar þeir
gleymdu að spyrja Rijkaard hvað
hann hyggðist gera eftir tapið geg/
ítölum. Rijkaard fór beint úr við
talinu hjá sjónvarpinu í útvarpsvið-
tal, þar scm hann tilkynnti um
uppsögn sína.
Ákveðnasti dómarinn
Þann titil hlýtur sköllótti Italinn
Pierluigi Collina með útstæðu
augun, sem aldrei hlustar á neitt
kjaftæði. Hann er ein af stjömum
keppninnar.